Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 27
Afmæli
Pétur Sigurgeirsson
Pétur Sigurgeirsson, biskup ís-
lands, Bergstaðastræti 75, Reykja-
vík, er sjötugur í dag. Pétur er fædd-
ur á ísafirði og lauk guðfræðiprófi
frá HÍ1944. Hann var í framhalds-
námi í guðfræði við Mt. Airy Semin-
ary í Phiiadelphia 1944-1945 og varð
Master of Sacred Theology þar 1945.
Pétur var í námi í blaðamennsku,
ensku og guðfræði við Stanford-
háskóla í Kalifomíu 1945 og vann
við ritstjórn Kirkjublaðsins í Rvík
1946-1947. Hann var sóknarprestur
á Akureyri 1948-1981 og hafði auka-
þjónustu í Grímsey 1953-1981. Pétur
var formaður Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti 1959-1969 og
formaður Bamavemdarnefndar
Akureyrar. Hann var vígslubiskup
í Hólabiskupsdæmi hinu forna
1969-1981 og formaður Prestafélags
hins forna Hólastiftis 1970-1981.
Pétur hefur verið biskup íslands
frá 1. október 1981, forseti Hins ísl.
biblíufélags frá 1981 og setið í stjórn
Listasafns Einars Jónssonar frá
1981. Pétur hefur samið bækurnar
Lith-Hárlokkur og fleiri sögur,
barnabók, 1952, og Grímsey, 1971,
og ritstýrt Sunnudagaskólablaðinu
1948, Æskulýðsblaðinu 1949-1960, í
útgáfustjórn 1963-1965 og Áfengis-
vöm 1956 og var í ritnefnd Tíðinda
Prestafélags hins foma Hólastiftis
1971. Gaf út Söngbók sunnudaga-
skóla Akureyrarkirkju 1948 og Unga
kirkjan, sálmarogmessuskrá, 1967.
Pétur kvæntist 3. ágúst 1948 Sól-
veigu Ásgeirsdóttur, f. 2. ágúst 1926.
Foreldrar hennar vom Ásgeir Ás-
geirsson, kaupmaður í Rvík, og
kona hans, Kristín Matthíasdóttir.
Börn Péturs og Sólveigar eru Pétur,
f. 19. febrúar 1950, doktor í félags-
fræði og kandídat í guðfræði frá
háskólanum í Lundi, nú dósent í
trúarbragðafélagsfræði við guð-
fræðideild háskólans í Lundi,
kvæntur Þuríði Jónu Gunnlaugs-
dóttur fótasérfræðingi; Guðrún, f.
25. maí 1950, d. 27. mars 1986, stúd-
ent og flugfreyja; Kristín, f. 31. maí
1952, fulltrúi hjá Háskólanum á
Akureyri, gift Hilmari Karlssyni,
lyfjafræðingi við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, og Sólveig, f. 21.
júní 1953, gift Borgþóri Kæmested,
fréttamanni, túlki og skjalaþýðanda
í Reykjavík. Systkini Pétrn-s eru Sig-
urður, f. 6. júlí 1920, d. 9. nóvember
1986, deildarstjóri í Útvegsbankan-
um í Rvík, kvæntur Pálínu Guð-
mundsdóttur; Svanhildur, f. 18. mars
1925, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu,
og Guðlaug, f. 16. febrúar 1927, hús-
mæðrakennari, gift Sigmundi Magn-
ússyni, prófessor í Rvík.
Foreldrar Péturs voru Sigurgeir
Sigurðsson, biskup Islands, og kona
hans, Guðrún Pétursdóttir. Sigur-
geir var sonur Sigurðar, regluboða
Góðtemplarareglunnar, Eiríksson-
ar, b. á Olafsvöllum á Skeiðum, Ei-
ríkssonar, b. og dbrm. á Reykjum á
Skeiðum, Eiríkssonar, b. ogdbrm. á
Reykjum á Skeiðum, Vigfússonar,
ættfóður Reykjaættarinnar, föður
Katrínar, langömmu Ásmundar
Guðmundssonar biskups og
langömmu Sigríðar, móður Ólafs
Skúlasonar vígslubiskups.
Móðir Eiríks á Ólafsvöllum var
Sigríður Sturlaugsdóttir, b. á
Brjánsstöðum á Skeiðum, Gunnars-
sonar og konu hans, Þorbjargar,
systur Knúts, langafa Hannesar
þjóðskjalavarðar og Þorsteins hag-
stofustjóra Þorsteinssona, Tómasar
Guðmundssonar skálds og Jó-
hönnu, móður Óskars Gíslasonar
ljósmyndara og ömmu Ævars Kvar-
an og Gísla Alfreðssonar þjóðleik-
hússtjóra. Þorbjörg var dóttir
Björns, b. í Vorsabæ á Skeiðum,
Högnasonar, lögréttumanns á Laug-
arvatni, Björnssonar, bróður Sigríð-
ar, móður Finns Jónssonar, biskups
í Skálholti, fóður Hannesar biskups
í Skálholti, ættfóður Finsensættar-
innar, langafa Nielsar Finsen, fyrsta
nóbelsverðlaunahafans í læknis-
fræði.
Móðir Sigurðar var Guðlaug Sig-
urðardóttir, systir Magnúsar, lang-
afa Bjarna Sigurðssonar, dósents í
guðfræði við HÍ. Bróðir Óuðlaugar
var Guðmundur, langafi Péturs,
föður Margeirs stórmeistara. Annar
bróðir Guðlaugar var Sigurður,
langafi Ágústu, móður Danfríðar
Skarphéðinsdóttur alþingismanns
og langafi Jónínu, móður Gísla Sig-
urðssonar ritstjóra.
Móðir Sigurgeirs var Svanhildur
Sigurðardóttir, b. og formanns í
Neistakoti á Eyrarbakka, Teitsson-
ar. Móðir Sigurðar var Guðrún,
systir Ólafar, langömmu Jóns, föður
Hannesar Jónssonar sendiherra.
Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á
Hrauni í Ölfusi, Þorgrímssonar, b. í
Holti í Stokkseyrarhreppi, Bergs-
sonar, b. í Brattholti, Sturlaugsson-
ar, ættföður Bergsættarinnar. Móð-
ir Guðrúnar var Ólöf Jónsdóttir,
hálfsystir Þorkels, langafa Salome
Þorkelsdóttur alþingismanns og
langafa Sigrúnar, móður Ragnheið-
ar Helgu Þórarinsdóttur borgar-
minjavarðar.
Guðrún var systir Sigurðar, föður
Péturs, forstjóra Landhelgisgæsl-
uimar. Guðrún var dóttir Péturs,
útvegsbónda og oddvita í Hrólfs-
skála á Seltjarnarnesi, Sigurðsson-
ar. Móðir Péturs var Sigríður Pét-
Pétur Sigurgeirsson
ursdóttir, b. í Engey, Guðmundsson-
ar, föður Guðfmnu, ömmu Bjama
Jónssonarvjgslubiskups. Önnur
dóttir Péturs í Engey var Guðrún,
langamma Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra. Sonur Péturs var
Jón, langafi Sigurðar, föður Péturs,
formanns bankaráðs Landsbankans
og langafi Mörtu, móður Péturs
Guðfinnssonar, framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins.
Móðir Guðrúnar var Guðlaug
Pálsdóttir, b. í Hörgsdal, Pálssonar,
prófasts í Hörgsdal, Pálssonar, föð-
ur Valgerðar, ömmu Sigurðar Páls-
sonar vígslubiskups. Móðir Guð-
laugar var Guðrún Guðjónsdóttir,
systir Péturs Gudjohnsen organ-
leikara, ættföður Gudjohnsenættar-
innar, langafa Baldurs Möller,
fyrrv. ráðuneytisstjóra.
Pétur tekur á móti gestum á heim-
ilisínukl. 15-17 ídag.
Margrét P. Einarsdottir
Margrét P. Einarsdóttir húsmóð-
ir, lengst af til heimihs að Kambs-
vegi 31, Reykjavík, en sem nú dvelur
á Hrafnistu við Kleppsveg, er áttræð
ídag.
Margrét fæddist á Þórustöðum í
Bitrufirði á Ströndum og ólst þar
upp í foreldrarhúsum. Hún stundaði
öfi almenn sveitastörf á unglingsár-
unum en flutti til Reykjavíkur 1935
og hefur búið þar síðan.
Hún giftist í október 1935 Eyþóri
Árnasyni, f. 18.4.1892, d. 24.10.1970,
sjómanni, verkamanni og loks næt-
urverði við Landsbanka Islands,
syni Árna Jónssonar, b. í Pétursey
í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu,
og Þórunnar Sigurðardóttur.
Böm Margrétar og Eyþórs em
Birgir Eyþórsson, f. 24.10.1935, bif-
reiðastjóri í Kópavogi, kvæntur
Þóru Siguijónsdóttur og eiga þau
flögur börn; Þórarinn Eyþórssson,
f. 23.3.1937, bankamaöur í Njarðvík,
kvæntur Sigríði Eiríksdóttur og eiga
þau tvö börn, og Steinþór Eyþórs-
son, f. 6.8.1948, veggfóðrarameistari
í Garðabæ, kvæntur Eiríku Har-
aldsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Margrét átti þrjú systkini en tvö
þeirra em látin. Systkini hennar:
Ólafur Einarsson, b. á Þórustöðum,
sem nú er látinn, en kona hans, sem
einnig er látin, var Friðmey Guð-
mundsdóttir og eignuðust þau fjög-
ur börn; Kristjana Einarsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík, sem er látin,
átti Geir F. Sigurðsson, lögregluþjón
í Reykjavík, sem einnig er látinn og
eignuðust þau þrjú börn, og Guðrún
Þórey Einarsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík, gift Ágúst Benedikts-
syni, fyrrv. b. á Hvalsá, og eignuð-
ust þausjösyni.
Foreldrar Margrétar vom Einar
Ólafsson, b. að Þórustöðum í Bitm-
firði, og kona hans, Ingunn Helga
Gísladóttir húsfreyja.
Ingunn Helga var dóttir Gísla, b.
á Bakka í Geiradal, Gunnlaugsson-
ar, b. á Valshamri, Guðbrandsson-
ar.
Einar var sonur Ólafs, b. á Þóru-
stöðum, Magnússonar, b. í Bessa-
tungu og á Efri-Brunná, Hallssonar,
b. á Bjarnarstöðum, Magnússonar,
b. á Bjarnarstöðum, Hjörleifssonar,
b. á Hörðubóli í Miðdölum, Magnús-
sonar. Móðir Magnúsar á Bjarnar-
stöðum var Guðrún Einarsdóttir.
Móðir Halls var Þorbjörg Jónsdótt-
ir. Móðir Magnúsar í Bessatungu
var Guðrún Hálfdánardóttir, b. á
Þurrhamri, Bjarnasonar. Móðir Ól-
afs og seinni kona Magnúsar var
Ragnheiður Árnadóttir, b. á Leys-
ingjastöðum, Jónssonar.
Móðir Einars og seinni kona Ólafs
Margrét P. Einarsdóttir
var Ehsabet Einarsdóttir, b. í Snart-
artungu, Þórðarsonar, b. á Gróu-
stöðum í Geiradal, Magnússonar.
Móðir Einars í Snartartungu var
Guðrún Jónsdóttir frá Kleifum í
Ghsfirði. Móðir Ehsabetar var Guð-
rún yngri Bjarnadóttir, b. á Þóru-
stöðum, Bjarnasonar, b. í Hhð í
Kohafirði, Guðmundssonar. Móðir
Bjarna á Þórustöðum var Elísabet
Steinsdóttir. Móðir Guðrúnar yngri
var Herdís Gísladóttir, b. á Hlað-
hamri, Jónssonar.
Margrét tekur á móti gestum á
afmæhsdaginn 2.6. á heimili sonar
síns og tengdadóttur að Víöhundi
7, Garðabæ, milli klukkan 16 og 19.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisböm og aðstandendur þeirra til að
senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfs-
sögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi þremur dögum fyrir afmæbð.
Munið aö senda okkur myndir
Gunnbjöm
Valdimarsson
Gunnbjörn Valdimarsson, flug-
stjóri hjá Flugleiðum, th heimihs að
Reykjavegi 74, Mosfehsbæ, er fimm-
tugurídag.
Gunnbjöm fæddist á Blönduósi og
ólst upp þar og á Akureyri. Hann
lauk landsprófi 1956, prófi 1 loftsigl-
ingafræðum og síðan thskhdum
flugmanns- og flugstjómarprófum.
Gunnbjöm var giftur Margréti
Hólmfríði Magnúsdóttur.
Böm hans em Gunnar Bjöm
Gunnbjömsson; María Ingibjörg
Gunnbjörnsdóttir og Magnús Mörð-
ur Gunnbjömsson.
Systkini Gunnbjöms eru Stein-
grímur Reynir Valdimarsson, lækn-
ir á Akureyri; Haha Björg Valdi-
marsdóttir Smith, búsett í Banda-
ríkjunum, og Valdimar Gunnar
Valdimarsson, flugmaður á Blöndu-
ósi.
Gunnbjörn Valdimarsson
Foreldrar Gunnbjöms em Valdi-
mar Pétursson, bakarameistar á
Blönduósi, f. 10.8.1911, og Anna
María Sigurbjömsdóttir húsmóðir,
f.19.9.1913.
90 ára
Magnús Eggertsson,
Melaleiti, Leirár- og Melahreppi.
Guðrún Guðjónsdóttir,
Efstasundi 31, Reykjavik.
75 ára
Hulda Jónsdóttir,
Aðalgötu 6, Sauðárkróki.
70 ára
Guðlaugur Guðjónssson,
Hásteinsvegi 64, Vestmannaeyjum.
Þóra Hannesdóttir,
Vahargerði 40, Kópavogi.
Trausti Guðmundsson,
Hofi, Ólafsfirði,
Stefán Þorsteinsson.
Shfúrteigi 6, Reykjavík.
Þorbjörg Þórhallsdóttir,
Skeiðarvogi 89, Reykjavík.
60 ára
Þóra Þórðardóttir,
Leifsgötu 6, ReyHjavík.
Steinunn Lilja Helgadóttir,
Þrastarlundi 7, Garðabæ.
Helgi ívarsson,
Hólum, Stokkseyri.
50 ára
Jóhannes Víðir Haraldsson,
Fellsmúla 7, Reykjavík.
Ragnheiður Þórisdóttir,
Vörðubrún 4, Keflavík.
Einar Ásgeirsson,
Unnarbraut 3, Selijamarnesi.
Sigurður Ingibergsson,
Hhðarbyggð 5, Garðabæ.
40 ára
Henning Jóhannesson,
Höfða, Grímsey.
Rolf Jonny Ingvar Svard,
Hafharstræti 77, Akureyri.
Sigurveig Jónasdóttir,
Uppsalavegi 30, Husavík.
Sesselja Eiríksdóttir,
Breiðvangi 26, Hafnarfirði.
Magnús Elias Hauksson,
Lynghálsi 3, Reykjavík.
Karl Sævaldsson,
Mímisvegi 14, Dalvík.
Benedikt Stefánsson,
Lækjarseli 11, Reykíavik.
Fjóla Þuríður Stefánsdóttir,
Barðstúni 7, Akureyri.
Unnur Sigurðardóttir,
Túngötu 30, TálknafirðL
Auður Guðmundsdóttir,
Hrísalundi 16E, Akureyri.
PálínaValgerðiir
Þorsteinsdóttir
Pálína Valgerður Þorsteinsdóttir,
Garðabraut 10, Akranesi, er sjötíu
ogfimmáraídag.
Pálína fæddist í Neðri-Miðvík í
Aðalvík, dóttir Þorsteins Bjarna-
sonar bónda þar og konu hans,
Hólmfríðar Guðmundsdóttur.
Eiginmaður Pálínu var Ragnar
Steindór Helgason frá Eyri við ísa-
fiörð en þau bjuggu lengst af að Hlíð
í Álftafirði við Djúp.
Páhna og Ragnar Steindór brugðu
búi 1971 og fluttu þá til Hafnarfiarð-
ar.
Ragnar lést 1979. Eignuðust þau
níu börn og eru sjö þeirra á lífi.
Barnabörnin eru nú tuttugu og fiög-
ur og langömmubörn Pálínu sex.
Pálína dvelur um þessar mundir
á Hehsuhæli NLFÍ í Hveragerði.
Pálína Valgerður Þorsteinsdóttir