Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð ( lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Smáþjóðin Stundum er haft á oröi að smáþjóðirnar séu lítils megnugar í hinum stóra heimi. Þær séu ekki gjaldgeng- ar í alþjóðamálum, peð í valdataflinu og utangátta í samskiptum þjóða og manna. Víst er það rétt að stór- þjóðimar hafa gert tilraunir til að traðka á rétti okkar, grænfriðungar velja fámennar þjóðir norðursins sem skotspón vegna þess að þær eru auðveldari bráð. Bretar gerðu tilraun til að beygja okkur til uppgjafar í land- helgisstríðinu og þær skoðanir, sem heyrðust frá Sví- þjóð á dögunum varðandi forystuhlutverk íslendinga innan EFTA, voru dæmigerðar fyrir það hugarfar sem ríkir meðal margra útlendinga. Þeir líta niður til okk- ar. íslendingum er ekki treystandi, þeir eru aðeins til uppfyllingar. Nú hafa Norðmenn sent okkur kveðjumar. Utanríkis- ráðherra Norðmanna segir íslendinga fara offari í af- vopnun hafsvæðanna með tillögum sínum og greinilegt er að þar í landi er það htið homauga ef íslendingar taka fmmkvæði í málum sem „þeir hafa ekki vit á“. Allt er þetta á sömu bókina lært. í frjálsari heimi og lýðræðislegum samskiptum þjóða hefur hlutur smáþjóðanna vaxið. Smáþjóðirnar hafa atkvæði til jafns við stórþjóðimar innan Sameinuðu þjóðanna og á aljpjóðlegiyn vettvangi. ísland er fuhgild- ur þátttakandi | ráðstefnum, þingum og samskiptum hvers konar á sviði menningar, félags- og stjórnmála. Við þurfum ekki að hafa vanmáttarkennd vegna smæð- ar þjóðarinnar. Það er ekki aht fengið með stærðinni. Það þótti fifldirfska þegar íslendingar settu fram hug- myndir sínar um tvö hundmð mílna lögsöguna. Sú stefna hlaut alþjóðlega viðurkenningu áður en yfir lauk. Við þurfum ekki að hafa minnimáttarkennd þótt At- lantshafsbandalagið ýti tillögum okkar í afvopnunar- málum til hhðar. Við eigum að skella skoheyrum við niðrandi ummælum svokahaðra frændþjóða okkar í Skandinavíu. Þau dæma sig sjálf. íslendingar hafa sannað það aftur og aftur að smá- þjóð á erindi og stendur fyrir sínu í samskiptum þjóða í milh. Hvað gerðist ekki á ólympíuleikvanginum í Moskvu í fyrradag? Þar lék íslenska knattspyrnulands- Uðið gegn Sovétríkjunum á heimavelh þeirra síðar- nefndu. Sovétmenn em með eitt allra fræknasta kapphð heims. Þeir hafa ekki tapað leik og ekki fengið á sig mark í heilan aldaiflórðung. En íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og náðu jöfnu í mikilvægum leik í undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Hverjum hefði dottið í hug að tvö hundmð og fimm- tíu þúsund manna þjóð gæti teflt fram Uði til jafns við tvö hundmð og fnnmtíu miUjóna manna þjóð? Er unnt að fá skýrari dæmi um það að stærð og fjöldi skiptir ekki aUtaf máh. Völd, áhrif og sigrar em að vísu ékki aUtaf einhUtur mælikvarði um stöðu einstaklinga, Uðs- hópa og þjóða. En ef menn vilja styðjast við þá mæh- stiku þá getum við borið höfuðið hátt. Á morgun kemur páfinn í Róm í heimsókn. Hann sýnir íslendingum mikla virðingu með þeirri heimsókn. Athyglin mun beinast að íslandsströndum enn og aftur og undirstrika þá staðreynd að islenska þjóðin er fuU- valda og sjálfstæð, þjóð meðal þjóða, sem ekki þarf að bera kinnroða fyrir tilvem sína. Smáþjóðir hafa jafn- miklu hlutverki að gegna og hver annar. Rödd þeirra á að heyrast. Sama hvað frændur okkar á Norðurlöndum vilja gera Utið úr okkur. EUert B. Schram Lýðræði, frélsi og sjálfsákvörðun- arréttur þjóða eru lofsverð ein- kunnarorð risaveldis á borð við Bandaríkin í samskiptum við önn- ur ríki og þessi einkunnarorð hafa Bandaríkin líka í heiðri í samskipt- um sínum við önnur lýðræðisríki. Utanríkisstefna þeirra byggist að verulegu leyti á þessum einkunn- arorðum, þau ríki, sem ekki upp- fylla skilyrði um lýðræði og frelsi einstaklingsins, eru ekki talin full- gild í samfélagi þjóðanna að dómi Bandaríkjanna og þeirra lýðræðis- ríkja sem þau veita forystu. En engin utanríkisstefna getur byggst á hugtökum eingöngu, beinir hags- munir móta óhjákvæmilega alla utanríkisstefnu og þegar háfleyg orð rekast á beinharða hagsmuni sigra hagsmunimir ævinlega. Til eru staðir í veröldinni þar sem Frá Pnom Penh, höfuðborg Kampútseu. - „Beinir hagsmunir Bandaríkj anna þar í landi eru engir“, segir greinarhöfundur m.a. Lýðræði, frelsi og þjóðarmorð Bandaríkin eiga litálla sem engra beinna hagsmuna að gæta og á slík- um stöðum taka þessi einkunnar- orð á sig form innantómra slagoröa í áróðursstríði við kommúnistarík- in sem getur tekið á sig hinar kyn- legustu myndir. Eitt furðulegasta slagorðastríð sem .um getur af þessu tagi á sér nú staö í því lang- hrjáða ríki Kampútseu. Rauðir khmerar Bandaríkjamenn hafa í tímans rásoátt marga skuggalega skjól- stæðinga, þeirra á meðal Noriega, herstjóra í Panama, sem var einka- vinur Bandaríkjastjómar í marga áratugi, allt þar til dómsmálaráöu- neytiö bandaríska gaf út ákæru á hendur honum fyrir eiturlyfja- smygl, að utanríkisráðuneytiiiu fomspurðu, og kom þar með Bandaríkjunum í þær ógöngur sem þau eru í. Aðrir frægir harðstjórar em Duvalier á Haiti, Somoza í Nic- aragua og Pinochet í Chile, og era þá fáir taldir. En þrátt fyrir þetta hefði engum dottið í hug að Banda- ríkjastjóm gerðist málsvari blóð- ugustu ógnarstjómar sem um get- ur í allri veröldinni á síðari tímum, þeirrar stjómar sem hafði beinlínis að markmiði að fækka þjóð sinni og útrýma þeim sem ósamvinnu- þýöir vora og til að koma á komm- únisma. Þetta var stjóm Rauðu khmeranna í Kampútseu, sem ríkti frá 1975 til 1978 og lét myrða á þeim tíma að minnsta kosti milljón, og ef til vill tvær milljónir af rúmlega sex milljónum íbúa landsins og færa það að heita má aftur á stein- aldarstig til að byggja upp komm- únismann frá grunni. Allur heimurinn fylgdist með af hryllingi og fagnaði leynt og ljóst þegar Víetnamar gerðu innrás 1978 og kollvörpuðu Pol Pot og stjóm Rauðu khmeranna og bundu enda á blóðbaðið. En þá komu upp hug- myndafræðileg vandamál. Víet- namar vora árásaraöili, þeir virtu ekki sjálfsákvörðunarréttinn og sjálfstaeði né heldur landamæri Kampútseu, heldur beittu valdi. Bandaríkin era vitaskuld á móti valdbeitingu í samskiptum ríkja, það era önnur ríki líka á hátíðleg- um stimdum þegar engir hagsmun- ir era í húfi, og svo fór að Bandarík- in höfðu forystu um þaö hjá Sam- einuðu þjóðunum, að Víetnamar vora fordæmdir fyrir að kollvarpa slátraranum Pol Pot, sú stjóm sem þeir komu á fót var ekki viður- kennd og Sameinuðu þjóðimar með Bandaríkin í fararbroddi við- urkenndu Rauðu khmerana sem hina réttu stjóm Kampútseu. Síðan hafa Bandaríkjamenn ver- iö í þeirri einkennilegu aðstöðu að Kjállaiinn Gunnar Eyþórsson fréttamaöur blóðugasta stjóm, sem setið hefur í nokkra ríki síðustu hálfa öld að minnsta kosti, er skjólstæðingur þeirra. Vitanlega er það hefndarhugur í garð Víetnama fýrir aö hafa unnið Víetnamstríðið sem ræður ferð- inni. Síðasta áratug hefur Kamp- útsea verið vettvangur leppstríðs Kínveija og Sovétmanna, þar sem Bandaríkjastjóm leggst á sveif með Kínverjum með Rauðu khmerun- um á móti'Víetnömum, skjólstæð- ingum Sovétmaima. Þar með hefur Kampútsea líka orðið einn helsti ásteytingarsteinn- inn 1 samskiptum Sovétríkjanna og Kína, og það ágreiningsefni sem Gorbatsjov hefur lagt einna mesta áherslu á að eyða, meö þeim ár- angri að nú sér fyrir endann á deil- unni. Víetnamar ætla að fara með her sinn frá Kampútseu í septemb- er í haust, en allt er óvíst um fram- haldið og hvort Rauðu khmerarnir komast aftur til valda. Að bjarga andlitinu Það skal sagt Bandaríkjamönn- um til hróss að þeir skammast sín fyrir aö vera í slagtogi við Rauðu khmerana og reyna að dulbúa þá staðreynd með tilvitnunum í stoöi- skrá Sameinuðu þjóðanna, þar sem valdbeiting er fordæmd í samskipt- um ríkja. Þeir vilja líka fijálsar kosningar og vestrænt lýðræðis- form sem skjólstæðingar þeirra í Kampútseu hafa minni en engan áhuga á. Leiðtogi landsins allt frá 1955, Síanúk prins, sem í eina tíð var látinn vera þjóðhöfðingi stjómar Rauðu khmeranna áður en hann flúði til Kína og stofnaði þar útlaga- stjórn og skæruliðaher sem síðan hefur barist með Rauðu khmerun- um gegn Víetnömum, er sá maður, sem þeir veðja á, en ekki khmera- leiðtoginn Khieu Sampan, fýrrum foseti Rauðu khmeranna, sem ásamt Pol Pot stjómar her þetrra. - En ástæðan fyrir tþessum 8hug- myndafræðilega stuðningi við þjóðarmorðingjana í Kampútseu hefur samt fyrst og fremst veriö heimspóhtísk. Kínveijar em fjandmenn Víet- nama, Víetnamar era bandamenn Sovétmanna, skjólstæðingar Kín- veija beijast við skjólstæðinga Sovétmanna, leiðin tLL að setja þrýsting á Sovétmenn og um leiö afla sér vinfengis í Kína er að styöja skjólstæðinga Kínveija. Jafnframt má koma höggi á foma fjendur í Víetnam. Það er aukabónus að í þessu áróð- ursstríöi má nota orð eins og frels- i,lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt- ur og friðhelgi landamæra. Beinir hagsmunir Bandaríkjanna í Kamp- útseu era engir, örlög íbúanna þar skipta aðeins máU í hugmynda- fræðUegu samhengi. Innrás Víet- nama í Kampútseu hefur Uka verið notuð tíl að refsa þeim á alþjóða- vettvangi með viðskiptahömlum og póUtískri einangrun. AUt era þetta leifar Víetnamstríðsins, upplausn- in í Kampútseu og þær hörmungar sem yfir það land hafa gengiö era bein afleiðing þess að Bandaríkin drógu Kampútseu inn í átökin í Víetnam 1970. Ef hugur fylgdi máU í öllum slagorðaflaumnum ættu Bandaríkin að sætta sig við orðinn hlut, taka upp eðUlegt samband við stjóm Víetnams og vinna að lausn mála í Kampútseu eftir diplómat- ískum leiðum. En sá tími er enn ekki kominn, þjóðarstoltið leyflr það ekki, heldur er auðveldara að styðja óbeint þjóðarmorðingjana í Kampútseu. Gunnar Eyþórsson „Það er aukabónus að 1 þessu áróðurs- stríði má nota orð eins og frelsi, lýð- ræði og sjálfsákvörðunarréttur og frið- helgi landamæra.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.