Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1988, Blaðsíða 38
iO
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988.
Iionel Richie á bam utan hjónabands
Eitthváð fer nú að falla á þá ímynd
sem söngvarinn frægi Lionel Ritchie
hefur skapað sér því hver greinin
rekur aöra um framhjáhald hans og
kvennamál. Er skemmst að minnast
þess að eiginkona hans var hand-
tekin þann 29. júní eftir að hafa lú-
barið stúlku sem mun hafa verið hjá-
svæfa hans. Skal þess þó getið hér
að heimildir eru misáreiðanlegar en
það var sjálf Reuterfréttastofan
breska sem sendi út fréttina um
handtöku Brendu Richie.
í nýlegu tölublaði af slúðurblaðinu
News Of The World er svo sagt frá
því að Brenda hafi hótað manni sín-
um lífláti er hún komst aö því að
harin átti barn utan hjónabands. Sjálf
er Brenda sögð óbyrja. Mun Lionel
hafa farið í felur eftir þetta með ást-
konu sinni, Michelle Jordan, og
tveggja vikna gömlu barni þeirra.
Að sögn mun Lionel hafa forðað sér
því hann óttaðist hvað kona hans
gæti gert. Hún hefur hótað að drepa
þau öll og er sögð vera fær um hvað
sem er. Brenda hefur til dæmis verið
staðin að verki þar sem hún reyndi
að klifra yfir vegg sem umlykur hús
það sem Lionel og Michelle munu
hafa verið í.
Eins og áður sagði var Brenda
handtekin eftir að hafa ráðist inn í
íbúð 1 Beverly Hills þar sem hún kom
að maka sínum í rúminu með ann-
arri konu. Gekk hún hreinlega ber-
serksgang þegar hún komst að því
að sú, er í rúminu var, var ekki
barnsmóðir Lionels. Sparkaði hún í
eiginmann sinn á viðkvæmum stöð-
um, barði Diane Alexander heldur
hressilega og braut allt og bramlaði
sem hún festi hönd á.
News Of The World er hreykið af
því að tilkynna að hin hreina og sak-
lausa ímynd söngvarans er fölsun
ein. Heldur blaðið því fram að hinn
guðhrædddi lagasmiður sé kynóður
og hafi jafnvel mök við allt að tíu
konur á einni nóttu. Það verður þó
ekki selt dýrara en keypt var. En það
þykir þó deginum ljósara að Lionel
Sparifé þitt rýrnar
eklci ef þú fjárfestir
í spariskírtej
ríkissjóds
Það eru margar ástæður fyrir því að spariskírteini
ríkissjóðs eru einn vænlegasti kostur sparifjáreig-
enda í dag. Spariskírteini ríkissjóðs eru einföld og
jafnframt ein.öruggasta ávöxtunarleið, sem völ er á.
Spariskírteinin eru verðtryggð, sem kemur í veg
fyrir að sparifé þitt rýrni og bera auk þess allt að
8,5% vexti. Og ekki má gleyma að spariskírteinin
eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í
bönkum. Spariskírteini ríkissjóðs eru því án efa
rétti kosturinn fyrir þig.
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
FLOKKUR LÁNSTÍMI ÁVÖXTUN GJALDDAGI
l.fl.D 3 ár 8,5% 1. feb.’91
l.'fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb, 94—’98
Ávöxfun ríkisvíxla er nú
allt að 43,13% á ári.
Nú eru forvextir á ríkisvíxlum 34,3% sem jafngildir
43,13% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga
lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að
ávaxta skammtímafjármuni.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka íslands og
hjá löggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru við-
skiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land
allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í
Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar,
svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða
með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síð-
an send í ábyrgðarpósti.
RIKISSJOÐUR ISLANDS
Richie hefur alls ekki veriö konu
sinni trúr í þrettán ára hjónabandi
þeirra. Á hann meðal annars að hafa
staöið í ástarsambandi við fallega,
austræna stúlku og stóð það sam-
band í ein átta ár. Keypti hann handa
henni bæði glæsivillu og Mercedes
Benz.
Mun Lionel biðja aðstoðarmenn
sína urri aö útvega sér kvenmenn,
þ.e. svokallaðar „groupies" en það
eru stúlkur er virðast eiga þá Ósk
heitasta að fá deila rúmi með frægum
Söngvarinn frægi, Lionel Richie, er
nú talinn vera lygalaupur hinn mesti
og fúlmenni.
hljómlistarmönnum. Fær Lionel að-
stoðarmennina til að senda eina nýja
inn til sín á 40 mínútna fresti. Hefur
hann víst einnig gengið svo langt að
skrá leikfélaga sína inn á sama hótel
og hann sjálfur gisti á þó að eiginkon-
an væri með í förinni. Ekki virðist
það skipta máli fyrir hann hvort leik-
félagarnir eru smá- eða hávaxnir,
ungir eða gamlir, blakkir eða ljósir
á hörund.
Lionel Richie reyndi einu sinni að
leyna því hvernig hjónaband hans
væri með því að ættleiða barn. Móð-
ir barnsins aftur á móti skipti um
skoðun og hóf þá Lionel herferð til
að reyna að fá hana dæmda óhæfa
móður. Áætlunin mistókst og barniö
varð eftir hjá móður sinni. Lionel
hefur alltaf -kennt Brendu um að
hjónaband þeirra er barnlaust og
hefur því reynt með öllu þessu fram-
hjáhaldi að sanna að hann sé sannur
karlmaður.
Brenda Richie heldur hér á stúlk-
unni sem Lionel vildi ættleiða um
árið. Brenda hefur mátt þola óend-
anlegt framhjáld af hálfu eigin-
manns síns.
Lionel kvæntist Brendu árið 1975
eftir að þau höfðu verið saman í há-
skóla. Einu sinni reyndi hún að
stytta sér aldur vegna framhjáhalds
Lionels en það tókst ekki. Árið 1981
reyndi hún svo að s'kilja við hann
eftir að hún hafði komið að honum
í rúminu með ungri stúlku. Brenda
féllst þó á að fyrirgefa honum og
byrja upp á nýtt. Þetta var því bara
enn eitt loforðið sem aldrei átti að
halda eins og þegar hann dró Brendu
upp á svið hjá sér í Madison Square
Garden til aö halda upp á 11 ára brúð-
kaupsafmæli þeirra. Um 20.000 aðdá-
endur urðu vitni að atburði þessum.
Brenda virðist þó ekki alveg vera
búin að fá nóg af Lionel því hún er
enn reiðubúin að fyrigefa honum ef
hann kemur einhvern tímann niður
á jöröina. Þó sagði hún sjálf að hún
þyldi ekki lygi. Hún hefði fljótt fund-
ið í hjarta sínu að þaö sem Lionel
segði væri ekki sannleikurinn en
samt er hún ekki viss um að skilnað-
ur sé svarið við vandamáli þeirra
hjóna.