Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1988, Blaðsíða 42
54
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988.
LífsstOI
Breiðafjörðurinn:
'Ákjósanlegur áfangastaður
Á kortinu getur að líta flesta gisti- og tjaldstaði sem eru við Breiðafjörðinn. Siglingaleiðir Flóabátsins og Eyjaferða
eru einnig merktar.
Þeir sem velja Breiðafjörðinn og
Breiðaíjarðareyjar sem áfangastað í
ferðalaginu verða trúlega ekki fyrir
vonbrigðum. Ekki er aðeins um að
ræða einstaka náttúrufegurð heldur
eru möguleikar til dægradvalar
miklir.
Hér á eftir verður talið upp nokkuð
af því sem í boði er.
Ferðamöguleikar
til Breiðafjarðar
Hægt er að kaupa ferð með rútu
hjá BSÍ og kostar til dæmis miði fram
og til baka frá Reykjavik til Stykkis-
hólms krónur 1.750.
Arnarflug er með áætlun frá Reykja-
vík til Stykkishólms 6 daga vikunn-
ar. Farmiði báðar leiðir kostar 4.400
krónur. Einkabíllinn er að sjálfsögðu
algengasti fararskjótinn. Það tekur
rúma þrjá tíma að aka til Stykkis-
hólms.
Þá siglir ferjan Baldur daglega á
niilli Stykkishólms og Brjánslækjar.
Á báðum leiðum er komið við í Flat-
ey og stansað þar um stund.
Gisting og tjaldstæði
Skipulögð tjaldstæði eru á nokkr-
um stöðum við Breiðafjörð. Þegar
talað er um skipulögð tjaldstæði er
átt við svæði þar sem aðstaða hefur
verið gerö fyrir tjaldferðamenn. Það
getur verið mismunandi hvað boðið
er upp á en yfirleitt er til staðar renn-
andi vatn og salerni. Á kortiö eru
merkt þau svæði sem hafa slíka að-
stöðu.
*■ Gistingu er víða hægt að fá við
Breiðafjörð. Ef byrjað er á Hellis-
sandi og Rifi er hægt aö fá gistingu
á Gistiheimilinu Gimli. Næst kemur
Ólafsvík. Þar er Hótel Nes sem býður
upp á venjulega gistingu ásamt
svefnpokarými. Á hótelinu er hægt
að kaupa sér mat og einnig eru aðrir
matsölustaðir í þorpinu. Hægt er að
komast í veiði til sjós og lands frá
Ólafsvik.
Á Grundarfirði er gistiheimilið
Ásafell. Veitingar er hægt að kaupa
í Ásakaffi. Bændagisting er á Kverná
í Grundarfirði. Hestaleiga er á staðn-
um og farið er í skipulagða útreiðar-
túra þaðan.
Stykkishólmur er stærsti þéttbýlis-
staður við Breiðafjörð. Þar eru tveir
gististaðir. Hótel Stykkishólmur er
annar þeirra. Hótelið býður upp á
ýmsa þjónustu, svo sem veitingar og
gufubað. í Egilshúsi er hægt að fá
gistingu. Léttar máltíðir eru til sölu
þar. í Stykkishólmi eru fleiri staðir
sem selja veitingar. Þar eins og ann-
ars staðar bjóða bensínsölur upp á
skyndibitamat. Tjaldstæði er í bæn-
um.
í Búðardal eru nokkrir valmögu-
leikar á gistingu. Fyrst ber að nefna
Gistiheimilið Ægisbraut. Þá er hægt
að fá svefnpokapláss í félagsheimil-
inu Dalabúö. Bændagisting er mögu-
leg á Efri-Brunná í Saurbæjarhreppi
og Stóra-Vatnshomi í Haukadals-
hreppi. Hótel Edda að Laugum er í
Sælingsdal og liggur af Vestfjarða-
vegi skammt norðan við Fellsstrand-
arveg (áður en ekið er á Svínadal).
Hótelið í- Hvammssveit er stutt frá
Hvammi. Veitingar er víðast hægt
að fá á þessum stöðum.
Bátaleiga og bændagisting
Á Króksfiarðarnesi og í Reykhóla-
sveit er hægt að fá gistingu. Svefn-
pokapláss er hægt aö fá í Vogalandi
á Króksfiarðarnesi. Einnig er hægt
að fá slíka aðstööu í Reykhólaskóla.
Á bænum Stað á Reykjanesi er til
leigu sumarhús og á Bæ í Reykhóla-
sveit er boðin bændagisting. Þar er
rými fyrir fimmtíu manns.
Gistingu og veitingar er hægt að fá
á Hótel Bjarkarlundi. Þar er einnig
rekin bátaleiga og upplýsingar um
veiði í nærliggjandi ám og vötnum
er til staöar. Hótel Edda er rekið á
sumrin í Flókalundi og í skólahúsinu
að Birkimel er hægt að fá svefnpoka-
pláss. Á bænum Bijánslæk eru tjald-
stæði með hreinlætisaðstööu. Þar er
hægt að fá leigða hesta. Stutt er það-
an í Vatnsfiörðinn en þar er tjaldað-
staða.
í Flatey er rekinn veitingastaður.
Eyjaferðir bjóða upp á tjaldmögu-
leika á öðrum eyjum í Breiðafirði.
Þá eru ferðalangar fluttir út í eyjarn-
ar og sóttir seinna á umsömdum
tíma.
Fiskveiði, reiðtúr og sigling
Möguleikar til dægradvalar eru
margir við Breiðafiörð. Veiði bæði til
sjós og lands er í boði allt frá Ólafs-
vík til Bijánslækjar.
Eyjaferðir, sem hafa höfuðstöðvar
sínar í Stykkishólmi, sigla með ferða-
menn um eyjarnar og/eða selflytja
menn út í ákveðnar eyjar. Flóabátur-
inn Baldur er með reglulegar ferðir
á milli Stykkkishólms og Bijánslækj-
ar með viðkomu í Flatey.
Upplýsingar um þessa möguleika
er hægt að fá hjá Upplýsingastöö
ferðamála eða á þeim gististöðum
sem eru á hveiju svæði. Hestaleigur
tengjast gjarnan bændagistingu.
Ekki er nauðsynlegt að vera nætur-
gestur til að fá að njóta þessarar
þjónustu. Nánari upplýsingar um
bændagistingu er aö finna hjá Ferða-
þjónustu bænda.
Golfvelli má til dæmis finna á Ól-
afsvík og í Stykkishólmi. Fyrir þá
sem vilja taka sundsprett eru fiöl-
margar sundlaugar á leiðinni. Oftast
eru þær til staðar á eða nálægt þeim
þéttbýlissvæðum sem eru við Breiða-
fiörðinn.
Við Breiðafiörðinn er margt að sjá,
gera og skoða. Nóg er af sögustöðum,
fallegum gönguleiðum og merkileg-
um náttúrufyrirbærum. Breiðafiörð-
urinn hefur löngum verið talinn auö-
ugur af náttúrufegurð og svo er enn
í dag. Þeir sem leggja land undir fót
og heimsækja þennan fallega stað
finna þar fiölbreytni og fegurð sem á
sérfáarhliðstæður. -EG.
Sigling um
Breiðafjöró
Með tilkomu fyrirtækisins Eyja-
ferða í Stykkishólmi hafa ferða-
möguleikar á Breiðafirði stórauk-
ist. Eyjaferðir voru stofnaðar
sumariö 1986 og er þetta því þriðja
sumarið sem þær starfa. Nú eru
tveir bátar í stööugum feröum í
þeirri paradís náttúruunnandans
sem Breiðafiöröur er. Þeir eru
Brimrún sem tekur 20 farþega og
Hafrún, sem keypt var í vor og tek-
ur 62 farþega.
Getur fólk valið um tvenns konar
ferðir sem farnar eru hvem dag,
oftar um helgar og þegar eftirspurn
er mikil. í fyrsta lagi er ferð út í
Flatey og til baka. Er stoppað í Flat-
ey í tvo tíma, en í heild tekur sú
ferð um fióra tíma. Möguleiki er á
að gista þar á fialdstæði, en aðstaða
fyrir tjaldgesti þar var gerð í vor.
í öðru lagi er ferö um hinar svo-
kölluðu Suðureyjar í mynni
Hvammsfiarðar. Sú ferð er um
tveggja tíma löng. Ef óskir berast
þar aö lútandi, er hægt að blanda
Flateyjarferð og Suðureyjaferð
saman.
Óskar Eyþórsson, einn eigenda
Eyjaferða, segir að farið sé í alls
konar ferðir fyrir utan hinar reglu-
legu ferðir hvem dag. Þær erú þá
skipulagðar eftir óskum og fyrir
allar stærðir af hópum. í ferðunum
sér leiðsögumaður um að skýra út
það sem fyrir augu farþeganna ber.
Bárujárn við stuðlabergs-
gerð
Blaðamaöur fór í suðureyjaferð
með Brimrúnu fyrri part júní og
viðraði þokkalega þrátt fyrir allt.
Var Óskar Eyþórsson við stjóm-
völinn og sinnti einnig leiðsögn. í
ferðinni er stoppað á 11 stöðum og
bar þar margt fyrir sjónir. Þar á
meðal er fiölskrúðugt fuglalíf eyj-
anna sem hægt er að grannskoða
þar sem báturinn fer nær alveg að
klettunum.
Hæstu eyjarnar em Dímonar-
klakkar. Þar hélt Eiríkur rauði til
um skeið eftir að hann var gerður
útlægur og safnaði vistum fyrir
vesturferð sína.
Á fullri ferð með Brimrúnu, öðrum báti Eyjaferða, á milli eyjanna í
mynni Hvammsfjaröar. Þær kallast Suðureyjar. Þar kennir ýmissa grasa
fyrir náttúruunnendur. DV-myndir hlh
Frá höfninni í Stykkishólmi. Lagt er upp frá flotbryggju trillubátanna.
Sá guli var nýkominn inn af grásleppuveiðum þegar Brimrún sigldi úr
höfn.
Purkey er öðru fremur þekkt fyr-
ir hina miklu náttúrufegurð. Þar
em miklar stuðlabergsmyndanir
og þaö sem meira er, þær eru
þverrákóttar. Gámngar segja að
þegar skaparinn gerði Purkey, hafi
hann orðið uppiskroppa með móta-
timbur og því þurft að notast við
bárujárn. Þar sé komin skýringin
á þessum rákum í stuðlaberginu,
sem jarðfræðingar kunna enga al-
mennilega skýringu á.
Líkt og beljandi fljót
Það náttúrufyrirbæri sem vekur
hvað mesta athygli á ferð um Suð-
ureyjar er Hvammsfiarðarröst.
Eyjamar loka nær Hvammsfirði
og við flóð og fiöm er gífurlegur
straumur milli eyjanna. Þegar stór-
streymt er líkist röstin einna helst
beljandi á og getur rennslishraðinn
þá farið í allt að 18-20 sjómílur.
Frekar rólegt var þama í ferð
blaðamanns og því gat Óskar stýrt
Brimrúnu þarna um án mikilla
erfiðleika. Sjórinn frussaði þó við
klettana og gaf manni til kynna
hvaða gífurlegu öfl eru þarna að
verki.
Meðal síðustu eyjanna er svoköll-
uð Hvítabjarnarey, en þar var einu
sinni skotinn hvítabjöm. Eyja þessi
var í vinning í happdrætti sem
haldið var til styrktar byggingu
hótelsins í Stykkishólmi á sínum
tíma. Er þetta víst eina eyjan á ís-
landi, og þó víðar væri leitað, sem
hefur verið til vinnings í happ-
drætti. Enginn eignaðist þó eyjuna
í þaö skiptið, þar sem hún kom upp
á óseldan miða.
Ýmislegt fleira mætti segja frá
ferð þessari um eyjarnar, sem var
hin skemmtilegasta, en sjón er
sögu ríkari og því ættu þeir sem
tækifæri hafa til að skella sér út á
Breiðafiörð. Náttúrufegurð hans
svíkur engan.
-hlh