Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Síða 11
FÖSTUDAGUR 30. JÚNl 1989. 11 Utlönd Carlsson forsætisráðherra visar á bug hugmyndum hægri manna um Tillögurnar um skattabreytingarnar hafa verið kallaðar perestrojka Feldts fjármálaráðherra. minni skattbyrði. Kúvending í skattapólítík sænskra jafnaðarmanna Hafstemn Jónsson, DV, Lundi: Skattaumbætur aldarinnar kalla jafnaðarmenn tillögur sínar um breytingar á skattkerfi Svíþjóðar. Kjell Olof Feldt, fjármálaráðherra Svíþjóðar, lagði fram drögin að þessum breytingum í nóvember á síöasta ári. Síðan var málið lagt í nefndir sem nú hafa lokið störfum og lagt fram niðurstöður sínar til almennrar umræðu. Tillögurnar verða væntanlega að frumvarpi í haust og nái þær fram að ganga tekur nýtt skattkerfi gildi í ársbyrjun 1991. Nýtt skattkerfi er talin nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að leysa þann efnahags- vanda sem blasir við ríkisstjórn jafnaðarmanna. Verðbólga er meiri en í flestum nágrannalöndunum, hagvöxtur er minni, spamaður er lítill, atvinnuþátttaka lítil og ráð- stöfunartekjur með þeim lægstu í Evrópu. Hár tekjuskattur í núverandi skattkerfi er tekju- skattur hár og fer hlutfallslega vax- andi með auknum tekjum, getur hann komist upp í 75 prósent af tekjum. Allar viðbótartekjur skatt- leggjast samkvæmt hæsta skatt- hlutfalli viðkomandi. Afleiðing slíkrar skattheimtu er að enginn fæst til að vinna aukavinnu, ekki nema þá að hún sé ekki gefm upp tií skatts. Það eykur heldur ekki vinnugleði fólks að ýmsar félags- legar bætur em tekjutengdar. Tekjuskattskerfið er bæði flókið og óréttlátt. Það býður upp á marg- víslega frádráttarmöguleika fyrir þá sem hafa tíma eða kunnáttu til að notfæra sér þá eða hafa ráð á sérfræðiaðstoð. Slíkur skattabú- skapur gefur oft meira í aðra hönd en aukin vinna. Að sækja ýmis fríð- indi til atvinnurekenda svo sem sumarhús, utanlandsferðir og bfi er eftirsóknarverðara en launa- hækkanir. Sömu sögu er að segja af fyrir- tækjarekstri, skattahlutfall þeirra er 57 prósent af hagnaði. Vegna frá- dráttarmöguleika fyrirtækjanna, svo sem að leggja hluta hagnaðar- ins í ýmiss konar sjóði eða lager- birgðir, er skatthlutfallið í raun um 20 til 25 prósent. Þessi skattabú- skapur hefur síðan neikvæð áhrif á fjárfestingar. Róttækar breytingar Þessum göllum er nýja kerfmu ætlaö aö ráða bót á. Frádráttarhð- um er verulega fækkað og ýmis skattfríðindi minnka eða falla nið- ur. Þetta á hafa í för með sér minnkandi skattabúskap og skatt- svik. Róttækasta breytingin er að 90 prósent framteljenda greiða engan tekjuskatt. Þau 10 prósent, sem gert er ráð fyrir að lendi fyrir ofan tekjuskattleysismörkin, greiða 20 prósent tekjuskatt. Hæstu beinu skattar verða því 50 prósent í stað núverandi 72 prósenta. Þessa mikla lækkun beinna skatta, sem kostar sænska ríkið um 450 mfiljarða ís- lenskra króna, á að auka atvinnu- þátttöku, raunlaun, sparnað og minnka verðbólgu. Heildarskattbyrðin sú sama Ekki stendur þó tfi að minnka hefidarskattbyrðina sem er sú hæsta í heimi eða 56 prósent af þjóðarframleiðslu. Lækkun tekju- skattsins verður því greidd með hækkun annarra skatta. Skatthlutfall fyrirtækja verður 30 prósent af hagnaöi, skattur af fjár- magnshagnaði, þar með taldir vextir af almennum sparnaði og hagnaður af sölu eigin húsnæðis, hækkar verulega og verður einnig 30 prósent. Á lífeyrisspamað í bönkum og tryggingafyrirtækjum leggst 20 prósent skattur. Söluskattur verður sá sami á öll- um vörum og þjónustu eða 24,5 prósent. Hann hækkar því í vissum greinum og nær allar undanþágur frá söluskatti verða felldar niður. Sem dæmi má nefna að menningar- starfsemi og almennar samgöngur verða nú söluskattsskyldar og söluskattur af byggingarstarfsemi tvöfaldast. Þessari aukningu sölu- skatts er ásamt auknum fjár- magnsskatti ætlað að fjármagna tekjuskattslækkunina. Til að vega upp á móti auknum kostnaði sem söluskattshækkunin hefur í för með sér, einkum aukn- um íbúðarkostnaði bæði fyrir leigj- endur og íbúðareigendur, verða barnabæturnar tvöfaldaðar. Gagnrýni frá hægri Sænski hægri flokkurinn gagn- rýnir harðlega að tillögurnar skuli gera ráð fyrir óbreyttri skattbyrði. Forsenda þess aö sænskt efnahags- líf geti þróast eðhlega er að mati flokksins að skattbyrði lækki. Flokkurinn hefur því lagt til að hún lækki um 2,5 prósent. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, vísaði þeirri hug- mynd á bug sem hreinustu öfgum. Hægri menn telja hins vegar að heimsmynd Svía í skattheimtu eigi meira skylt við öfgar. Þeir benda einnig á að fyrirhuguð umbreyting skattanna komi misjafnlega niður á fólki, sumir græði, aörir tapi. Skattaumbætur, sem auki fram- færslukostnað heimila og geri þeim erfiðara að framfleyta sér á eigin launum og því háðari opinberri aðstoð, standi ekki undir nafni. Þjóðarflokkurinn og Miðflokkur- inn telja ekki tímabært að minnka skattbyrðina og koma þvi væntan- lega til með að styðja skattabreyt- ingarnar í haust. Afgerandi viðbrögð Það sem er afgerandi varðandi örlög þessara skattabreytinga eru viðbrögð sænska alþýðusambands- ins. Þaö er ljóst að skattaumbæ- turnar eru kúvending í skattapólít- ík jafnaðarmanna. Fyrir tveimur árum lýstu forystumenn sænska alþýðusambandsins því yfir að ekld kæmi tfi greina að lækka tekjuskatt vegna þess að shkt yki tekjumismuninn í samfélaginu. Svipaðra skoðana hefur gætt meðal forystumanna jafnaðarmanna. Þegar breytingamar voru kynnt- ar nú á dögunum virtist ríkja ein- hugur milli alþýðusambandsins og ríkisstjórnarinnar. Nú síðustu daga hefur lekið i fjölmiðla aö for- ystumenn alþýðusambandsins séu ekki alls kostar ánægðir meö þau áhrif sem skattabreytingarnar hafa á tekjuskiptinguna. Þeir hafa reiknað út að kjör 17 þrósent laun- þega, fyrst og fremst láglaunafólks, komi til með að skerðast á meðan kjör hálaunafólks batni óeðlfiega mikið. Það má því búast við að þeir reyni að ná fram einhverjum breytingum á tillögunum sem tryggja að tekjuskiptingin raskist ekki láglaunafólki í óhag. Perestrojka Feldts Feldt fjármálaráðherra telur hins vegar að umræðan um það hverjir tapi og hverjir græði sé út í hött. Með nýja skattkerfinu skapist skil- yrði fyrir aukinni atvinnuþátttöku og hagvexti og minni verðbólgu og því batni kjör allra þegar til lengri tíma er htið. Hvort þessi perestrojka Feldts verði tfi að skapa bjartari tíma í sænsku efnahagslífi er vissulega spumingin um það hvort ekki sé nauðsynlegt að minnka skattbyrð- ina og ríkisútgjöld. Hingað til hafa ríkisútgjöld farið stöðugt vaxandi með tilheyrandi skattahækkunum. Og hingað tfi hafa allar skatta- breytingar jafnaðarmanna haft í för með sér aukna skattbyrði. Rík- isútgjöld hafa farið stöðugt vaxandi og ekkert bendir til að sú þróun sé að stöðvast. í nýja skattkerfinu er mun auð- veldara að auka skattheimtuna, ekki þarf annað en að færa til tekju- skattleysismörkin í- samræmi við vaxandi ríkisútgjöld. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTHNA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1985-1. fl.A 10.07.89-10.01.90 kr. 342,35 1986-1 .fl.A 3 ár 10.07.89-10.01.90 kr. 235,98 1987-1 .fl.A 2 ár 10.07.89-10.01.90 kr. 189,97 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1989 SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.