Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989. Utlönd Standa fast við kröfur sínar Stjórn kristinna í Líbanon hefur hvatt Arababandalagið til að tryggja brottför sýrlenskra hermanna frá Líbanon. í yfirlýsingu stjómarinnar frá því í gærkvöldi var forðast að nefna tilmæli bandalagsins um vopnahlé. Utanríkisráðherrar Arababanda- lagsins hvöttu í gær til vopnahlés frá hádegi í dag til að binda enda á sex vikna bardaga milli kristinna og múhameðstrúarmanna og banda- manna þeirra. Utanríkisráðherrarn- ir nefndu ekki kröfu Aouns, leiðtoga kristinna, um að Sýrlendingar færu á brott frá Líbanon. Gaf það mönnum tilefni tíi að óttast að hann myndi hafna tilmælunum um vopnahlé með þeim afleiðingum að tii enn frekara blóðbaðs kæmi. - Sýrlendingar og stjórn múhameðs- trúarmanna í Líbanon, sem yfirvöld í Sýrlandi styðja, fögnuðu vopna- hléstilmælunum og hétu því að reyna að koma því á. Ein kona beið bana og þrír menn særðust í átökum í Beirút í gær. AUs hafa tvö hundruð og þrjátíu manns látíð Mð í bardögunum milli krist- inna og múhameðstrúarmanna frá því um miðjan mars. Reuter • - Beirútbúar óttast nú að ekki verði af vopnahléi því sem Arababandalagið hvatti til. Kristnir falla ekki frá þeirri kröfu sinni að Sýrlendingar haldi á brott frá Líbanon. Simamynd Reuter Ráðherrann stóð af sér árásirnar Ágúst Hjörtur, DV, Ottawa: Svo virðist sem Michael Wilson, fjármálaráðherra Kanada, muni halda starfi sínu þrátt fyrir harðvít- ugar árásir stjórnarandstæðinga vegna fjárlagalekans síðastliðinn miðvikudag. í aUan gærdag deildu þeir hart á ráðherrann og reyndu með öUum til- tækum ráðum að koma í veg fyrir að hann flytti fyrirhugaða fjárlaga- ræðu sína síðdegis. Forsetí þingsins hafnaði kröfu þeirra og gengu þá stjómarandstæðingar úr þingsölum í mótmælaskyni. Fjármálaráðherr- ann flutti síðan hina stystu fjárlaga- ræðu sem sögur fara af í Kanada þar sem öUum var þegar kunnugt um innihald fjárlaganna. Utandagskráramræður um fjár- lagalekann munu halda áfram í dag en líklegt er að stjómarandstæðan breyti um baráttuaðferðir. Viðbrögð almennings hafa yfirleitt verið á þá lund að lekinn sé ekki fjármálaráð- herranum að kenna þar sem upplýs- ingum hafi verið stoUð og að stjóm- arandstaðan sé bara í póhtískum skoUaleik þegar hún heimtar afsögn hans. En þó almenningur virðist styðja fjármálaráðherrann er annað uppi á teningnum varðandi fjárlögin sjálf. Launþegar era óánægðir með hærri skatta og niðurskurð á félagslegri þjónustu. Talsmenn viðskiptalífsins telja niðurskurð á ríkisútgjöldum of Utinn og að fjárlagahallinn sé enn of mikiU auk þess sem þeir era ekki hrifnir af hærri sköttum á fyrirtæki. Þá hafa fjármálaráðherrar allra fylkja Kanada lýst óánægju sinni vegna niðurskurðar á framlögum til fylkjanna sem mun þýða að þau verða að innheimta hærri skatta sjálf. Eini hópurinn sem virðist ánægður með fjárlögin era friðarsinnar þar sem útgjöld til vamarmála vora skorin harkalega niður. Það kom sérstaklega á óvart að stjómin skyldi hætta við fyrirhuguö kaup á tíu tíl tólf kjamorkukafbátum fyrir um átta miUjarða dollara. Ljóst er að Frakkar og Bretar, sem undanfarin tvö ár hafa reynt að selja Kanadamönnum kjamorkukafbáta sína, era mjög óánægðir með þessa ákvörðun. Bandaríkjamenn hafa hins vegar verið mjög á móti því að Kanadamenn bættust í kjarnorku- flotann og kann það að hafa haft ein- hver áhrif á ákvörðunina. Hver við- brögð annarra Atlantshafsbanda- lagsríkja verða við öðrum niður- skurði er enn of snemmt að segja til um en Kanadastjóm hefur undanfar- ið verið undir nokkrum þrýstingi að auka hlutfallsleg útgjöld sín til hem- aðarmála. VÉLSTJÓRAR - VELSTJORAR Vélstjóra vantar að Skeiðsfossvirkjun í Fljótum, Skagafirði. Ágætis aðstaða fyrir fjölskyldu með börn. Áhugaverð sveit með mikla framtíðarmöguleika og mikið félagslíf. Viðkomandi þarf að hefja störf 1. júní 1989. Laun samkvæmt kjarasamningi S.M.S. og Siglufjarð- arkaupstaðar. Nánari upplýsingar gefur veitustjóri eða bæjarstjóri Siglufjarðar í síma 96-71700 og stöðvarstjóri Skeiðsfossvirkjunar í síma 96-7322, 96-73203. Rafveita Siglufjarðar kennara- ALMENNT KENNARANAM œ TIL B.ED.-PRÓFS Umsóknarfrestur um þriggja ára almennt kennara- nám við Kennaraháskóla íslands er til 5. júní. Um- sókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Um- sækjendur koma til viðtals dagana 8.-14. júní þar sem þeim verður gefinn kostur á að gera grein fyrir umsókn sinni. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða önnur próf við lokframhaldsskólastigs, svo og náms- og starfsreynsla sem tryggir jafngildan undirbúning. Nánari upplýsingar, ásamt umsóknareyðublöðum, fást á skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími 91 -688700. Rektor n TILKYNNING Þeir sem telja sig eiga bíl á geymslusvæði „Vöku" á Ártúnshöfða og í Gufunesi þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir 14. maí nk. sbr. 110 gr. umferðarlaga. Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslumann „Vöku" að Eldshöfða 6 og greiði áfallinn kostnað. Að áðurnefndum fresti liðnum verða geymslusvæðin hreinsuð og bílgarmar fluttir á sorphauga á kostnað og ábyrgð eigenda, án frekari viðvörunar. Reykjavík 24. 04. '89 Gatnamálastjórinn í Reykjavík. Hreinsunardeild. Sprengjumaðurinn í Svíþjóð? Maður sá er bjó tíl útvarpssprengj- una sem grandaði bandarísku Pan Am farþegaþotunni yfir Skotlandi í desember síðastliðnum býr ef til vill í Sviþjóð. Sænska kvöldblaðið Ex- pressen greinir frá því auk þess sem það skrifar að leyniþjónustur margra landa vinni að rannsókn málsins. Leitin að sprengjusérfræðingnum hefur staðiö yfir síöan farþegaþotan hrapaði með þeim afleiðingum að tvö hundrað og sjötíu manns fórust. Heimildarmenn Expressens segja að fram hafi komið upplýsingar sem benda til þess að sprengjusérfræð- ingurinn sé af armenskum upprana og að hann hafi búið lengi í Svíþjóð. Hann er sagöur hafa búið til að minnsta kosti fimm sprengjur af þeirri gerð sem fannst um borð í bandarísku þotunni. Þær era gerðar á þann hátt að hægt er að fela þær inni í kassettutæki og er mjög erfitt fyrir öryggisverði að finna þær. Sprengjuefnið kallast semtex. Og það var einmitt shkt efni sem sænska lögreglan fann í vopnageymslu ná- lægt Arlandaflugvelh í fyrrasumar. í október í fyrra fann vestur-þýska lögreglan vopn er gerð var húsleit hjá palestínskum samtökum í Frank- furt sem grunuð hafa verið um hryðjuverk. Sá fundur leiddi tíl þess að sex menn í Uppsölum í Svíþjóð, sem vérið höfðu í sambandi við Frankfurt, voru yfirheyrðir. Engin vopn fundust þó hjá þeim. TT AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKIRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1983-2. fl. 01.05.89-01.11.89 kr. 370,85 1984-3. fl. 12.05.89-12.11.89 kr. 366,74 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteinaríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1989 SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.