Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNl 1988.
29
Neytendur
Lífsstfll
1. Shell við Birkimel.
2. Esso við Ægisíðu.
3. Olís við Ánanaust.
4. Shell, Laugavegi 180.
5. Esso, Borgartúni.
6. Shell, Kleppsvegi.
7. Shell, Æsufelli.
8. Esso, Skógarseli
9. Olís, Álfabakka.
10. Esso, Stóragerði.
11. Olís, Álfheimum við Suðurlandsbraut.
12. Esso, Ártúnshöfða, sunnan megin.
DV kannar bílaþvottaplön í Reykjavík:
13. Esso, Ártúnshöfða, norðan megin.
14. Sheli við Vesturlandsveg.
15. Shell í Hraunbæ.
16. Olís, Háaleitisbraut.
17. Shell, Skógarhlíð.
18. Esso, Fossvogi.
Bensínstöðvar Reykjavíkur eru
hver annarri íburðarmeiri. Því mið-
ur er ekki sömu sögu að segja um
bílaþvottaplönin sem við þær eru.
Þar virðist oft sparað þá síst skyldi.
Að slöngur séu of stuttar, illa festar
við kústa, eða að kústar séu fuilir af
tjöru er allt of algengt. Þó eru frá
þessu nokkrar ánægjulegar undan-
tekningar.
DV kannaði aðstöðu á 18 bíla-
þvottaplönum í Reykjavík. Af þess-
um plönum var aðeins eitt mjög gott,
en þrjú reyndust boðleg. Sex reynd-
ust beinlínis fjandsamleg bíleigend-
um og bílum. Hin tíu voru rétt á
mörkum þess aö vera viðunandi.
Plönin standa öll við bensínstöðv-
ar. Það kemur nokkuð á óvart að
ástandið skuli vera svo slæmt sem
raun ber vitni því ekkert virðist til
sparað við að gera bensínstöðvarnar
sem glæsilegast úr garði.
Best reyndist þvottaaöstaöa vera
við bensínstöð Esso við Skógarsel.
Að vísu voru nokkrir gallar, slöngur
voru mislangar og engar klemmur
til að halda þeim fóstum við kústinn.
Það sem gerir þetta plan svo gott
er skýb þar sem hægt er að bóna
bíbnn. Þar er einnig hægt að skipta
um olíu með þar til gerðri olíusugu.
Þetta skýli er einsdæmi á reykvísk-
um bílaþvottaplönum.
Skeljungur stendur sig best
Þegar á heildina er btið er áberandi
hve frágangur er yfirleitt betri á
plönum við Shell bensínstöðvar en
við stöðvar annarra obufélaga. Þó
Svona á að ganga frá hlutunum. Myndin er tekin á bensínstöð Shell við
Birkimel.
Svona er aðstaðan hjá Olís í Álfheimum, ekki einn einasti kústur á stóru
þvottaplani.
Kústur fullur af tjöru. Myndin er tek-
in hjá Shell á Kleppsvegi.
voru undantekningar frá'þessu eins
og öðru. Til dæmis var planið á bens-
ínstöð Sheb við Skógarhlíð afleitt,
kústar grútskítugir og slöngur í
stysta lagi. Ekki var ástandiö betra
við be'nsínstöð Shell í Æsufelb. Þar
voru kústar ýmist brotnir eða ljótir,
slöngur flestar ótengdar og engar
klemmur á slöngum.
Á meðfylgjandi korti eru bíla-
þvottaplönin sýnd. Þau bestu fá skín-
andi bíl í verðlaun en þau verstu fá
bíl sem er heldur súr á svipinn.
-PLP
Bfllinn þveginn. Bilaþvottaplön höfuðborgarinnar eru misgóð. DV- myndir S