Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Blaðsíða 3
3 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. .Fréttir Síbrotamaður dæmdur í átta mánaða fangelsi: Stal fjórtán þús- und lyfjatöflum DV Móbnæla setu í verðlagsráði Almennur fundur hjá Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Bylgjunni á ísafirði, sem haldinn var að Hótel ísafirði i fyrrakvöld, mótmælti harölega setu fulltrúa Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands í Verðlagsráði sjáv- arútvegsins. í samþykkt fimdarins segir að með því sé verið að grafa undan sjómannasamtökunum og koma í veg fyrir að sjómenn geti sam- einast „til vamar því kjararáni, sem yfir okkur heftn- duniö á undaníömum misserum. Ljóst er aö þeir sjómenn, sem fá greitt eftir verölagsráðsverði, hafa dregist 'aftur úr í launum allt að 30% sé miðað við framfærsluvísi- tölu á meðan aðrar stéttir hafa fengið kíarabætur allt að 24% umfram framfærsluvísitölu". Þjóðhátíðarsam- koma í Colorado Aima Bjamason, DV, Denver Tæplega eitt hundrað íslend- ingar í Colorado komu saraan til aö minnast þjóðhátíðardagsins á laugardaginn á útivistarsvæði í Dear Creek Lake Park við rætur Klettafjallanna rétt vestan við Denver. Boðið var upp á rammis- lenskar veitingar, hangikjöt og flatkökur, sem Kjötmiðstöðin gaf félaginu og ekta afipylsur frá Síld og fiski, einnig gjöf til félagsins frá íyrirtækinu. Voru þessi fyrir- tæki hyllt sérstaklega af gestum og runnu veitingamar fiúilega niður. Þá voru einnig á borðum harðfiskur og kleinur. Ræöur vom fiuttar, íslenskir söngvar sungnir og börn og fufi- orðnir bmgðu sér i leiki. Þá var happdrætti og vinningar gjafir frá ýmsum fyrirtækjum, Sam- bandinu, íslenskum matvælum, Hildu og einkaaðilum. Stjómarskipti í félaginu fóm fram á hátíöinni. Fráfarandi formaður er Aníta Patterson og meðstjómendur Anna Vincens og Helga McCarthy. Við tóku þrjú systkini. Formaður var kjörinn Asgeir Hjelm jr., sem búsettur er í Colorado Spring, og systur hans tvær, Emílía og Bryndís. Algjor bytting Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Þetta er algjör bylting, enda um að ræða fyrsta árið sem unn- ið er eftir nýrri flugmálaáætlun. Það lætur sennilega nærri aö unniö verði á árinu á Norður- landi fyrir um 80% þeirrar upp- hæöar sem áöur fór til allra flug- mála í landinu," segir Rúnar Sig- mundsson, umdæmisstjóri Flug- málastjómar á Norðurlandi. Rúnar sagði að raestar fram- kvæmdir verði á Akureyri. Þar á að fullgera öryggissvæði með- fram flugbrautinni, um 50 metra breitt svæði sitt hvorum megin brautarinnar, en verkið verður boðið út á næstunni. Þá er einnig áformað aö stækka flugvélapla- niö fyrir framan flugstöðina og enduraýja aöflugsradar á Akur- eyri. Á Húsavíkurflugvelfi á aö full- gera öryggissvæði meðfram flug- braut. I Mývatnssveit var hafist handa á síðasta ári við gerö flug- brautar og i haust er reiknað með að ljúka gerð brautar sem veröur um 800 metra löng. Rúnar sagði að þessa dagana væri veriö að vinna við útboð á flugstöð á Sauðárkróksvelfi. Um er að ræða 200-250 fermetra bygg- ingu og eráætlað að Ijúka smíði hennar um næstu áramót. Þá verður í sumar hafin bygging flugstöðvar á Blönduósi. Síbrotamaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa brotist inn í Garðsapótek og stolið þaðan 14.400 lyfjatöflum, þar af 1.363 töflum af amfetamíni. Þáð var aðfaranótt þriðjudagsins 3. mars 1987 sem innbrotið var fram- ið. Sjö vikum síöar var maðurinn handtekinn og úrskuröaður í gæslu- varðhald. Lögreglunni var tilkynnt um að sést hefði til manns fara inn um glugga á íbúð í húsi við Berg- staðastræti. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn sofandi í sófa í stofu íbúðarinnar. Húsmóðirin kvaðst ekkert kannast við manninn og ekki hafa vitaö til að hann væri í íbúð sinni. Síbrotamaðurinn taldi sig hafa gist íbúðina með leyfi eigin- manns konunnar. Við handtökuna fannst í fórum mannsins krakka með 1.642 lyfjatöfl- um, sem eingöngu eru afgreiddar í apótekum samkvæmt tilvísun lækna, mest af valium og diazepam. Sá handtekni kvaðst hafa keypt lyfin af grænlenskum togarasjómönnum. Við nánari rannsókn kom fram að saga mannsins stóðst hvergi. Við svo búið var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald. Um sjö mánuðum siðar, eða í des- ember 1987, er maðurinn afplánaði refsivist á Litla-Hrauni fundust í fór- um hans og fleiri fanga, svo og á ýmsum stööum í fangelsinu, 655 töfl- ur af gerðinni klórdíazepoxið, diaz- epam og mogadon. Við yfirheyrslur játaði maðurinn að hafa brotist inn í Garösapótek. Þá vísaði hann lög- reglunni á 1.057 lyfjatöflur sem hann hafði falið á eyðibýli í Vestur-Húna- vatnssýslu. Þar fundust einnig 5 ampúlur af róandi stungulyfjum. Langur afbrotaferill Maðurinn var einn við innbrotið. Hann hafði komist inn í kjallara hússins og brotið þar upp rennihurö, en hurðin var læst aftur með keðju og hengilás. Hann braut einnig upp þrjár hurðir í kjallaranum og vann þar nokkrar skemmdir. Eftir að hann komst upp á 1. hæð hússins braut hann niöur-skynjara í þjófavarna- kerfi og sleit rafleiðslur úr tenging- um og gerði kerfiö óvirkt. Járnskúff- ur, sem innihéldu lyfin, og fleiri geymslur spennti maðurinn upp og stal eins og áður sagði 14.400 lyfjatöfl- um. Þessi síbrotamaður á langan af- brotaferil að baki. Á átján árum hef- ur hann hlotið 31 refsidóm, þar af 27 vegna hegningarlagabrota, aðallega vegna þjófnaðar- og skjalafalsbrota. Samtals hefur hann hlotið átta ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir af- brotin. Auk þeirra brota hefur mað- urinn fimm sinnum gengist undir dómsátt fyrir umferðar- áfengislaga- ogfikniefnabrot. -sme ST0RK0STLEG FRETT fyrir eigendur örbylgjuofna grspntv'"1'l! 1(00" Kynningarverð kr. 1.960,- Nú geturðu matreitt kjúklinga, læri og svinakjöt i örbylgjuofninum og fengið fallega, stökka brúningu á kjötið. Gúður íslenskur leiðarvisir fylgir. Kynnist töfrapottinum hjá okkur. Útsölustaðir úti á landi: KEA, Járn og gler, Akureyri Kaupfélag Straumur, Ísafirði Stapafell, Keflavik KASK, Höfn, Djúpavogi Kjarni, Vestmannaeyjum Sigurjón Árnason, Vopnafirði Kaupfélag Kaupfélag Kaupfélag Kaupfélag Kaupfélag Kaupfélag Héraðsbúa, Vopnafirði Héraðsbúa, Seyðisfirði Héraðsbúa, Egilsstöðum Rangæinga, Hvolsvelli Rangæinga, Rauðalæk Árnesinga, Selfossi Þingeyinga, Húsavik t Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLAST/EÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.