Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. 67 Afmæli Jón Guðbrandsson Jón Guðbrandsson, héraösdýra- læknir á Selfossi, Reynivöllum 12, Selfossi, er sextugur í dag. Jón fædd- ist í Finnbogahúsi í Rvík, lauk stúd- entsprófi í MR1950 og námi í dýra- lækningum í Dýralæknaháskólan- um í Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1957. Hann var aðstoðardýralæknir í Bredsten á Jótlandi til ársloka 1957, starfaði á rannsóknarstofu Mjólk- ursamsölunnar í Reykjavík 1958- 1961 og varð héraðsdýralæknir á Selfossi í ársbyrjun 1962. Jón var í hf eppsnefnd Selfoss og formaður Hitaveitu og Rafveitu Selfoss 1974- 1978. Hann yar formaður sjálfstæð- isfélagsins Óðins á Selfossi 1969- 1971 og 1973-1974 og formaður full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ár- nessýslu 1971-1975. Jón var í stjóm fiskvinnslufyrirtækisins Straum- ness á Selfossi 1970-1978, formaður 1978 og hefur verið 1 Sauðfjársjúk- dómanefnd frá 1970 og formaður nefndarinnar 1970-1973, ritari Dýra- læknafélags íslands 1964-1975, for- maður 1979-1982. Jón kvæntist 31. ágúst 1951, Þórunni Einarsdóttur, f. 15. maí 1931. Foreldrar Þórunnar: Einar Ólafsson, b. í Lækjarhvammi í Rvík, og kona hans Berta Á. Sveinsdóttir. Börn Jóns og Þómnn- ar eru Berta Sigrún, f. 22. maí 1953, sjúkraliði, gift Pétri Guðjónssyni, verkfræðingi og framkvæmdastjóra Marel í Kanada, og eiga þau fjögur börn; Sigríður, f. 5. janúar 1955, gift Hjörleifi Ólafssyni, b. á Fossi í Gnúpverjahreppi, og eiga þau fjögur böm; Einar, f. 28. janúar 1958, húsa- smiður á Selfossi, kvæntur Elínu Einarsdóttur, og eiga þau tvö böm saman, auk þess sem Einar á barn fyrir; Ragnhdldur, f. 8. mars 1961, gift Antoni Hartmannssyni, sjó- manni á Selfossi, og eiga þau tvö böm; Guðbrandur, f. 28. febrúar 1962, húsasmiöur á Selfossi, kvænt- ur Eddu Haraldsdóttur hárskera og eiga þau tvö böm; Ingólfur Rúnar, f. 29. september 1963, nemi við Tækniskóla íslands; Sveinn Þórar- inn, f. 10. september 1965, nemi við Iðnskólann á Selfossi; Brynhildur, f. 8. júlí 1969, húsmóðir á Selfossi, og sambýlismaður hennar er Guð- jón Kjartansson og Matthildur, f. 11. janúarl976. Systkini Jóns eru Bjami, f. 17. nóvember 1932, pípulagningameist- ari í Rvík, kvæntur Guðrúnu Guð- laugu Ingvarsdóttur, og eiga þau þrjú börn; Logi, f. 29. september 1937, hrl. ogframkvæmdastjóri Landakotsspítala, eignaðist fjögur börn með fyrri konu sinni, Helgu Karlsdóttur, en seinni kona hans er Ragnhildur Kvaran; Ingi Steinar, f. 23. ágúst 1942, vélvirki í Rvík, kvæntur Theodóru Hilmarsdóttur og eiga þau eitt barn. Systur Jóns, samfeðra, eru: Kristín, d. 1936, og Ragnheiður, fyrri maður hennar var Þórður Guðjohnsen, kaup- maður á Húsavík, þau eignuðust þijá syni, seinni maður hennar er Leifur Guðmundsson, forstjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur. Móðir Kristínar og Ragnheiðar var Þórunn Vigfúsdóttir, fymi kona Guðbrands. Foreldrar Jóns voru Guðbrandur Jónsson, f. 30. september 1888, d. 5. júlí 1953, prófessor og rithöfundur í Rvík,ogSigríðurBjamadóttir,f.23. | janúar 1911. Faðir Guðbrands var Jón þjóðskjalavörður Þorkelsson, prests á Staðastað, Eyjólfssonar. Móðir Þorkels var Guðrún Jóns- dóttir, prests ogskálds á Bægisá, Þorlákssonar. Móðir Jóns Þorkels- sonar var Ragnheiður Pálsdóttir, prófasts í Hörgsdal, Pálssonar og fyrri konu hans, Matthildar Teits- dóttur. Móðir Guðbrands var Karó- lína Jónsdóttir, b. á Finnastöðum í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, Jó- hannessonar. Sigríður var dóttir Bjarna, stein- smiðs í Rvík, Sverrissonar, b. í Klauf i Meðallandi, Magnússonar. Móðir Bjama var Gróa Jónsdóttir, b. á Eystra-Hrauni í Landbroti, Galdra- Arasonar, Jónssonar, prests á Skinnastað, Einarssonar. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Steinunn Brynjólfsdóttir, vinnumanns í Hleiðargarði í Eyjafiröi, Ólafssonar og Rannveigar Kristjönu, vinnu- konu í Rvík, móður Sveins Egilsson- ar, forstjóra í Rvík. Rannvéig var dóttir Þorkels, vinnumanns í Sauða- gerði í Rvík, Magnússonar, b. á Ket- Jón Guðbrandsson. ilsstöðum á Kjalarnesi, Runólfsson- ar b. á Ketilsstöðum, bróður Magn- úsar, langafa Árna Eiríkssonar leik- ara, afa Styrmis Gunnarssonar rit- stjóra. Runólfur var sonur Magnús- ar, b. á Bakka á Kjalarnesi, Hall- grímssonar, b. á Bakka, Þorleifsson- ar. Móðir Hallgríms var Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hall- grímssonar, prests og skálds í Saurbæ, Péturssonar. Jón tekur á móti gestum í veitingahúsinu Ing- hóh kl. 16-19 á afmælisdaginn. Haraldur Ólafsson Haraldur Ólafsson, Sjafnargötu 10, verður áttatíu og fimm ára þriðju- daginn 21. mars. Haraldur er fædd- ur á Breiöabólstað í Ölfusi og ólst upp í Reykjakoti frá því að hann var átta ára. Hann var vinnumaður í Reykjakoti 1918-1923 og sjómaöur á skútum, bátum og togurum í Rvík 1924-1980. Haraldur vann hjá OUu- félginu hf., fyrst á olíuskipum fé- lagsins 1956-1980 og síðan í landi 1980-1984. Ævisaga Haralds er Brimalda, 1987, sem Jón Guönason skráði. Haraldur kvæntist 17. júní 1933 Hrefnu Hjörleifdóttur, f. 26. apríl 1912, d. 29. desember 1984. For- eldrar Hrefnu: Hjörleifur Þórðar- son, trésmiður í Rvík, og kona hans, Sigríður Rafnsdóttir. Böm Haralds og Hrefnu: Ólafur, f. 1937, flugum- ferðarstjóri í Garðabæ, kvæntur Ásgerði Höskuldsdóttur innanhúss- arktekt; Hörður, f. 15. mars 1944, framleiðslumaður í Rvík; Rafn, f. 1. júní 1948, kennari og b. Bræðrabóli í Ölfusi, kvæntur Sigurbjögu Jóns- dóttur hjúknmarfræðingi; Harald- ur, f. 1. júní 1948, kaupmaður í Rvík, kvæntur Ragnheiði Snorradóttur hjúkrunarfræðingi. Bræður Har- alds voru Sæmundur, f. 7. apríl 1899, d. 1983, framkvæmdastjóri Kex- verksmiðjunnar Esju, kvæntur Vig- dísi Þórðardóttur, og Guðmundur, f. ll.júní 1906, d. 1969, bifreiöar- stjóriíRvík. Foreldur Haralds voru Ólafur Sæmundsson, b. á Breiðabólstað í Ölfusi, og kona hans, Guðrún Jóns- dóttir. Ólafur var sonur Sæmundar, b. á Vindheimum í Ölfusi, Eiríks- sonar, b. á Litlalandi í Ölfusi, Ólafs- sonar. Móöir Sæmundar var Helga Jónsdóttir, b. á Vindási á Landi, Jónssonar, b. á Vindási, Bjarnason- ar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ættfóður Víkingslækjarættarinnar. Guðrún var dóttir Jóns, b. og for- manns á Hrauni, Halldórssonar og konu hans, Guðrúnar Magnúsdótt- ur, b. á Hrauni í Ölfusi, Magnússon- ar, b. í Þorlákshöfn, Beinteinssonar, Haraldur Ólafsson. lögréttumanns á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í Hól- um, Bergssonar, b. í Brattsholti, Sturlaugssonar, ættfóður Bergsætt- arinnar. Haraldur er vel ern og tek- ur á móti gestum á laugardaginn 18. eftir kl. 16 á heimili sínu, Sjafnar- götu 10. Grímur Skúlason Norðdahl Grímur Skúlason Norðdahl, b. á Úlfarsfelh í MosfeUssveit, er áttræð- ur í dag. Grímur er fæddur á Úlf- arsfelU í MosfeUssveit og ólst þar upp. Hann vann við búið á Úlfars- felU til 1940 og var þar fyrirvinna 1934-1940. Grímur vann í bygginga- vinnu og við innheimtustörf í Rvík 1940-1947 og í Kópavogi 1947-1961. Hann hefur verið b. á Úlfarsfelli frá 1961. Grímur var í stjórn Ung- mennafélagsins Aftureldingarinnar í fimmtán ár og var formaður Ung- mennasambands Kjalarnesþings. Hann var í stjóm Ungmennasam- bands íslands á annan áratug og einn af stofnendum og fyrsti for- maöur Ungmennafélagsins Breiða- bliks. Grímur er heiðursfélagi UM- FA og UMFB. Grímur kvæntist 18. mars 1949, Ragnheiði Guðrúnu Guð- jónsdóttur, f. 7. október 1912, d. 11. febrúar 1988. Foreldrar Ragnheiðar voru Guðjón Jóhannsson, skósmið- ur og bátasmiður í Súgandafirði, og síðar í Kópavogi, og kona hans, Ágústa Bjarnadóttir. Böm Gríms og Ragnheiðar eru Skúli Norðdahl, f. 23. desember 1946, iðnverkamaður á ÚlfarsfeUi; Ingibjörg Norðdahl, f. 9. október 1948, flugfreyja og kennari í Rvík, gift Daníel Þórarinssyni við- skiptafræðingi og eiga þau þijú börn; Guðmundur Norðdahl, f. 17. september 1950, iðnverkamaöur á Úlfarsfelli, fyrri kona hans var Helga Bjarnadóttir og eiga þau einn son, seinni kona hans er Kolbrún Sigríöur Guðmundsdóttir, og Guð- jón Ágúst Norðdahl, f. 18. ágúst 1952, iðnverkamaöur í Rvík, kvæntur Auðbjörgu Pálsdóttur kennara. Systkini Gríms em Haraldur Norðdahi, f. 24. september 1897, fyrrv. toUvörður, kvæntur Valgerði Jónsdóttur; Lára Norðdahl, f. 26. júlí 1899, d. 14. október 1970, gift Hálfdáni Helgasyni, prófasti á Mos- feUi; Kjartan Norðdahl, b. og verka- maður á ÚlfarsfelU, kvæntur Guð- björgu Úlfarsdóttur; Guðmundur Norðdahl, f. 27. júní 1904, d. 17. nóv- ember 1918; RannveigÁsdís, f. 11. apríl 1906, d. 22. apríl 1908; Guðrún Ásdís Norðdahl, f. 2. mars 1911, af- greiðslumaður í Iðnó, og Úlfar Norðdahl, f. 14. febrúar 1916. Foreldrar Gríms voru Skúli Norðdahl, b. á ÚUarsfelU, og kona hans, Guðbjörg Guðmundsdóttir. Skúli var sonur Guðmundar Norðdahl, b. á ElUðakoti í MosfeUs- sveit, Magnússonar Norðdahl, prests í MeðaUandsþingum, Jóns- sonar, prests í Hvammi í Norður- árdal, Magnússonar, sýslumanns í Búðardal, Ketilssonar. Móðir Magn- úsar var Guðrún Magnúsdóttir, systir Skúla landfógeta. Móðir Magnúsar Norðdahls var Guðrún Guðmundsdóttir, sýslumanns á Svignaskarði, Ketilssonar, bróður, samfeðra, Magnúsar í Búðardal. Móðir Guðmundar var Rannveig Eggertsdóttir, prests í Staíholti, Bjarnasonar landlæknis Pálssonar. Móðir Eggerts var Rannveig Skúla- dóttir landfógeta Magnússonar. Móðir Skúla var Guðrún Jónsdóttir, b. í Langholti, Gissurarsonar og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Syðri-Steinsmýri, Jónssonar, Grimur Skúlason Norðdahl. prests í Meðallandsþingum, Jóns- sonar, bróður Steingríms biskups. Móðir Jóns prests var Helga Stein- grímsdóttir, systir Jóns eldprests. Móðurbróðir Gríms var Eiríkur, afl Vigdísar Finnbogadóttur. Annar móðurbróðir Gríms var Einar, faðir Guðmundar frá Miðdal, föður Err- ós. Guðbjörg var dóttir Guðmundar, b. í Miðdal í Mosfellssveit, Einars- sonar, b. á Álfsstööum á Skeiðum, Gíslasonar, b. á Álfsstöðum, Helga- sonar, bróður Ingveldar, móður Ófeigs ríka á Fjalh, langafa Grétars Fells rithöfundar. Móðir Guðmund- ar var Margrét Hafliðadóttir, b. á Birnustöðum, Þorkelssonar, Móðir Guðbjargar var Vigdís Eiríksdóttir, b. á Vorsabæ á Skeiðum, Hafliða- sonar, bróður Margrétar. Grímur tekur á móti gestum í Hlégarði eftir kl. 16.30 á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 60 ára Jón A. Wathne, Nökkvavogi 33, ReyKjavík. Svava Baldvinsdóttir, Fossvegi 19, Siglufirði. Eysteinn Hallgrimsson, Grímshúsum, Aðaldæiahreppi. Þorbjörg Helgadóttir, Áshiið 10, Akureyri. Haukur Þórir Egilsson, Austurgötu 8, Keflavík. Sigvaldi Guðmundsson, Hafrafelli, Reykhólahreppi. Margrét Jónsdóttir, Hófgerði 7, Kópavogi. Gísli Friðjónsson, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði. 50 ára Karla Karlsdóttir, Haftiarstræti 25, Akureyri. Bragi Óskarsson, Öldugötu 25A, Reykjavík. 19. mars Erla Dýrfjörð, Sandfellshaga I, Öxarijarðar- hreppi. Elin Guðmundsdóttir, Barðaströnd 41, Seltjamarnesi. 40 ára Helgi Ámason, Ási, Rauðasandshreppi. ósk Svavarsdóttir, Heiðarvegi 17, Reyöarfirði.. Jóna Pálmadóttir, Brautarholti 10, ísafirði. Sigurbjörg Helgadóttir, Njálsgötu 4, Reykjavík. Alda Jónsdóttir, Álakvísl 54, Reykjavík. Jónbjörn Pálsson, Garðarsbraut 63, Húsávík. Hafdis Ágústsdóttir, Blöndubakká 9, Reykjavík. ólafur Guðmundsson, Bergi, Kleppjárnsreykjum, Reyk- holtsdalshreppi. Ólafur Tryggvason Ölafur Tryggvason pípulagninga- meistari, Reynihvammi 41, Kópa- vogi, verður sextugur á morgun. Olafur fæddist á Þórshöfn á Langanesi í Norður-Þingeyjarsýslu en flutti með fjöldskyldu sinni í Kópavoginn árið 1944. Hann kvæntist 1952 Halldóru Jó- hannesdóttur húsmóður og eiga þau tvær dætur. Þær eru Berglind, f. 25.8.1954, gift Ásgeiri Ásgeirssyni, f. 30.12.1955, en þau búa í Reykjavík og eiga þrjú börn, Rakel, f. 1.3.1978, Ásgeir, f, 9.1.1981, ogDóru, f.22.9. 1985; Jóhanna Erla, f. 16.5.1956, gift Páli Harðarsyni, f. 6.7.1954, en þau eru búsett í Grundarfirði og eiga þrjú böm, Hörð, f. 19.9.1976, Tinnu, f. 9.1.1980, og Hmnd, f. 25.2.1986. Ölafur á átta systkini. Foreldrar Ölafs eru bæði látin fyr- Bjöm Stefán Guðmundsson Björn Stefán Guðmundsson, skólastjóri og kennari frá Reyni- keldu á Skarösströnd, til heimilis að Sunnubraut 15, Búðardal, er fimmtugur í dag. Bjöm hefur unnið við uppeldis- og kennslustörf í Dala- sýslu í rúma þrjá áratugi. Björn verður heima á afmæhs- daginn. Olafur T ryggvason. ir nokkrum árum en þau voru Stef- anía Kristjánsdóttir, f. 16.11.1894, og Tryggvi Sigfússon, útvegsb. á Þórshöfn, f. 2.11.1892. Ólafur verður aö heiman á af- mælisdaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.