Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Neyzlusauðir nenna ekki Ef fylgst er meö fólki 1 kjörbúðum, er auðvelt að kom- ast að raun um, að fáir hugsa eins og hagsýnir neytend- ur. Fíestir þrífa hluti úr hillunum án þess að líta á verð- ið. Og margur er óþarfmn í körfunum, þegar komið er að kassanum. Það er eins og peningar skipti engu máli. íslendingar eru of ríkir og of eyðslusamir. Allur þorri manna leyfir sér það, sem honum dettur í hug. Einka- neyzlan er of mikil, enda eru launin of hátt hlutfall af veltu þjóðarbúsins. Ef svo væri ekki, mundu neytendur hklega gera meira af að velta hverri krónu fyrir sér. Sameiginlegt átak neytenda er næstum óþekkt fyrir- bæri hér á landi. Fyrir mörgum árum reyndi félag bif- reiðaeigenda að mótmæla benzínhækkun með því að fá íbúa Reykjavíkursvæðisins til að fara einn dag í strætis- vagni í vinnuna. Þessi aðgerð mistókst gersamlega. Ef nautakjöt hækkar um nokkur sent í Bandaríkjun- um, setja þarlend samtök neytenda allt í gang. Svo al- menn er þátttaka almennings í að neita sér um nauta- kjöt í þrjár vikur eða lengur, að bráðlega er kjötverðið komið niður fyrir það, sem það var fyrir hækkun. í Bandaríkjunum hugsa neytendur eins og sjálfstæðir borgarar, sem neita að láta bjóða sér hvað sem er. Hér eru neytendur hkari þegnum en borgurum og haga sér raunar eins og sauðir. íslendingar taka bara upp plast- kortið og borga nýja verðið, hvert sem það er. Nú hyggjast Neytendasamtökin kanna, hvort unnt sé að fá íslenzka neytendur til að haga sér eins og alvöru- borgarar og neita sér um stundarþægindi í þágu varan- legra langtímahagsmuna sinna sem neytendur. Verður það að kallast töluverð bjartsýni samtakanna. Tilefnið er ærið. Landbúnaðarskrímslið hefur að undanfórnu verið að smíða svipaða einokun í kjúkling- um og kartöflum og hefðbundin er orðin í afurðum kúa og kinda. Þegar hefur tekizt að hækka kjúklinga og kartöflur margfalt meira en verðbólgu á stuttum tíma. Auðvitað ættu neytendur fyrir nokkru að hafa risið upp sem einn maður gegn þessum aðgerðum. Raunar ættu þeir ekki að hafa þurft neytendasamtök til að segja sér, að nú er rétti tíminn til að neita sér um kjúklinga og kartöflur í nokkurn tíma, til dæmis eitt ár. En gallinn er bara sá, að íslenzkir neytendur hafa hingað til ekki hugsað svona. Sem dæmi um eymd og auðnuleysi þeirra má nefna sjálft landbúnaðarskrímsl- ið. Áratugum saman hafa neytendur látið það bjóða sér einokun á afurðum kinda og kúa, - kjöti og mjólk. Neytendur hafa látið skrímslið telja sér trú um, að þeir hafi hag af, að þjóðin sé sjálfri sér nóg í fram- leiðslu þessara afmörkuðu tegunda matvæla. Menn láta tyggja ofan í sig khsjuna um, að þetta sé öryggisatriði. Sennilega sem öryggi í þriðju heimsstyrjöldinni! Ef aðflutningar teppast til landsins, er meiri en nógur matur til, bæði fiskur í geymslum fiskvinnslustöðva og pakkavara í geymslum heildverslana. Dilkakjöt og mjólk hafa afar afmarkað gildi við slíkar aðstæður. En neytendur nenna ekki að hugsa öryggisklisjuna til enda. Ef neytendur hugsuðu á hagsýnan hátt og Neytenda- samtökin höguðu sér í samræmi við það, væri þeim ljóst, að hátt verð á kartöflum og kjúkhngum er barna- leikur í samanburði við verð á afurðum kinda og kúa. Þar mundi verzlunarfrelsi jafngilda lífskjarabyltingu. En íslendingar eru á of háu kaupi og hafa það of gott, - neyzlusauðir, sem nenna ekki að taka til hendinni við að reka landbúnaðarskrímshð alveg af höndum sér. Jónas Kristjánsson „Tilhugsunin um herflugvöll I þessu umhverfi er ekki aðeins ógeðfelld, hún er skelfileg", segir greinarhöf. Frá Laxá í Aðaldal. Nei vlð nýjum NATÓ-velli Umræðan um svokallaðan vara- flugvöll rís hátt þessa dagana. Sem oft endranær er það Mammon, sem ruglar menn í ríminu og gerir að nytsömum sakleysingjum. Afstað- an skiptir mönnum í fylkingar (kannski var það líka upphaflega markmiðið) þeirra, sem trúa því, að vopnin tryggi friðinn, og hinna, sem eru andvígir auknum hemað- arlegum umsvifum hér á landi, og gildir þá einu þótt reynt sé að klæða slík umsvif í grímubúning. Tölum hreint út Það er nánast hlálegt, og nær væri þó að segja grátlegt, þegar reynt er að halda því fram að vara- flugvöllur, kostaður af Mann- virkjasjóði Atlantshafsbandalags- ins, yrði ekki hernaðarmannvirki. Hvers vegna ættu ráðamenn slíks sjóðs að vilja opna hirslur sínar, ef þeir litu ekki á framkvæmdina sem lið í hemaðamppbyggingu? Það er bamaskapur að halda ann- að. Hlutina ber að kalla réttum nöfn- um. Það er verið að reyna að tosa áfram því brennandi áhugamáli bandaríska hersins og hershöfð- ingjanna í Atlantshafsbandalag- inu, að hér verði hægt að reka hernað ef á þarf að halda, ekki að- eins frá suðvesturhomi landsins, heldur einnig frá norðausturhorn- inu. Boltinn kom frá Baker Núverandi utanríkisráðherra virðist vera áhugamaður um málið, og ekki hefur áhuginn dofnað eftir fundinn með hr. Baker hinum bandaríska í flugstöðinni nýlega. Þangað snaraðist ráðherrann, svo að Baker þyrfti ekki að eyða allt of löngum tíma á íslenskri gmndu, og af fréttum má ráða að vel fór á með þeim svo og ýmsum úr fylgd- arliði þeirra. Nú vill utanríkisráðherra láta gera svokallaða forkönnun á gerð varaflugvallar, áhugasamur sem aldrei fyrr eftir þennan fund, og segist ekki þurfa að spyrja annan en sjálfan sig um heimild til þess. Þá skoðun styðja áhugamenn um „Varið land“ í Sjálfstæöisflokki, Borgaraflokki og Alþýðuflokki og hvetja utanríkisráðherra til dáða, halda opna fundi um málið og efna til umræðna á Alþingi. Tilgangurinn aðeins einn Reynt er að breiða yfir augljósan tilgang á svipaðan hátt og ratsjár- stöðvunum var þröngvað upp á þjóðina undir því yfirskini, að ör- KjáUarinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans yggi íslenskra sjómanna væri í veði. Nú á að telja mönnum trú um, að öryggi íslenskra flugfarþega og gott ef ekki í öllu Atlantshafsflug- inu sé í veði. Löngu er búið að upplýsa, að í raun er ekki illa fyrir örygginu séð og tiltölulega lítið mál að tryggja það enn betur með endurbótum á völlum, sem fyrir eru í rekstri. Ekki hin minnsta þörf er fyrir varaflugvöll af þeirri gerð, sem menn vilja nú „forkanna", nema til þess eins að þjóna hernaðarlegu hlutverki á striðstímum. Er mönnum alvara að vilja kalla slíkt yfir okkur? Þetta er aðeins forkönnun, segja menn. Er ekki allt í lagi að gera svona forkönnun? Slíkri könnun fylgja engar skuldbindingar. Svarið er nei. Það er ekki- í lagi vegna þess að forkönnun er fyrsta skrefið og fyrsta skrefið skal láta óstigið, nema menn geti hugsað sér að halda áfram. Svo einfalt er þaö. Óbætanlegt umhverfisslys Einn er sá þáttur, sem að mestu hefur orðið útundan í allri þessari umræðu, og það eru umhverfis- sjónarmiðin. Sá staður sem málið snýst einkum um er Aðaldalsflug- völlur. Menn eru sem sagt að bolla- leggja um flugvöll til hemaðamota, 3.000x60 m að stærð, á bökkum einnar fegurstu ár landsins og þótt víðar væri leitað. Tilhugsunin um herflugvöll í þessu umhverfi er ekki aðeins ógeðfelld, hún er skelfileg. Það væri óbætanlegt umhverfisslys ef hemaðarbrölti yrði beint á þessar slóðir. Slík fullyrðing er ekki út í bláinn, enda studd fréttum af viðbrögðum þar norður frá. T.d. ályktaði stjórn Félags landeigenda við Laxá í Aðal- dal og Mývatn á fundi nýlega þar sem fyrirætlunum um varaflugvöll í Aðaldal á vegum Atlantshafs- bandalagsins var mótmælt harð- lega. í ályktuninni var bent á, að þessi framkvæmd ógnaði tvímæla- laust lífríki árinnar og umhverfi hennar, t.d. Skjálfandaflóa, og síð- an segir orðrétt: „Olíubirgðastöð er ein sér nægi- leg ástæða auk slysahættu og margvíslegra náttúruspjalla. Laxá og bakkar hennar eru verndaö svæði samkvæmt lögum frá 1974. Landeigendafélag Laxár og Mý- vatns mun hér eftir sem hingað til standa vörð um þetta svæði. Því skorum við á ráðamenn þjóðarinn- ar að taka þegar af allan vafa um að hér verði flugvöllur sem þessi ekki byggður." Víti til varnaðar Ef til vill hvarflar aö einhverjum að flugvöllur af þessu tagi gæti leyst hluta þess vanda, sem við er að fást í atvinnumálum í nálægum byggðarlögum. Reynslan á Suður- nesjum ætti þó að vera nægUegt víti til vamaðar, þar sem nálægðin við „Völlinn" hefur grafið undan sjávarútveginum og verið hindrun í vegi fyrir eðUlegri upbyggingu í atvinmúifinu. Það er staðreynd, sem ekki veröur á móti mælt, og heUög forsjónin forði Þingeyingum frá sUkum hremmingum. FuUyrða má, að sú umræða, sem nú ber svo hátt í þjóðfélaginu og er tilefni þessarar greinar, hljómar ekki sem nein þjóðvísa í eyrum flestra þeirra, sem búa á þessum slóðum, heldur sem argasta gaddavírsrokk. Kristín Halldórsdóttir „Nú á að telja mönnum trú um að ör- yggi íslenskra flugfarþega og gott ef ekki 1 öflu Atlantshafsfluginu sé í veði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.