Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Síða 9
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989.
9
Utlönd
Námsmenn í kröfugöngu
Um eitt þúsund kínverskir náms-
menn í borginni Nanking í suður-
hluta Kína hófii í morgun eitt þúsund
kílómetra langa kröfugöngu frá
Nanking til Peking. Ætla þeir að taka
þátt í mótmælum þeim er námsmenn
hafa nú staðið fyrir á Torgi hins him-
neska friðar í Peking síðan þann 13.
maí síðastliðinn.
Ferðin tekur langan tíma og áætla
námsmennirnir að þeir nái til Peking
í lok mánaðarins. Námsmennimir,
sem hafa haft hjarta höfuðborgar
Kína á valdi sínu nú í þrjár vikur,
ákváðu nýverið að láta ekki af mót-
mælum sínum á Torgi hins him-
neska friðar þrátt fyrir tilmæli ráða-
manna. Segjast þeir munu sitja sem
fastast, að minnsta kosti til 20. júní.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Peking segja að engar ákvarðanir í
valdabaráttunni innan kommúnista-
flokksins hafi enn verið teknar. Ljóst
þykir að umbótasinninn Zhao, leið-
togi flokksins, hefur tapað í barátt-
unni. Hann hefur ekki sést opin-
berlega í tvær vikur.
Ráðamenn í Kína settu í gær frétta-
bann á allan fréttaflutning frá
landinu og óttast margir að það sé
merki þess að hemum verði beitt
gegn námsmönnum. Margir frétta-
menn sögðust þó í gær mundu hafa
bahnið að engu og halda fréttaflutn-
ingi áfram.
Reuter
Námsmenn í Kina halda mótmælum
sínum áfram þrátt fyrir tilmæli ráða-
manna. Simamynd Reuter
12 manna kafflstell á \ AA
8 gerðír IvU
Ef þú kaupír matarstell færð þú kaffistell á 10Q, kr,
• 0 raffistgii
* 1 salatskál,*23 cm • 12 bolíár
1 salatskál, 21 cm 12 undirskálar
1 salatskál, 19 cm 1 sykurkar
1 súputarína 1 rjómakanna
Verð frá kr. 7.895,- 1 tertudiskur
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Búsáhöld & Gjafavörur
KRINGLUNNI - SÍMI 686440
Matarstell
12 grunnir diskar
12 djúpir dískar
1 fat, 36 cm
1 fat, 32 cm
1 sósukanna
Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Bush Bandarikjaforseti ræddust
við i London í gær. London var síðasti áfangastaður Bush í Evrópuferð hans
í kjölfar leiötogafundar aðildarrikja Atlantshafsbandalagsins sem haldinn
var fyrr í vikunni. Símamynd Reuter
Evrópuferð Bush
lýsl sem sigurför
Birgir Þórissan, DV, New York:
Bush Bandaríkjaforseti sagði í við-
tah við bandaríska dagblaðið Was-
hington Post, sem birt var í morgun,
að í ljósi breytinga í Sovétríkjunum
myndi stefna Atlantshafsbandalags-
ins og Bandaríkjanna breytast. Sagði
forsetinn að ekki myndi eins mikil
áhersla verjia lögð á hemaðarfæl-
ingu en í þess stað færðist áherslan
á efnahagsleg samskipti.
Evrópufor Bush er lýst vestra sem
hinni mestu sigurfor. Hann hafi rek-
ið af sér síyöruorðið, komið fram af
skörungsskap og veitt þá forystu sem
þurfti til að sameina sundrað banda-
lag-.Æush hlgtur lof bæði frá harð-
línumönnum ogiieim sem vilja semja
við Sovétmenn. •
Þeir sem gagnrýndu Bush fyrir að
fara sér hægt og vera dragbítur á
afvopnunarviðræður líta svo á að
Bush hafi séð að sér og ákveðið að
nýta það tækifæri sem umbótavið-
leitni Gorbatsjovs bíöur upp á til að
bæta sambúð austurs og vesturs.
Hann bjóði nú tilslakanir sem fyrir
nokknnn vikum hafi verið þvertekið
fyrir, til dæmis takmörkun fjölda
flugvéla. Þar sem lítið beri á milli
ættu betri tímar að vera skammt
undan.
vegar og V-Þjóðveija hins vegar um
skammdrægar kjamorkueldflaugar
með því að finna orðalag sem er nógu
óljóst til að báðir aðilar geti sagst
hafa sitt fram.
Síðasti viðkomustaður Bush í Evr-
ópu var Bretland þar sem hann
ræddi við Thatcher en fréttir herma
að hið nána bandalag sem var með
þjóðunum í stjómartíð Reagans sé
liðin tíð. Ekki sé sama vinátta með
Bush og Thatcher og var með That-
cer og Reagan og Bretar muni því
missa hlutverk sitt sem milliliðir
milli Bandaríkjanna og Evrópuríkja.
Til marks um það hafa menn að
heimsóknin til Bretlands hafi verið
fyrst og fremst kurteisisheimsókn en
efnislega mikilvægustu tillögur sínac
hafi Bush kynnt á meginlandinu.
í skildum fréttum má geta að
bandaríska herforingjaráðið hefur
lagt til að Bandaríkin ljái máls á að
hverfa frá stjömustríðsáformum sín-
um 1 viðræðum um takmörkUn lang-
drægra kjamorkuvopna í Genf.
Hingað til hefur það verið ófrávíkj-
anleg afstaða Bandaríkjamanna að
halda til streitu réttinum til að koma
vamarkerfi fýrir í geimnum. Litið
er á þetta sem vantraust á geim-
vamaáætlunina.
Harðlínumenn lágu Bush aftur á
móti á hálsi fyrir að standast Gor-
batsjov ekki snúning í áróðursstríð-
inu. Þeir líta svo á nú að Bush hafi
aldeilis slegið Gorbatsjov við með
djarflegum tillögum sínum og þannig
snúið vopnum Gorbatsjovs gegn
honum sjálfum. Harðlínumenn hafa
verið efagjamir um hve djúpt endur-
bótastefna Gorbatsjovs risti í raun
og hafa haldið því fram að afvopnun-
artillögur hans séu fyrst og fremst
gerðar til að valda úlfúð og sundrung
í Nato. Nú sé það undir Gorbatsjov
komið að standa við stóm orðin og
búast þeir allt eins við að í ljós komi
að þar fari úlfur í sauðargæru.
Baker utanríkisráðherra fær þó
nokkum heiður af því að hafa fundið
málamiðlun til að breiða yfir ágrein-
ing Bandaríkjanna og Breta annars
SUMAFBARNASKÓR
MIKIÐ ÚRVAL í ST. 18 TIL 35
St. 22-30
Litur-. svart m/hvitu
Kr. 1.790,-
St. 20-27
Litir: Qólublátt
m/bleiku eða grænu
. 2.290,-
Smáskór er eina verslonin á Islandí
sem selnr etngöngn bamaskó. Versl-
ttnin hefar nýlega flntt sig til i húsinu
og snýr nú öt að Skólavörðustig.
PÓSTSENDUM
smáskór
St. 22-30
Litur Ijólubl., bleikt, Ijósgrænt og gult.
Kr. 1.575,-
Skólavörðustig 6b
Simi 622812
Skólavörðustígsmegin
OD\W SUMARFRl - BENIDORM 21. JUNI
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur í sumar og sól
Besta íbúðagistingin á Benidorm
Mediterraned, Gemelos 1 og Eva Mar.
40900?
37.250;-
Verð
Verð
fra kr.
frá kr.
Hafðu samband við okkur
kynntu þér Kjörin.
Lágt verð og raðgreiðslur til allt að 6 mánaða gera þér kleift
að komast í sólina í sumar með alla Qölskylduna.
* Miðað við 2 fulloröna og 2 böm (2-12 ára). •* Miðað við 2 fullorðna í íbúð,
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16,
sími 621490.