Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989.
Stjóminál___________________________________________________________pv
Skoðanakönnun DV:
Allra óvinsælasta
ríkisstjórn sögunnar
- fær ekki stuðning nema tæplega fjórðungs þjóðarinnar
Ovinsælasta ríkisstjórn frá upphafi. Meðbyrinn sem rikisstjórnin naut í upphafi ferils sins hefur nú snúist upp í
kaldan mótvind.
Ríkisstjóm Steingríms Hermanns-
sonar tapar enn vinsældum. 76,4 pró-
sent þeirra sem tóku afstööu í skoð-
anakönnun DV sögðust andvígir
þessari ríkisstjórn. Það er mesta and-
staða sem nokkur ríkisstjórn hefur
mátt þola.
í könnun DV í mars náði ríkis-
stjórnin því að fá minnsta fylgi sem
nokkur ríkisstjórn hefur fengið í
könnunum DV og forvera þess frá
því mælingar hófust árið 1976. Þá
naut ríkisstjórnin fylgis 37,1 prósents
þeirra sem tóku afstöðu. Síðan í
mars hefur ríkisstjómin tapað 13,6
prósentum til viðbótar. Nú fær hún
ekki stuðning nema 23,6 prósenta
þeirra sem taka afstöðu.
Þetta fylgi er ekki nema rétt um
helmingur af því fylgi sem fyrri ríkis-
stjórn Steingríms fékk þegar hún
sætti mestu andstreymi. Sömu sögu
er að segja um ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar. Ríkisstjóm Þorsteins
Pálssonar fékk 40 prósenta fylgi þeg-
ar verst lét um það leyti sem hún var
að springa. Aðrar ríkisstjórnir hafa
aldrei fallið í minnihluta.
Af þeim sem tóku afstöðu til stjóm-
málaflokkanna sögðust 35,3 prósent
styðja einhvem af stjómarflokkun-
um. Það er 0,9 prósentum minna en
í síðustu könnun DV í mars. Stjóm-
arflokkamir virðast því hafa tapað
miklu fylgi frá síðustu könnun.
Á sama tíma hefur ríkisstjómin
hins vegar fallið úr 37,1 prósenti í
23,6 prósenta fylgi. Óánægja með rík-
isstjórnina virðist því tekin að grafa
um sig innan stjórnarflokkanna.
Reyndar er það svo að mun fleiri
eru óákveðnir í afstöðu sinni til
flokkanna. Af heildarúrtakinu er
fylgi stjómarinnar og samanlagt
fylgi stjórnarflokkanna svipaö.
Af heildarúrtakinu sögðust 18,7
prósent vera fylgjandi stjóminni en
60.5 prósent henni andvígir. 18,7 pró-
sent vom óákveðnir og 2,2 prósent
neituðu að svara.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust
23.6 prósent vera fylgjandi ríkis-
stjórninni en 76,4 prósent andvígir.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
vígur ríkisstjórninni?
-gse
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar; til samanburðar eru niðurstöður fyrri DV-kannana:
sept. nóv. jan. mars nú
Fylgjandi 45,7% 45,0% 36,0% 29,5% 18,7%
Andvígir 24,5% 33,0% 44,2% 50,0% 60,5%
Óákveðnir 27,8% 19,2% 17,5% 20,0% 18,7%
Svara ekki 2,0% 2,8% 2,3% 0,5% 2,2%
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar:
sept. nóv. jan. mars nú
Fyigjandi 65,1% 57,6% 44,9% 37,1% 23,6%
Andvígir 34,9% 42,3% 55,1 62,9% 76,4%
Stuðningur við stjórnina og einstaka flokka
STJÓRN
Fylgjandi 23.
6%
FLOKKAR
SÞMGr. A
V
Ummæli fólks
í könnuninni
..Ríkisstjómin er þjóðarsorg,'1
sagði karl á Suðurlandi. „Þó það
sé sorglegt að segja þaö þá sé ég
ekki aö neitt betra geti tekið við,“
sagöi karl á Vestfjörðum. „Þetta
em svikahrappar og þjófar upp til
hópa," sagði kona á Vesturlandi.
„Þetta er versta stjóm í allri Evr-
ópu og sjálfsagt þyrfti maður að
leita langt inn í aðrar álfur til að
frnna annað eins,“ sagði karl í
Reykjavík. „Ég hef verið fylgjandi
stjóminni af því að ég er vinstris-
innuð en nú er ég orðin á báðum
áttum," sagði kona í Reykjavík.
„Auðvitað er ég á móti þessari vit-
leysu," sagði karl á Suöumesjum.
„Eg 'er andvíg þessara ríkisstjóm
og þá einkum út af landbúnaðar-
málunum. Þau em í algjömm
ólestri,“ sagði kona á Suðurlandi.
„Mér fmnst stjómin ganga dálítiö
hart að launamanninum,“ sagði
kona á Austurlandi. „Þeir hafa
ekkert gagn gert,“ sagði kona á
Norðurlandi. „Stjómin er furðu-
lega lík verstu íhaldsstjómum,“
sagði kona á Suðurlandi. „Ég veit
ekki hvort maður fengi nokkuð
betra yfir sig þó þessi færi frá,“
sagöi kona á Vesturlandi. „Ég held
að það sé ekki hægt að fyrirgefa
sljóminni allar þessar hækkanir,"
sagði kona í Reykjavík.
-gse
Þrátt fyrir óeiröir í Peking héldu götusalar áfram starfsemi sinni. Ólafur fékk sér bita á leiðinni út á flugvöll.
Þaö kemur enda fram i viðtalinu aö hótelið sem hann var á var oröið matarlaust. DV-mynd ÓG.
íslensku námsmennimir komnir til Danmerkur:
Voru með síðustu
útlendingunum
Gizur Helgason, DV, Kaupmaimahö&u
„Ég er óneitanlega feginn því að
komast aftur til Vesturlanda og
býst við að verða nokkra daga hér
í Kaupmannahöfn áður en ég kem
heirn," sagði Ólafur Benedikt Guö-
bjartsson, annar námsmannanna
tveggja sem í gær komu til Kaup-
mannahafnar frá Peking, í viðtali
viðDV.
„Ég er enn að reyna að átta mig
á þessum atburðum," sagöi Ólafur
ennfremur, „því það er óskiljanlegt
að hugsa til þess að mönnum var
slátraö rétt við gluggann hjá
manni.
Kínverskir fjölmiðlar reyna að
draga úr þeim ógnum sem þama
hafa átt sér stað og stjómvöld
reyna að láta líta svo út sem her-
menn verði einkum fyrir barðinu
á ofbeldinu. Kínverskir námsmenn
hafa hins vegar ljósritað myndir
af illa íornum líkum almennra
borgara og líma þessar myndir á
veggi um alla borg til að sýna fram
á hið gagnstæða.
Allur matur upp étinn
Við Stefán Úlfarsson vorum með
síðustu erlendu námsmönnunum
sem yfirgáfu stúdentagarðana.
Þegar við svo fórum af hótelinu
voru ipjög fáir útlendingar eftir í
Peking, að því er virtist. Til stóð
að loka hótelinu, enda var allur
matur upp étinn og engan hótelmat
að fá í borginni.
Sjálfur var ég tilbúinn að fara frá
Peking en Stefán vildi fá að vera
þar áfram og hafði aðeins nokkrar
mínútur til að undirbúa sig. Þegar
út á flugvöll kom reyndist hann
vegabréfslaus. Þá brugöu dönsku
sendiráðsmennimir skjótt við og
gerð hann að Dana á fimmtán mín-
útum með tilheyrandi vegabréfi.
Væri Stefán enn í Kína ef þeir
heíðu ekki bmgðist svo vel við sem
raun bar vitni.
Við vomm held ég aldrei í raun-
verulegri hættu,“ sagði Ólafur að
lokum, „að minnsta kosti ekki á
stúdentagarðinum eða hótelinu.
Það gat verið óþægilegt að vera úti
á götu, einkum vitandi það að her-
menn höfðu heimild til að skjóta
hvern þann sem mundaði ljós-
myndavél."
Ölafur kvaðst vonast til að geta
haldið námi sínu í Peking áfram i
haust.