Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989.
Utlönd
Fimmtudagur í næstu viku verö-
ur venjulegur dagur í lífi Margrét-
ar Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands. Hún heldur ríkisstjóm-
arfund í Downingstræti 10 fyrir
hádegi og eftir hádegi mun hún
svara spurningum þingmanna í
fyrirspumartíma á þinginu.
En 4. maí 1989 er enginn venjuleg-
ur dagur. Þá fagnar Thatcher því
að tíu ár eru liðin frá því að hún
tók við embætti forsætisráðherra
Bretlands, fyrsta konan í því emb-
ætti.
Á þessum tíu árum hefur kaup-
mannsdóttirin, sem nú er sextíu og
þriggja ára, skapað sér nafn sem
reyndasti leiðtogi Vesturlanda, og
eiim sá allra virtasti.
Á þessum tíma hefur hún fært
nýtt hugtak á spjöld stjórnmálasög-
unnar; „Thatcherismi" sem bygg-
ist á samkeppni, sparsemi, sjálfs-
ábyrgð og hörku.
Obilandi kraftur hennar við að
breyta til frambúðar uppbyggingu
bresks þjóðfélags varö til þess að
hún varð þess vafasama heiðurs
aðnjótandi árið 1981 að vera vahn
óvinsælasti forsætisráðherra Bret-
lands frá upphafi í skoðanakönn-
un.
Sex árum síðar var hún í þriðja
sinn kjörin til aö veita þjóðinni for-
ystu. Það er met í breskum stjórn-
málum.
Blýantsnagarar í skriffinskukerf-
inu kölluðu hana eitt sinn „TBW“
(This bloody woman eða þessi
fjandans kona). Henni var nokk
sama um álit þeirra því að skrif-
finskuveldi hatar hún. Hún hefur
lýst því yfir opinberlega að hún
muni halda áfram og áfram. Ekki
virðast miklar líkur á að hún fái
samkeppni, hvort heldur sem er
innan eöa utan íhaldsflokksins.
Áratugur mikilla sigra
Þessi áratugur hefur verið við-
burðaríkur. Orrustur hafa verið
háðar og miklir sigrar unnir gegn
verkalýðsfélögum, Evrópubanda-
laginu, Argentínu og gegn nokkr-
um af hennar eigin félögum, efa-
semdarmönnunum sem voru
ósammála stefnu hennar og efuð-
ust um að hún myndi virka.
Þegar Thatcher komst til valda
árið 1979 haföi Verkamannaflokk-
urinn veriö við stjómvölinn í Bret-
Fögnuður Margrétar Thatcher var mikill þegar hún tryggði sér þriðja kjörtímabil sitt í embætti forsætisráðherra
í kosningunum 12. júní 1987. Símamynd Reuter
var það atburður þúsundir kOó-
metra í burtu sem tryggði henni
yfirgnæfandi kosningasigur árið
1983.
Innrás Argentínu á Falklandseyj-
ar, breska nýlendu, í aprO 1982 var
prófsteinn á hörku Thatcher-
stjórnarinnar.
Tíu vikum síðar náði breskt her-
hð eyjunum aftur. Liðið hafði verið
sent yfir hálfan hnöttinn af óum-
deilanlegum foringja með þjóðern-
isstolt bresku þjóðarinnar í vega-
nesti.
Þrátt fyrir Falklandseyjasigurinn
og 144 sæta meirihluta á þingi var
annaö kjörtímabil Thatcher eins
stormasamt og það fyrsta.
Einmitt þegar áætlun Thatcher
um sölu á ríkisfyrirtækjum var að
fara í fullan gang helltust vanda-
máhn yfir bresku stjórnina. Kyn-
lífshneyksli sem einn ráðherra
stjórnarinnar blandaðist inn í,
vandræði sterhngspundsins, löng
barátta viö kolanámumenn í verk-
falli og fleira varð til þess að dreifa
kröftunum.
Sprengingin i Brighton
Einn eftirminnilegasti atburður
annars kjörtímabOs Thatcher er án
efa sprengingin í Brighton, sem
næstum varð allri ríkisstjóm
hennar, að henni sjálfri meðtaldri,
að bana.
Thatcher slapp ómeidd þegar
sprengjan sprakk í hóteli því sem
hún var á á landsfundi íhalds-
flokksins 1984, en flmm manns biðu
bana og margir nánir samstarfs-
menn hennar slösuðust illa.
Eftir sprenginguna sýndi Thatc-
her enn einu sinni að hún er úr
stáli. Aðeins nokkrum klukku-
stundum síðar flutti hún lokaræðu
sína, á réttum tíma, og hét því aö
að hún myndi engan bilbug láta á
sér finna í báráttunni við hryðju-
verk.
Kreppa hjá öðrum flokkum
Eftir því sem Thatcher hefur ver-
ið lengur við völd haíá innan-
flokksvandræði í Verkamanna-
flokknum aukist og Miðflokka-
bandalagið splundraðist. Hún hafði
frjálsar hendur til að fylgja eftir
þeirri stórkostlegu félagslegu bylt-
ingu sem hún hafði hmndið af stað.
Risastórum ríkiseinokunarfyrir-
tækjum í stál-, gas: og olíuiðnaði
var skilaö til markaðarins.
Þúsundir venjulegra verka-
manna urðu heimiliseigendur og
keyptu sér hlutabréf í fyrirtækjum,
í fyrsta sinn.
Menntamál, heObrigðismál, lög,
opinber þjónusta, tryggingakerfið
og sveitastjórnarmál voru tekin til
endurskipulagningar.
Vatnsveitur og rafmagnsveitur
er verið að selja í hendur einkaað-
ila, alveg eins og British Airways
og símaþjónustuna í landinu. Því
er lofað aö eftir næstu kosningar,
sem verða ekki síöar en 1992, verði
kolaiðnaöurinn seldur frá ríkinu.
Thatcher fram á næstu öld
Thatcher er langlOdegasti leið-
togi íhaldsmanna í næstu kosning-
um. Hún hefur engan hug á að
draga sig í hlé og víst er að enginn
maöur fer í sporin hennar.
Hún er nú á þriðja kjörtímabili
sínu en hún er strax farin að huga
að því fjórða. Margir telja að hún
muni ekki draga sig í hlé frá stjórn-
málum fyrr en heOsubrestur eða
eitthvað því um líkt gerir vart við
sig.
Járnfrúin er við hestaheUsu og
þaö er ekkert ólíklegt að hún verði
við völd í Bretlandi að tíu ámm
liðnum, jafnvel allt fram á tuttug-
ustu og fyrstu öldina.
Ef miða má við Reagan, fyrrum
Bandaríkjaforseta, veröur frúin á
besta aldri um aldamótin.
Reuter
landi í eUefu af síðustu fimmtán
ámm. Landið gekk undir nafninu
„sjúki maöurinn í Evrópu“ og órói
á vinnumarkaði var um allan heim
nefndur „breski sjúkdómurinn".
Kosning Thatcher reyndist vera
visir að meiru en venjulegum
stjómarskiptum.
Sósíalismi hreinsaður út
Thatcher, sem hefur gaman af að
líkja sér viö venjulega húsmóður
sem fæst við dagleg vandamál, tók
tfl við vorhreingeminguna sem
miðaði að því að hreinsa sósíalisma
(félagshyggju) út úr bresku sam-
félagi.
í miðri efnahagslægð i heiminum
sneri hún Bretlandi á braut frjáls
markaðskerfis og réðst gegn gífur-
legu verðbólguvandamáli jafn-
framt þvi sem hún lagöi til atlögu
við verkalýðsfélögin og vald þeirra.
Stefna hennar var alls ekki vin-
sæl og harðar aðgerðir hennar
komu við kaunin á fólki. Hún beitti
hinum svonefnda monetarisma til
þess að stjórna framboði á pening-
um. Iðnaðarframleiðsla og þjóðar-
framleiðsla drógust saman og
gjaldþrotum fjölgaði mjög á
kreppuárunum 1981-82.
Atvinnuleysi náöi nýju hámarki,
óeirðir bmtust út í miðborgum
London og Liverpool og íhalds-
flokkurinn var langt aö baki bæði
Verkamannaflokkinum og Mið-
flokkasambandinu samkvæmt
skoðanakönnunum.
Thatcher lét hins vegar ekki bug-
Margrét Thatcher og maður hennar, Dennis, fagna hér kosningasigri ihaldsflokksins 4. maí 1979, þegar nýtt
límabil i sögu Bretlands, og raunar heimsins hófst; tímabil Margrétar Thatcher, sem enn stendur í fullum Ijóma.
ast. Hún orðaði það svo á lands-
fundi íhaldsfolkksins árið 1980: „Þú
beygir ef þú vOt. Frúin er ekki hrif-
in af beygjum."
Árið 1983 var efnahagur Bret-
lands farinn að rétta úr kútnum.
Verðbólgan var komin úr 22 pró-
sentum niður í innan við 5 prósent.
Falklandseyjastríðið
rós í hnappagatið
Á meðan stefnumál hennar geng-
ust undir prófiö á heimavettvangi
Thatcher í tíu ár