Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
33
DV
jynir sér ekki, giæsiieikinn, þar sem fákurinn rennir skeiðið.
DV-mynd Eiríkur Jónsson
ppreiðar Fáks:
g veðurfár á
;appreiðum
tiellið ekki á sig fa
með 8,83 í einkunn og ísak þá ótrúlegu
einkunn 9,13. Dómarar höfðu farið ham-
förum um dómaraskalann. Til dæmis
gaf einn dómari ísak 10,00 fyrir hratt
tölt og 9,9 fyrir brokk. Dómarar voru
þrír og fékk ísak 9,47 að meðaltali fyrir
hratt tölt.
Þeir fimm hestar, sem komust í úrslit,
voru ísak Guðmundar Jóhannssonar,
sem Gunnar Amarson sat, með 9,13 í
einkunn; Fálki, sem Sigurbjörn Bárðar-
son á og sýndi, fékk 8,73 í einkunn;
Kjarni, sem Sævar Haraldsson á og
sýndi, fékk 8,73 í einkunn. Hrafnhetta,
sem Guðmundur Harðarson á og sýndi,
fékk 8,58 í einkunn og Gauti, sem Sigur-
bjöm Bárðarson á en Maaike Burggra-
fer sýndi, fékk 8,58 í einkunn. Stelkur,
sem varð í sjötta sæti, fékk 8,57 í ein-
kunn en það dugði ekki til að komast í'
úrsht. Sú einkunn hefði nægt til sigurs
á flestum mótum í landinu. Af fjörutíu
dæmdum hestum fengu 28 hestar 8,00
eða meira en 21 hestur 8,30 eða meira.
Hestur í 10. sæti fékk 8,44.
Eftir úrslit á mánudaginn var röð efstu
hesta þessi: ísak, Kjarni, Fálki, Hrafn-
hetta og Gauti. ísak er þriöji hesturinn
sem Gunnar Amarson kemur í efsta
sæti hjá Fáki. Hann stóð þrisvar sinnum
efstur með Sölva í B-flokki og tvisvar
sinnum með Glæsi.
Jöfnuöur meiri hjá A-flokki
Eftir geysilegt einkunnafár á fimmtu-
daginn kom einkunnalogn á föstudaginn
er A-flokks hestamir voru dæmdir. B-
flokks hestar eiga auðveldara með að fá
háar einkunnir því skeið er oft ekki
dæmt sem skyldi. Finnst mér oft sem
skeiðeinkunnir séu of jafnar og að gott
skeið og slæmt fái of svipaða dóma.
Spenna hélst í A-flokki allt til enda. Þeg-
ar dómum lauk seint á föstudagskvöld
stóð efstur Dagfari þeirra Kristins
Skúlasonar og Davíðs Matthíassonar
meö 8,41 í einkunn, en Reynir Aðal-
steinsson sýndi Dagfara. Tinni, sem Sig-
valdi Ægisson á og sýndi, var annar
með 8,40, Orri, sem Elísabet Reinharðs-
dóttir á en Sigvaldi sýndi einnig, var
þriðji með 8,33, Sindri, „em Sigurbjöm
Bárðarson á og sýndi, var fjórði með
8,30 og Hrafntinna, sem Þórdís E. Gunn-
arsdóttir á en Gunnar Amarson sýndi,
var fimmta með 8,27.
Úrslitakeppni var mjög spennandi og
jöfn. Tinni komst upp fyrir Dagfara sem
varð annar, Sindri varð þriðji, Orri
fjórði og Hrafntinna fimmta. EJ
íþróttir
Góðhestakeppni Gusts:
Veisla í kappreiða stað
- Kjóavellimir ónýtir Gusturum
Góðhestakeppni og kappreiðar
hestamannafélágsins Gusts í
Kópavogi hafa yfirleitt tekið tvo
daga. Dómar gæðinga taka einn
dag en kappreiðar og verðlauna-
afhendingar annan. Nú er svo
komið hjá Gusturum að kapp-
reiðavöllurinn þeirra á Kjóavöll-
um er ónýtur vegna bílaumferð-
ar. Kappreiðum var því sleppt í
ár en efnt til mikillar grillveislu
í félagsheimilinu.
Gæðingarnir voru dæmdir
laugardaginn fyrir hvítasunnu í
afleitu veðri. í B-flokki stóð efstur
Stígandi Arnar Þorvaldssonar
með 8,24 í einkunn. Friðfinnur
Hilmarsson var knapi. Gola Karls
Benediktssonar var í öðru sæti
með 8,20 og var knapinn Örn
Karlsson. Stígandi sem Jón Gísli
Þorkelsson á og sýndi var þriðji
með 8,11 í einkunn.
í A-flokki varð efstur Þór Har-
aldar Sigurgeirssonar með 8,13 í
einkunn. Hinrik Bragason var
knapi. Hæringur, sem Bjarni Sig-
urðsson á og sýndi, var annar
með 7,94 en Þristur Björns Sig-
urðssonar, sem Öm Karlsson
sýndi, var þriðji með 7,91 í ein-
kunn.
Gustarar verðlauna umhyggju
og tamningu unghrossa og að
þessu sinni stóð efst Fluga Leifs
Eiríkssonar sem Sigurjón Gylfa-
son sýndi. Galsi, sem Bjarni Sig-
urðsson á og sýndi, var í öðru
sæti og Sókron Helgu R. Júlíus-
dóttur, sem Sturla Snorrason
sýndi, var í þriðja sæti.
Börn og unglingar fengu einnig
gæðinga sína dæmda. Þar sem
knapinn er einnig dæmdur fyrir
ásetu og taumhald fær hann ein-
kunnina á sig.. Svanur Aron
Svanssonar varð efstur í bama-
flokki á Fána með 7,80 en eigandi
var Lárus Svansson. Erla Hrönn
Geirsdóttir var önnur á Buslu
með 7,62 og Arna Valdís Kristj-
ánsdóttir var þriðja á Gusti méð
7,41 i einkunn.
í unglingaflokki sigraði Halldór
Gunnar Victorsson á Herði sín-
um og fékk 8,37 í einkunn. Grett-
ir Kjartansson var annar með
8,00 og keppti á Tvífara Margrét-
ar Grettisdóttur. Steingrímur
Sigurðsson var þriðji með 7,91 í
einkunn og sýndi Dag, Leifs Ei-
ríkssonar.
-EJ
Gustarar veita verðlaun fyrir unghross i tamningu. Sigurjón Gylfa-
son, Flugu, Bjarni Sigurðsson, Galsa og Sturla Snorrason, Sókron.
DV-mynd KH
Tóltkeppnin:
Tvísýnt í töltkeppninni
Auk hinna hefðbundnu keppnis- Sigurbjöm Bárðarson vann tölt- fjórði á Kráku-Stíg og Ragnar Pet-
atriða hefur verið tekið upp á því keppnina á hvítasunnukappreið- ersen fimmti á Stelk. Ragnar var
að keppa í tölti á hvítasunnukapp- um á Brjáni en Sævar Haraldsson óheppinn í úrslitum. Hann keppti
reiöum Fáks. íþróttakeppnina á Kjarna. Að í úrslitum með hesta sem vora í
Þegar að íþróttakeppni Fáks hef- þessu sinni sigraöi Sævar Haralds- 6.-10. sæti í B flokki og þá fóru tvær
ur farið fram þá eiga þeir tvo tölt- son með Kjama og komst þar með skeifur undan Stelki og í úrslitum
meistara, það er að segja ef sami upp fyrir Gunnar Arnarson með ítöltkeppninnifóreinskeifaundan
maöurinn sigrar ekki í báöum ísaksemvanefstasætieftirdóma. þannig að hann varð að draga sig
keppnum. Sigurbjörn Bárðarson var þriöji í hlé.
Þannig var það í fyrrasumar er á Fálka, Sigurður Marínusson
Frá hægri: Róbert, Sigurður, Daníel, Edda Rún og Gísli
Geir.
DV-mynd Eiríkur Jónsson
Keppendur í barnaflokki voru margir hverjir vel ríöandi.
Ekki er ólíklegt að knapar á efstu hestum hefðu fengið
jafnháar einkunnir í flokki fullorðinna og blandað sér í
toppbaráttuna. Hér eru sigurvegarar í barnaflokki sitj-
andi á sigurhrossunum.
Merkingar
á glös og postulin
—yfeitiiTsf-
Bíldshöfða 18.sími 688838
Borðbúnaður
fyrir veitingahus.
Allt á einum stað.
Glös eða postulín.
Merkt eða ómerkt.