Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Síða 5
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989.
5
>v________________Fréttir
Kópavogssorpið í
kerfisumfjöllun
Hollustuvemd ríkisins bíður nú
umsagna séraðila um hugmyndir
stjórnvalda í Kópavogi um bráða-
birgðaurðun á sorpi frá Kópavogi
rétt viö Seljahverfið í Breiðholti.
Hollustuvemd óskaði umsagna frá
náttúruvemdarráði og skipulags-
yfirvöldum í Kópavogi eins og reglu-
gerð gerir ráð fyrir.
Vegna nálægðar við byggð í
Reykjavík var einnig farið fram á
umsögn frá borgarverkfræðingi þar
og vegna þess möguleika að grunn-
vatn geti spillst var leitað til Orku-
stofnunar.
Þessir aðilar hafa frest fram í
næstu viku til að skila áliti sínu og
búast má við tilmælum frá Hollustu-
vernd til ráðuneytis vegna málsins
um miðjan júnímánuð.
Nokkurrar óánægju mun nú gæta
innan Hollustuverndar ríkisins
vegna erindis Kópavogsbæjar. Telja
margir starfsmanna stofnunarinnar
ótækt að hægt sé að nota hana sem
peð í pólitískum deilum.
Einn starfsmaður stofnunarinnar
sagði í viðtali við DV að auk þess
væm menn þar htið hrifnir af að
Jjalla um enn einn öskuhauginn á
Reykjavíkursvæðinu. Hins vegar
yrði tekið á þessu máli af fullri al-
vöm enda verði Kópavogsbúar ein-
hvern veginn að leysa sín mál.
-HV
Tölvumál Ríkisútvarpsins:
„Við höfum aldrei
þegið umboðslaun“
Þorsteinn Einarsson verkfræðing-
ur og starfsmaður Vistfangs hf., sem
séð hefur um tölvumál Ríkisútvarps-
ins, gerir eftirfarandi athugasemd
við ummæli Bjarna Júlíussonar í DV
fyrr í vikunni:
„Bjarni Júlíusson lætur í ljós þá
skoðun sína í viðtali við DV að margt
hefði mátt fara betur hvað varðar
tölvuvæðingu Ríkisútvarpsins.
Bjarni er aö vinna að trúnaðar-
skýrslu um málefni Ríkisútvarpsins
og því örugglega fær um að tjá sína
skoðun á því. Hins vegar gefur hann
í skyn að óeðlilega hafi verið staðið
að tölvukaupum hjá Ríkisútvarpinu.
Hann nefnir að fyrirtæki tíðki að
ráðleggja kaup á ákveðnum tölvu-
búnaði og fái umboðslaun fyrir hjá
seljanda tölvubúnaðarins án þess að
þeir sem þeir veita ráðgjöfina viti um
það. Vegna þessara ummæla vil ég
taka fram að hvorki ég né það fyrir-
tæki, sem ég stafa hjá, hefur þegið
umboðslaun vegna tölvukaupa Rík-
isútvarpsins. Við höfum aldrei þegiö
umboðslaun af neinu tagi vegna ráö-
gjafar sem við höfum veitt um tölvu-
kaup.“
-JGH
Heimsbikarmót 1 skák:
Jóhann teflir í Rotterdam
Heimsbikarmót í skák er nú að
hefjast í Rotterdam í Hollandi og er
það næstsíðasta mótið í þessari törn.
Jóhann Hjartarson stórmeistari tefl-
ir á mótinu og er það síðasta mótið
sem hann teflir á en lokamótið verð-
ur í Svíþjóð í ágúst.
Engin leið er að segja fyrir um það
hver verður sigurvegarinn í heildar-
keppninni og hlýtur 100.000 dala að-
alverðlaun. Karpov teflir á báðum
mótunum sem eftir eru og verður að
sigra á þeim báðum til aö komast
fram fyrir Kasparov. Sem kunnugt
er eru það þrjú bestu mótin sem ráða
lokaniðurstöðu. -SMJ
SEARS OG ROEBUCK
KYNNA:
ÆVINTÝRAHEIMUR BANDARÍSKRAR HÁGÆDAVÖRU í FAXAFENI11
Sumarhúsgögn frá kr.
29.700 settið, 4 stólar og
borð. Grind úr plasthúðuðu
áli.
Rólusett. Verð frá kr. 18.400,-
asvelnpokar. Verí kr. 3.150 -
einnig nota sem rumtcppi)
I
D
Faxafeni 11 - við Hagkaupspianið í Skeifunni
Símar 670288 og 678588
lorrs