Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Qupperneq 32
F R ÉTTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989. Lagadeild Háskóla íslands Rúmlega 80% fall í almennri “ lögfræði í gær birtust niðurstöður úr prófi í almennri lögfræði við lagadeild Háskóla íslands. Gífurlegt fall varð á prófinu en aðeins 24 af þeim 126 nem- endum, sem þreyttu prófið, náðu. Það er rúmlega 80% fall. „Jú, auðvitað er þetta há tala en þau fá annað tækifæri í vor. Þetta er nú bara áfangi sem þau geta spreytt sig á. Þetta er stutt námskeið og dálítið þjappað. Kannski er þetta of stíft en nemendur vildu þetta sjálf- ir og fengu það," sagði Sigurður Líndal prófessor en hann hefur yfir- umsjón með námskeiðinu. Sigurður sagði að það væri ekki fyrr en í vor sem eðlilegur mælikvarði væri kom- inn á getu nemenda. Fallhlutfall hefur ávallt verið hátt í almennri lögfræði sem kennd er á fyrsta ári. Það hækkaði mikið í fyrra en þá hafði orðið sú breyting á próf- inu að það var á miöjum vetri í stað þess að fara fram um vorið. ______________________-SMJ Lagmetisiðnaöurinn: 190milljónavaxta- ^ laust afurðalán Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra hefur lagt fram í ríkis- stjórninni skýrslu um það sem gerst hefur á erlendum mörkuðum vegna hvalveiðistefnu íslendinga. Þar er líka að fmna tillögur til að aðstoða íslenska lagmetisiðnaðinn vegna þess skaða sem hann hefur orðið fyr- ir. Halldór leggur til að ríkisstjórnin fari þess á leit við viðskiptabankana og Seðlabanka íslands að veitt verði vaxtalaus afurðalán til sex mánaða vegna þeirra birgða sem safnast hafa upp eftir að verslunarkeðjurnar Aldi og Tengelmann í Þýskalandi hættu að kaupa íslenskt lagmeti. Hér er um að ræða 190 milljónir króna. Þá leggur sjávarútvegsráðherra til að ríkisstjórnin aðstoöi Sölustofnun lagmetis við aö koma framleiðslu ársins 1989 á aðra markaði en í Þýskalandi. Einnig að veittar verði 20 tO 30 milljónir króna til kynning- arstarfs á málstað íslendinga og til gagnaðgerða gegn áróðri grænfrið- unga. -S.dór «i0U.ASi-a ÞRDSTUR 68-50-60 VANIR MENN Hafís hindrar skipaferðir við Vestfirði: Vestanátt baneitruð - segja bátaskipstjórar fyrir vestan „Við ætluðum fyrir Hom á leið til Þingeyrar. skipstjóri frá Flateyri sagði DV í þriðjudag en urðum aö snúa frá og Mikill haíis er nú norður og vest- morgun aö loks þegar gæfi til veiða bíða átekta inni á Húnaflóa. Um ur af landinu og hefur hann truflað kæmust bátamir ekki út fyrir is. hádegi í gær flaug gæslan yfir og skipaferðir við Vestfirði undan- Þótti honum ísinn vera snemma á við fréttum af glufum 'í ísnum. Við farna daga. Þannig hafa línubátar ferðinni alveg upp við land og taldi sigldum þarna í nótt og það gekk ekki komist frá Flateyri og í morg- menn óttast vestanáttina meira en ágætlega frá Homi að Kogri þar un voru þrjú skip við ísröndina út nokkuð annað. Þá kæmi meginís- sem var hreinn sjór. Síðan var tölu- af Önundarfirði. Það era Mánafoss, inn upp aö landinu og rólegt yrði í vert íshrafl meö einstaka jökum Kyndill og Esja sem öll era á leið plássunum fram undir vor. „Vest- alveginnfyrirRiturviðísafjarðar- til ísafjarðar. Viggó Þorsteinsson, anáttin er baneitruð fyrir okkur djúp. Þó ísinn hafi ekki verið yfirstýrimaður á Mánafossi, sagði núna." óskaplega mikill var töluverð í morgun aö skipin biðu birtingar Á veðurstofunni fengust þær hreyfing á honum sem gerði okkur og vonuöust til að finna glufur í upplýsingar að suðaustanátt yrði í erfiðara fyrir," sagði Kristinn isnum. dag og. suðvestan í fyrramálíð. Aadnegard, skipstjóri á Amarfelli, Reyndar er meginísinn um 30-40 Fylgdi síðan noröanátt í kjölfarið. í samtali við DV í morgun. Arnar- raflur út af landinu en ísspangirnar -hlh fellið var þá nýfarið frá ísafirði á teygjasigalvegaðlandi.Einnbáta- Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti alvarlega slasaðan vélsleðamann til Selfoss seint i gærkvöldi. Maðurinn hafði slasast alvarlega fyrr um kvöldið er hann var, ásamt syni sínum, að eiga við vélsleða. Þegar hann reyndi að gangsetja sleðann rauk hann í gang og þeyttist af stað á mikilli ferð. Bensingjöfin hafði frosið föst. Sleðinn óð áfram á mikilli ferð og staðnæmdist ekki fyrr en hann lenti i grjóti. Þar endastakkst hann og maðurinn tókst á loft og stöðvaðist á hörðu undirlendinu töluvert frá. Maðurinn slasaðist alvarlega á höfði og baki. Hann hlaut einnig alvar- leg innvortismeiðsl. -sme/DV-mynd Kristján Einarsson LOKI Fall virðist fararheill í lögfræðinni! Veðriö á morgun: Minnkandi frost Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt á landinu, aö mestu úrkomlaust um norðanvert landið en él í öðrum landshlutum. Frost verður 1-8 stig. Fjórar dýrustu laxveiðiárnar 1989 Laxá á Ásum: Dýrasti lax- veiðidagurinn á 110 þúsund Dýrasti dagurinn í Laxá á Ásum í sumar kostar 110 þúsund krónur stöngin. Þetta er langdýrasta veiði- leyfi í laxveiðiá hérlendis á komandi sumri. í fyrra kostaði dýrasti dagur- inn í Laxá á Ásum 70 þúsund krónur fyrir stöngina. Verðið hefur því hækkað um 57 prósent. Önnur dýrasta laxveiðiá landsins í sumar er Laxá í Kjós, metveiðiáin frá í fyrra. Þar kostar dagurinn á dýr- asta tímabilinu rúmar 41 þúsund krónur fyrir stöngina en kostaði í fyrrasumar 32 þúsund krónur. Eigendur Laxár á Ásum eru þænd- urnir við ána. Þeir selja veiðileyfm sjálfir en leigja ána ekki út til aðila sem svo aftur selur leyfin. En slíkt þekkist víða. Aðeins eru leyfðar tvær stangir á dag í ánni yfir sumarið. í öðram ám eru miklu fleiri stangir. Færri komast að í Laxá á Ásum en vilja. Hver einasti dagur er seldur í sumar. -JGH - sjá einnig bls. 6 ísafjarðardjúp: Formlegri leit hætt finnist ekkert í dag Formlegri leit að rækjuþátnum Dóra ÍS frá ísafirði og mönnunum tveimur sem eru á bátnum verður hætt í kvöld finnist ekkert af bátnum í dag. Hefðbundin eftirleit verður næstu daga. í gær var mikil leit gerö í ísafjarðardjúpi. Um 50 manns gengu fjörur og fjöldi báta og skipa leitaði á sjó. Þá var leitað úr lofti. Flugvélar frá Emi á ísafirði og Fokk- ervél Landhelgisgæslunnar flugu yfir leitarsvæðið. Þrátt fyrir góð leit- arskilyrði urðu leitarmenn einskis varir. í gærmorgun gat leit ekki hafist fyrr en um klukkan ellefu sökum afleits veðurs. í Reykjanesi, sem er innarlega í ísafjarðardjúpi, voru ell- efu vindstig og éljagangur klukkan níu. Leit var hætt að mestu um klukkan sjö í gærkvöldi. Þó héldu nokkrir bátar leit áfram fram eftir kvöldi. í dag er fyrirhugað að rækjubátar reyni með dýptarmælum að nema flak Dóra ÍS á botni ísafjarðardjúps. Mennirnir tveir, sem saknað er, heita Ólafur N. Guðmundsson, 43 ára, kvæntur og fjögurra barna fað- ir, og Ægir Ólafsson, fjögurra barna faðir. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.