Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
3
Fréttir
Vinnumarkaðurinn:
Ekkert lát á uppsögnum
„Þaö hafa þegar tvö stór fyrir-
tæki tilkynnt um uppsagnir til okk-
ar. Þaö eru Hraðfrystihús Keflavík-
ur og Flugleiöir," sagði Óskar Hall-
grímsson hjá Vinnumálaráði fé-
lagsmálaráðuneytisins er DV
ræddi við hann.
Uppsagnir hjá ofangreindum fyr-
irtækjum eiga að taka gildi nú um
mánaðamót. Um 100 starfsmönn-
um verður sagt upp hjá Hraðfrysti-
húsinu í Keflavík og 40-50 hjá Flug-
leiðum.
Óskar sagði að fleiri fyrirtæki
væru í farvatninu hvað viðkæmi
uppsögnum á starfsfólki. Von væri
á staðfestingu uppsagna frá einu
fyrirtæki úti á landi. Ekki kvaðst
Oskar vilja nefna það fyrirtæki þar
sem starfsfólk þess fengi ekki upp-
sagnirnar fyrr en um mánaðamót-
in.
-JSS
Byggingafélagiö hf:
Smiðir fá uppsagnir
Byggingafélagið hf. í Kópavogi
sagði níu smiðum upp störfum fyrir
helgina.
„Þama er aðeins um öryggisráð-
stöfvm að ræða ef stjómmálamenn-
imir skyldu halda áfram þeim fárán-
lega leik sem þeir hafa leikið að und-
anfómu," sagði Sveinn Jónsson,
framkvæmdastjóri Byggingafélags-
ins hf. „Það er enginn samdráttur
hjá okkur en iðnaðarmenn hafa
þriggja mánaða uppsagnarfrest og
okkur þótti rétt að hafa vaðið fyrir
neðan okkur ef ástandið fer enn
versnandi. Þjóðfélagið er á húrrandi
niðurleið og við ætlum ekki að fara
með því,“ sagði Ólafur. „En ég geri
alls ekki ráð fyrir að þessar uppsagn-
ir komi til framkvæmda.“
Byggingafélagið hf. er nú með 63
íbúðir í smíðum við Rauðarárstíg.
„Það hefur gengið frekar illa að selja
þær. Við höfum ekki selt nema
30-35% þeirra. Þetta er búið að vera
steindautt þetta árið,“ sagði Ólafur.
-JSS
Fjárfesting ríkis-
sjóðs úr böndunum
- vaxtagjöld ríkissjóðs hækkuðu um 62%
Fjárfesting ríkissjóðs fyrstu níu
mánuði ársins er 6407 milljónir kr.
og hefur hækkað um 42% á milli ára
eða að raungildi um 20%. Þetta ger-
ist þrátt fyrir að í fjárlögum hafi.ver-
ið stefnt aö því að halda fjárfestingu
niðri. Átti aukningin á milli ára að-
eins að nema raunaukningu.
Þá hefur hækkun vaxtagjalda rík-
issjóös orðið um 62% á milli ára 1987
og 1988 en það er hækkun að raun-
gildi um 29%. Þar munar mest um
vaxtagreiðslur af yfirdráttarskuld í
Seðlabanka sem hækkar um 1100
milljónir.
-SMJ
Mikið
úrval
af
tískukápum
frá
ýmsum
löndum
LAUGAVEGI 66, SIMI 25980 _
Stórkostleg verðlækkun á KYOLIC,
japanska hvítlauknum,
í kjölfar beinna innkaupa
Hylki,
hylki m/
lesitíni
eða töflur
Fljótandi
bæði með og
án hylkja
Nýjar umbúðir
KYOLIC — eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn
KYOLIC — 2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán. + 4 mán.)
sem á engan sinn líka í veröldinni
KYOLIC — hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur
KYOLIC — er gæðaprófaður 250 sinnum á framleiðslu-
tímanum
KYQLIC — á að baki 30 ára stöðugar rannsóknir
japanskra vísindamanna
KYOLIC — lífrænt ræktaður í ómenguðum jarðvegi án
tilbúins áburðar eða skordýraeiturs
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar hita-
meðferð
Aðvörun:
Hiti eyðileggur virk og viðkvæm efnasambönd og hvata í hvítlauk.
Þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða verka allir aðrir framleiðendur hvítlauks-
afurðir sínar við háan hita til að þurrka hvítlaukinn og fjarlægja lykt eða þá að inni-
hald er mestmegnis jurtaolíur annarra jurta, s.s. sojabaunaolía.
Wakunaga, japanska rannsóknarmiðstööin, sem
ræktar og framleiðir KYOLIC hvítlauk rekur eina af
þremur stærstu rannsóknarmiðstöðvum t Japan. Þar
eru eingöngu notaðir ströngustu alþjóðlegir rann-
sókna- og framleiðslustaðlar, s.s. G.L.P. Good
Laboratory Practices og G.M.P. Good Manufacturing
Practices.
KYOLIC
- enginn samjöfnuður undir sólinni - gæði, heilnæmi og heilsubót
Helstu sölustaðir
heilsu- og lyfjaverslanir
Heildsölubirgðir:
Logaland, heiidverslun,
Símar 1-28-04 og 2-90-15