Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
29
Sviðsljós
Twiggy
á von
á bami
dóttur sína og segja henni gleði-
tíðindin.
„Þetta er mesti hamingjudagur
í lífi mínu og dóttir mín var líka
ofsalega glöð,“ sagði Twiggy sem
hreinlega ljómaði af hamingju,
klæddíhvitadragt.
Twiggy, sem er orðin þijátíu og
níu ára, valdi víst dragtina þann-
ig að sem minnst færi fyrir mag-
anum en kunnugir segja að þar
sé þegar farin að sjást örlítil kúla.
Brúðhjónin eru nú í brúð-
kaupsferð á Karíbahafi en vinir
þeirra segja að þegar henni lýkur
verði engin leiö fyrir Twiggy að
leyna framvexti sínum.
Twiggy sagði að brúðkaupsdagurinn væri sinn mesti hamingjudagur. Brúð-
hjónin eiga von á barni sem mun að likindum fæðast innan níu mánaða
frá brúðkaupsdeginum.
Fyrirsætan Twiggy, sem allir
muna eftir, giftist nýlega leikar-
anum Leigh Lawson og ekki
seinna vænna því strax er von á
barni.
Brúðkaupið fór fram í byijun
október í New York og var þetta
ekta leynibrúðkaup. Ekki einu
sinni Carly, tíu ára dóttir Twiggy,
eða Ace, tólf ára sonur Leigh,
fengu að vita nokkurn skapaðan
hlut fyrr en allt var yfirstaðið.
Carly var meira að segja í Lon-
don.
Strax eftir hjónavígsluna rauk
Twiggy í símann til að hringja í
Gregory Peck sker hér köku-
sneiö á Hilton hótelinu í sam-
sæti sem haldiö var tii styrktar
ísraelsku fílharmóníusveitinni.
Fílharmóníusveitin hélt hljóm-
leika í gær og voru það lok há-
tiöarhaldanna sem staöiö hafa
í ísrael allt árið í tilefni þess aö
íjörutíu ár eru liðin frá því aö
ísrael varð sjálfstætt ríki.
Dansað
á af-
mælinu
Síðastliðinn fimmtudag, 13. októb-
er, lauk ílokksþingi breska íhalds-
flokksins í Brighton á Englandi. Svo
skemmtilega hittist á aö þann sama
dag átti Margrét Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands og leiötogi
flokksins, afmæli, það sextugasta og
þriðja. Hún dansaöi afmælisdansinn
viö manninn sinn, Dennis Thatcher,
á miklum hátíðardansleik um kvöld-
ið.
SímamyndReuter
Ólyginn
sagði . . .
John McEnroe
lenti í þeim ósköpum um daginn
að vera sleginn út í opna banda-
ríska meistaramótinu. Að vonum
var kappinn óhress með það, eins
og sjá má, en konan hans, hún
Tatuip O’Neal, kunni ráð við þvi.
Hún dró ólátabelginn beint aftur
á völlinn til að horfa á þá sem
eftir voru í keppninni. Af svipn-
um að dæma fmnst McEnroe ekki
mjög gaman aö horfa á þá sem
eru betri en hann í tennis.
Sean Lennon
hefur nú tekið gleði sína á nýjan
leik. Hann var mjög niðurdreginn
eftir að út kom bók um ævi fóður
hans þar sem dregin er upp held-
ur dökk mynd af John Lennon.
Það sem varö til þess að Sean tók
gleði sína á ný var aö Michael
Jackson vill nota hann í nýju
myndina sína, Moonwalk.
Mamma hans er líka búin að ná
sér eftir áfalliö sem bókin olli
þeim mæöginum. Hún sagði að
hennar fyrstu viöbrögð hefðu
veriö að fremja sjálfsmorð, en nú
er hún hætt viö það.
Joan Collins
kom af stað mörgum Kjaftasögun-
um þegar hún birtist með kom-
ungan, stórglæsilegan mann við
hliö sér í einni af snobbveislun-
um í Hollywood um daginn. Fólk
braút heilann um hver þessi ungi
elskhugi leikkonunnar væri en
enginn komst að neinni niöur-
stöðu. Það var ekki fyrr en í lok
samkvæmisins sem Joan skýrði
frá því hver var í fór með henni.
Þaö var þá sonur hennar, Sacha.