Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1989, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1989, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989. 59 Afmæli Sigvaldi Sigvaldason Sigvaldi Sigvaldason, fyrrv. sjó- maður og nú umsjónarmaður með Grasagarðinum í Laugardal, til heimilis að Stakkholti 3, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun. Sigvaldi fæddist á Akureyri. Hann byrjaði ungur til sjós fyrir norðan, var lengst af á togurum pg bátum, þar af í sautján ár hjá BÚR. Sigvaldi slasaðist illa í baki 1979 og kom þá í land. Hann var starfsmaður Shell fyrstu tvö árin í landi en hefur siðan starfað hjá Reykjavíkurborg, síð- ustu fjögur árin í Grasagarðinum í Laugardal. Sigvaldi á einn son. Sá er Þórarinn Ingi Sigvaldason, f. 26.2.1959, starfs- maöur hjá búnaðardeild Sambands- ins í Reykjavík, kvæntur Sigríði Sig- urðardóttur skrifstofumanni og eiga þau tvo syni, Bjarka og Pálma. Sigvaldi á fjórar systur. Þær eru Hildigunnur, húsmóðir og starfs- stúlka hjá DAS í Hafnarfirði, ekkja eftir Torfa Jörundsson sjómann og eignuðust þau fimm syni; Ragn- heiður, húsmóðir og skjalavörður á Dalvík, gift Júlíusi Kristjánssyni, netagerðarmanni og framkvæmda- stjóra, og eiga þau þrjá syni; María Einarsdóttir, tónlistarkennari í Kópavogi, gift Sölva Sigurðssyni, launafulltrúa á Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar og eiga þau tvær dætur og tvo syni. Hálfsystir Sig- valda, samfeðra, er Hulda, húsmóð- ir og eigandi snyrtistofu í Kaup- mannahöfn, og á hún tvær dætur. Foreldrar Sigvalda voru Sigvaldi Jóhannes Þorsteinsson frá Upsum á Dalvík, f. 1898, d. 1952, skipstjóri og útgerðarmaður og síðar bóksali í Reykjavík, og kona hans, María Jó- hannsdóttir af Árskógsströnd, f. 1904, d.1939. Sigvaldi Jóhannes var afi Sigvalda Júlíussonar, þular hjá Ríkisútvarp- inu, og Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarsjóra á Dalvík. Bróðir Sig- valda Jóhannesar var Magnús, afi Magnúsar Gauta, kaupfélagsstjóra á Akureyri. Systir Sigvalda var Rósa, móðir Magnúsar Péturssonar píanóleikara. Sigvaldi Jóhannes var sonur Þorsteins, útvegsb. á Upsum á Upsaströnd, bróður Helga, afa Atla Rúnars og Jóns Baldvins Hall- dórssona, fréttamanna hjá Ríkisút- varpinu. Þorsteinn var sonur Jóns Magnúsar, sjómannafræðari og b. á Hofi og síðar á Upsum, sem kenndur var við hákarlaskipið Mínervu, Magnússonar frá Selá, Jónssonar, b. og skipstjóra, Jónssonar í Ytra- Holti í Svarfaðardal. Móðir Sigvalda Jóhannesar var Anna Björg, dóttir Benedikts Jóns- sonar, sem ættaður var úr Keldu- hverfi, í beinan karllegg frá Bjama, presti í Garði, Gíslasyni. Móðir Ónnu Bjargar var Hólmfríður Gísla- dóttir, b. á Þorvaldsstöðum á Langa- nesströnd, Sveinssonar. Móðir Þorsteins var Rósa Sigríð- ur, systir Snjólaugar Guðrúnar, móður Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Snjólaug var einnig móðir Jóhannesar Baldvins, stúdents á Laxamýri, afa Benedikts Árnasonar leikstjóra, foður Einars í Sykurmol- unum. Þá var Snjólaug móðir Snjó- laugar, móður Sigurjóns, fyrrv. lög- reglustjóra í Reykjavík, og Ingi- bjargar, móöur Magnúsar Magnús- sonar hjá BBC. Loks var Snjólaug, langamma Stefáns Gunnlaugsson- ar, fyrrv. bæjarstjóra í Hafnarfirði, föður Guðmundar Árna, bæjar- stjóra í Hafnarfirði, Finns Torfa, lögfræðings og tónhstarmanns, og Gunnlaugs, prests í Heydölum. Önnur systir Rósu Sigríðar var Kristín Hólmfríður, móðir Stefáns Baldvins Kristinssonar, prests á Völlum, afa Þorsteins Sæmunds- sonar stjörnufræðings. Bróðir Rósu Sigríðar var Baldvin, b. á Böggvisstöðum, langafi Þor- valdar Jóhannssonar, bæjarstjóra á Seyöisfirði. Rósa Sigríður var dóttir Þorvalds, b. á Krossumn á Árskógs- strönd, Gunnlaugssonar, b. á Hell- um Þorvaldssonar. Móöir Rósu Sig- ríðar var Snjólaug Baldvinsdóttir, systir Stefáns, langafa Filippíu, móður Guðjóns B. Ólafssonar, for- stjóra SÍS. María, móðir afmæhsbarnanna (Sigvalda og Maríu) var dóttir hjón- anna Láru Gissurardóttur og Jó- hanns Sigurvins Jóhannssonar, b. og sjómanns í Syðri-Haga á Ár- skógsströnd, en hann fórst með há- karlaskipinu Kjærstine 1910. Jó- hann var sonur Jóhanns, b. í Syðri- Haga, Einarssonar, b. á Laugalandi Sigvaldi Sigvaldason. á Þelamörk, og konu hans, Sigríöar Jensdóttur Buck frá Húsavík. Lára var dóttir Gissurar, báta- smiðs í Ytri-Skjaldarvík, Gissurar- sonar og konu hans, Maríu Jóns- dóttur frá Efri-Dálksstöðum. Sigvaldi og tvíburasystir hans, María, taka á móti gestum í Félags- heimilinu í Kópavogi, sunnudaginn 30.apríl mhli klukkan 16 og 18. Elínborg Einarsdóttir EhnborgEinarsdóttir, starfs- maður hjá Pósti og síma, Heiðar- homi 14, Keflavík, er fimmtug í dag. Ehnborg er fædd í Kjamholt- um í Biskupstungum og ólst þar upp. Maöur hennar er Ingólfur Falsson, framkvæmdastjóri í Keflavík. Elínborg og Ingólfur eiga fimm börn. Þau em Margeir, f. 20. sept- ember 1961, bifreiðastjóri í Reykja- vík og á hann einn son frá fyrra sambandi, Ólaf Rúnar, en unnusta Margeirs er Sigríður Guðmunds- dóttir; Rúnar, f. 23. október 1963, d. 5. janúar 1965; Einar Falur, f. 24. október 1966, ljósmyndari og nemi, en sambýhskona hans er Ingibjörg Jóhannsdóttir; Guðrún Helga, f. 4. júní 1970, nemi, en sambýhsmaður hennar er Gunnar Eyjólfsson, og Kristinn Ágúst, f. 1. febrúar 1973, nemi. Systkini Ehnborgar em Ingibjörg kaupkona, búsett í Þorlákshöfn, gift Kath Kristjánssyni; Gísli, b. og oddviti í Kjarnholtum, kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur; Ingimar, starfsmaður nautastöðvarinnar á Hvanneyri, kvæntur Önnu Krist- insdóttur; Guðrún, skrifstofumað- ur í Reykjavík, gift Þorsteini Hjart- arsyni; Þóra, gift Jóni Gísla Jóns- synií Kópavogi, ogMagnús, b. í Kjarnholtum. Foreldrar Ehnborgar em Einar Gíslason, f. 1. september 1904, fyrrv. b. í Kjamholtum, nú til heimilis að Bergholti, íbúðum aldr- aðra í Biskupstungum, og kona hans, Guðrún Ingimarsdóttir, f. 4. ágúst 1905, d. 17. mars 1981. Föður- systirElínborgarvarDóróthea, • Elínborg Einarsdóttir. móðir Rögnvalds Þorleifssonar læknis. Einar var sonur Gísla, b. í Kjarnholtum, Guðmundssonar, b. í Kjarnholtum, Diðrikssonar, b. í Laugarási, bróður Þorláks, langafa Önnu, ömmu Björns Bjamasonar, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, og Markúsar Arnar Antonssonar. Annar bróðir Diðriks var Þor- steinn, langafi Sigurðar, fóður Egg- erts Haukdal alþingismanns. Dið- rik var sonur Stefáns, b. í Neðrad- al, Þorsteinssonar, b. í Dalbæ, Stef- ánssonar, prests í Steinsholti, Þor- steinssonar. Móðir Þorsteins var Ingibjörg Jónsdóttir, prests á Ólaf- svöhum, Erhngssonar, bróður Gísla, afa Eiríks Vigfússonar, dbrm. á Reykjum, ættfóður Reykja- ættarinnar. Móðir Diðriks var Vig- dís Diðriksdóttir, b. á Önundar- stöðum, Bjarnasonar og Guðrúnar Högnadóttur „prestafóður“, prests á Breiöabólstaö í Fljótshhð, Sig- urðssonar, langafa Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadótt- ur. Móöir Stefáns var Guðríður Guðmundsdóttir, b. á Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættfóður Kóps- vatnsættarinnar, langafa Magnús- ar Andréssonar, ættfóður Lang- holtsættarinnar, langafa Ásmund- ar Guðmundssonar biskups og Sig- ríðar, móður Ólafs Skúlasonar vígslubiskups. Móðir Gísla var Vil- borg, sjstir Gísla, afa Ingveldar, konu Agústs Þorvaldssonar al- þingismanns. Systir Vilborgar var Guðrún, amma Vilhjálms skálds frá Skáholti. Vilborg var dóttir Guðmundar, b. á Löngumýri, Arn- björnssonar, bróður Ogmundar, föður Salvarar, langömmu Tómas- ar Guðmundssonar skálds. Móðir Vilborgar var Ingibjörg Gísladóttir, b. í Útverkum á Skeiðum, Jónsson- ar og konu hans, Vilborgar Jóns- dóttur, systur Guðmundar, langafa Margrétar, móður Ólafs Thors. Móðir Einars var Guðrún Sveins- dóttir, systir Ehnar, móður Guð- mundar Jóhannessonar læknis Guðrún var dóttir Ingimars, b. á Efri-Reykjum í Biskupstungum, Guðmundssonar, b. á Bergsstöð- um, Ingimundarsonar en hann fékk konungsverðlaun fyrir fram- farir í jarðrækt. Móðir Guðmundar var Þórey Guðmundsdóttir, b. í Syöra-Langholti, Björnssonar og konu hans, Guðrúnar Ámunda- dóttur, b. og smiðs í Syðra-Lang- holti, Jónssonar, Móðir Guðrúnar var Ingibjörg Guömundsdóttir, systir Gísla í Kjarnholtum. Elín- borg verður ekki heima á afmælis- daginn. TLI hamingju med afmælið I. maí 85 ára Safamýri 17, Reykjavík. Guðmundur Ingi Inguson, Stóragerði 6, Reykiavík. Sigurjón Þorsteinsson Hvannabraut 5, Höfe i Homafirði. Viglundur Halidórsson, Heiðarbýli, Mosfellsbæ. Þorsteinn Ragnarsson, Amartanga 6, Mosfellsbæ. 70 ára Maria Magnúsdóttir, Bogabraut 24, Höfðahreppi. Ilelga Kristjánsdóttir, Silirastöðum, Akrahreppi. 40 ára Óskar Aðalstcinn Guðjónsson, Reykjanesi, Haínahreppi. Margrét Magnúsdóttir, Árholti 7, Húsavík. Kristbjörg HaUdórsdóttir, Laugavöllum 17, Egilsstöðum. Kristín Káradóttir, 60 ára Unnur Andrésdóttir, Borgarbraut 19, Borgamesi. Klytjaseb 15, Reykjavik. Sæmundur Friðriksson, Einholti 16D, Akureyri. Sasbjörg Jónsdóttir, 50 ára Vahargerðí 4F, Akureyri. Jónina Sigurjónsdóttir, Faxabraut 25D, Keflavik. Guðbjörg Eggertsdóttir, María Einarsdóttir Ámi Sigurðsson Ámi Sigurðsson verkamaður, til heimilis að Kirkjubraut 17 í Innri- Njarðvík, verður níræður á morg- un. Ámi fæddist í Brúnavík í Borgar- firði eystra og ólst upp á Hofströnd í Borgarfirði eystra hjá Sigfúsi Gíslasyni og Herborgu Hahdórs- dóttur til tuttugu og tveggja ára ald- urs. Hann flutti þá til Fáskrúðsfjarð- ar til systur sinnar, Þorgerðar, og manns hennar, Stefáns Jakobsson- ar. Þaðan flutti haim í Innri-Njarð- vík til Finnboga Guðmundssonar í Tjamarkoti og vann hjá honum í fimmvertíðir. Árni kvæntist 1930 Ástu Einars- dóttur og eignuðust þau fjögur börn: Einar, f. 1.9.1930; Guðríði, f. 15.10. 1932; Sigurþór, f. 18.12.1933, og dreng er lést 1935. Árni og Asta slitu samvistir. Seinni kona Árna er Árnheiður Magnúsdóttir frá Garðbæ í Njarð- víkum, f. 2.9.1900, en þau hafa nú verið gift í þrjátíu og níu ár. Ámi átti tólf alsysktini sem öll em látin. Þau vom Jóna Guðný, f. 26.6. 1886; Hahsteinn, f. 17.11.1887; Sigur- laug, f. 27.2.1892; Þorgerður, f. 18.7. 1893; Anna, f. 22.3.1895; Þorbjörg, f. 15.6.1896; Jóhann, f. 28.6.1897; Sig- fús, f. 22.5.1901; Runólfur, f. 17.8. 1905, og þrír drengir sem allir dóu í bamæsku en tveir þeirra voru skírðir Bjami og einn Herbogi. Fóstursystkini Árna eru Hahdóra Sigfúsdóttir, Friðþjófur Árnason, Hahfríöur Jónsdóttir og Sigvarður Benediktsson. Foreldrar Árna vora Sigurður Steinsson sjómaður, f. 10.1.1856, d. 1925, og kona hans, Guðríður Jóns- dóttir húsmóðir, f. 6.9.1867, d. 1948. Arni Sigurðsson. Sigurður og Guðríður bjuggu lengst af í Brúnavík og á Bakka í Borgar- firði eystra. Árni og Árnheiður ætia að taka á móti gestum í Safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík frá klukkan 16 á morgun, sunnudaginn 30.4. María Einarsdóttir tónhstarkenn- ari, Álfhólsvegi 99, Kópavogi, verð- ur fimmtug á morgun. María fæddist á Akureyri og ólst þar upp til 1944 en flutti þá til Reykjavíkur og ólst þar upp eftir það. Hún stundaði nám við Tónhst- arskóla Reykjavíkur 1949 og lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónhst- arskólanum í Reykjavík 1963. Hún var kennari við Barnaskólann á Fáskrúðsfirði frá 1957-59, kennari við Tónhstarskóla Kópavogs 1967-68 og hefur verið tónmenntakennari við Kópasvogsskóla frá 1966. María hefur verið félagi í Þjóð- dansafélagi Reykjavíkur frá 1958. Hún söng með Söngsveitinni Fh- harmóníu, Fríkirkjukómum í Reykjavík og Pólýfónkórnum 1958-82. María var í stjórn kvenna- dehdar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra frá 1966-68 og hefur verið í stjórn Kennarasambands Kópa- vogs. María giftist 4.8.1957, Sölva Ragn- ari Sigurðssyni, f. 16.9.1934, kenn- ara og launafuhtrúa hjá Fræðslu- skrifstofu Reykjavíkurborgar. For- eldrar hans: Sigurður Jónsson, verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Hhdur Ingibjörg Hahdórs- dóttirljósmóðir. Börn Maríu og Sölva era Hhdur Ingibjörg tækniteiknari, gift Gunn- ari Jóni Hhmarssyni, starfsmanni Landspítalans og eiga þau tvö börn; Þórunn Ósk þroskaþjálfi, gift Guð- mundi Helgasyni kennara og eiga þau tvö böm; Einar, við nám í Fynske Kunstakademi í Óöinsvéum og er sambýhskona hans Charlotte Fage-Larsen, og Sölvi, lögfræðinemi viðHÍ.og er sambýhskona hans Guðrún Gunnarsdóttir nemi. Systkini Maríu: tveir drengir sem María Einarsdóttir. báðir létust ungir; Hhdigunnur, húsmóðir í Hafnarfirði, ekkja eftir Torfa Jörundsson sjómann og eign- uðust þau fimm syni; Ragnheiður, húsmóðir á DaMk, gift Júhusi Kristjánssyni, netagerðarmanni og framkvæmdastjóra og eiga þau þrjá syni, og tvíburabróðir Maríu, Sig- valdi, umsjónarmaður Grasagarðs- ins í Laugardal, en hann á einn son. Hálfsystir Maríu, samfeðra, er Hulda, húsmóðir og eigandi snyrti- stofu í Kaupmaxmahöfn og á hún tværdætur. Foreldrar Maríu voru Sigvaldi Jóhannes Þorsteinsson, f. 1898, d. 1952, og kona hans, María Jóhanns- dóttir, f. 1904, d. 1939, en ættir þeirra eru hér raktar í greininni um tví- burabróður Maríu, Sigvalda Sig- valdason. Kjörforeldrar Maríu vora Einar Benediktsson loftskeytamaður, f. 21.6.1900, d. 3.9.1953, og kona hans, Þórunn I. Þorsteinsdóttir, f. 5.8.1910, d. 15.4.1989. Þórunn var jafnframt foðursystirMaríu. María og tvíburabróðir hennar, Sigvaldi, taka á móti gestum í Fé- lagsheimilinu í Kópavogi, sunnu- daginn 30. mihi klukkan 16 og 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.