Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
7
Utlönd
Kosið í dag
Kjörstaðir í ísrael voru opnaðir í
morgun. Þingkosningamar, sem
fram fara í dag, geta haft úrslitaáhrif
á það hvemig verður ráðist að
vandamálunum á hemumdu svæð-
unum næstu Qögur árin.
Stjómmálaskýrendur telja að eld-
sprengjuárásin á sunnudag sem varð
vrngri móður og þremur bömum
hennar að bana geti haft þau áhrif
að kjósendur taki harðari afstöðu
gegn Palestínuhröbum og snúist á
sveif með Yitzhak Shamir, forsætis-
ráðherra landsins, sem er leiðtogi
Likud-flokksins.
Sprengjuárásin á fólksflutningabif-
reið í bænum Jeríkó á vesturbakka
Jórdanar var blóðugasta árás sem
gerð hefur verið á ísraelska borgara
frá þvi að óeirðimar hófust á her-
teknu svæðunum fyrir tíu mánuð-
um.
Nærri þrjár milljónir gyðinga og
araba hafa kosningarétt í kosningun-
um.
ísraelska sjónvarpið hyggst leggja
fram spá um kosningaúrslit skömmu
eftir að kjörstaðir loka í kvöld kl.
20.00 að íslenskum tíma. Verður sú
spá byggð á viðtölum viö fólk sem
er að koma út af kjörstöðum. Opin-
Kista, með líkum barnanna þriggja sem brunnu til bana þegar eldsprengju
var varpað inn i fólksflutningabifreið sem þau voru í, borin til grafar sem
þau munu deila með móður sinni ungri sem einnig beið bana i árásinni.
Símamynd Reuter
Stríðsleiðtogar í sfeininn
Meðlimir herforingjastjórnarinnar
sem var við vötd þegar Falklands-
eyjastriðið stóð yfir, Gaitíeri,
fjærst, Anaya og Dozo, hlýða á
dómsorð. Sfmamynd Reuter
Hugsa betur standandi
Margt fólk hugsar bæði betur og hraðar standandi en sitjandi Sérstak-
lega á þetta við um fólk sem farið er að eldast og ekki er í góðu líkam-
legu formi. Þetta er líka raunin um alla þá sem vinna að erfiðum verkefn-
um.
Þetta eru niðurstöðiu rannsóknar sem fór fram við háskólann í Suður-
Kaliforniu. Samkvæmt þeim getur það munað frá 5-20% hvað fólk er fljót-
ara að hugsa standandi en þegar það situr.
Þessar niðurstöður benda til þess að það sé alls ekki vitlaust fyrir fólk
sem situr við vinnu sína að standa upp ööru hvoru og teygja úr sér.
Bylting í adsigi?
Argentínumenn luku við enn
einn kaflann í Falklandseyjastríð-
inu í gær þegar leiötogar hersins,
sem kennt er um háðulegan ósigur
gegn Bretum í Falklandseyjastríð-
inu 1982, voru dæmdir í fangelsi til
ársins 1996.
Áfrýjunardómstóll staðfesti dóm
undirréttar frá árinu 1984 sem
hljóöaöi upp á tólf ára fangelsi til
handa Leopoldo Galtieri, fyrrum
forseta, og þyngdi dóraa yfir Jorge
Anaya aömíráli og Basilio Lami
Dozo herforingja.
Þeir voru allir þrír sekir fundnir
um vanrækslu og getuleysi sem
hefði minnkað getu herafla Argent-
ínu.
Veijendur hinna dæmdu segjast
ætla að áfrýja dómunum til hæsta-
réttar en búist er við að þar verði
þeir staðfestir.
berar niöurstöður verða ekki tilbún-
ar fyrr en eftir þrjá daga að minnsta
kosti.
Til að koma í veg fyrir óeirðir var
herinn látinn loka af Gaza-svæðið og
vesturbakkann í gær og verður það
ekki opnaö aftur fyrr en á morgun.
Einnig hófst í gær tveggja daga mót-
mælaverkfall hjá Palestínuaröbum.
Yitzhak Rabin, varnarmálaráð-
herra ísraels, sem er í Verkamanna-
flokki Peresár, reyndi í gær að koma
í veg fyrir að sprengjuárásin hefði
þau áhrif að fólk þyrptist yfir til
hægri til Likudflokksins og fyrir-
skipaöi hernum að athuga hvort
hægt væri að beita dauðarefsingu
gegn árásarmönnunum.
Dauðarefsingu hefur aöeins einu
sinni verið beitt í ísrael en það var
árið 1962 þegar stríðsglæpamaðurinn
Adolf Eichmann var teldnn af lífi.
Verkamannaflokkurinn hefur
löngiun verið andvígur þeirri stefnu
Likud-flokksins að taka af lífi araba
sem drepa óbreytta ísraelska borg-
ara.
Leiðtogar Palestinumanna á her-
teknu svæðunum fordæmdu
sprengjuárásina og hið sama gerðu
Frelsissamtök Palestínu, PLO.
Reuter
ísraelskur hermaóur greiðir atkvæði í ísraelsku þingkosningunum. Hún er
vopnuð Uzi vélbyssu. Simamynd Reuter
Umsjón:
Ólafur Arnarson
og
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
Taka ekki afstöðu
Valgerður A. Jóhannsdóttir, DV, London;
„Við höfum skorað á ísraelsmenn
að greiða atkvæði með friði, með
þeim sem eru fylgjandi samningavið-
ræðum, en við tökum ekki afstöðu
með Verkamannaflokknum eða gegn
Likud-bandalaginu," sagði Karma
Nabulfi á skrifstofu Frelsissamtaka
Palestínumanna, PLO, í London í
samtali við DV í gær.
Málefni Palestínumanna og upp-
reisnin á herteknu svæðunum eru
aðalmál kosninganna í ísrael sem
fram fara í dag. Karma sagði kosn-
ingamar að sjálfsögðu mikilvægar í
augum Palestínumanna því úrslit
þeirra kæmu til með að ráða stefn-
unni varðandi vesturbakkann og
Gazasvæðið. „En á sama hátt og við
biðjum ísraelsmenn ekki um að velja
fulltrúa palestínsku þjóðarinnar þá
reynum við ekki að segja þeim hverja
þeir eigi að kjósa. Hveijir mynda rík-
isstjórn er í raun aukaatriði í okkar
augum. Það skiptir okkur ekki máli
hvort við semjum við Likud-banda-
lagið eða Verkamannaflokkinn. Við
erum tilbúin að semja við hvem
þann sem ísraelsmenn velja til for-
ystu.“
PLO-samtökin vilja alþjóðlega ráð-
stefnu um málefni Palestínumanna
með þátttöku risaveldanna tveggja.
Shk tillaga var sett fram af Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og hefur Verkamannaflokkurinn
lýst yfir stuðningi við hana. Hægri
menn, meö Shamir, leiðtoga Likud-
bandalagsins, í fararbroddi, hafa
hins vegar tekiö tillögunni illa. Og
þó PLO-samtökin séu ekki tilbúin að
lýsa opinberlega yfir stuðningi viö
ákveðinn flokk eða flokka gera liðs-
menn þeirra sér mætavel grein fyrir
því að líkurnar á að Likud eigi eftir
að setjast að samningaborði með
PLO eru hverfandi litlar.
Karma sagði hins vegar að PLO
samtökin væru tilbúin að ræða við
ísrael án nokkurra skilyrða svo lengi
sem þær viðræður færu fram innan
ramma alþjóðlegrar friðarráðstefnu.
Lusinchi, torseti Venesúela, neitar
þvi að hætta sé á byltingu.
Jaime Lusinchi, forseti Venesú-
ela, sagði í gær aö flutningar á
skriödrekura til að veija forseta-
höllina í Caracas væra alls ekki
merki um að byltingartilraun hefði
verið gerð í landinu.
í síðustu viku voru allt að þijátíu
skriödrekar fluttir til forsetahall-
arinnar eftir að maður, sem kynnti
sig sem yfirmann herráðsins, hafði
varað við því í símtali að bylting-
artilraun væri 1 aðsigl Foringinn,
sem var á vakt, ákvað aö senda
skriödrekana til hallarinnar.
Lusinchi var þá nýfarinn til fund-
ar við aðra leiðtoga Suður-Amer-
íku í Umguay én talið er að mikill
órói kraumi undir yfirborðinu í Venesúela í sambandi við forsetakosning-
amar sem verða 4. desember næstkomandi.
Lusinchi sagði að vangaveltiu- um byltingu þjónuðu eingöngu hagsmun-
um þess sem hringdi og aö honum yrði refsað þegar til hans nasöist.
Vopnahlé framlengt
Tveir hermenn sandinista sitja ásamt þorpsbúum i þorpinu Carmen sem
er um eitt hundrað og sextíu kilómetra frá Managua. í gær tilkynnti
stjómln i Managua að hún hefði ákveðið að framlengja vopnahlé við
kontraskæruliðana.
Simamynd Reuter
Sandinistastjómin í Nicaragua framlengdi i gær vopnahléið við kontra-
skæruliðana sem staöið hefur i sjö mánuði. Vopnahléið hefur staöið í sjö
mánuði. Stjómin sagðist framlengja það út nóvembermánuö þrátt fyiir
að skæruliðamir gerðust sífellt herskárri og sama mætti segja um banda-
menn þeirra, Bandaríkin.
Vopnahléiö tók gildi þann 1. apríl í vor og átti aö renna út á miðnætti
í gær.
Vopnahléið mun ekki hafa áhrif á liðsflutninga sandinista með hermenn
sína til að koma í veg fyrir árásir kontraskæruliðanna, að sögn stjómar-
innar.
Skæruliðarnir hafa sakaö stjórnina um margitrekuö brot á vopnahléinu
en segjast samt ætla að virða það og reyna að finna friösamlegan endi á
stríðinu sem geisað hefur í landinu í sjö ár.
Reuter