Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989.
Lífsstíll______________
Kartöflur sem
megrunarfæði
Þaö hefur lengi veriö hald manna
aö kartöflur væru fitandi. En þaö er
öðru nær. Hitaeiningagildi kartaflna
er mjög svipað og í ýsu sem jafnan
er talin vera megrunarfæði. í hverj-
um 100 grömmum af kartöflum fást
að meðaltali um 80 hitaeiningar.
Hátt kolvetnainnihald kartaflna er
okkur mjög hagstætt þar sem það er
að jafnaöi heldur lágt í daglegu fæði
okkar. Er jafnan hvatt til aukinnar
kolvetnaneyslu af Manneldisráði og
næringarráðgjöfum. Því eru kol-
vetnaríkir orkugjafar okkur hag-
stæðir eða hollir því þeir vega upp á
móti þeim orkugjöfum sem of mikið
er af í fæöinu eins og fitu og prótín-
um. Því er grænmeti eins og kartöfl-
ur hollt að stærsti hluti orkunnar
kemur úr flóknum kolvetnum
(sterkju eða kartöflumjöli).
Hvernig má meta orku
í matvælum?
Þau efni fæðunnar, sem gefa orku,
eru orkuefnin prótín, fita og kol-
vetni. Til að reikna orkugildi þeirra
er nóg að vita að prótín og kolvetni
(nema trefjar sem eru ómeltanlegar)
gefa okkur 4 hitaeiningar hvert
gramm en flta gefur okkur 9 hitaein-
ingar hvert gramm. í 100 g af kartöfl-
um er hlutfall orkuefna því reiknað
eftir magni þeirra.
Prótín 2,0 g x 4 kcal = 8,0 kcal.
Kolvetni 18 g x 4 kcal = 72,0 kcal.
Fita 0,1 g x 9 kcal = 0,9 kcal.
Alls 80,9 kcal.
Sömu aðferð má beita til aö reikna
Neytendur
orkuinnihald í hvaða mat sem er ef
hlutfall orkuefnanna er þekkt.
Þegar talað er um aö auka þurfi
hlut flókinna kolvetna í fæðu íslend-
inga er jafnan talað um að hæfilegt
sé að um 40-50% af daglegrf orku
komi úr flóknum kolvetnum. Eink-
um er hagstætt að fá kolvetnin úr
grófu korni, ávöxtum og grænmeti
eins og t.d. kartöflum.
Ef við vildum reikna þetta hlutfall
fyrir kartöflurnar er einfalt að deila.
72 kcal úr kolvetnum/80 kcal heildar-
orka kartaflna x 100 = 90%
Þetta þýðir að hlutfall orkunnar
úr kolvetnum kartaflna er 90% sem
er langt yfir þeim 40-50% sem Mann-
eldisráð hvetur til. En þar sem við
lifum ekki á kartöflum einum saman
jafnast þetta út með öðru fæði á
hverjum degi en eykur samt veru-
lega hlut flókinna kolvetna í daglegu
fæði.
Kartöflur í örbylgjuofninn
Mjög þægilegt er að sjóða kartöflur
í örbylgjuofni í lauslega lokuðu íláti.
Þarf að jafnaði 1,5 mínútu á hveija
meðalstóra kartöflu. Ef fleiri en 6-8
stk. eru sett inn í einu má minnka
tímann vegna betri hitanýtingar.
Átta kartöflur þurfa því jafnvel ekki
nema 10 mínútur. Einnig má skræla
kartöflurnar eða skera niður til að
flýta fyrir suðunni í örbylgjuofnin-
um.
Hægt er að fá leirpotta sem steikja
eða brúna mat í örbylgjuofni. Mjög
sniðugt er að skera kartöflurnar
þunnt og blanda með lauk, kjöti eða
hverju því sem hugurinn girnist og
krydda eftir smekk. Þetta má svo
Að aliti greinarhöfundar er kartöflumenningu íslendinga talsvert áfátt.
baka í 10-15 mínútur eftir magni. Er
þá tilbúinn kartöfluréttur sem væri
góður með brauði t.d.
Eflum kartöflumenningu
á íslandi
í nágrannalöndum okkar er kart-
öfluneysla mun meiri en hérlendis
eða allt að því þreföld. Víða er mun
meiri hefð fyrir alls konar kartöflu-
réttum en það þýðir ekki að við get-
um ekki búið til skemmtilega rétti
úr kartöflum eins og aðrir. Best er
að nota stórar kartöflur þar sem þær
innihalda meira þurrefni en þær
minni.
Kartöflum er oft bætt í súpur til
að þykkja þær og gera matmeiri.
Hráar kartöflur eða hálfsoðnar má
raspa niður og steikja á pönnu í ohu.
Gott er að krydda með lauk eða hvít-
lauk og kryddi. Einnig má blanda í
þetta afgöngum ýmiss konar og/eða
öðru grænmeti.
Úr kartöflumús eða röspuðum
kartöflum má forma bollur, borgara
eða hvað sem er og steikja eða baka.
Innbakaðir réttir í kartöflumús geta
verið mjög góðir. í raun eru réttirnir
eins margir og hugmyndaflugið nær
langt. Því er bara að byrja og prófa
sjálf. Það er því ekki aðeins hollustan
sem mæhr með aukinni neyslu kart-
aflna heldur er þetta ódýr og góður
matur sem gæti lækkað matarreikn-
inginn og bætt heilsuna.
Ólafur Sigurðsson
Borgar sig að
gera við skóna?
Verð á þjónustu skósmiða virðist víðast hvar vera á svipuðum nótum.
Hlutfall beina í pakka af kjúklingabitum getur greinilega verið meira en 50%.
Kjúklingará 1.740
krónnr ldlóið
- þegar bein eru dregin frá
Hvað á maður að taka til bragðs
þegar skórnir manns gefa sig á þess-
um síðustu og verstu tímum í kafó-
N færð og kulda. Borgar sig að láta
gera við þá eða er kannski betri kost-
ur að kaupa nýja?
Neytendasíða DV hringdi í nokkra
skósmiði og kannaði hvað kostaði að
sóla stóra karlmannsskó og eins
hvað kostaði að gera við hæla á
kvenskóm.
Gísli Ferdinandsson í Lækjargötu
tekur 1.100 fyrir alsólun með næloni
en 1.290 fyrir alsólun með leðri. Hæl-
viðgerð á kvenskóm kostar 370-390
krónur.
Skóvinnustofa Hafþórs í Garða-
stræti tekur 1.120 fyrir alsólun með
næloni en 1.320 fyrir sömu viðgerð
með leðri. Hælviðgerð á kvenskóm
kostar 400 krónur hjá Hafþóri.
Hjá Skóvinnustofu Sigurbjörns í
Austurveri er hægt að láta gera við
meðan beðið er og þar kostar alsólun
á karlmannsskóm 1.300 krónur með
leðri og 1.100 krónur með gúmmíi.
Hælviðgerð á kvenskóm kostar 400
krónur.
Skóvinnustofa Halldórs í Grímsbæ
tekur 980 fyrir alsólun með næloni
en 1.150 með leðri. Hælviðgerð á
kvenskóm kostar 350 krónur.
Hjá Skómeistaranum á Eiðistorgi
þarf að greiða 1.360 fyrir alsólun með
leðri en 1.150 með næloni. Þar kostar
hælviögerð á kvenskóm 390 krónur.
Samkvæmt þessu virðist verðlagn-
ing skósmiöa vera mjög á svipuðum
nótum þótt verðsamráð þeirra á milh
sé auövitað ólöglegt. Hitt er rétt að
benda á að það verö, sem gefiö er
upp, er miðað við lágmarksviðgerð
þannig að það getur hækkað ef við-
gerð reynist tímafrekari en upphaf-
lega var ráðgert. Skósmiðir töldu að
• um það bil 40-60% ahra skóviðgerða
féhu undir þessar taxtaviðgerðir.
Þeir skósmiðir, sem DV haföi sam-
band við, voru sammála um að nokk-
urs samdráttar gætti í skóviðgerðum
og bentu á mikinn innflutning af
ódýrum skóm í því sambandi sem
gerði það að verkum aö fólk léti síður
gera við skófatnað en áður.
-Pá
Kona, sem ætlaði að útbúa góm-
sætan kjúklingarétt fyrir fjölskyld-
una fyrir skömmu, varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu. Hún keypti
inn til matargerðarinnar meðal ann-
ars pakka af frosnum kjúkhnga-
bringum og var þessi tiltekni pakki
frá kjúklingarbúinu á Móum á Kjal-
amesi.
Þegar bringurnar voru þiðnaöar
brá konunni nokkuð í brún því bit-
amir voru að sjá ekkert nema bein.
Nauðsynlegt var að úrbeina bring-
urnar í réttinn og því auðvelt að vigta
þeinin að því loknu.
í ljós kom að af heildarþyngd, sem
var 760 g, reyndust tæp 400 g vera
bein. Hvert kíló kostar (með beinum)
kr. 825. Þarna var konan í rauninni
að kaupa 360 g af kjúklingakjöti fyrir
627 krónur sem var heildarverð
pakkans. Það þýðir að hvert kíló
hefur kostað 1.740 krónur.
-Pá
Skóarinn á Grettisgötu tekur færi að hann væri einn af fáum
1.280 krónur fyrir alsólun á karl- skósmiðum sem tæki töskur og
mannaskóm með leöri og 1.100 fyr- fleira í viðgeröir. Það getur nefni-
ir sömu aðgerð með nælonsóla. lega hka borgað sig að láta gera við
Viðgerð á hæl á kvenskó kostar 380 gömlu góðu töskuna ef þarf til
krónur. dæmis að sauma hana upp á nýtt.
Skóarinn vildi koma því á íram- -Pá