Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1989, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989. Fréttir Stjómmálamömium tryggð virðuleg útganga af vettvangi stjómmálanna: Fjórir formenn Alþýðu- flokksins sendiherrar - þrír stjómmálamenn skipaðir sendiherrar að meðaltali á áratug af vettvangi stjórnmála Stjórnmálamenn sem skipaðir hafa verið sendiherrar frá árinu 1941 til dagsins í dag Hugsanlegur sendifulltrúi hjá Evrópu- bandalaginu. Kjartan Jóhannsson Bjarni Ásgeirsson ............... .' V7 '' Skömmu eftir aö Albert Guö- mundsson hélt til Parísar sem ný- skipaður sendiherra komu fram fréttir af áætlunum Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra um aö búa til embætti fyrir Kjartan Jóhannsson, þingmann Alþýðu- flokksins. Á skömmum tíma hefur því tveimur stjórnmálamönnum verið tryggð viröuleg útganga af vettvangi stjómmálanna yfir í ut- anríkisþjónustuna. Þeir bætast í stóran hóp stjóm- málamanna sem hafa gengið sömu leiö. Að meðaltali hafa þrír fyrrum alþingismenn verið skipaðir sendi- herrar á hveijum áratug frá lýð- veldisstofnun. Á þessum áratug eru þeir þegar orönir fjórir. Stefán Jóhann og Ólafur Thors ríða á vaðið Fyrsta pólitíska stöðuveitingin í utanríkisþjónustunni var árið 1940 þegar Stefán Jóhann Stefánsson, utanríkisráðherra í þjóðstjóm Her- manns Jónassonar, skipaði Thor Thors aðalræðismann íslands í New York. Ári síðar var Thor síöan skipaður sendiherra íslands í Bandaríkjunum. Því starfi gegndi hann þar til hann lést 1965. Thor var þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Snæfellssýslu frá 1933 og þar til hann var skipaður aðalræðis- maður. Ólafur Thors skipaði Jakob Möll- er, flokksbróður sinn, sendiherra í Kaupmannahöfn árið 1945. Ólafur var þá forsætis- og utanríkisráð- herra í nýsköpunarstjóminni. Jak- ob var þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík frá 1919 til 1927 og síðan aftur frá 1931 til 1945. Hann var fjármálaráðherra í þrem- ur ríkisstjómum og lét af ráðherra- dómi síðla árs 1942. Jakob var sendiherra þar til hann fékk lausn frá embætti árið 1950. Bjarni skipar sjálfstæðis- mann og framsóknarmann Árið 1947 var næsti þingmaður skipaður sendiherra. Það var Gísli Sveinsson, þingmaður Sjálfstæðis- fiokksins í Vestur-Skaftafellssýslu. Gísli tók fyrst sæti á þingi árið 1916 og sat með hléum til 1947. Hann var meðal annars forseti sameinaðs þings við lýðveldisstofnunina árið 1944. Áriö 1947 skipaði Bjami Bene- diktsson, utanríkisráðherra í ráðu- neyti Stefáns Jóhanns Stefánsson- ar, Stefaníu, Gísla sendiherra ís- lands í Osló. Því embætti gegndi hann í fjögur ár. Gísli bauð sig fram til forseta árið 1952 en tapaði kosningunum fyrir Ásgeiri Ás- geirssyni. Bjami Benediktsson skipaði einnig Bjama Ásgeirsson, þing- mann Framsóknar í Mýrasýslu, sendiherra árið 1951 þegar hann var utanríkisráöherra í ráðuneyti Steingríms Steinþórssonar. Bjami var þingmaður frá 1927 og aút til 1951 þegar hann var skipaöur sendiherra í Noregi. Bjami var landbúnaðarráðherra í ráðuneyti Stefáns Jóhanns Stefánssonar frá 1947 til 1949. Bjami var sendiherra í Noregi til dauðadags árið 1956. Guðmundur í. skipar tvo flokksbræður Árið 1956 skipaöi Guðmundur í. Guömundsson, utanríkisráöherra í vinstri sljóm Hermanns Jónasson- ar 1956-1958, Kristinn Guðmunds- son, varaþingmann Framsóknar- flokksins í Eyjafjarðarsýslu, sendi- herra í Bretlandi. Kristinn var ut- anríkisráöherra í ráðuneyti Ólafs Thors frá 1953 til 1956. Krístinn var sendiherra í Bretlandi til 1961 en var þá fluttur til Moskvu. Hann fékk lausn frá embætti árið 1967. _ Árið 1957 skipaði Guðmundur í. Guðmundsson síðan tvo aðra þing- menn í sendiherrastöður. Haraldur Guðmundsson, fyrrum formaður Alþýðuflokksins, var skipaður sendiherra í Osló. Haraldur var meðal annars atvinnu- og sam- gönguráðherra árin 1934 til 1938 í fyrsta ráðuneyti Hermanns Jónas- sonar. Hann var einnig forseti sam- einaðs þings á sex þingum. Harald- ur var formaður Alþýðuflokksins frá 1954 til 1956. Hann lét af þing- mennsku 1957 þegar hann var skip- aður sendiherra í Noregi og gegndi þvi embætti í sex ár. Sama ár og Haraldur fór til Nor- egs var Stefán Jóhann Stefánsson, fyrram formaður Alþýöuflokksins, skipaöur sendiherra í Kaupmanna- höfii. Stefán var formaður Alþýðu- flokksins frá 1938 til 1952. Hann var forsætisráðherra 1947 til 1949 og gegndi auk þess störfum félags- málaráðherra og utanríkisráð- herra í ráðuneytum Hermanns Jónassonar. Stefán var sendiherra í Kaupmannahöfn í átta ár. Guðmundur í. og Gunnar Thoroddsen skipaðir sama árið Þegar Guðmundur í. Guömunds- son hafði skipað þrjá fyrrum al- þingismenn sem sendiherra var hann sjálfur skipaður sendiherra í Bretlandi. Guðmundur var þing- maður Alþýðuflokksins frá 1942 og með hléum til 1965. Hann var utan- ríkisráðherra í þremur ríkisstjóm- um frá 1956 og til 1965 þegar Emil Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson Jónsson, flokksbróðir hans og eft- irmaður sem utanríkisráðherra, skipaði hann sendiherra. Guð- mundur var síðar sendiherra í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Emil Jónsson skipaði einnig Gunnar Thoroddsen, fjármálaráö- herra Sjálfstæöisflokksins frá 1959, sendiherra árið 1965. Gunnar náöi fyrst kjöri á þing árið 1934 og sat með hléum til 1965. Hann var sendi- herra í Kaupmannahöfn í fjögur ár. Hann sat síðan á þingi frá 1971 til 1983 og var forsætisráöherra síð- ustu þijú árin. Gunnar bauð sig fram til forseta árið 1968 en tapaði fyrir Kristjáni Eldjárn. Áriö 1970 skipaði Emil síðan Sig- urð Bjarnason frá Vigur sendi- herra í Danmörku. Siguröur sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vestfjörðum með hléum frá 1942 þar til hann var skipaður sendi- herra árið 1970. Ólafur skipar tvo fram- sóknarmenn og einn krata Næsta pólitíska skipun sendi- herra var þegar Ólafur Jóhannes- son skipaði Hannes Jónsson sendi- herra í Moskvu. Hannes hafði verið blaðafulltrúi ríkisstjómar Ólafs frá 1971 til 1974. Hannes var áður starfsmaður Sambandsins, Fram- sóknarflokksins og utanríkisþjón- ustunnar. Þegar Ólafur varð utanríkisráð- herra á ný árið 1980 í ríkissfjóm Gunnars Thoroddsen skipaði hann fyrrum varaformann Framsóknar- flokksins, Einar Ágústsson, sendi- herra í Kaupmannahöfn. Einar sat á þingi frá 1963 til 1979. Hann var utanríkisráðherra frá 1971 til 1978. Einar var sendiherra til dauðadags árið 1986. Árið 1982 skipaði Ólafur síðan Benedikt Gröndal, fyrrum for- mann Alþýðuflokksins, sendiherra í Stokkhólmi. Benedikt sat á þingi frá 1956 þar til hann var skipaður sendiherra. Hann var formaður Alþýðuflokksins frá 1974 til 1980 þegar hann tapaði í formannskjöri fyrir Kjartani Jóhannssyni. Bene- dikt var utanríkisráðherra í síðari ríkisstjóm Ólafs Jóhannessonar 1978 tfl 1979 og forsætisráðherra í minnihlutastjóm Alþýðuflokksins frá haustdögum 1979 og fram í febr- úar 1980. Jón Baldvin búinn að skipa tvo Síðastliðinn febrúar þekktist Al- bert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, síöan boð Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrík- isráðherra um stöðu sendiherra í París. Albert var þingmaður Sjálf- stæðisflokksins frá 1974 til 1987. Þá stofnaði hann Borgaraflokkinn og var þingmaður hans þar tfl hann sagði af sér þingmennsku fyrir skömmu. Albert var fjármálaráð- herra 1983 tfl 1985 og iðnaðarráð- herra frá 1985 tfl 1987 þegar hann sagði af sér ráðherradómi vegna Hafskipsmálsins. Loks er nú búist við aö Jón Bald- vin Hannibalsson skipi Kíartan Jóhannsson, fyrram formann Al- þýðuflokksins, í sérstaka stöðu ut- anríkisþjónustunnar hjá Evrópu- bandalaginu. Kíartan hefur verið þingmaður Alþýðuflokksins frá 1978. Hann var formaður hans frá 1980 tfl 1984 þegar hann féll fyrir Jóni Baldvin Hannibalssyni. Kjart- an var sjávarútvegsráöherra frá 1978 tfl 1980. Fallnir formenn Alþýðuflokksins Af þessum fimmtán pólítískt skipuðu sendihermm em fjórir Framsóknarmenn, fimm Alþýðu- flokksmenn og fimm Sjálfstæðis- menn. Sjálfstæðismennirnir em sex ef Álbert Guðmundsson er flokkaður með þeim. Eins og sjá má af listanum eru skipanirnar bundnar því að flokk- ur viðkomandi manna eigi sæti í ríkisstjóm. Albert Guðmundsson er undantekning frá þessari reglu en honum var boðin staðan þegar stjómarmyndunarviöræður stóðu yfir við Borgaraflokkinn. Af stjóm- arþátttöku hans varð hins vegar ekki. Annað sem er eftirtektarvert við listann er að af fimm Alþýöuflokks- mönnum em fjórir fyrrverandi for- menn flokksins. Þrír af þeim féllu í formannskjöri eftir mikil átök í flokknum. Þrír utanríkisráðherrar hafa skipað þijá pólitíska sendiherra hver: Guðmundur í. Guðmunds- son, Emfl Jónsson og Ólafur Jó- hannesson. Bjami Benediktsson skipaði tvo og Stefán Jóhann Stef- ánsson og Ólafur Thors skipuðu einn. Jón Baldvin Hannibalsson hefur þegar skipaö tvo. En þótt margir stjómmálamenn hafi fengiö virðulega útgöngu af vettvangi stjómmálanna með þvi að fá sendiherrastöðu hafa stjóm- málaflokkamir einnig notaö önnur embætti í þessum tflgangi. Má þar nefna skipun Geirs Hallgrímssonar og Tómasar Ámasonar sem Seðla- bankastjórar, skipun Sverris Her- mannssonar í embætti Lands- bankastjóra og skipun Jóns Skafta- sonar sem yfirborgarfógeta í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.