Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989.
Andlát
Leifur Jónsson, Njaröargötu 27,
Reykjavík, andaðist á heimili sínu
þriðjudaginn 28. febrúar.
Jón H. Jónsson, Miðhúsum, Mýrar-
w sýslu, lést í Sjúkrahúsi Akraness 28.
febrúar.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir kennari,
Jöklafold 12, andaðist aðfaranótt
þriðjudagsins 28. febrúar.
Jarðarfarir
Hjörný Friðriksdóttir lést 21. febrúar.
Hún fæddist á ísafirði 2. ágúst 1941,
dóttir hjónanna Elínborgar Sigurð-
ardóttur og Friðriks Ottóssonar.
Hjömý lauk námi frá Kvennaskólan-
um. Síöustu árin starfaði hún hjá
Flugleiðum. Hún var sölustjóri á
söluskrifstofu Flugleiða í Kringlunni
frá opnun 1987. Eftirlifandi eigin-
maöur hennar er Jón Hilmar Björns-
son. Útfór hennar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Þórður Sigurðsson, Hörgatúni 9,
Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Garðakirkju fóstudaginn 3. mars kl.
Merming
Margrét Jónsdóttir - Tvær ónefnur, olía, 1988.
Daði Guðbjörnsson - Tvöföld krossfesting, olía, 1984-88.
Tvöföld krossfesting
Það verður að segja hverja sögu
eins og hún er. Sýning Félags ís-
lenskra myndlistarmanna aö Kjar-
valsstöðum, sem aö einhverju leyti
er ætlaö að koma í stað hefðbund-
innar haustsýningar, er ansi hreint
raunaleg uppákoma.
Meðlimir í FÍM eru nú komnir
hátt á annað hundraö en af þeim
taka aðeins nítján þátt í sýning-
unni.
Flestir þeirra eru nýliðar í sam-
tökunum, of reynsluhtlir til að láta
mikið að sér kveða, en þeir sem
hafa til þess burði skortir aftur á
móti sannfæringuna.
Þetta er náttúrlega uppskrift að
tilvistarkreppu og fer ekki hjá því
að manni veröi hugsað til framtíðar
MyncUist
Aðalsteinn Ingólfsson
listamannasamtaka sem ekki eru
þess umkomin að setja saman
sæmilega rismikla sýningu á nokk-
urra ára fresti.
Hefur FÍM gengið sér til húðar í
núverandi mynd? Hefur SÍM tekið
við hlutverki þess? Eða er sjálfu
sýningarforminu um að kenna?
Þessi mál ættu myndlistarmenn
að taka til umræðu við fyrsta tæk-
ifæri áður en almenningur missir
alla trú á samtökum þeirra.
Ég hef áður viðrað þá skoðun
mína að eina leiðin til að hefja sam-
sýningar FÍM aftur til vegs og virð-
ingar sé að hætta innsendingum
en fela einstaklingi eða nefnd aö
búa sýningar til eftir eigin höfði.
Til þess er nauðsynlegt að ganga
á milli vinnustofa og velja glóðvolg
listaverk til sýningar með það fyrir
augum að gefa sterka og fjölbreytta
heildarmynd af íslenskri myndlist
á hverjum tíma.
Þessari skoðun er hér meö komið
aftur á framfæri.
Það er sem sagt ekki mjög upp-
örvandi að skoða þetta litla og
handahófskennda samansafn
mynda sem fundið hefur sér leið
upp á veggi Kjarvalsstaða.
Þar er að vísu fátt sem mundi
teljast óalandi og óferjandi en
jafnfá verk hafa til að bera nauð-
synlega innlifun og sköpunarkraft,
það sem Danir mundu kalla
„vængjaþyt".
Því má segja að þau haldi sýning-
unni uppi, Sigurður Örlygsson og
Margrét Jónsdóttir, hvort tveggja
með víðfeðm verk og innihaldsrík.
Svo sá ég ekki betur en að Daði
Guðbjömsson væri farinn að hugsa
meira um tákn en myndletur, allt-
ént þóttist ég greina lítt dulda til-
vísun í píslarvætti hstamannsins í
stórri mynd hans, „Tvöföld kross-
festing" (nr. 28).
FÍM-sýningunni lýkur sunnu-
dagskvöldið 5. mars. -ai.
13.30.
Gunnar Þorsteinsson, Reykjalundi,
verður jarðsunginn frá Lágafells-
kirkju laugardaginn 4. mars kl. 11.
Sigríður Ásmundsdóttir saumakona,
Vesturströnd 29, Seltjarnarnesi,
verður jarðsett frá Dómkirkjunni
föstudaginn 3. mars kl. 13.30.
Anton Kristjánsson rafvirkjameist-
ari, Brekkugötu 9, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 3. mars kl. 13.30.
Sveinn E. Sveinsson, fyrrverandi
matsveinn, Hrafnistu, Reykjavík,
sem lést 25. febrúar, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. mars kl. 10.30.
Margrét Sólveig Sigurðardóttir frá
t
Þökkum hjartanlega sýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegrar ömmu okkar og langömmu
Oddnýjar Ingimarsdóttur
Eyrargötu 14, Siglufirði
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu
Margrét Gunnarsdóttir Oddný Gunnarsdóttir
Sigurlaug Gunnarsdóttir Svava Gunnarsdóttir
Kolbrún Gunnarsdóttir Sigriður Gunnarsdóttir
makar og barnabarnabörn
SENDLAR ÓSKAST
á afgreiðslu DV strax
Upplýsingar í síma 27022.
•S'. c.
1
H BLAÐ
^ t BURDARFÓLK
i e^tx/út^Ácyu /weAsjjC ■
Í í
i i i $ i
11
I i
i i
Lindarbraut
Miðbraut
Vallarbraut
Leifsgötu
Egilsgötu
Sendlar óskast á afgreiðslu strax.
AFGREIÐSLA
nn « If « «
ÞVERHOLTI 11 B P Á SÍMI 27022
Hofteigi, Dehdartúni 2, Akranesi,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 26.
febrúar, verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju föstudaginn 3. mars kl. 11.
Hugi P. Hraunfjörð pípulagninga-
meistari, Fannborg 1, Kópavogi,
veröur jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 3. mars nk. kl.
13.30.
Útför Maríu Emilíu Albertsdóttur frá
Sléttu, Sléttuhreppi, fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 3. mars
kl. 15.
Trtkyimingar
„Ljóð í Nýhöfn“
Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti 18,
ásamt Ara Gísla Bragasyni og Steinunni
Ásmundsdóttur gengst fyrir ljóða- og tón-
listarkvöldi í kvöld, 2. mars. Þeir sem
lesa upp úr verkum sínum eru: Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson, Ragnhildur
Pála Ófeigsdóttir, Ólafur Haraldsson,
Gísli Þór Gunnarsson, Þorsteinn frá
Hamri, Bárður Jónsson, Eiríkur Brynj-
ólfsson, Hansína Ingólfsdóttir og Jónas
Þorbjamarson. Karl Guðmundsson mun
lesa úr ljóðaþýðingum sínum. Kynnir er
Steinunn Ásmundsdóttir. Áætlað er að
hafa ljóöalestur í Listasalnum einu sinni
í mánuði. Dagskráin hefst kl. 20.30 og
stendur til kl. 22.30. Kaffiveitingar í hléi.
í Nýhöfn stendur nú yfir sýning Bjarkar
Örvar á olíumálverkum.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
fmuntudag. Kl. 14 frjáls spilamennska,
•kl. 19.30 félagsvist, kl. 21 dansað. Ath:
Góugleði verður haldin í Tónabæ 4. mars
nk. Miðasala veröur á skrifstofu félagsins
í síma 28812.
Alþjóðlegur bæna-
dagur kvenna
verður aö þessu sinni tostudaginn 3.
mars og verður samkoma hjá Hjálpræð-
ishernum kl. 20.30 þann dag. Alþjóðlegur
bænadagur kvenna er vaxinn úr litlum.
bænahópum upp í alheims samfélag sem
er sterkur hletdiur mitli kvenna um allan
heim. Ár hvert bætast nýir hópar í þenn-
an bænahring. Nú taka um 170 þjóðir
þátt í þessum bænadegi kvenna sem er
haldinn árlega fyrsta fóstudaginn í mars.
Allir, jafnt konur sem karlar, eru vel-
komnir á samkomur bænadags kvenna
um allt land fbstudaginn 3. mars.
íslandsmeistarakeppni
unglinga i frjálsum dönsum
Dagana 10. og 18. mars verður haldin í
félagsmiðstöðinni Tónabæ 8. íslands-
meistarakeppni unglinga í Frjálsum
dönsum („BTeestyle"). Allir unglingar
búsettir á landinu og fæddir 1972-1975
geta tekið þátt. Keppt verður í tveimur
flokkum, einstaklings- og hópdönsum.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
J’æ
W-
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greióslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTl 11
SÍMI 27022
mSm~'
{ SitÁmXT.Avf-'íO j
Éi
Hópur telst minnst 3 keppendur. Enginn
hámarksfjöldi er, en allt umfram 7 kepp-
endur getur dregið úr gæðum danssins
vegna gólfstærðar. Einstaklingsdansar
mega vera hámark 2,5 mín. Hópdansar
mega vera hámark 3 mín. Úrslit verða í
Tónabæ laugardaginn 18. mars. Þátttöku-
gjald er 200 kr. á mann. Skráning er haf-
in í Tónabæ í síma 35935 og stendur til
3. mars.
Kvikmyndir
Kvikmyndaklúbbur
íslands
sýnir í dag, og á laugardag vesturþýsku
myndina „.Karlmenn", (Mánner), frá ár-
inu 1986 eftir þýska leikstjórann Doris
Dörrie. Myndin er sýnd í kvikmyndahús-
inu Regnboganum viö Hverfisgötu kl. 21
og 23 í kvöld og á laugardag kl. 15. Miða-
verð er 200 krónur fyrir klúbbmeðlimi.
Félagsskírteini fást í miðasölu Regn-
bogans og kosta 500 krónur. Þessi mynd
Doris Dörrie, sem er einn virtasti kven-
leikstjóri Vestur-Þýskalands, hlaut bestu
aðsókn sem þýsk mynd hefur hlotið síðan
stríðinu lauk og varð eftir það mjög vin-
sæl í New York. Myndin er 99 mínútur
að lengd og er enskur texti á myndinni.
Fundir
Aðalfundur Ferða-
félags íslands
Aðalfundur Ferðafélags íslands verður
haldinn fimmtudaginn 2. mars í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a. Fundurinn hefst
stundvíslega kl. 20.30. Venjuleg aöalfund-
arstörf. Félagar sýni skirteini frá árinu
1988 við innganginn.
Tapað fimdið
Læða tapaðist
Gul og bröndótt læða með hvíta bringu
og loppur tapaðist úr Ártúnsholti á
sunnudaginn sl. Hún var merkt meö
rauða ól. Finnandi vinsamlegast hringi í
S. 673717.
Hjól tapaðist
Grátt og silfurlitað hjól af gerðinni X2
(svipað BMX) tapaðist frá Hólabrekku-
skóla á þriðjudagskvöldið sl. milli kl.
20-22. Ef einhver veit hvar hjólið er nið-
urkomið, þá vinsamlegast hringið í sima
79435.