Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Qupperneq 8
8
! FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989.
Utlönd
Tyson og Givens loks skilin
Heimsmeistarinn í hnefaleikum,
hinn bandaríski Mike Tyson, gekk
út úr bandarískum réttarsal í gœr
frjáls maöur eftir að skilnaður
hans við leikkomma Robins Givens
varð lögiegur.
Fá skilnaðarmál í Bandaríkjun-
um hafa hlotið eins mikla athygli
flölmiðia og almennings og skilnað-
ur þeirra Tysons og Givens. Skötu-
hjúin voru gift í tæp tvö ár en á
því tímabili hafa þau hvað eftir
annað viörað deilumái sín í sjón-
varpi og á síðum blaöanna. Givens
hélt því fram að Tyson væri skap-
bráöur og ómögulegur í sambúð en
hann hélt því fram að hún hefði
gabbað sig í hjónaband með því að
segjast vera bamshafandi.
Givens mætti ekki fyrir rétti í
gær en lét lögfræðing sínum eftir aö svara fyrir sína hönd. Ekki er vitaö
hvemig eignum þeirra Tyson og Givens var skipt en ljóst er að hvomgt er
á flæðiskeri statt.
Hnefaleikakappinn Míke Tyson er
nú frjáis sem iuglinn eftir að skiln-
aður hans og leikkonunnar Robins
Givens varð löglegur.
Simamynd Reuter
Styðja áætianir Bradys
Alþjóðabankinn hefur sagst styðja áætlanir Nocholas Bradys, flármála-
ráðherra Bandaríkjanna, um leiðir til að létta á skuldabyröi þróunarland-
anna Og í gær tilkynntu ráðamenn bankans ura nýjar reglur er gUda
um lán bankans til viðskiptavina sinna.
Hinar nýju reglur veita bankanum heimild til að verja um 10 miHjörðum
dollara næstu þijú ár oi að lána þróunarlöndum er eiga við erfiðleika
að stríða með endurgreiöslur lána.
Hinar nýju reglur bankans falla að áætlun Bradys en hún gerir ráð
fyrir að áhersla verði lög á hjálp tii þróunarlanda til að endurgreiða lán
sín frekar en á nýjar lántökur.
Býðst til viðræðna við skæruliða
Hinn nýkjörni forseti E1 Salvador, Alfredo Cristiani, sór embættiseið í
gær og kynnti ráðuneyti sitt
Eitt af fyrstu verkum forsetans var að bjóöa skæraliðum til viðræðna
um leiðir tii að enda borgarastyrjöldina í E1 Salvador en um sjötiu þús-
und hafa látið lífiö síðustu tíu ár. Kvaðst forsetinn munu setja á laggim-
ar viðræðuneftid er myndi leita leiöa til sátta.
Ósamkomulag um kosningarétt
Shimon Peres, leiðtogi Verkamannaflokks ísraels, hvatti til þess í gær
að 140 þúsund Palestínumenn búscttir í Jerúsalem fengju rétt til að kiósa
í kosningum þeim er Shamir forsætisráðherra hefur lagt til að haldnar
verði í ísrael. Shamir hefur verið andvígur því að veita þeim kosninga-
rétt en í kosningunum yrði kosið um fulltrúa í viðræðunefnd við ísraelsk
yfirvöld um framtíð íbúa herteknu svæðana.
Peres hefur einnig hvatt tii þess að ísraelskur her hverfi brott af Gaza-
svæðinu og er sú afstaöa einnig þvert á afstöðu Shamirs.
Áætlun Shamirs um kosningar hlaut samþykki ísraelska þingsins í síð-
asta mánuði en ákvæði um kosningarétt Palestínumanna í Jerúsalem var
sleppt úr henni.
Lá við stðrslysl
Einn farþeganna i ástralskri Bo-
elng 747 þotu en hún nauölenti.
Slmamyrtd Reuter
Áströlsk þota varð að nauðlenda
í Darwin í gær eftir að hún missti
óvænt hæö í næturflugi frá Sidney
til Singapore. Hátt í 50 farþegar
særðust, flestir þeirra vegna þess
að þeir flugu úr sætum sínum og
lentu á veggjum og þaki vélarinn-
ar. Hinir særöu voru fluttir á
sjúkrahús í Darwin. Flestir þeirra
fengu aö fara ftjótlega en sex var
haldið til frekari skoðunar.
Rúmlega 300 farþegar voru um
borð í vélinni. Mikil skelfing braust
út þegar vélin byrjaði að hrapa og
farþegar og allt lauslegt fór á fley gi-
ferð.
Ugatsjov hæddur
Gert var grín að Jegor Ligatsjov, yfirmanni landbúnaðarmála i Sovét-
rfkjunum, á þingi í gær og gerði Gorbatsjov forseti enga tilraun til þess
að draga úr þvi Ligatsjov sætti gagnrýni Chernichenko sjónvarpsfrétta-
maxms sem sagði að Ligatsrjov hefði mistekist sem hugmyndafræðingi
flokksins en þeirri stöðu gegndi hann þar til síðastliðiö haust. Þótti frétta-
manninum einkennilegt að jafhmikilvægur málafiokkur og landbúnaðar-
mál hefði veriö fenginn Ligatsjov í hendur. Keuter
Pafi i Noregi
Miklu færri Norðmenn en búist
hafði verið við komu til að hlýða á
messu Jóhannesar Páls páfa n. við
Akershuskastala í Osló í gær. Er
veðrinu kennt um að ekki komu fleiri
en um tíu þúsund manns en kaþólski
söfnuðurinn í Noregi hafði dreift til
meðlima sinna um sextán þúsund
miöum að messunni.
Eftir að hafa kysst norska jörð í
gær í fyrstu Norðurlandaheimsókn
sinni sagðist páfi vera kominn sem
vinur, fullur ástar og virðingar. Páfi
fór á fund Ólafs V. Noregskonungs
og átti síðar fund með Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra.
Að samræðum þeirra loknum sagðf
Brandtlandt að páfi væri skemmti-
legur og áhugasamur um ýmis mál-
efni. Vék Brundtland að nauðsyninni
á notkun getnaðarvarna í baráttunni
við eyðni en kaþólska kirkjan er and-
víg notkun getnaðarvama. Sagði páfi
að um væri að ræða erfitt siðferðilegt
vandamál sem hann ætlaði að íhuga
nánar.
Brundtland færði páfa að gjöf ritið
Historia rerum Norvegicarum frá
1711. Það var íslenski sagnfræðing-
urinn Þormóður Torfason sem tók
það saman.
Það hefur vakið athygh að í páfa-
garði er mönnum farið að förlast í
latínu. Samkvæmt sérstökum póst-
stimplí í tilefni af Norðurlandaför
páfa hefur Svíþjóð verið ruglað sam-
an við svæði í v-þýska sambandsrík-
inu Baden-Wurtemberg. Latína er
hið opinbera mál í páfagarði. Hafði
verið skrifað Svebiam í stað Svetiam,
samkvæmt latínugránum og páfi því
sendur á vitlausan stað. Eru menn.
heldur óhressir með að latínan skuli
vera á niðurleið líka í páfagarði.
Reuter og NTB
Jóhannes Páll páfi II. ásamt Ólafi V. Noregskonungi á svölum konungshallarinnar I Osló I gær.
Símamynd Reuter
Nýjar upplýsingar um
vopn í Palmemálinu
Eitt af lykilvitnunum í rannsókn-
inni á Palmemorðinu hefur látið í té
nýjar upplýsingar um vopn sem
fundist hafa hjá þeim sem hann
mngengst.
Maöurinn, sem er eiturlyflasah og
eigandi spilavítis, var kallaður til
lögreglunnar til þess að ræða um
þátttöku hans í réttarhöldunum yfir
Christer Pettersson. Á lögreglustöð-
inni veitti hann þær upplýsingar sem
hafa gefið rannsóknaraðilum von um
aö morðvopniö finnist.
Undanfarna daga hafa þó nokkrir
haft samband við lögregluna og kom-
ið með athyglisverðar ábendingar í
sambandi við morðið á Olof Palme,
fyrram forsætisráðherra Svíþjóðar.
Efasemdaraddir um trúverðugleik
vitnisburðar Lisbet Palme, sem verð-
ur aðalvitni saksóknara í réttar-
höldunum, verða nú æ háværari.
Ákæran á hendur Pettersson er
byggð á líkum og vitnisburði Lisbet
Palme sem benti á hann í sakbend-
ingu.
Sænskir lögfræðingar og sálfræð-
ingar gagnrýndu í gær ákvörðun
saksóknara að taka ekki upp á segul-
band viðbrögð frú Palme við sak-
bendinguna. Þykir gransamlegt að
sannfæring hennar um sekt Petters-
sons jókst með hverri yfirheyrslu.
Hið sama er að segja um nákvæmni
í lýsingu hennar á morðingjanum.
Samkvæmt skjölum saksóknara
benti Lisbet strax á númer átta við
sakbendinguna. Kvaöst hún þekkja
andlitsfall hans, augu og óþokkalegt
útlit. „Maður sér að hann er áfengis-
sjúklingurinn í hópnum,“ á hún
einnig að hafa sagt. Sakbendingin fór
þannig fram að henni var sýnt mynd-
band af nokkrum mönnum og var
Pettersson einn þeirra.
Athugasemd hennar um að hann
væri ál'engissjúklingur þykir undar-
leg og velta menn nú vöngum yfir
því hvort þeir sem önnuðust yfir-
heyrsluna hafi látið Lisbet í té upp-
lýsingar um Pettersson eða gefið eitt-
hvað í skyn.
TT
opnunartíma
okkar!
Mánudaga-fimmtudaga kl. 9-20
Föstudaga kl. 9-21
Laugardaga kl. 10-18
Sunnudaga kl. 11-18
REYKl
M í HAFNARFIRDI
VIKURVEGI72 SIMI53-100