Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Qupperneq 24
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Virðist ekki sama hver viU flytja inn hund:
Níu ára dreng synjað
meðan forstjóri ísal fékk
„Forstjóri Álfélagsins í Straum-
svík, Christian Roth, kom meö hund-
inn sinn meö sér þegar hann kom til
landsins fyrir um þaö bil tveimur
mánuðum. Hann fékk innflutnings-
leyfi fyrir hundinn frá landbúnaöar-
ráðuneytinu aö fenginni heimild
yfirdýralæknis. Þaö er greinilegt að
útlendingar eru rétthærri á íslandi
heldur en níu ára gamall sonur
minn, Davíð,“ sagöi Friðbert Páll
Njálsson viö DV.
DV hefur skýrt frá máli Friðberts
þar sem níu ára sonur hans neitar
að flytja meö foreldrum sínum til
íslands þar sem honum hefur verið
synjaö um að hafa íslenska hundinn
sinn með sér, Friðbert hefur fjölda
vottorða til að sanna heilbrigði
hundsins en verið synjað um inn-
flutningsleyfi. Er því borið við að
hann komi frá yfirlýstu hundaæðis-
landi og geti ekki haft hundinn í
sómasamlegri sóttkví.
„Þýskaland er yfirlýst hundaæðis-
svæði en það virðist ekki vera nein
hindrun fyrir að erlendur forstjóri
fái að koma með hund með sér til
landsins. Hér er um beina valdníðslu
embættismanns, Páls A. Pálssonar
yfirdýralæknis, á hendur syni mín-
um að ræða og því er þetta brýnt
mannréttindamál."
DV spurði hvort Friðbert hefði ekki
leitað til umboösmanns Alþingis meö
mál sitt. Hann svarað neitandi þar
sem hann gæti ekki beðið í heila ei-
lífð eftir tilgangslausum bréfaskrift-
um íslenskra embættismanna sem
visuðu á hvern annan í hring. Fyrir
lægi að kynna málið erlendis þar sem
„íslendingar ættu ekki sérlega upp á
pallborðið fyrir hjá almenningi
vegna hvalamálsins.“
Hjá landbúnaðarráðuneytinu var
DV tjáð að.í málum sem þessum væri
treyst á faglegt mat yfirdýralæknis
og ef ekki væri farið eftir því væri
alveg eins hægt að segja honum upp.
Ekkináðistíyfirdýralækni. -hlh
Vinningstölurnar 29. október 1988
Heildarvinningsupphæð kr. 4.057.864,-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur á laugardaginn var, færist
1. vinningur sem var kr. 1.867.421yfir á 1. vinning á laugardag-
inn kemur.
Bónustala + fjórar tölur réttar kr. 324.544,- skiptast á 2 vinnings-
hafa kr. 162.272,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 559.774,- skiptast á 86 vinningshafa kr.
6.5Ó9,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.306.125,- skiptast á 3225 vinningshafa, kr.
405,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
— Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Stangaveiðifélag PatreksQarðar 30 ára:
200 veiðimenn mættu til
að fagna afmælisbaminu
„30 ára afmælið okkar og árshátíð
tókst mjög vel, hér voru saman-
komnir um 200 manns,“ sagði Gísh
Þór Þorgeirsson, formaður Stanga-
veiðifélags Patreksfiarðar, í samtali
við DV, rétt í þann mund er veislu-
gestir héldu heim af hátíðinni á laug-
ardagskvöldiö. Hátíðin heppnaðist
frábærlega í alla staði en hún var
haldin í Félagshemili Patreksfiaröar.
Það var ýmislegt til skemmtunar á
þessari hátíð, skemmtiatriði, ræður
og feikna happdrætti.
Gísli Þór Þorgeirsson formaður
útnefndi Eggert Skúlason fyrsta
Gísli Þór Þorgeirssson formaöur af-
hendir Eggert Skúlasyni, fyrsta heið-
ursfélaga stangaveiðifélagsins,
skjal frá félaginu.
DV-myndir G.Bender
Gísli Þór Þorgeirsson formaður hefur afhent þeim Jóhannesi Arnasyni,
önnu Gísladóttur, Hjörleifi Guðmundssyni og Kóp Sveinbjörnssyni bikara
sína seint á laugardagskvöldið.
heiðursfélaga stangaveiðifélagsins
og er Eggert vel að þeirri útnefnd-
ingu kominn.
Síðan voru veittir bikarar fyrir
stærstu laxana á sumrinu.
Hörleifur Guðmundsson fékk bikar
fyrir stærsta laxinn á maðk, en hann
veiddi 14 punda lax í Laxá í Dölum.
Kópur Sveinbjörnsson fékk sýslu-
mannsbikarinn, fyrir stærsta laxinn
veiddan innan sýslunar, þó var lág-
marksstærð 10 pund. En Kópur
veiddi 12 punda lax í Fjarðarhornsá.
Síðan var veittur bikar þeirri fé-
lagskonu er veiddi stærsta lax á
stöng og kom hann í hlut Önnu Gísla-
dóttur sem veiddi 13 punda lax í Laxá
í Dölum.
í lokin var veittur bikar fyrir
stærsta laxinn veiddan á flugu og
fékk hann Jóhnnes Árnason fyrir 22
punda lax, veiddan í Laxá í Dölum.
Hátíðin tókst vel í alla staði, góð
skemmtun og hljómsveit, skreyttir
salir og margar veiðisögur sagðar.
G.Bender
Deilt um skjald-
armerki á Alþingi
Skjaldarmerkið á Alþingishúsinu
kom til umræðu í sameinuðu Alþingi
í gær þegar umræða var um þingsá-
lyktunartillögu Árna Gunnarssonar.
í tillögunni stingur Árni upp á að
íslenska skjaldarmerkinu frá 1944,
ásamt skjaldberum, veröi komiö fyr-
ir á Alþingishúsinu í staö merkis
Kristjáns konungs níunda. Sagði
Árni vera tímabært fyrir íslendinga
að koma upp sínu eigin merki á þess-
um stað.
Stuttar en heitar umræður urðu
um málið og mæltu þeir Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Eiður
Guðnason gegn tillögunni. Eiður
sagði að tillagan væri ekki skynsam-
leg enda sæi hann ekki hvert hún
myndi leiða okkur því ef hún næði
fram að ganga þyrfti að fara að taka
niður ýmis minnismerki sem minntu
á dönsk yfirráð og nefndi hann til
danska kónginn sem stendur fyrir
utan glugga forseta.
Skúli Alexandersson sagðist hins
vegar styðja tillöguna enda orð í tíma
töluð. Tillögunni var vísað til alls-
herjarnefndar að lokinni umræðu.
SMJ
Umboðsmaöur Alþingis:
Ákvarðanir Birgis teknar til umfjöllunar
Það er ljóst að lektorsveitingin
umdeilda í stjórnmálafræði við Há-
skóla íslands mun koma til kasta
umboðsmanns Alþingis. Þeir Ólafur
Þ. Harðarsson og Gunnar H. Kristj-
ánsson hafa ákveðið aö skjóta sínu
máli til umboðsmanns en auk þess
er hugsanlegt að Björn S. Stefánsson
sendi einnig inn kæru. Þeir sóttu all-
ir um stöðuna sem Hannes Hólm-
steinn fékk sem kunnugt er.
Að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar hef-
ur umboðsmanni ekki enn verið sent
bréf en það væri þó ætlunin. Þar
verði farið fram á athugun á rétt-
mæti ákvörðunar Birgis ísleifs.
Að sögn Björns hefur hann enga
ákvörðun tekið enn um að skjóta
sínu máh til umboðsmanns en hann
játaði að það kæmi til álita.
-SMJ