Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989. 11 'r___________ Útlönd Nýtt vitni í Palmemálinu Sextíu og átta ára gamall Svíi, sem búsettur er í bænum Östersund í Svíþjóð, fullyrðir nú að hann hafi séð meintan morðingja Olofs Palme á brautarstöðinni í Marsta, sem er út- hverfi Stokkhólms, um hálftólfleytið þann 28. febrúar 1986. Er það sami tími og Palme var skotinn til bana á Sveavagen í miðborg Stokkhólms. Þetta nýja vitni segist í viðtali við Lánstídningen í Östersund í morgun hafa búið í sama úthverfi og hinn ákærði og séð hann mörg hundruð sinnum. Kveðst vitnið myndu þekkja hann hvar sem væri. Östersundsbúinn segist ekki hafa heilsað hinum ákærða á brautarstöð- inni heldur haldið sig í fjarlægð frá honum af ótta við hefndir. Hafði Öst- ersundsbúinn eitt sinn aðstoðað ör- yggisverði í úthverfinu í Stokkhólmi, þar sem báðir bjuggu, við að grípa hinn ákærða. Ef hinn ákærði sat á bekk á járn- brautarstöðinni í Mársta nokkrum mínútum eftir að skotunum var Umhverfis- mál efst á baugi Samkvæmt niðurstöðum skoðana- kannana munu umhverfisvemdar- hópar líklega styrkja mjög stöðu sína á Evrópuþinginu í kjölfar kosning- anna sem fram fara í næstu viku. Niðurstöðurnar gefa til kynna að flokkar umhverfisverndarsinna muni bæta við sig á þessu 518 sæta þingi. Á þinginu era íhaldsmenn í meiri- hluta. En bandalög eru fljót að mynd- ast á þessu þingi, eftir því hvaða mál eru efst á baugi hverju sinni, og í þetta sinn eru það umhverfisvernd- armál. Það er mikiö í húfl fyrir Breta í þessum kosningum. Breski verka- mannaflokkurinn heldur því fram að kosningamar muni snúast um tíu ára valdatíma Thatcher forsætísráð- herra. Flokkurinn vonast til að geta nýtt sér þau átök sem nú eiga sér stað innan íhaldsflokksins en Thatc- her á í vök að verjast vegna gagnrýni Ed Heaths, fyrrum leiðtoga flokks- ins. Stjómmálaöfl í Bretlandi hafa og áhyggjur af slælegri kjörsókn. Árið 1984, þegar síðustu kosningar fóru fram, var kjörsókn aðeins 33 prósent í Bretlandi og var það minnsta kjör- sókn ailra aðildarríkjanna. Ráðamenn í Frakklandi hafa einnig áhyggjur af slælegri kjörsókn. Frakkar eru orðnir þreyttir á kosn- ingum, hvaða nafni sem þær nefn- ast, eftir kosningaöldu síðustu ára og spá vinstri öfl í Frakklandi aðeins 49 prósent kjörsókn. V-Þjóðveijar líta á kosningarnar sem mælikvarða á vinsældir ríkis- stjómar Kohls kanslara. Uppgangur þjóðemissinnaðra hægri flokka gæti valdið því að flokkur Kohls, kristileg- ir demókratar, tapi í þessum kosn- ingum. Almennar kosningar fara fram í V-Þýskalandi á næsta ári. Kosningamar skipta öll tólf aðild- arríki bandalagsins miklu máli. Á ítalíu, svo eitthvað sé nefnt, hefur ríkisstjómarviðræðum tímabundið verið frestað þar til ljóst verður hvemig kosningamar til Evrópu- þingsins fara. Á Irlandi, í Grikklandi og í Lúxemborg fara almennar kosn- ingar fram samhliða kosningunum. Reuter hleypt af á Sveavágen getur það ekki verið hann sem er morðinginn. Östersundsbúinn telur sig vera vissan um að þaö hafi einmitt verið morðkvöldið sem hann sá hinn ákærða í Mársta. Það hafl nefnilega verið í fyrsta sinn sem hann heim- sótti Mársta síðan hann hætti að vinna þar 1972. Veijandi hins ákærða segir að rannsaka verði upplýsingar manns- ins. Var verjandanum gert kunnugt um fullyrðingar mannsins í gær- kvöldi og ætlar hann að reyna að ná sambandi við hann í dag. Östersundsbúinn tjáði TT-frétta- stofunni í morgun aö hann hefði haft í hyggju að gefa sig fram um leið og hann hefði heyrt fregnir af því að hinn ákærði hefði verið tekinn til yfirheyrslu í fyrsta sinn. Hann hefði hins vegar ekki látið verða af því þar sem hinn ákærði var ekki handtek- inn og jafnvel ekki grunaður. Það er fyrst núna sem þetta nýja vitni gerir sér ljósa stöðu hins grunaða. Formaður nefndar þeirrar er rann- sakar morðið á Palme segist hafa fengið upplýsingar í gærkvöldi um fullyrðingar Östersundsbúans frá aðila sem ekki vildi segja til nafns. Meðlimir rannsóknamefndarinnar munu nú fara til Östersunds til þess að yfirheyra vitnið. Formaður nefndarinnar vildi í morgun ekki tjá sig um hvort hann áhti upplýsingar vitnisins trúverö- ugar. TT BMW 730i automatic árg. 1988, Ijósblár metallic, ekinn 11.000 km. Bifreiðin er mjög vel útbúin, m.a. vökvastýri, læst mismunadrif, 4 þrepa sjálf- skipting, ABS hemlakerfi, litað gler, raflæsing- ar, rafstýrð sóllúga, rafdrifnar hliðarrúður og útispeglar. Höfuðpúðar, framan og aftan. Akst- urstölva: m.a. hraðaaðvörun, hitastig fyrir fram- an bifreið, þjófavarnarkerfi auk margra annarra valkosta. Til sýnis og sölu hjá Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, 110 ReyKiavík sími 686633 littE! dælmia sanía! Jöfu M. og jaman Nú geturðu látið dæluna ganga og unnið reiðhjól um leið! STJARNAN OG JÖFUR HF. standa fyrir stór- skemmtilegum leik í heila viku þar sem hlustandi með talfœrin í lagi getur unniö glœsilegt Peugeot reiðhjól fyrir það eitt að tala stanslaust og hiklaust í þrjátíu sekúndur um gefið umrœðuefni. Og viö erum ekki aö tala um þríhjól, ónei; allt upp í tíu gíra glœsifáka fyrir TUGIÞÚSUNDA. Rúsínan í pumpuendanum er svo á sunnudeginUm, þegar yið veljum besta innsenda slagorðið fyrir PEUGEOT REJÐHJjOL, og verðlaunum þann orðvísa með stórkostlegu FIMMTÁN GIRA FJALLAHJÓLI FYRIR TÆPLEGA 35 ÞUSUND KRONUR. Fylgstu með leiknum á Stjörnunni frá mánudegi til laugardags og sendu þína tillögu að Peugeot-slagorði í Sigtún 7 ÞÚ HEFUR ENGU AÐ TAPA... .GLÆSILEGT PEUGEOT REIÐ- HJOL AÐ VINNA! Stjaman og Jöfur hf.... þegar þú vinnur hjól! >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.