Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Side 7
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989.
7
dv Fréttir
Öm Smári Amaldsson, yflrlæknir Borgarspítaians, um hálsbrotna sjúklinginn:
Verður ekki rætt
frekar á spítalanum
- „algerlega rangt“ aö læknum hafi oröiö eitthvað á
Slysadeild Borgarspitalans þar sem sjúklingur lá hálsbrotinn þar til hann
dó eftir sextán daga legu.
Frásögn DV af grein aðstoðarlandlæknis í Læknablaðinu um harmieikinn
á Borgarspítalanum.
„Þegar eitthvað ber svona út af
finnst öllum það sárt og vilja úr því
bæta eftirleiðis. Eins og gengur getur
verið mismunandi mikið álag á fólki.
Eftir að sjúkdómsgreiningin kom í
ljós var ekkert hægt að gera og þess
vegna á þetta ekki að vera æsifrétt í
blöðum heldur sorgarfrétt. Fyrir-
sagnimar em eins og til að æsa upp
í fólki að læknum hafi orðið eitthvað
á sem er algerlega rangt,“ sagði Öm
Smári Arnaldsson, yfirlæknir á
Borgarspítalanum, þegar hann var
spurður álits á máli því sem aðstoð-
arlandlæknir, Guðjón Magnússon,
hefur vakið athygli á í nýútkomnu
fréttabréfi Læknablaðsins.
Að sögn Amar hefur þetta tiltekna
tilvik verið rætt meðal lækna spítal-
ans en ekki á neinn sérstakan hátt.
Máhð hefur verið meðhöndlað sem
önnur tilvik þar sem rétt sjúkdóms-
greining kemur ekki fram. Ekki
sagðist Öm eiga von á því að málið
yrði rætt frekar á Borgarspítalanum.
Einkennin bentu ekki til háls-
brots
„Regla númer eitt hér á Borgar-
spítalanum er að greina sjúkdóma
og lækna sjúkhnga eftir bestu getu.
Það er okkar vinnustíh hérna. Það
koma auðvitað ahtaf fyrir einstaka
tilvik þar sem sjúkdómsgreining
hggur ekki alveg ljós fyrir. Það
þekkja alhr vel sem hafa umgengist
sjúkhnga í gegnum tíðina að t.d.
krabbamein greinist ekki ahtaf í
fyrstu lotu. Það finnst ekki skýring
á alls kyns einkennum hjá sjúkling-
um sem þeir koma með og kvarta
undan. Stundum aldrei og sjúk-
dómseinkenni hverfa án þess að það
finnist sjúkdómsgreining.
Það átti sér kannski stað í þessu
tilviki að einkenni sjúkhngsins bentu
ekki til þess að um hálsbrot væri að
ræða í upphafi. Það er kannski skýr-
ingin á því að það skyldi engum detta
í hug að biðja um mynd af því sem
ekki gat verið einkenni.“
„Eðlileg skýring"
- Það er sem sagt eðlileg skýring á
því að ekki skyldi vera framkvæmd
röntgenmyndataka af hálsi?
„Það er eðhleg skýring á því. Sjúkl-
ingurinn gefur ekkert til kynna þau
einkenni sem leiði til þess að farið
sé að geisla þetta svæði. Svo verður
atburðarásin eins og hefur veriö
skýrt frá í fréttabréfi lækna. Þar
reyndar er nú tekið fram að þetta sé
bara birt til að minna lækna á að það
sé alltaf nauðsynlegt að vinna vel og
samviskusamlega. Það gildir sjálf-
sagt það sama með lækna og blaða-
menn að þeir vinna misjafnlega sam-
viskusamlega."
Ekki rétt að ganga út frá
áfengissýkingu
Örn Smári sagðist vera sammála
einum gagnrýnisþætti í þessu máh:
„Það er ekki sjálfgefið að skrá niður
á blöð og stimpla fólk að það sé
drykkjusjúklingar eins og virðist
mega lesa á mihi línanna. Það stang-
ast nú greinilega á það sem aðstoðar-
læknirinn hefur skrifað og það sem
ættingi segir. Ég náttúrlega veit ekki
hvor hefur rétt fyrir sér og það getur
auðvitað byggst á misskhningi þar
sem hefur ef th vhl verið mikið að
gera. Ég var ekki þarna á þessum
tíma og veit það ekki.“
- í þessu ákveðna tilviki tekst ekki
nógu vel til með sjúkdómsgreiningu.
Hefur eitthvað verið rætt um það á
Borgarspítalanum hvernig úr því
má bæta?
Lífgum engan upp frá dauðum
„Við erun^á hverjum degi að ræða
vandamál um það hvernig breyta
má og bæta greiningu - þannig geng-
ur þetta. Ef koma einstaka tilvik sem
þetta þá eru þau kannski svohtið
rædd hérna í húsinu og menn reyna
að draga lærdóm af því. En við getum
ekki breytt gangi lífsins. Ég sé ekki
að við lífgum neinn upp frá dauð-
um.“
- Finnst þér óeðlilegt af aðstoðar-
landlækni að fara út í shka málsmeð-
ferð?
„Ég er nú þeirrar skoðunar að
hann hefði átt að láta nægja að ræða
þetta í hópi lækna. Mér fmnst það
ekki rétt að vera að birta þetta á
þennan hátt og æsa upp blaðamenn.“
-SMJ
Réttar-
sátt um
fullvirð-
■ * m m
isrett
ÞórfiaBur Áamundæon, DV, Noröurl veatra:
Réttarsátt hefur náðst í máh
Sigurðar Steingrimssonar, bónda
á Ysta-mói í Fljótum, gegn eig-
endum jarðarinnar, Ysta-mói hf,
vegna eignarlialds á fullvirðis-
rétti jarðarinnar sem dómfest var
á síðasta sumri. Þar sem mál
þetta var hið fyrsta sinnar teg-
undar í dómskerfinu var búist við
gjafsókn og að málið yrði rekið
sem prófmál en slíkt reyndist
ekki þegar th átti aö taka.
Tildrög málsins voru þau að á
viömiðunarárunum svokölluðu,
1976-’78, sem fullvirðisréttur var
reiknaður út frá, hóf Sigurður
búskap á Ysta-Mói. Siguröur taldi
sig með framleiðslu á jörðinni
þessi ár hafa unnið th mikhs
hluta þess fullvirðisréttar sem
jörðin bar og sér bæri því a.m.k.
einhver hluti hans ef svo færi að
hann hæfi búskap á sinni eigin
jprð eins og hugurinn stefndi til.
Á grundvelh þessa hafði hann
samband við lögfræðinga Stéttar-
sambands bænda með málsókn í
huga. Eins og áöur segir þótti
gjafsókn líkleg en það var ekki
kannað til fullnustu áður en mál-
ið var dómfest
í réttarsáttinni fellst stefndi á
að stefnandi búi áfram á jörð-
inni, samkvæmt leigusamningi
sem gerður var 16. ágúst 1987, að
þvi thskhdu að heföbundinn bú-
skapur sé stundaður á jörðinni.
Sigurður fær heimild Ysta-Mós
hf. th að njóta fullviröisréttar
jarðarinnar að óbreyttum lögum
en lætur jafnframt af kröfunni
um aö fullvirðisrétturinn færist
af jörðinni ef hann flytjist búferl-
um.
Ein vinsælustu
bíltækin á íslandi
Einstök tæki
Einstakt verð
í alla bíla
Verð
aðeins
kr.
21.415,
BBHEmgE
VOLtiME-®~BALANCE
PBQGBAM
,TUNE-®-FADER
.1 2 3 MS FÁI; tm "LW ^ i
4 ~ D n sss ■ f.ífn • 1*3 * 1 ,v,u TIMT
Aðrir útsölustaðir:
Flest kaupfélög og
stærri verslanir
um land allt,
auk Esso bensín-
stöðvanna.
AL445
30 stöóva minni - sjálfvirkt stöövaval - spólun í báöar áttir - ,,autoreverse“ - balancestillir fyrir 4 hátalara
-1 METAL stilling fyrir kessettu - lagaleitun á kassettu - klukka - sérstök næturlýsing i kringum takka o.fl. o.fl.
60 vött
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 689090 - OG LAUGAVEGI 80 - SÍMI 621990