Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1988, Qupperneq 33
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988. 33 LfisstíU !!!! Valdi með uppskeru siðustu koppaleitar, tíu dágóða hjólkoppa sem hann fann á leið sinni upp Hvalfjörðinn og um Borgarfjörð. DV-mynd S Glæsilegt koppasafn Þorvaldur býr á bænum Hólmi rétt hjá Geithálsi. Þar er skilti við Suður- landsveginn sem segir að á bænum séu hjólkoppar til sölu. Flestir höfuð- borgarbúar hafa séð þetta skilti en færri hafa heimsótt Valda til að kanna úrvalið, serr. er með ólíkind- um. Það er í rauninni dulítil upplifun að líta viö í koppasafninu á Hólmi. Koppamir hans Valda skipta þús- undum, jafnvel tugþúsundum. Kopp- ar af flestum gerðum og árgerðum bifreiða gefur þar að líta. Það er helst að húsnæðisskortur valdi erfiðleik- um. Valdi hefur mjög mikinn áhuga á bifreiðum. Hann segist geta sagt til um ágæti bílanna eftir því hvemig kopparnir em. Hann er ekki mikið hrifinn af nýjustu bílunum, sér í lagi japönsku smábílunum. Kopparnir á þeim eru pjáturkoppar eða úr plasti og bílar sem bera slíkt skran geta varla verið mikils virði. Öðru máli Dægradvöl gegnir um gömlu, amerísku trylli- tækin. Valdi er hka félagi í Forn- bílaklúbbnum og hefur bjargað mörgum félögum sínum um koppa undir drossíurnar. Einföld verðlagning Verðlagningin hjá Valda er einföld. Plast- og pjáturkoppa selur hann á fimm hundruð krónur stykkið. Al- vörukoppa selur hann svo á þúsund til fimmtán hundruð krónur. Sé um koppa á gamla bíla og fornbíla að ræða eru þeir ekki til sölu nema fyr- ir innvigða, helst félaga í Fornbíla- klúbbnum. Þá fer verðið hka eftir samkomulagi, enda er nánast um aö ræða ófáanlega dýrgripi. Valdi er mjög hreykinn af elstu koppunum og eru þeir gljáfægðir og fínir hjá honum. Sem fyrr sagði finnur Valdi flesta koppana á ferðalögum um þjóðveg- ina. Einnig eru nokkur brögð að því að menn komi til hans með koppa sem þeir hafa fundið og þá kaupir hann, en að sjálfsögðu fyrir lægra verð en hann lætur þá sjálfur á. Eitt- hvað verður bissnessmaðurinn að fá fyrir sinn snúð. Vinnan sem hann leggur í söfnunina og flokkunina er líka ómæld. Oft þarf Valdi að renn- bleyta sig í skurðum og mýrum við að ná í koppana. Að ekki séu taldar með þær stundir sem fara í að gera upp gamla og óásjálega koppa. Meðal þeirra sem selja Valdá marga koppa er Jóhannes Jónasson. Hann ferðast um þjóðvegi í nágrenni höfuðborgarinnar á afar glæshegu og vel skreyttu hjóh. Þar finnur Jó- hannes marga koppa og flesta þeirra selur hann Valda sem í rauninni rek- ur stórverslun á hjólkoppum. Svöðusár á bílnum Þeir eru ófáir sem aka um á bílum með tveimur eða þremur hjólkopp- um. Að áliti Valda er koppaleysiö eins og svööusár á bílnum. Öku- mennirnir eru margir hverjir sama^ sinnis en hafa sig ekki upp í að fjár- festá í nýjum koppum. Þeir kunna einnig að vera ófáanlegir eða þá rán- dýrir. Þessir menn ættu að gera sér ferð upp að Hólmi og líta við hjá Valda. Þótt ekki væri th annars en aö líta á hjólkoppasafnið hans. Og séu menn að leita að einhverjum sérstökum koppum, er ekki ólíklegt að Valdi geti fundið eitthvað fyrir þá. Og það á hagstæðu verði! -ATA Valdi í skipulagðari hluta koppasafnsins. En innan um má þó sjá nokkra pjáturkoppa. DV-mynd S Verð að fá eitthvað fyiir minn snúð - segir Valdi koppasali sem rekur hjólkoppastórmarkað „Ríkur? Nei ég er ekkert ríkur. En ætli ég sé nokkuð fátækari en blaða- menn!“ sagði Þorvaldur Sigurður Nordal. Þorvaldur er yfirleitt kallað- ur Valdi koppasah, enda er hann með stórtækari áhugamönnum um söfn- un og sölu hjólkoppa undir bifreiðar á landinu. „Ég sel koppana ódýrt, en að sjálf- sögðu verð ég að fá eitthvað fyrir minn snúð. Eg er kannski aö vaða auruga skurði upp að öxlum th að ná í koppa. Eða þá að ég hef keypt þá af öðrum mönnum. Einhverjum aurum verð ég að bæta við fyrir mína fyrirhöfn.“ Umsvifin aukast Valdi er með koppasölu sína á bæn- um Hólmi, rétt handan Rauðhóla, nálægt Geithálsi. Valdi hefur stund- að koppasöfnun og sölu í mörg herr- ans ár og hefur sífeht verið aö auka umsvifin. Nú má segja að Valdi eigi til koppa á nánast ahar gerðir bif- reiða og flestar árgerðir. Ford-kopparnir í uppáhaldi „Mér finnst skemmtilegast að finna og gera upp koppa af gömlum, amer- Þorvaldur Sigurður Nordal í hinu allra helgasta. Þarna eru samankomnir margir fágætir dýrgripir. Þeirra á með- al nokkrir fornbílakoppar. Þessir koppar eru ekki til sölu nema um sé að ræða innvigða bílaáhugamenn eða sérstaka vini. DV-mynd S ískum bhum. Gamhr Ford-koppar eru th dæmis í miklu uppáhaldi hjá mér. Hins vegar er ég lítið hrifinn af nýju plast- og pjáturkoppunum undan japönsku dósunum. Þessir koppar eru með svo lélegar festingar að þeir eru ahtaf að detta af. Það er hka svo lélegt í þeim að kopparnir skemmast oft þegar þeir detta. Þetta er hálfgert drasl. En þar sem festingarnar eru svona lélegar þá finn ég marga slíka koppa. Eftir dags ferðalag er ég oft kominn með tíu th tuttugu koppa, mest aht pjáturkoppa." Valda finnst kopparnir endur- spegla aðra eiginleika bílsins sem þeir eru festir á. „Mér finnst bílar í dag vera hálf- gert drasl. Hvítir pjátur- og plast- bílar. Þeir voru betri gömlu, amer- ísku bharnir," segir Valdi sem er fé- lagi í Fornbílaklúbbnum. Ekki til sölu „Ég er með safn af koppum á gamla bíla. Ég held mestúpp á 'þá af öllum koppúnum og þeir eru ekki th sölu. Nema fyrir sérstaka vini og bílaá- hugamenn.“ Þegar gengið er um koppageymslur Valda, sem eru í tveimur útihúsum á Hólmi, vekur það furðu manna að svo margir hjólkoppar skuli yfirleitt vera th á landinu. En hvað æth þeir séu margir? „Ég hef ekki hugmynd um það. Æth ég sé ekki með svona þijú th fjögur þúsund pjáturkoppa. Svo er ég sjálfsagt með nokkur þúsund al- vörukoppa. Ég held reyndar að bestu koppana hafi Buick framleitt árin rétt fyrir 1970. Ég á nokkra svoleiðis og þeir eru eins og nýir.“ - Nú ganga ýmsar sögur um það að þú aflir þér koppa með ýmsu móti, takir jafnvel suma þeirra ófrjálsri hendi. Er það rétt? Sama um sögusagnir „Ég hef heyrt ýmsar svoleiðis sög- ur. Jafnvel hef ég heyrt sögur sem segja að ég hafi stolið koppum af bíl- um manna sem hafa komið hingaö til að kaupa koppa og selt þeim þá svo. Þetta eru bara sögusagnir og mér er alveg sama um þær. Ég finn koppa við vegina og svo koma ýmsir hlngað til að selja mér koppa sem þeir hafa fundið. Ef ég- held aö þeim hafi verið stohð þá kaupi ég þá ekki.“ - Nú segja sumir að þú þekkir flesta glæsilegustu koppana og vitir oft hver hefur misst þá þegar þú finn- ur koppana. Hefurðu samband við þessa menn til að skha koppunum? „Nei, yfirleitt ekki. Nema þetta séu alveg einstakir koppar. Ég get ómögulega verið að hringja út um allan bæ þótt koppur finnist. Flestir sem eiga bha með fágætum koppuirw vita þó hvert þeir geta leitað ef þeir missa kopp og hafa samband við mig.“ Mikið að gera Meöan blaðamenn voru að ræða við Valda var töluverð umferð manna sem komu til hans í koppa- leit. Þessir menn þurftu ekki annaö en að nefna árgerð og tegund bhsins sem koppinn vantaði á. Valdi hugs- aði þá í smástund, gekk að hrúgu, stakk hendinni inn í hana og dró út rétta koppinn. Viö spurðum Valda hvort hann hefði aht í röð og reglu , hjá sér og vissi nákvæmlega hvar hver koppur væri geymdur? „Nei, það gæti verið betra skipulag hjá mér. Mig vantar bara stærra húsnæði undir aht safnið. Pjátur- koppamir eru að yfirfýha allt plássið hjá mér,“ sagði Valdi qg mátti ekki vera lengur að því að eyða tímanum í spjah. -ATA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.