Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1989. 35 Fólk í fréttum Cecil Haraldsson Séra Cecil Haraldsson fékk sjö hundruðsjötíuog firnm af ellefu hundruð fimmtíu og einu greiddu atkvæði í prestskosningum Frí- kirkjunnar í Reykjavík um síðustu helgi og er hann því tahnn löglega kjörinn prestur safnaðarins. Kristinn Cecil fæddist í Stykkis- hólmi 2. maí 1943 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði sjó- mennsku á sumrin á menntaskóla- árunum og í rúmt ár eftír stúdents- prófin en þeim lauk hann frá MA 1962. Hann var síðan kennari á ísafirði 1963-64, í Stykkishólmi 1964-70, skólastjóri að Laugum í Dalasýslu 1970-71, kenndi við Víg- hólaskóla í Kópavogi 1971-73, var skólastjóri við Gagnfræðaskóla Neskaupstaðar 1973-74 og kenndi við Garðaskóla í Garðabæ 1974-76. Hann stundaði guðfræðinám í Lundi í Svíþjóð frá 1976-80 er hann lauk þar embættisprófi í guðfræði og stundaði síðan framhaldsnám á sama stað í guðfræði og heimspeki 1980-83. Cecil hlaut prestsvígslu 1984 og var sóknarprestur í Burlöv í Svíþjóð til 1986. Þá kom hann til íslands og gerðist forstöðumaður öldrunarþjónustu Akureyrarhæjar frá 1986-88 er hann í ágústmánuði hóf prestsstörf hjá Fríkirkjusöfnuð- inumíReykjavík. Cecil hefur átt sætí í stjóm Bridge- félags Stykkishólms, Bridgefélags- ins Asa í Kópavogi og Bridgefélags Akureyrar. Hann starfaði með Leik- félaginu Grími í Stykkishólmi og sat í stjóm þess. Cecil sat í stjórn Félags ungra jafnaðarmanna á Snæfells- nesi, í stórn Sambands ungra jafn- aðarmanna og formaöur þess 1972-73 og sat þá jafnframt í flokks- stjóm og framkvæmdaráði Alþýðu- flokksins. Hann var formaður Inn- flytjendafélagsins í Lundi í þijú ár og sat í stúdentaráði Háskólans í Lundiísexár. Cecil kvæntist Óhnu Torfadóttur, f. á ísafirði 20.11.1942, dóttur Torfa Bjamasonar, verkamanns hjá ísa- fjarðarbæ, en hann er látinn, og Ingibjargar Hjálmarsdóttur. Böm Cecils og Ólínu em Kristín Haralda, f. 10.8.1963, nemi í raf- magnsverkfræði við Tækniháskól- anniLundi.ogHaraldurísleifur, . f. 3.12.1979. Cecil á tvö systkini. Þau em Gylfi, f. 7.4.1946, heilsugæslulæknir í Laugarási í Biskupstungum og á hann tvö börn; og Kristborg, f. 2.3. 1950, kennari í Stykkishólmi, gift Trausta Tryggvasyni, matsveini á Flóabátnum Baldri, og eiga þau þijárdætur. Foreldrar Cecils: Haraldur, f. 27.9. 1914, d. 31.3.1985, verkstjóri og fisk- matsmaður við frystihús Kaupfé- lags Stykkishólms, og Kristín, f. 20.6. 1921, húsmóðir. Haraldur var sonur ísleifs, b. á Tindum Jónssonar, b. á Tindum Jónssonar. Móðir Jóns var Karítas Níelsdóttir, systir Sveins, prófasts á Staðarstað, afa Sveins Björnssonar forseta og Haraldar Níelssonar próf- essors, föður Jónasar Haralz. Móðir ísleifs var Halldóra, systir Jóhönnu, móður Höllu skáldkonu á Laugar- bóh, og Stefáns, föður Sigurkarls menntaskólakennara. Þá var Jó- hanna langamma Sögu Jónsdóttur leikkonu og Þórhahs Þórhahssonar, næturvarðar DV. Hahdóra var dótt- ir Hahdórs prests í Tröhatungu, bróður Guðrúnar, langömmu Magnúsar, afa Magnúsar Friðgeirs- sonar, forstjóra Iceland Seafood Corporation. Guðrún var einnig langamma Ólafar, móður Sigríðar Ólafsdóttur, konu Vals Arnþórsson- ar. Halldór var sonur Jóns, b. á Fremri-Brekku, Þorleifssonar, og konu hans, Halldóru, systur Sigríð- ar, ömmu Finns, afa Marselíusar Bemharðssonar, skipasmíöameist- ara á ísafirði, og langafa Böðvars Bragasonar lögreglustjóra. Sigríður var einnig amma Ríkeyjar, langömmu Jónu Gróu Sigurðardótt- ur borgarfuhtrúa. Þá var Sigríður amma Þuríðar, langömmu Önund- ar, fyrrv. forstjóra Ohs, föður Ragn- ars, bankastjóra Iðnaðarbankans. Einnig var Sigríður amma Jensínu, ömmu Gunnars Ásgeirssonar, fyrrv, forstjóra. Hahdóra var dóttír Ólafs, prests í Hitardal, Gíslasonar. Móðir Ólafs var Anna Lárusdóttir Gottrups, lögmanns á Þingeyrum. Móðir Hahdóru Hahdórsdóttur var Oddfríður Gísladóttir, hreppstjóra í Þorpum, Eiríkssonar. Móðir Gísla var Oddfríður Árnadóttír, Svein- björnssonar, bróður Gísla, langafa Jóns, langafa Ingibjargar, móður séra Gunnars Bjömssonar. Móðurbróðir Cechs er Soffanías, Séra Cecil Haraldsson. útgerðarmaður í Grundarfirði. Kristín er dóttir Cecils, sjómanns í Grundarfirði, Sigurbjömssonar. Móðir Kristínar var Oddfríður Run- ólfsdóttir, b. á Naustum, Jónatans- sonar, og konu hans, Pálínu, systur Haralds, afa Sveins, afa Svavars Gestssonar menntamálaráðherra og Magnúsar Friðgeirssonar, for- stjóra Iceland Seafood. Páhna var dóttir Páls Breckmanns, sjósóknara í Suðurbúð í Eyrarsveit, Einarsson- ar, ættföður Breckmannsættarinn- ar, og konu hans, Guðfinnu Sigurð- ardóttur, b. á Hörðubóli, Sigurðs- sonar. Móðir Sigurðar var Guðfinna Þórðardóttir, systir Páls Melsteð amtmanns, langafa Torfhildar, langömmu Davíðs Oddssonar. Afmæli Aðalsteinn Bjamfreðsson Aðalsteinn Bjarnfreðsson, Selbraut 77, Seltjarnarnesi, er sextugur í dag. Aðalsteinn fæddist á Efri-Stein- smýri í Meðahandi og ólst þar upp tíl fjórtán ára aldurs. Hann fluttist þá th Björns bróöur síns í Ormskoti í Fljótshlíð og var þar th sextán ára enfluttist þá th Vestmannaeyja og byrjaði th sjós. Aðalsteinn var sjó- maður í Vestmannaeyjum 1946-1956 og hjólbarðaviðgerðarmaður í Rvík 1956-1970. Hann stofnsettí ísbúð vesturbæjar á Hagamel 67 í Rvík 1970 og hefur rekið hana síðan. Að- alsteinn kvæntist 3. nóvember 1956, Jóhönnu Báru Sigurðardóttur, f. 17. mars 1935, verslunarmanni. For- eldrar Jóhönnu eru Sigurður Sverr- isson, b. í Jórvík í Álftaveri, og kona hans, Ástríður Bárðardóttir. Börn Aðalsteins og Jóhönnu eru Kolbrún, f. 16. ágúst 1956, danskennari í Garðabæ, og Sigurjón Ingi, f. 10. desemher 1959, húsasmiður í Rvík, kvæntur Guðrúnu Eggertsdóttur. Systkini Aðalsteins eru Björn Gísh, f. 24. júlí 1913, d. 30. aprh 1980, verka- maður á Hvolsvehi, kvæntur Arn- heiði Sigurðardóttur, Vilborg, f. 19. júní 1915, gift Ásmundi Siggeirs- syni, verkamanni á Selfossi, Sigur- bergur, f. 30. september 1916, sjó- maður og verkamaður í Vest- mannaeyjum, Haraldur, f. 23. des- ember 1917, d. 29. janúar 1940, sjó- maður í Rvík, Guðjón, f. 3. mars 1919, garðyrkjumaður í Rvík, Lárus, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975, málari í Rvík, kvæntur Guðrúnu Benjamínsdóttur, Aðalheiður, f. 8. ágúst 1921, alþingismaður í Rvík, gift Guðsteini Þorsteinssyni, fv. b. og verkamanni í Rvík, Jóhanna, f. 27. desember 1922, bókavörður í Kópavogi, Ólöf, f. 24. júlí 1924, verka- kona í Rvík, Ingibjörg, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985, gift Óskari Guðmundssyni, bifvéla- virkja í Rvík, Eygerður, f. 4. janúar 1927, starfsstúlka á Landakoti, Ár- mann, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988, fiskmatsmaður í Vestmannaeyjum, kvæntur Kristínu Óskarsdóttur, Steindór, f. 26. júní 1930, sjómaður í Rvík, Valdimar, f. 16. febrúar 1931, verkamaður í Rvík, Magnús, f. 9. febrúar 1934, blaðamaður í Rvík, kvæntur Guðrúnu Ámadóttur: Sveinn Andrés, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941, Ólafur, f. 28. des- ember 1936, sjómaður í Rvík, Vh- mundur Siggeir, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964, verka- maður í Rvík, og Þóranna Haha, f. 7. september 1942, d. 31. janúar 1981, gift Ásgeiri Hraundal, verkamanni íRvík. Foreldrar Aðalsteins voru Bjarn- freður Ingimundarson, b. á Efri- Steinsmýri, og kona hans, Ingibjörg Sigurbergsdóttir. Faðir Bjamfreðs var Ingimundur, í Vestmannaeyj- um, Árnason, b. í Holti í Veri, Sig- urðssonar. Móðir Bjarnfreðs var Sigurveig Vigfúsdóttir, systir Brynj- ólfs, langafa Jóns Amar Marinós- sonar tónhstarstjóra. Móðir Sigur- veigar var Ingibjörg Bjamadóttir, systir Guðrúnar, langömmu Sveins Einarssonar, fv. þjóðleikhússtjóra og langömmu Jóns Aðalsteins Jóns- sonar orðabókarritstjóra. Móðursystír Aðalheiðar var Gísl- rún, móðir Sigurbjöms Einarssonar Aðalsteinn Bjarnfreðsson. biskups. Ingibjörg var dóttir Sigur- bergs, b. í Háu-Kotey í Meðahandi, Einarssonar, b. í Bakkakoti, Magn- ússonar. Móðir Einars var Ingibjörg Gísladóttir, systír Ragnhhdar, langömmu Sveins, afa Sveins Run- ólfssonar landgræðslustjóra. Aðalsteinn verður að heiman í dag. Steinþór Sveinbjörnsson, Faxabraut 13, Keflavík. Aðalheiður Franklinsdóttir, Skagabraut 5B, Akranesi. Björnfríður Sigurðardóttir, Hjallaseli 5S, Reykjavik. Margrét Sœmundsdóttir, Miðhúsum, Gerðahreppi. Stelnunn Þórðardóttir, Bauganesi 35, Reykjavik. Gunnar P. Jóhannsson, Langagerði 70, Reykjavík. Hjörtur Magnússon, Safamýri 42, Reykjavik. Aðalsteinn Einarsson, Miðtúxú 1, Seyðisfirði. Haraldur Sigfússon, Hvammi n, Svalbarðshreppi. Jón Valmundsson, Austurvegi 4, Vík í Mýrdal. Einar Þórarinsson, Ártúni 2, Siglufirði. Öiafttr Pétursson, Gaitartungu, Fellsstrandarhreppi. Guðmundur Lárusson, Fellsmúla 14, Reykjavik. Friðrik Hjaltason, Furulundi S, Garðabæ, Angantýr H. Angantýr H. Hjálmarsson kennari frá Vhlingadal, Vahartröð 5, Hrafnaghshreppi, Eyjafirði, er sjö- tugur í dag. Angantýr Hjörvar er fæddur í Hólsgerði í Eyjafirði, var b. í Vhlingadal í Eyjafirði 1944-1946 og hefur verið b. á Torfufehi frá 1946. Hann lauk kennaraprófi frá KÍ1957 og var kennari í bamaskól- anum í Sólgarði í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 1957-1958. Angantýr var skólastjóri barnaskólans í Sólgarði í Saurbæjarhreppi 1958-1969 og var í framhaldsnámi í KHÍ1969-1970. Hann var kennari í Héraðsskólan- um á Reykjanesi 1970-1971 og hefur verið kennari í Hrafnaghsskóla frá 1971. Angantýr hefur verið formað- ur áfengisvarnanefnda síðasthðin fjörutíu ár, fyrst í Saurbæjarhreppi, síðan í Hrafnaghshreppi og var frumkvöðull að sundlaugarbygg- ingu við Laugarfeh og annaðist upp- byggingu þar á staðnum. Hann er mikill ferðamaður og er í stjóm Ferðafélags Akureyrar. Angantýr kvæntist 11. júní 1944 Torfhhdi Jós- efsdóttur, f. 6. ágúst 1925. Foreldrar Torfhildar era Jósef Lihiendal, b. á Torfufehi og kona hans, Bjarney Sigurðardóttir. Böm Angantýs og Torfhhdar em Sigfríður, f. 18. mars 1945, gift Pétri Brynjólfssyni, tré- smið á Blönduósi; Ingibjörg, f. 20. ágúst 1951, gift Hauki Karlssyni, starfsmanni hjá DNG á Akureyri, og Ehnborg, f. 12. nóvember 1952, gift Haraldi E. Ingimarssyni, nema í markaðsfræði í Flórída. Systkini Angantýs eru Þorlákur, f. 16. sept- ember 1909, oddviti í Vhlingadal, Jón, f. 6. október 1912, b. í Villinga- dal, kvæntur Hólmfríði Sigfúsdótt- ur, og Sigrún, f. 28. september 1915, ljósmóðir, gift Ólafi Rúnebergssyni, b. í Kárdalstungu í Vatnsdal. Systk- ini Angantýs, samfeðra, era Stein- unn, f. 1. janúar 1898, gift Tómasi Sigurgeirssyni, b. á Reykhólum, Spjólaug Margrét, f. 20. júlí 1901, ljósmóðir, og Hjörtur, f. 28. júní 1905, fyrrv. skólastjóri á Flateyri, kvænt- Hjalmarsson ur Rögnu Sveinsdóttur. Foreldrar Angantýs voru Hjálmar Þorláksson, b. á Þorláksstöðum í Vesturdal, og Ingibjörg Jónsdóttir. Hjálmar var sonur Þorláks, b. á Hofi, Hjálmarssonar, b. í Bakkakoti, Árnasonar. Móðir Hjálmars var Þórey, móöir Ehnborgar Lámsdótt- ur rithöfundar. Þórey var dóttir Bjama, b. á Hofi, Hannessonar, prests og skálds á Ríp, Bjarnasonar. Móðir Þóreyjar var Margrét, systir Sæmundar, langafa Gríms M. Helgasonar, forstöðumanns hand- ritadeildar Landsbókasafnsins, föð- urVigdísar rithöfundar. Sæmundur var einnig langafi Jóhönnu, móður Sighvats Björgvinssonar alþingis- manns. Margrét var dóttir Ama, b. í Stokkhólma, Sigurðssonar, bróöur Magnúsar, langafa Guðrúnar, móð- ur Bjarna Benediktssonar forsætis- ráðherra. Móðir Margrétar var Þor- björg, systir Jóns, afa Jóns Þorláks- sonar forsætisráðherra og langafa Sigurðar Nordals. Þorbjörg var Angantýr H. Hjálmarsson. dóttir Eiríks, prests á Staðarbakka, Bjarnasonar, bróður Hannesar á Ríp. Ingibjörg var dóttír Jóns, b. í Vilhngadal, Guðmundssonar og konu hans, Guðrúnar Pálsdóttur, b. í Litladalskotí, Jónssonar. Lifia H. S*vara, Laugarásvegi 39, Reykjavík. Þóra Ottósdóttir, Aðalgötu 34, ÓiaEsfirði. Oddur Sœraundsson, Stuðlaseli 12, Reykjavík. Hildur Sigurðardóttir, Seijabraut 42, Reykjavík. Guðmundur Gísii Jónsson, Munaðamesi I, Árneshreppi. Guörún Friðleifsdóttir, Fannborg 1, Kópavogi. Júlíus Jónsson, Kveldúlfsgötu 8, Borgarnesi. Jón Rúnar Kristjónsson, Kambaseli 3. Reykjavík. Þór Sigurðsson, Helgamagrastræti 43, Akureyri Hjördis Hurnldsdóttir, Baldursheimi, Amai-neshreppi. Jón Kristflnnsson, Stifluseh 14, Reykjavík. Guðbjöm B. Bjurnason, Heiðarbraut 3C, Keflavík. Hiimir Sigurðsson, Ásholti, Arskógshreppí. Svava Kristjánsdóttir, Miðtúni, Hvanneyri, Andakílshreppi. Benedikta Þórðardóttir, Njarðvíkurbraut 31, Njarðvik. Anna Ólafsdóttir, Orrahólum 7, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.