Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Qupperneq 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Birgitte Nielsen
- veit hver munurinn er á vin-
skap og hjónabandi. Hún veit
hvaö hvort tveggja er - hefur
reynsluna. „Vinskapur varar
ævilangt,“ segir hún. „En hjóna-
band varar bara á milli skiínað-
anna.“
Hvaö ætli henni fmnist þá um
gullbrúðkaup, ætli það sé eitt-
hvað ofan á brauð?
Don Johnson
hefur ekkert breyst þótt hann sé
orðinn faðir. Bamsmóðir hans
Perri Lister var eitt sinn við
sundlaugina við hús þeirra í
Hollywood. Bamiö svaf og mam-
man notaði heymartæki til aö
hlusta eftir því. Skyndilega
heyrðist eitthvað. En það var ekki
í barninu. Pabbinn haíði lætt sér
í símann. Perri heyrði því það
sem Billy sagði í símtólið. Hann
var að leggja á ráðin með ein-
hverri stúlkukind. Það skipti
engum togum, Perri kom sér í
hvelli til London með bamið. Og
nú situr Billy aftur við símann,
nú er hann að biöja hana um að
koma til baka.
Vegagerðarmenn með ráðskonu sinni. Rúna ráðskona stendur á milli
þeirra Elísar Kjaran hirðskálds og Páls önundarsonar, fjölmiðlafulltrúa
hópsins, en ráðskonan var upphaflega hvatinn að Ijóðagerð og flutningi
þeirra félaga. Aðrir á myndinni eru Gunnar Sigurðsson, Jón R. Sigurðs-
son, Sigþór Gunnarsson, Jónas Andrésson, Þröstur Elisson og börn ráðs-
konunnar.
DV-mynd Reynir.
Vegagerðannenn
Ijóða á kvenþjóð-
ina með ráðskonu
sína í öndvegi
Reynir Traustason, Flateyii;
Útvarpshlustendur á rás 2 á
morgnana hafa tekið eftir nýjum,
föstum en reyndar ekki auglýstum
dagskrárlið. Þetta eru aö sjálfsögðu
vegagerðarmenn í Lambadal í Dýra-
firði að ljóða á kvenþjóðina með ráðs-
konu sína í öndvegi.
Þeir mæta á öldur ljósvakans á
hveijum morgni virka daga í þætti
Óskars Páls og Evu Ásrúnar, eða
Adams og Evu eins og einn þeirra
kallaöi þau skötuhjú. Þar frumflytur
flölmiðlafulltrúi hópsins vísu dags-
ins sem auðveldlega getur breytt um
lit ef hugarfar þess sem á hlýðir er
þannig farið. Ohætt er að fullyrða
að landsmenn margir hafa beðið efiir
kviðlingum þessum og ekki hefur
staðið á viðbrögðum og svörum í
visnaformi.
Hér er vísa sem hirðskáld þeirra,
Elís Kjaran, samdi til saumakvenna-
í Húnaþingi en þær höföu sent þeim
vegagerðarmönnum kveðju í vísu-
formi:
Á saumakvenna bjartri braut
bregst þeim ekki svarið
væri gott í ljúfri laut
að líta á gróöurfarið.
Þeir félagar sögðu í viðtali við DV
að þeir stefndu að áframhaldandi
dagskrárgerð, að minnsta kosti út
nóvember.
Og þá er bara að vera á réttri rás
á réttum tíma en þessi vísa varð til
eftir að myndin, sem fylgir grein-
inni, var tekin.
Hér er allt með gleði og glans
glaðværö úti og inni.
Verktakinn og hirðskáld hans
hampa ráðskonunni.
- sem fær æ meiri viskýrödd, var
nýlega á ferð í New York við
plötuupptökur. Hann sagði sam-
starfsmönnum sínum frá stúlku
sem hann haföi hitt kvöldið áður.
Þetta var 19 ára hnáta, Uma
Thurman, sem Don var svona
skotinn í. Daginn eftir kom hann
með Umu og sýndi henni stúdíóið
- hvemig goðin vinna. Síðan
skipti það engum togum aö hann
bað hennar í allra áheym. Stelp-
an sagði nei og gekk síðan út,
þrátt fyrir að Johnson segði: „Þú
veist ekki af hverju þú ert að
missa."
Billy Idol
verða fyrir skotinu?
lionsmenn funda
í Grundarfirði
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi
Laugardaginn 22. október hélt Li-
onshreyfingin svæöisfund fyrir
svæði 2 á Vesturlandi en þaö nær
yfir Snæfellsnes og Dali.
Þetta er einn af þremur fundum
sem haldnir em árlega á svæðunum
til þess að Lionsfélagar geti borið
saman bækur sínar og lært af
reynslu félaga sinna. Þama voru
saman komnir fulltrúar frá fimm
Lionsklúbbum og tveimur Lionessu-
klúbbum.
Fundir sem þessir em mjög nauð-
synlegir vegna þess að Lionshreyf-
ingin er alþjóðlegur félagsskapur og
því meir sem sérhver félagsmaður
leggur sig fram fyrir félag sitt, lands-
hreyfinguna og alþjóðasamtökin,
þeim mun meira fær félag hans og
hann sjálfur út úr starfinu.
Svæðisstjóri svæöis 2 á Vesturlandi
er Smári Jónas Lúðvigsson frá Li-
onsklúbbi Nesþinga, Hellissandi.
Jeromy Agel rithöfundur sem hef-
ur rannsakað himinháa bunka af
skjölum um morðið á John F.
Kennedy hefur komiö með nýja
kenningu um ásetning morðingjans.
Hann telur að Lee Harvey Oswald
hafi ætlað sér að skjóta Jacqueline,
eiginkonu Kennedys. Agel segir að
Oswald hafi verið kvenhatari mikill
og orsök þess að skotið hitti John
hafi verið lélegu miði á skotvopninu
að kenna. Riffillinn kostaöi aðeins
19 dollara.
Agel bendir einnig á að Oswald
hafi margsinnis misþyrmt móður
sinni og eiginkonu. „Hann var ævi-
langt kvenhatari og vildi Jackie
feiga,“ segir hann. „Að skjóta forset-
an var langt í frá ætlunin. Honum
fannst hins vegar að þeir ættu sam-
eiginlegt vandamál, eiginkonurnar.
Kona Oswalds var komin á fremsta
hlunn með aö henda honum út og
Skagamenn
gjafmildir
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akranesi:
Akranesdeild Rauða krossins
gekkst fyrir fatasöfnun nýlega -
laugardag í október - og voru viö-
brögð Skagamanna mjög góð. Mikið
safnaðist af alls konar fatnaði, og það
svo að milli 130 og 140 stórir plast-
pokar fylltust á þeim fjórum klukku-
stundum sem söfnunin stóð yfir.
Starfsfólk deildarinnar haföi í nógu
að snúast og sendir þakkir til allra
bæjarbúa sem stóðu svo myndarlega
aö þessu átaki.
Þau tóku á móti fatnaði í söfnun Rauöa krossins á Akranesi.
DV-mynd Sigurgeir.
honum fannst svipað ástatt hjá for-
setanum. Jackie haföi átt nokkrar
stundir með Aristotele Onassis. Agel
segir að forsetinn hafi sent menn frá
sjóhemum til aö hafa uppi á Jackie.
Oswald ásetti sér að hjálpa forsetan-
um til að losna við eiginkonuna.
Rithöfundurinn kom með þessa
kenningu eftir að hafa rannsakað
sönnunargögn um skotvopnið. Hann
telur að miða heföi þurft örlítið til
vinstri og niður til aö hæfa forset-
ann. Jackie sat hægra megin frá
morðingjanum séð. Þess vegna telur
hann að rangt fómarlamb hafi falliö.
Gunnar Kristjánsson, formaður Lionskiúbbs Grundarfjaröar, flytur fundar-
mönnum skýrslu síns klúbbs.
Rithöfundurinn Jeromy Agel telur að Lee Harvey Oswald hafi ætlað að skjóta Jackie, eiginkonu Johns F. forseta.
Skotvopnið, sem aðeins kostaði 19 dollara, hafði vitlaust mið.
Átti Jackie að