Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 26
26
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Sérstæð sakamál
Máninn skein hátt á himni þetta
októberkvöld. Piltur og stúlka stóöu
í faðmlögum í gömlum hailarrústum.
Unga stúlkan, sem sá til þeirra, hafði
fuila ástæðu til þess að halda að
þama væri um afar ástfangin ung-
menni að ræða og það var ekki fyrr
en síðar að hún fékk ástæðu til að
halda annað.
Patricia Piper
hét unga stúlkan sem varð vitni
að faðmiögunum. Hún var aðeins
sextán ára og lá andvaka í rúmi sínu
í London, nokkuð frá gömlum hall-
arrústum frá tíma Viktoríu drottn-
ingar. Hookey Hall hafði þessi fyrr-
um glæsilega höll heitið en nú var
ekki annað eftir af henni en útvegg-
ir, tröppur og nokkrar gamlar styttur
sem stóðu við innganginn.
Orð fór af því að þama væri reimt.
Er Patricia hafði velt sér fram og
aftur í rúmi sínu án þess að geta sofn-
að fór hún fram úr því og gekk að
glugganum. Máninn varpaði grá-
hvítri birtu sinni á umhverfið og
þegar hún leit í áttina til Hookey
Hall lá við að hárin risu á höfði henn-
ar því hún sá það sem hún hélt í
fyrstu að væm gráleitar vofur. Er
hún gáði betur að sá hún þó að þama
stóð ungt fólk í faðmlögum.
Þekkti
unga manninn
Er Patricia hafði sannfærst um
að hún væri að horfa á lifandi fólk
en ekki vofur létti henni. Um hríð
stóð hún og virti unga parið fyrir
sér. Stúlkuna hafði hún aldrei séð
fyrr en er hún sá andht piltsins sá
hún strax hver hann var. Það var
Christopher Whittaker, tuttugu og
sex ára gamall bílasah sem bjó þama
í nágrenninu.
Er Patricia hafði staðið við glugg-
aim um hríð dró allt í einu ský fyrir
mánann. Þegar hann kom aftur fram
var unga fólkið horfið.
Patricia svipaðist um eftir þvi í
stutta stund en gekk síðan frá glugg-
anum og aö rúmi sínu. Um daginn
haíði hún verið í afmæhsveislu hjá
bróður sínum og nú fann hún að hún
var þreytt. Hún sofnaði fljótt og svaf
draumlausum svefhi.
Patricia hlýtur að hafa sofiö fast
því hún heyrði ekki ópið sem rauf
næturkyrrðina nokkm síðar. Það
kom frá gömlu haharrústunum. Þá
heyrði hún heldur ekki er vél í bíl
var ræst og honum ekið burt á mikl-
um hraða.
Líkfundur
Nú hðu fjórir mánuðir án þess
að nokkuð gerðist sem orðið gæti til
þess að vekja upp minningar Patriciu
um það sem hún sá við Hookey Hah
er hún leit út um gluggann á svefn-
herbergi sínu að kvöldi afmæhsdags
bróður síns. Það leið þó ekki á löngu
þar til hún fór aö rifja þá sýn upp.
Eitt blaðanna í London skýrði nú
frá þvi að bandarískur ferðamaður,
sem kominn var tíl Englands tíl þess
að reyna að afla upplýsinga um for-
feður sína í gamla landinu, hefði dag-
ixm áður haldið í gamlan kirkjugarð
þar í borg tíl þess að lesa á legsteina.
Kirkjugarðurinn var ekki lengur í
notkun og því ekki mikið um manna-
ferðir í honum. Er Bandaríkjamað-
urinn hafði verið í honum um hríð
gekk hann á bak við nokkra gamla
legsteina og þá sá hann skyndUega
Uk af ungri stúlku. GreinUegt var að
það hafði legið þama lengi. Hann
gerði lögreglunni þegar í stað aðvart.
Lögreglan
gat ekki staðfest af hverri líkið
var þrátt fyrir nákvæma rannsókn
enda hafði það greinUega legið þama
í nokkra mánuði. Stúlkan hafði verið
um tvítugt er dauðann bar að hönd-
um. Að auki varð tvennt tU að vekja
athygU rannsóknarlögreglumanna
og sérfræðinganna sem skoðuðu lík-
ið og fót stúlkunnar. Annað var að
annan eymalokk hennar vantaði.
Hitt var sérstakur ilmur af rósavatni
sem enn var af fótunum. Að vísu var
Janet Jones.
hann daufur en þó nægUega sterkur
til þess að hægt væri að staöfesta af
hvaða ilmvatni hann væri.
Líkskoðari staðfesti þá niðurstöðu
lögreglunnar að stúlkan hefði verið
kyrkt.
Mánuður leið nú án þess að nokkuð
gerðist sem oröið gæti tíl þess að
varpa á það ljósi af hverri líkið var.
Þá varð ljósmynd tU þess að máhð
komst á nýtt stig.
Týnda systirin
Patricia Piper var enn í skóla
enda aðeins sextán ára. Dag einn
Christopher Whittaker.
sýndi einn skólabræðra hennar,
Bobby Jones, henni myndir sem
hann hafði tekið með myndavél sem
hann hafði eignast nokkrum mánuð-
um áður. Um var aö ræða myndir
af húsinu sem hann bjó í, garðinum
við það og nánustu ættingjum. Var
ein af myndunum af elstu systur
hans, Janet, en enginn hafði heyx-t
frá henni síöan í október er hún fór
noröur í land með náunga sem eng-
inn í fjölskyldunni þekkti.
Patricia stífnaði þegar hún sá
myndina af Janet. Allt í einu fannst
henni sem hún stæði við gluggann í
svefnherbergi sínu kvöldið sem
Patricia Piper.
mánaskinið lýsti upp rústir Hookey
HaU. Þótt hún hefði aldrei séð Janet,
systur Bobbys, var hún ekki í nein-
um vafa um að hún var unga stúlkan
sem hún hafði séð í faðmlögum við
Christopher Whittaker. Hún var Ja-
net Jones, systir Bobbys, sú sem ekk-
ert hafði til spurst í langan tíma.
Rannsókn málsins
hefst á ný
Er Patricia hafði náð að jafna sig
sneri hún sér að Bobby og spurði
hvort hann væri viss um að systir
hans væri ekki norður í landi. Hann
sagðist ekki vita annað en ítrekaði
að ekkert hefði frá henni heyrst síðan
hún hefði skyndUega og óvænt hald-
ið að heiman með þessum óþekkta
unga manni.
Patricia baö Bobby þá um að fá sér
sæti því hún þyrfti að segja honum
dálítið sem kæmi systur hans við.
Hún lýsti síðan fýrir honum því sem
borið hafði fyrir augu hennar að
kvöldi afmælisdags bróður hennar
og lauk frásögninni með því að full-
yrða að hún teldi ekki minnsta vafa
á því leika að ungi maðurinn, sem
verið hefði með Janet, hefði verið
bUasalinn imgi, Christopher Whitta-
ker, sem búiö heföi í nágrenni við sig.
Sönnunargögn
fínnast
Bobby fór tíl foreldra sinna sem
gerðu lögreglunni þegar aðvart. Er
hún hafði yfirheyrt Patriciu þótti
framburður hennar það afdráttar-
laus að Christopher Whittaker var
tekinn tU yfirheyrslu.
Hann neitaði í fyrstu að vita nokk-
uö um horfnu stúlkuna, Janet Jones.
Ekki þótti framkoma hans traust-
vekjandi og var nú gerð leit í bU hans.
Hún hafði ekki staðið lengi er þar
fannst eyrnalokkur sem svaraði tU
þess sem fundist hafði á líkinu af
Janet. Sömuleiðis fannst í bUnum
glas með rósavatni og reyndist það
vera sömu tegundar og það Umvatn
sem tekist hafði að greina í fötum
látnu stúlkunnar.
Tvennt var því komið fram sem
benti mjög eindregið tíl þess aö Chri-
stopher Whittaker gæti varpað ljósi
á örlög stúlkunnar sem fundist hafði
fjórum mánuðum eftir hvarf hennar
á bak við legsteina í gömlum kirkju-
garði í London.
Játningin
Christopher Whittaker var nú
sagt frá því hvað fundist hefði í bU
hans og gerði hann sér þá ljóst að
ekki var lengur tíl neins að neita því
að hann vissi um örlög Janet.
Hann sagði nú frá því sem gerst
hafði. Þau Janet höfðu kynnst, orðið
ástfangin og ákveðið að flytjast tíl
Norður-Englands. Aðeins eitt greindi
þau á um. Janet vUdi ganga í hjóna-
band áður en þau færu þangað en
það var Christopher ekki reiðubúinn
til að gera.
Kvöldið, sem þau höfðu hist við
Hookey HaU, höfðu þau rætt framtíð-
aráform sín en þar eð Janet hélt enn
fast við sitt kom til rifrildis. Sátu þau
þá í bU Christophers. Reiddist Janet
og gaf honum utan undir. Hann gaf
henni þá aftur utan undir en við þaö
fór hún að æpa. Greip hann þá um
háls hennar og sleppti ekki fyrr en
hann hafði kyrkt hana.
Til kirkjugarðsins
í fyrstu ætlaði Christopher aö
skUja líkið eftir við gömlu haUar-
rústimar en aUt í einu kom honum
tU hugar gamli kirkjugarðurinn sem
var í hinum enda London. Þangað
ók hann svo um nóttina, bar líkið af
Janet inn um hliðið og kom því fyrir
á bak við legsteina innarlega í hon-
um.
Enginn veit hvort nokkru sinni
hefði tekist að upplýsa morðið á Ja-
net Jones hefði Patricia Piper ekki
legið andvaka kvöldið sem það var
framið. Þá veröur að teljast heldur
ólíklegt að hún hefði séð andlit Chri-
stophers Whittakers ef máiúnn hefði
ekki skinið hátt á himni þá stund sem
hún stóð við gluggann og horfði á
gömlu rústimar.
Reyndar em þetta ekki einu tálvilj-
animar í þessu máU því hefði Bobby
Jones ekki farið að sýna Patriciu
myndir af íjölskyldu sinni hefði hún
aldrei áttað sig á þvi hver hún var
unga stúlkan sem hún hafði séð í
faðmlögum októberkvöldið forðum.
Lögreglan þakkaði Patriciu Piper
aðstoðina með því aö gefa henni dýra
myndavél. Hún er þvi sjálf farin að
taka myndir þótt aUar séu þær tekn-
ar í sólskini, ekki mánaskini.