Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1988, Page 7
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988.
7
Fréttir
Kanarnir kaupa
Skoda vikulega
RíjnHariclrir hormonn íj 'K'oflaxnlr.
urílugvelli hafa hrifist mjög af
Skodabílum.
Haraldur Sigurðsson, sölustjóri hjá
Jöfri, sagði að þeir seldu hermönn-
unum einn til tvo bfla að meðaltali á
viku. Haraldur sagði að fyrsti Skod-
inn hefði verið seldur á Keflavíkur-
flugvöll' fyrir um sjö árum. Síðan
hefur salan aukist jafnt og þétt.
„Ég veit ekki til þess að Skoda sé
fluttur inn tfl Bandaríkjanna. Her-
menn á Keflavíkurflugvefli hafa látið
sér þessa bíla vel líka. Þetta hefur
smitað út frá sér. Það er töluvert um
að þeir selji öðrum hermönnum bíl-
ana þegar þeir fara aftur til Banda-
ríkjanna,“ sagði Haraldur Sigurðs-
son sölustjóri.
-sme
Haraldur Sigurðsson sölustjóri við Skoda með JO-númeri. Þetta er fyrsti
bíllinn sem fer á Keflavikurflugvöll í þessari viku. í síðustu viku fóru þang-
að tveir bílar.
DV-mynd S
Margir bátar farið
vegna vankunnáttu
. „Það hafa margir bátar farið vegna
vankunnáttu þeirra sem þeim
stjóma. í mörgum tilfellum má ætla
að ef kunnáttumaður heíði verið við
stjórnvölinn hefði mátt komast hjá
slysum.“
Þetta sagði Kristján Guðmundsson,
framkvæmdastjóri rannsóknauefnd-
ar sjóslysa, þegar hann var spurður
um hinn mikla fjölda smábáta sem
farist hefur eða eyðilagst hér við
land.
í máli Kristjáns kom fram að sam-
kvæmt lögum má enginn stjórna
bát, sem er sex metrar eða lengri, án
þess að hafa tilskilin réttindi. Mikfl
brögð eru á að réttindalausir menn
stjórni bátum sem krefjast réttinda.
„Þetta vandamál hefur vaxið með
íjölgun smábáta. Það er fjöldi manna
á þessum bátum sem hafa enga þekk-
ingu til að bera. Það er framkvæmda-
valdsins áð fylgja þessum lögum eft-
ir,“ sagði Kristján.
Samgönguráðuneytið ■ hefur nú
þessi mál til meðferðar. Sama er með
fleiri ályktanir rannsóknanefndar
sjóslysa. Nefndin hefur viðraö þá
hugmynd að réttindi þurfi á hvern
einasta bát, sama hvað hann er stór,
sem siglir á þeim hafsvæðum sem
önnur skip eru á. Skemmtibátum og
öörum svipuðum verði skylt að vera
innan ákveðins svæðis þar sem ekki
er hætta á umferð annarra skipa.
-sme
skírisskógur Grundarstíg 2
AR 718 SDK
Útvarp: FM/MW bylgjur. PLL-kvartstuner. 2x6 stöðva-
minni. Elektrónískur truflanaeyðir og sía á straumtruflan-
ir. Sjálf- og handvirkur stöðvaleitari. Scan takki. Segul-
band: Auto-reverse. Hraðspólun aftur á bak og áfram.
Magnari 2x25 w. Fader fyrir 4 hátalara. Jafnvægistakki.
Annað: Din tengi og tengi fyrir rafstýrð loftnet. Rauðgult
næturljós. Kvartsklukka. Krystalsskjár. Laus rammi um
tækið.
VERÐ 14.900 STGR.
,yc.- jjjj
■ - bbbeo H
J C ;• ö*3 BIBIS fiQ
HÁTALARAR verð frá kr. 1.850,- parið,
30-150 vatta.
Boostarar verð frá 3.500,-, 50-300 watta.
AR 709. L
Útvarp: FM/MW/LW. PLL-kvartstuner með 10 stöðva-
minnum (5xFM, 3xMW, 2xLW). Mónó/stereo skiptir.
Elektrónískur truflanaeyðir. Sjálf- og handvirkur stöðva-
leitari. Segulband: Auto-reverse. Stillir fyrir metalspólur.
Hraðspólun aftur á bak og áfram. Magnari: 2x25 w. Fad-
er fyrir 4 hátalara. Jafnvægistakki. Aðskildir bassa- og
dískant-stillar. Annað: DIN-tengi. Kvartsklukka. Tengi
fyrir rafstýrð loftnet. Rauðgult næturljós. Krystalsskjár.
Stöðluð stærð (DIN).
VERÐ 11.900.-
AR 714
Stereotæki með Auto-reverse. FM/MW bylgjur. 2x10
w. DIN tengi. LED Ijós fyrir stereomóttöku á FM. Elec-
trónískur truflanaeyðir. Sía á straumtruflanir. Loudness
og mónó/stereo-skiptir. Rauðgult næturljós. Tengi fyrir
rafstýrð loftnet. Tónstillir. Jafnvægistakki. Stöðluð stærð
(DIN). CD-tengi.
VERÐ 7.550.-
AMF 516
FM/MW bylgjur. Mjög næmt. „Auto-stop" segulband. 2x10
VERÐ FRÁ 3.900.-
AR 715 SK
Hefursömu eiginleika og AR 714. Auto-stopsegulband.
VERÐ 5.600.-
w. Mono/stereo skiptir. Tónstillir. Upplýstur bylgjukvarði.
Opið laugardaga 10-14
5% sér afsláttur fyrir eldri borgara.
FYRSTA SANDSPYRNA SUMARSINS
SUNNANLANDS
verður haldin í Varmadalsgryfjum fyrir ofan Mosfells-
bæ sunnd. 11. sept. kl. 14.00. Keppt verður í öllum
flokkum. Skráning í síma 985-28440
Kvartmíluklúbburinn
Vatnsrúm, margar gerðir.
Hjónarúm m/springdýnu og
svampdýnu.
Mjög mikið úrval bólstraðra
húsgagna, sófasett, horn-
sófar, svefnsófar, hvíldarstól-
ar.
OPIÐALLARHELGAR
TM-HÚSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30, SÍMI 686822.