Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1989, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. MARS 1989. Fréttir Fjörugur en vandræðalaus 1. mars: Ölið rann í stríðum straumum fram á nótt „Meira, meira, meira...“ æpti mannskapurinn á Gauki á Stöng rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Meiri mús- ík, meira öl. Þar hafði verið stans- laust stuð á mannskapnum frá því fyrr um kvöldiö og undir lokin virt- ist ekkert lát á fjörinu. Ölið rann í stríðum straumum - úr krönum krárinnar og niður um kok gestanna. Ekki bar á öðru en að þessi fyrrum forboðni og umdeOdi drykkur legðist vel í fólk. Það var nánast enginn áberandi ölvaður en það fór um leið ekki á milh mála að eitthvaö sterkara en Gvendabrunnavatn var haft um hönd. Við undirleik Bítlavinafélags- ins dansaði mannskapurinn uppi á borðum og létu eigendur staðarins sitt ekki eftir bggja í þeim efnum. Það er ekki keypt dýrara en það var selt, en blaðamaður þóttist heyra að á Gauknum hefðu selst um 500 lítrar af öh á fyrsta bjórdegi síðan 1912. En það var fjör á fleiri stöðum. í Ölveri lék írska þjóðlagahljómsveitin The Dubliners við góðar undirtektir gesta sem fylltu hvert hom staðar- ins. í Ölkjallaranum var vel setinn bekkurinn og sama var aö segja um Kringlukrána. Það var haldið veg- lega upp á 1. mars. En hvað sögðu veitingamenn? Tóku bjórnum vel Það var samdóma áht þeirra að fólk tæki bjórnum mjög pent. Þeir gátu engan veginn metið hve mikið þeir höfðu selt eða hvernig þessi fyrsti bjórdagur í 76 ár hafði gengið. Þeir veitingamenn sem DV ræddi viö undir miðnætti voru alhr kúgupp- gefnir eftir undirbúning B-dagsins og viðburði þessa dags. Krárgestirnir viðhöfðu hástemmd lýsingarorð eins og „dásamlegt“, „yndislegt" og fleira í þeim dúr. Þótti þeim öhð gott og af svörum barþjóna mátti ráða að í hæsta lagi einn til tveir sterkir drykkir hefðu verið af- greiddir á klukkutíma. Stóðu í spreng Hvað gestina áhrærir bar ýmislegt skondið á góma. Þannig sögðust ung- ar stúlkur í Ölkjaharanum ætla að stunda eróbikk af tvöfóldum krafti th að hafa í við kaloríumagn „þess gula“. Yrði að varast aö fylla ekki of vel út í buxnastrenginn. Kynsyst- ur þeirra á Gauknum stóðu nokkrar í spreng fyrir utan salemin og kvört- uðu undan því að veitingahúsin skyldu ekki vera hönnuð með öl í huga. AUt virtist þó enda vel á þessum fyrsta bjórdegi í 76 ár. Því tU stað- festingar má nefna að lögregla sagði þennan dag ekki erilsamari en venju- legan miðvikudag. Hvernig ölið mun reynast um helgina og í framtíðinni er aftur á móti spurning sem enginn þorði að svara. -hlh Menn hafa oft verið hástemmdir á Gauki á Stöng og þar mikið fjör en í gærkvöldi voru menn hátt uppi i bókstaf- legri merkingu. Létti ölið lund manna svo mikið að þeir réöu sér ekki og hófu villtan dans uppi á borðum. Var barborðinu ekki hlíft í þessum ósköpum þar sem Bítlavinafélagið sá um tónlistina. DV-mynd KAE Jöf n og mikil sala úti á landi „Það hefur verið mjög jöfn sala í bjómum í dag og ekki myndast nein- ir álagspunktar eins og við héldum að myndi gerast,“ sagði verslunar- sfjóri ÁTVR á Neskaupstað í samtali viðDV. Viöbrögð annarra verslunarstjóra víðs vegar á landinu vom á sama veg þegar DV hringdi á útsölustaði ÁTVR undir lokun í gær. Hvað einstakar bjórtegundir varð- ar var mikil sala í Egjls Gulh og Löw- enbrau en engin ein tegund skar sig alveg úr í sölu. Víðast hvar töldu verslunarstjórar sig hafa nægan bjór til helgarsölunnar. -hlh Bjórsalan 1. mars: Um 135 þúsund lítrar af bjór seldust Ahs seldust um 135 þúsund lítrar af bjór frá ÁTVR í gær, fyrsta bjór- daginn í 76 ár. Þar af voru um 110 þúsund lítrar á dósum, 13 þúsund lítrar á flöskum og svipað á kútum. Á Reykjavíkursvæðinu seldust um 170 þúsund dósir af bjór eða um 60 þúsund htrar. íslendingar, 20 ára og eldri, eru tæp 170 þúsund sem gerir um 1,3 htra af bjór á mann. í Reykjavík skiptist salan nokkuð jafnt á áfengisútsölurnar. í Kringl- unni seldust um 46 þúsund dósir, Lindinni 38 þúsund, Snorrabraut 38 þúsund og Mjódd 28 þúsund. Óvíst er hve mikið seldist á Stuðlahálsi en mun vera svipað magn og í hinum útsölunum. Mem\ fóru sér hægt þegar meta átti vinsælasta bjórinn þar sem tak- markað magn var af sumum erlendu tegundunum og ekkert af einni þeirra. í fljótu bragði virðist mest hafa selst af Löwenbrau og Eghs Gulh. -hlh Bjórsmyglið: Áframhaldandi gæsluvarðhald Maður sá sem nú hefur verið í gæsluvaröhaldi í hálfan mánuö var í gær úrskurðaður th að vera í gæslu- varðhaldi í tvær vikur til viðbótar. Rannsóknarlögreglan óskaði eftir þriggja vikna framlengingu. Saka- dómur féhst ekki á þá kröfu og úr- skurðaði manninn í tveggja vikna varðhald. Maðurinn hefur neitað öhum sak- argiftum. Hann er grunaður um að hafa keypt 1100 kassa af bjór í Belgíu og flutt með Laxfossi til Reykjavíkur. Skipið kom með bjórinn 17. janúar. Maðurinn er yfirmaður á skipum Eimskipafélagsins. -sme Valt í Laxá Bíh valt í Laxá í Leirársveit um var fluttur á Sjúkrahúsið á Akra- klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Far- nesi. Bílhnn er taisvert skemmdur. þegi sem var í bílnum slasaðist og -Sme Akureyri: Seldu 2000 kassa Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við vissum varla á hveiju við átt- um von en ég held að enginn hafi reiknað með svona mikhli bjórsölu," sagði Haukur Torfason, útsölustjóri ÁTVR á Akureyri, í samtali við DV í gærkvöldi. „Menn voru famir að bíða hér á planinu fyrir utan hálftíma áður en við opnuöum og það má segja að stanslaus straumur hafi verið hingaö ahan daginn. Áður en yfir lauk höfð- um við selt um 44 þúsund dósir af bjór en það samsvarar tæplega 2000 kössum. Þar fyrir utan eru svo sölur til veitingahúsanna og póstkröfuaf- greiðslur.“ Haukur sagði að áberandi mest hefði selst af Löwenbrau bjór og ahs seldust um 38 þúsund dósir af bjór framleiddum hjá Sana en um 6 þús- und af Egils bjór. DV leit inn á veitingastöðum á Akureyri í gærkvöldi. Þar var rólegt þegar á heildina er litið þótt nokkrir væru aö fá sér bjór. Þetta kemur heim og saman við upplýsingar lög- reglu í morgun sem sagði að rólegt hefði verið í miðbænum og enginn var tekinn ölvaður við akstur þrátt fyrir nokkuð stíft eftirlit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.