Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Timothy
Dalton
sem býr nú með Vanessu
Redgrave, lenti í slagsmálum við
mann sem ofsótt hefur hjúin að
undanfomu. Réðist maöurinn á
parið er þau komu út úr leikhúsi
í London, og hafði hann uppi hót-
anir. Tim sýndi þá kauða að eit-
hvað hafði haxm lært á því að
leika James Bond og gaf honum
einn á kjammann. Lögreglan var
svo kölluð til, en þá hafði maöur-
inn fyrir löngu forðaö sér.
Frank
Sinatra
kenndi svo i brjósti um 67 ára
gamla ömmu, sem barin hafði
verið niður á heimiii sínu af inn-
brotsþjófum, að hann sendi henni
24 rósir og álitlega upphæð í pen-
ingum. Frank vorkenndi þó Dean
Martin ekki eins mikiö, þegar sá
síðastnefndi hætti viö að fara í
tónleikaferö með honum og
Sammy Davis Jr. Taldi Dean sig
of veikan tU að standa í svona
löguöu. Hann sást þó skömmu
síðar í besta skapi í veislu.
Ronald
Reagan
verður nú að teljast með hjátrú-
arfyllri mönnum. Ekki er langt
síðan að það fréttist aö þau hjón-
in fylgdu út í æsar því sem
stjömuspekingar þeirra segðu.
Og það nýjasta er að hann lét
breyta númerinu á húsinu sem
þau munu búa í eftir að hann
lætur af embætti. Númerið á hús-
inu var nefnUega 666, sem er tákn
fyrir djöfulinn, og var þvi á
stimdiimi breytt í 668.
Bamabami Mussolinis
boðið hlutverk í Dallas
JR á von á góöum fréttum, því ít-
ölsku leikkonunni Alessöndru Muss-
olini hefur verið boðið að leika nýj-
ustu ástkonu hans í Dallas, og gera
menn sér vonir um að það muni auka
vinsældir þáttanna.
Alessandra, sem er bamabam
Mussohnis, er þó ekki eina leikkonan
í ættinni, því að frænka hennar er
engin önnur en sjálf Sophia Loren.
En samkvæmt því sem Alessandra
segir þá hefur sá skyldleiki lítið kom-
ið aö notum.
Hún segir Sophiu neita algjörlega
að gefa sér góð ráð og þvemeita að
hjálpa sér á nokkum hátt, samt seg-
ist hún dá frænku sína bæði sem leik-
konu og sem manneskju.
Hún er sjálfsagt bara afbrýðisöm
út í mig af því ég er ung, sagði Aless-
andra um frænku sína, en bætti við
að sú afbrýði væri ástæöulaus því
Sophia væri ennþá mjög falleg kona.
Með eða án hjálpar frænku sinnar,
ætlar Alessandra sér svo sannarlega
að slá í gegn í Dallas.
Larry Hagman (JR) ætti ekki að hafa neitt á móti því að leika á móti barna-
barni Mussolinis, henni Alessöndru Mussolini.
Eddie Murphy er nú yfir sig ástfanginn af mótleikara sinum úr myndinni
Coming to America.
Samkvæmt nýlegri skoðanna-
könnun njóta kvennalistakonur
mikUs fylgis meðal þjóðarinnar og
sýnir þaö best h versu vel íslending-
ar hafa tekið þessu séríslenska fyr-
irbæri sem Kvennalistinn er. Hafa
útlendingar oft dáðst að þessari
ffamtakssemi íslenskra kvenna og
hefur hróður Kvennalistans borist
víöa inn lönd.
í lok maímánaöar efndu kvenna-
listakonur á Vesturlandi til þriggja
daga ráðstefiiu um atvinnu- og
byggöamál fi*á sjónarhóU kvenna.
Var ráöstefnan haldin á Hvanneyri
og var að henni staðið af miklum
myndarskap og með sóma.
Meðal þeirra sem töluðu á þess-
ari ráðstefhu voru Sigurður Guö-
mundsson frá Byggðastofnun, sem
lýsti ástandinu í byggðamálum, og
Sigrún Jóhannsdóttir á Bifröst sem
talaði um hvernig konur annars
staðar á Norðurlöndunum hafa
orðið virkari í ákvarðanatöku um
atvinnu- og byggöamál. Það varö
Ijóst aö þessi mál brunnu mjög á
konum. Einnig töluðu Sigríður
Sigriöur Dúna Kristmundsdóttir var meðal ræðumanna ráðstefnunnar á
Hvanneyri.
Dúna Kristmundsdóttir, Guðný
Guðbjömsdóttir og Þórir Jökull
Þorsteinsson.
Konumar skiptu sér svo niöur í
starfshópa og komu upp um 200
hugmyndir um hvernig konur
gætu orðið virkari á þessu sviði og
ráðið meiru um sín mál. Komu
konurnar ur öllum kjördæmum og
vom sumar komnar langt aö.
Eddie Murphy
ástfanginn
Eddie Murphy er nú ástfanginn upp
fyrir höfuð. Sú sem á hug hans og
hjarta þessa dagana heitir Shari He-
adley, er nítján ára og leikur á móti
honum í nýjustu mynd hans, Coming
to America.
í myndinni leikur Eddie afrískan
prins sem kemur til Bandaríkjanna
í eiginkonuleit. Leit hans að réttri
leikkonu í hlutverkið varð víst svip-
uð og leit prinsins að konuefni. Hann
valdi Shari úr hópi 100 annarra
stúlkna, og er sagt að Eddie hafi vitað
það strax þegar hann leit hana aug-
um að hún var sú rétta í hlutverkið.
Hann er nú svo langt leiddur að
hann bað Shari um aö flytja inn í
villuna sína, og þykir það gefa til
kynna að hann sé alveg í skýjunum
því hann hefur aldrei beðið neina um
að flytja inn til sín áður, þar sem
hann hefur ekki viljað hætta að lifa
því glaumgosalífi sem hann hefur lif-
að.
Shari hefur því fiust inn til Eddie,
þó að hún þurfi að deila húsinu með
hinum fjölmörgu lífvörðum hans og
bróður hans. Það er þó engin hætta
á að þeir verði á vegi hennar, því þau
Eddie hafa heila álmu út af fyrir sig.
Parið fer svo saman í vinnuna á
morgnana í glæsivagni einum, og þá
daga sem Shari þarf ekki að vinna
þá hringir Eddie í hana oft á dag.
Eddie sagði aö honum liði eins og
hann væri giftur og að hann hefði
hreint ekkert á móti þeirri tilfmn-
ingu, því hann væri hamingjusam-
asti maður í heimi. Shari, aftur á
móti, sagði að hún að hefði aldrei
trúað að hún ætti eftir að verða
svona ástfangin. Það munar ekki um
það!
Shari Headley heitir hún, heillin sem
heillað hefur Eddie upp úr skónum.
Helga Jóhannsdóttir og Kristin Halldórsdóttir fyigdust með því af at-
hygli sem fram fór.
Það var góð þátttaka á Hvanneyri og voru sumar kvennanna komnar
langt að.