Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1989, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1989, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989. Fréttir Rikisstjómin keyrir fram úr fiárlögunum: Akvarðanir sem ættu að fá samþykki Alþingis - segir Geir H. Haarde sem flytur frumvarp til að hefta framúraksturinn „Þetta eru ákvarðanir sem sam- kvæmt frumvarpi okkar Pálma yrðu að hljóta samþykki fjárveitinga- nefndar," sagði Geir H. Haarde um þær auknu fiárskuldbindingar á rík- issjóð sem ríkisstjómin samþykkti samhliða kjarasamningum við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Frumvarp Geirs og Pálma Jóns- sonar felur í sér að framkvæmda- valdinu sé óheimilt að auka útgjöld ríkissjóðs frá því sem greinir frá í fjárlögum nema það sé óumflýjanlegt vegna verðbreytinga og samnings- bundinna ákvæða. Eins og fram kom í DV á miðviku- dag veitti ríkisstjómin loforð í tengslum við samningana um hækk- un almannatrygginga og að halda niðri verðlagi á landbúnaðarvömm með öllum tiltækum ráðum. Ef háskólamenn fá sams konar hækkun og aðrir opinberir starfs- menn er tahð að launagjöld ríkis- sjóðs hækki um 375 milljónir. Sam- kvæmt frumvarpi Geirs og Pálma er fjármálaráðherra ekki skylt að sækja um heimild til fjárveitinganefndar eða Alþingis vegna þessa kostnaðar- auka. Hins vegar fellur hækkun trygg- ingabóta og auknar niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum undir fmmvarp- ið. Fjármálaráðuneytið telur að hækkun tryggingabóta fari um 200 milljónir fram úr áætlunum fjárlaga. Engar tölur hafa hins vegar verið gefnar upp um hugsanlega hækkun á niðurgreiðslum landbúnaðarvara umfram áætlanir fjárlaga. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra hefur sagt að samningurinn við opin- bera starfsmenn kunni að kosta nokkur hundmð milijónir í auknar niðurgreiðslur. Auknar niðurgreiðslur Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að halda niðri verðlagi á landbúnað- arvöram í apríl er talin kosta um 70 til 80 milljónir. Að halda slíkum greiðslum áfram út samningstímann ætti því að kosta ríkissjóö um 630 til 720 milljónir. Ólafur Ragnar hefur sagt að ekki sé nauðsynlegt að bera auknar nið- urgreiðslur undir þingið þar sem það hafi samþykkt ákveðna upphæð til þeirra og enn sé langt í land að hún klárist. Það kæmi þvi ekki til þess fyrr en síðar á árinu að samþykki Alþingis yrði leitað eða að dregið yrði úr niðurgreiðslunum til að láta upphaflegu fjárveitinguna nægja. . „Á bak við afgreiðslu fjárlaganna er ákveðið niðurgreiðslustig sem duga á út ailt árið. Þetta er þvi hár- togun hjá ráðherra," sagði Geir H. Haarde. Samkvæmt þeim forsendum, sem getið er hér um að ofan, gæti svo farið að það fé sem Alþingi veitti til niðurgreiðslna yrði uppurið um miðjan október. Auk þessa hefur ríkissljómin tekið ákvarðanir um nokkrar aðrar fjár- veitingar umfrám fjárlög; til dæmis framlög til lagmetisiðnaðar, loðdýra- ræktar og vegna sumarvinnu skóla- fólks. „Þetta era klárlega mál sem ekki era lögskyld og ekki era framlög til á fjárlögum. Það er einmitt tekið á slíkijm framlögum í frumvarpinu,“ sagðiGeirH.Haarde. -gse DV-mynd Þórhallur Hermann Ragnarsson, skipverji á Hafdisi, og hákarlinn rétf áður en hann var skorinn. Skagafiörður: Fékk hákarl í þorskanet ÞórhaSur Ásmundsaan, DV, SkagafirðL Bátsverjar á Hafdisi frá Hofsósi fengu óvæntan feng í þorskanetin í síðustu viku, - stærðar hákarl hafði flækst í einni trossunni og verður líklega hlutskipti hans að verða étinn á þorrablóti á Hofsósi að ári. Bragi Vilhjálmsson og menn hans á Hafdísi vora með netin í álnum rétt undan bæ á Höfðaströnd og urðu þeir hissa þegar í ljós kom hákarl í einni trossunni. Það er mjög óvenju- legt að hákarl veiðist í netin svo langt inni á firði. Menn minnast þess ekki að slíkt hafi gerst innan við eyjar, að minnsta kosti ekki á síðari árum. Hákarlinn var um þrír metrar á lengd. Hagkaup: Fá að flytja inn smjörlíki Hagkaup hefur fengið leyfí við- blóma og Snyörva á markaðnum. hafhaö þá. Aftur sótti fyrirtækiö skiptaráðherra, Jóns Sigurðsson- „Ég vona að þetta sé aðeins byij- um f apríl síðastliðnum. Og leyfið ar, um að flytja inn 20 tonn af unin og að við fáum að halda þess- fékkst. smjörlíki. Forstjóri Hagkaups seglr um innflutningi áfram,“ sagði Jón Hagkaup sótti f ársbyijun í fyrra að það verði helmingi ódýrara en Ásbergsson, forstjóri Hagkaups, í um leyfi til að flytja inn kjúklinga annað smjörlfki á markaðnum. morgun. og egg frá Hollandi. Því var hafnaö. Smjörlflá Hagkaups er ur jurtafltu Hagkaup sótti áður rnn aö flytja -JGH og kemur til raeö aö keppa við Sól- inn smjörlfki árið 1986. Því var Frjálslyndir hægrimenn á þingi: Borgaraf lokkurinn er orðinn einn af vinstri flokkunum Þeir Ingi Bjöm Albertsson og Hreggviður Jónsson stofnuðu nýjan þingflokk undir nafni Frjálslyndra hægrimanna á Alþingi í gær. Þar með slitu þeir öll tengsl við Borgara- flokkinn. í ræðu sinni sagði Ingi Bjöm að Borgaraflokkurinn hefði fjarlægst stefnu sína og það hefði meðal annars stuðlað að því að faðir hans, Albert Guðmundsson, heföi hrakist til Parísar. Formaður Borgaraflokksins, Júl- íus Sólnes, sagði við það tækifæri að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sínar hefði ekki tekist að sætta mismun- andi sjónarmið. Hann gagnrýndi einnig harðlega skilyrði þeirra félaga sem hann sagði að væra ekki í sam- ræmi við stefnu flokksins. Formaöur þingflokks Borgara- flokksins, Óh Þ. Guðbjartsson, var harðorðari og sagði að skilyrði þeirra Inga Bjamar og Hreggviðs um að hægt væri að vísa þingmönnum úr þingflokknum stríddu gegn stji^mar- skránni. Því mótmælti Hreggviöur Jónsson og sagði um leið að Borgaraflokkur- inn væri orðinn einn af vinstri flokk- um landsins. Þeir félagar hafa ekki enn ákveðið hvor muni gegna starfi þingflokks- formanns. -SMJ Júlíus Sólnes : Ríkisstjórnin rekur sjálfsmorðsstefnu „Ég sé enga möguleika á neinum viðræðum við ríkisstjómina. Efna- hagsstefna hennar er kolröng og ég sé ekki annað en að hún sé á sjálfs- morðsbraut. Ríkisstjómin er mjög í andstöðu við okkar hugmyndir í þeim málum þannig að ég mun að minnsta kosti beita mér mjög ein- dregið gegn henni á þingi og ég vona að ég hafi sem flesta þingmenn í hði með mér við það,“ sagði Júlíus Sól- nes, formaður Borgaraflokksins, þegar hann var spurður um það hvort að hugsanlegt væri að taka aftur upp stjómarmyndunarviðræð- ur viö ríkisstjómina. Því hefur verið haldið fram að brottfor Alberts og klofningur Borg- araflokksins verði til þess að færa aftur líf í þær viðræður við stjómina sem slokknuðu út af í upphafi árs. Júlíus neitaði því kröftuglega að nokkur möguleiki væri á þvi aö hann gengi til hðs við ríkisstjómina. - En einstakir þingmenn Borgara- flokksins hafa stutt ríkisstjómina. Verður framhald á því? „Menn verða bara að sætta sig við það. Það var um mjög sérkennilega atburðarás að ræða um jóhn. Við höfðum verið í viðræöum við ríkis- stjómina þegar við myndun hennar og vorum komnir langt áleiðis við aö ná sameiginlegum málefnagrund- vehi. Síðan fóram við í janúar aftur í stjómarmyndunarviðræður. Það veröur að sjá atburðina í ljósi þess.“ Júhus sagði að engin þau mál væra í gangi í þinginu nú sem krefðust þess að menn geröu upp hug sinn til ríkisstjómarinnar eins og áður. Aðalstjórnarfundur Borgara- flokksins verður 21. apríl en ekki verður kosinn varaformaður þar. Hann verður ekki kosinn fyrr en á landsfundi í haust. -SMJ Amarflug: Hlutafé aukið um 155 milliónir Stjóm Amarflugs samþykkti á fundi sínum á miðvikudag aö nýta nú þegar heimild aðalfundarins um aukningu á hlutafé fyrirtækisins um 155 mihjónir. Á aðalfundinum var veitt heimild tíl aht að 315 milfjón króna hlutafjáraukningu. Á aöalfundinum var stjórn félags- ins endurkjörin. Stjómarmönnum var hins vegar flölgað um tvo og tóku þeir Gísh Friðjónsson og Óttar Yngvason sæti í stjóm. Stjómar- formaður er Hörður Einarsson. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.