Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Page 9
9 %STUDAGIÍR 30. JÚNÍ 1989. Utlönd Franska lögreglan kannar skemmdir á járnbrautarteinunum eflir sprengjutilræðiö í nótt Simamynd Reuter Sprengjutilræði í Frakklandi Sprengja sprakk á aðaljám- an sprakk en lestin tafðist vegna brautarieiðinni milli Parísar og elds í veitingavagni lestarinnar. Madrid í nótt nokkrum mínútum Baskamir krefjast sjálfstæðis áöur en þéttsetin lest átti að fara fyrir Baskahéruðin í suðvestur- þar um. hluta Frakklands. Baskahreyfing- Aðskilnaðarhreyfing Baska í in á Spáni, ETA, krefst hins vegar Frakklandi kvaðst hafa komið sjálfstæðis fyrir Baskahéruðin á sprengjunni fýrir. Hún sprakk SpánL nokkur hundruð metra firá Biar- Sprengjan sprakk nokkrum ritz-jámbrautarstöðinni. Sam- klukkustundum áöur en innanrík- kvæmt áætlun átti næturlestin frá isráðherra Frakka, Pierre Joxe, París tíl Madrid að fara framhjá var væntanlegur í heimsókn til Biarritzumsvipaðleytiogsprengj- frönskuBaskahéraðanna. Reuter Friðarumleitanir bera lítinn árangur Mikhr bardagar hafa átt sér stað í Beirút, höfuðborg Líbanons, síðustu dægur þrátt fyrir friðarumleitanir leiðtoga þriggja arabaríkja. Talið er að að minnsta kostí fjórir hafi látið Mfið og hátt í þrjátíu særst. Þetta em verstu bardagar sem blossað hafa upp í Líbanon þennan mánuð. Sprengjur lentu á sjúkrahúsi í vest- urhluta borgarinnar í gær og lést einn starfsmannanna. Mkill eldur braust út og átti hjúkrunarfólk og sjúklingar fótum sínum fiör að launa. Segja heimildarmenn að sprengjur hafi lent á skurðstofu á fyrstu hæð sjúkrahússins, sem er það næststærsta í Beirút, og þaðan hafi eldurinn breiðst um allt húsið. Vitni kváðust telja að 15 sjúklingar hefðu særst. Bardagar bmtust fyrst út við grænu línuna í Beirút, sem skilur að borgarhluta kristinna og múhameðs- trúarmanna, en breiddust síðar út til íbúahverfa. Verslunum var lokað og borgarbúar leituðu skjóls í nærliggj- andi húsum. íbúar Beirút óttast að bardagamir séu merki aukinnar hörku milli kris- tinna og múhameðstrúarmanna. Leiðtogar þriggja arabaríkja freista þess nú að koma á friöi í Líbanon en þar hefur ríkt borgarastyrjöld í 14 ár. Friðarumleitanimar virðast lítinn árangur hafa borið. Fulltrúar araba- ríkja hafa lagt til að þing Líbanons komi saman til fundar erlendis til að freista þess að heíja viðræður um frið. Múhameðstrúarmenn kveðjast styðja tillöguna en leiðtogar krist- inna segja það brjóta gegn fúllveldi landsins. Reuter Talið er að fjórir hafi látist og hátt í þrjátíu særst i bardögum i Beirút síð- UStu dægrin. Simamynd Reuter Marcos við dauðans dyr Bandarískir læknar heyja nú ör- væntingarfulla baráttu til aö bjarga lífi Ferdinands Marcos, fyrrum ein- ræðisherra á Fihppseyjum, sem berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi á Honolulu. Marcos gekkst undir aðgerö í gær þar sem nýra, sem sett var í hann fyrir fimm árum, var fjarlægt. Að sögn talsmanns Francis-sjúkrahúss- ins komu í ljós merki þess að líkami hans hafnaöi nýranu og því var af- ráöiö að fjarlægja það. Hans eigin ným hafa verið óstarfhæf um langan tíma, að sögn lækna, en hafa enn ekki verið íjarlægð. Imelda Marcos, eiginkona fyrrum einræðisherra á Filippseyjum, hefur sung- ið ástarsöngva fyrir eiginmann sinn í þeirri von að brái af honum. Simamynd Reuter Aðgerðin í gær stóð í rúma klukku- stímd og tóku þátt í henni fimm læknar. Samkvæmt fréttum frá sjúkrahúsinu er Marcos nú talinn í lífshættu og em lífslíkur hans ekki miklar. Marcos var fluttur á sjúkrahús um miðjan janúarmánuð vegna lungna- bólgu. Hjarta hans, nýra og lungu gáfu sig í síðasta mánuði og hefur heilsu hans hrakað mjög. Læknar sögðu í gær að helstu líffæri hans störfuðu ekki með eðlilegum hætti. Hann hefur verið að mestu rænu- laus, tengdur nýmavél og hafa vélar í raun haidið honum á lífi. Imelda Marcos hefur setið við sjúkrabeð eiginmanns síns síðustu daga og grátklökk sungið fyrir hann ástarsöngva. Segja vinir þeirra hjóna að Marcos hafi bragðist jákvætt viö þegar hún söng fyrir hann í gær, opnað augun og tekið í hönd hennar. Fjölskylda Marcosar safnaðist saman á sjúkrahúsinu í gær og baö fyrir M hans. Imelda kvaðst þess fullviss aö manni sínum myndi batna ef hann fengi leyfi til að eyða síðustu ævidögunum á Fihppseyjum. Aqu- ino, forseti Filippseyja, hefur aftur á mótí hafnað öllum slíkum beiönum. Marcosi var steypt af stóli árið 1986 og flúði land ásamt eiginkonu sinni. Þau hjón hafa verið ákærð fyrir aö hafa dregið sér 109 milljónir doliara úr fjárhirslum fUippseysku ríkis- stjómarinnar auk þess aö hafa svikið 165 miUjón doUara út úr bandarísk- um bönkum. Marcos hefur enn ekki komiö fyrir rétt vegna þessa máls sökum heUsubrests. Imelda kom aft- ur á móti fyrir rétt í fyrra en greiddi háa tryggingu og er því fijáls ferða Sinna. Reuter Ferdlnand Marcos og Imelda fiúöu Filippseyjar árið 1986 þegar honum var Steyptaf Stóli. Símamynd Reuter INNLAUSNARVERÐ VAXTAMÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS (1.FLB1986 Hinn 10. júlí 1989 er sjöundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 7 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: __________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.724,40_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1989 til 10. júlí 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu írá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 2540 hinn 1. júlí nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 7 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1989. Reykjavík, 30. júní 1989 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.