Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 19
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
19
1
1
4
Annar myndar fegurðina, hinn bregður á leik, en eins og sést er snjórinn
talsverður.
Jeppa- og dorgtúr í
Djúpavatn á Reykjanesi
Veðurfarið síðustu daga hefur ekki
verið neitt til að hrópa húrra fyrir.
Þrátt fyrir þetta hefur landinn farið
víða um fjöll og firnindi. Eru þetta
jeppa-, vélsleða- og útivistarmenn og
dorgarar á öllum aldri sem hafa farið
þrátt fyrir mikinn snjó.
Um helgina fóru nokkir jeppamenn
á Reykjanes og var stefnan tekin á
Djúpavatn þar sem átti að renna fyr-
ir silung. Varð minna um silungs-
veiði, veðurguðimir sáu um það.
„Það er góð útivist í þessu og maður
kynnist landinu á öðmm árstíma en
bara að sumri til,“ sagði einn af
ferðalöngunum í lok ferðarinnar
þegar við höfðum fest okkur fimmtán
sinnum. En alltaf tókst að losa og
heim komust allir heOir. Svo viðist
sem Djúpavatnshringurinn sé vin-
sæll hjá fólki þó ekki sé vert að fara
hann nema nokkrir saman. í því felst
öryggið.
G.Bender
Það þurfti víða að gefa vel í snjó-
skaflana til festa sig ekki en mikinn
snjó hefur sett niður.
Sigurður Ingimarsson dorgar en
Ólafur Bergmann Bjarnason brosir
bara yfir aflaleysinu en einn 15
gramma fiskur fékkst í Djúpavatninu.
Loga Knútssyni er líka skemmt
lengra frá þeim félögum.
í myrkri gildir §
að sjást. |
Notaðu endurskinsmerki!
Próteinið í mjólk
hágæöaprótein og nýtistþví
vel í stöðuga endurnýjun og
uppbyggingu líkamans.
Eldur í
æöum?
Þegar aldurinn færist yfir er mikilvægt að
muna, að lífsfjörið og heilsan eru háð réttri
næringu.
Rétt næring leggur grunn að góða skapinu og
ásamt hreyfingu hamlar hún gegn beingisnun
og hrörnun og blóðið rennur mun léttar
um æðarnar.
MJÓLKer mikilvægur hlekkur í fæðuhringn-
um. Hún er einn fjölhæfasti bætiefnagjafi sem
völ er á. Erfitt er að fullnægja kalkþörf líkamans
án mjólkur eða mjólkurvara.
Auðvelt er að velja mjólk og mjólkurvörur með
mismunandi fitumagni eftir þörfum hvers og
eins en ráðlagður dagsskammtur fyrir fólk yfir
50 ára aldri samsvarar 2 glösum af mjólk á dag*.
'Margir telja að kalkþörf aldraðra sé rrteiri, eða sem samsvarar 3 glösum á dag.
\
Beingisnun hefst venjulega um
miðjan aldur. Beinin gisna innan
frá og styrkurþeirra minnkar. Þess
vegna eykst hætta á beinbrotum
og að hryggjarliðir falli saman.
MJÓLKURDAGSNEFND