Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDÁGUR 30. JÚNÍ 1989. Um lífeyrissjóði Öðru hveiju kemur upp umræða um lífeyrissjóðakerfið eins og vera ber, enda er það langt í frá hafið yfir umræður og aðfinnslur. En oft er talað um þessi mál af fullmiklu gáleysi og undirstöðu málsins gleymt. Álmenna lífeyrissjóðakerfinu var komið á 1970 með samningum 1969, sem þýðingarmiklum þætti í sam- tryggingarkerfi okkar. Þá settu menn sér það markmið að með- göngutíminn yrði 50 ár og að þeim tíma liðnum yrði þeim áfanga náð að virkilega munaði um bætur úr sjóðunum. Því má segja að lífeyris- sjóðimir séu nú rétt að komast á unglingsárin. Þó svo lífsmáti okkar hafi breyst mikið á þessum 19 árum, og þar með þjóðfélagið í heild, er síður en svo að samhjálp og samvinna sé orðið úrelt fyrir- bæri. Iðgjöld skila sér ekki í umræðunni nú undanfarið, sem og endranær, benda margir á að lífeyrisiðgjöld þeirra skih sér ekki til þeirra þegar á þarf að halda. Nú er það svo að til að hægt sé að starfrækja sjóði í almannaþágu verður að hafa um þá reglur og lög og einhvers staðar verður að setja mörkin um nýtingu þeirra. Hver og einn lífeyrissjóður hefur sínar reglur til að fara eftir við úthlutun bóta, hveiju nafni sem þær nefn- ast. Vegna þessara reglna kemur það fyrir að einstakiingar eða þeirra nánustu njóta ekki ailtaf þess sem þeir hafa greitt til sjóð- anna en oftar er að sjóðfélagar fá tU baka, þegar þeir þurfa á að halda, sín iðgjöld með vöxtum og vaxtavöxtum og stundum vel það. í lifeyrissjóðunum viðgengst svo- kailað uppsöfnunarkerfi en lífeyr- issjóðirnir eru ekki bankar með sérreikning fyrir hvem sjóðfélaga KjaUarinn Þóra Hjaltadóttir formaður Alþýðusambands Norðuríands heldur samtryggingarkerfi. En hugmyndir um nýtt lífeyris- kerfi eru margar og má þar helst nefna frjálsa lífeyrissjóðinn, það er að hver og einn leggi ákveðna upp- hæð á eigin bankareikning og noti síðan í ellinni. Um shka patent- lausn er mér spum hvemig fólk á þá að hegða sér þegar vinnudegi lýkur og elhárin taka við. Á fólk að ákveða við 67 eða 70 ára aldur hvað það ætlar að lifa lengi og deiia með þeim áraijölda í innstæðuna þannig að hægt sé að finna út hvaða upphæð má nota á ári hverju? Og hvemig fer þá ef áætlunin bregst, eða er hægt að tryggja sig fyrir því að verða 95 ára eða þaðan af eldri? Eins má benda á fólk sem verður fyrir því óláni að verða öryrkjar tíltölulega ungt. Tæp 30% af lífeyr- isgreiðslum Láfeyrissjóðs sjó- manna fara í að greiða örorkubæt- ur. Lífeyrisinnstæða á bankabók væri fljót að eyðast ef sú leið hefði verið valin og hvað tæki þá við? Vissulega má benda á ftjálsar tryggingar en þær þarf að taka áð- ur en óhappið skeður og em mjög dýrar. Eins má benda á að ef lífeyr- issjóðimir yrðu lagðir niður, eins og sumir virðast vilja, þá liði ekki á löngu áður en hálaunahópamir í þjóðfélaginu stofnuðu nýja lífeyr- issjóði, nýtt samtryggingarkerfi, til að tryggja sína framtíð og þannig myndi boltinn velta á ný. Lífeyriskerfið mikilvægt Þó að raddimar gegn lífeyriskerf- inu hafi verið háværar undanfarið er ég sannfærð um að flestir gera sér grein fyrir því hve lífeyrissjóða- kerfið er mikhvægt fyrir okkar fé- lagslega öryggi og meta það sem þeir hafa. í svo htlu landi, sem ís- land er, hljóta allir að þekkja til einstaklinga sem virkhega þiirfa á þessu samtryggingarkerfi að halda, hvort heldur þeir era öryrkjar eða eliihfeyrisþegar. Upphæð elhhfeyr- is fer eftir því hve viðkomandi hef- ur unnið sér inn mörg stig, það er hve lengi og mikið hann hefur greitt th sjóðsins, og við útreikning örorkubóta er farið eftir innunnum stigum viðkomandi og einnig fram- reiknað hve viðkomandi hefði við eðlilegar aðstæður greitt th sjóðs- ins th 70 ára aldurs og örorkubætur reiknaðar út frá því. Varðandi elh- lífeyrinn sérstaklega má því áætla að eftir því sem sjóðimir verða eldri eða lengra hður frá árinu 1970, þegar þeim var komið á, muni end- urgreiðslur verða hærri og þessar greiðslur fær maöur þó alltaf reglu- bundiö þrátt fyrir háan lífaldur og að uppurin sé sú upphæð með vöxt- um sem viðkomanch greiddi meðan hann var á vinnumarkaðinum, hkt og hefur skeð með þá sem notið hafa greiðslna frá því á fyrstu ár- unum eftir stofnun sjóðanna. Þó nokkuð er um að lífeyrissjóð- imir láni sjóðfélögum en slíkar lán- veitingar eru ekki thgangur sjóð- anna heldur má fremur nefna þær sem fyrirgreiðslu og ákveðna ávöxtunarleið. Sömu réttindi fyrir alla En ýmsu þarf að breyta th að fólk geti búið við meira öryggi þegar ellin sækir að eða hehsan bhar og það er hægt ef vhjinn er fyrir hendi. Má þar fyrst nefna sömu réttindi fyrir alla, hvort sem þeir vinna hjá almennum atvinnurek- endum eða opinberum. Þetta rétt- indamál er vandmeðfarið því það er eins með það og svo margt ann- að, það kostar peninga og hvar á að taka þá? - Hjá sameiginlega sjóðnum, ríkiskassanum? Ekki vhjum við borga hærri skatta, eða hvað? - Eða hækka lífeyrisiðgjöld- in? Eram við sammála um að hækka iðgjaldagreiðslur í 15-20%? Að minnsta kosti hefur ekki náðst samstaða um slíkt. Og lítið högn- umst við á að jafna réttindin með því að skerða þau hjá þeim sem betri kjör hafa. Og í öðra lagi er óhjákvæmilegt að sameina lífeyrissjóðina þar sem litlar rekstrareiningar á þessu sviði era jafnóhagkvæmar og á öðrum sviðum. Umræðan um sameiningu lífeyr- issjóðanna kemur ahtaf upp með fárra ára eða jafnvel mánaða milli- bili en menn hafa að mestu látið orðin nægja þar til nú að fógur fyr- irheit virðast ætla að verða að veruleika, enda sjá menn að svona geta málin ekki gengið lengur og raunar löngu kominn tími th breyt- inga. Frágengin drög að frumvarpi til laga hafa legið thbúin einhvers staðar í kerfinu í rúmlega tvö ár og fjalla þau í megindráttum um þessar úrbætur en ekki hefur enn náðst samstaða um að leggja það fyrir Alþingi. Við verðum trúlega fyrri til að sameina sjóðina en frumvarpið að verða aö lögum en sömu lífeyrisréttindi fyrir alla landsmenn verða að nást annað tveggja með lagasetningu eða í kjarasamningum. Þá verður að minna á að th að lífeyriskerfið geti staðið við sínar skuldbindingar verður að nást grundvallarbreyting á skhum all- margra atvinnurekenda til lífeyris- sjóðanna. Að þeir skih þeim pen- ingum, sem þeir hafa áður dregið af launafólkinu,. með öðram orð- um, fari að gera sér grein fyrir að þetta eru peningar sem aðrir eiga og þeim á ekki síður að skha í rétt- ar hendur en sjálfu launaumslag- inu, og þá ekki síður að þeir geri sér grein fyrir að fyrirtækin verða ekki rekin á þessum peningum. Þóra Hjaltadóttir „í lífeyrissjóöunum viðgengst svokall- að uppsöfnunarkerfi en lífeyrissj óðirn- ir eru ekki bankar með sérreikning fyrir hvern sjóðfélaga heldur sam- tryggingarkerfi. ‘ ‘ — Utboð á útvarpi og sjónvarpi Ef ríkiðsvaldið, í umboði ai- mennings, hefur áhuga á að bjóða landsmönnum upp á menningu, fræðslu og málrækt í útvarpi og sjónvarpi, era betri leiðir th en að ríkiö reki sjálft slíka miðla. Einfaldast er að bjóða út miðlun á slíku efni. Þannig nýtist al- mannafé best. Það hefur sýnt sig í ahs kyns verklegum framkvæmd- um. Vegagerð, virkjanir, holræsa- gerð og fleira er fahð þeim sem best býður. Ekki endhega lægst- bjóðanda heldur ekki síst þeim sem hefur upp á vandaða vinnu og efni að bjóða á góðu verði. Við fáum ódýrari vegi. Hvers vegna skyldum við ekki geta fengið ódýrara útvarp. og sjónvarp með útboðum? Dýrt Ríkisútvarp Stjómvöld hafa ákveðið að al- menningur eigi að greiða skyldu- skatt th að standa undir rekstri Ríkisútvarpsins. Það er langt því frá að því fé sé vel varið. Ríkisend- urskoðun hefur - gagnrýnt ragl í rekstri Ríkisútvarpsins. Það hefur verið að byggja kastala undir starf- semina á sama tíma og aðrar út- varps- og sjónvarpsstöðvar hafa komið th sögunnar. Það hefur steypt sér í mörg hundrað mhljón króna skuldir. Mannahald hefur farið úr böndum. Ef Ríkisútvarpið þyrfti að keppa um afnotagjaldið viö aðra miðla sömu tegundar fengi almenningur meira úrval af góðu menningar- og fræðsluefni og öðra góðu útvarps- og sjónvarpsefni. Yfirburðastaða Ríkisút- varpsins Eins og málum er nú háttað er ekki hægt að taia um samkeppni í útvarpi og sjónvarpi. Ríkisútvarpið hefur einkarétt á afnotagjöldunum. KjaHaiinn Ólafur Hauksson blaðamaður skrárefnis, sem greitt yrði með af- notagjöldunum, fengist meira og betra efni. Framkvæmdina má hugsa þann- ig að eins konar útvarpsráð leggi línumar um grófa skiptingu af- notagjaldanna eftir helstu efnis- flokkum, t.d. fréttir, leikrit, tónhst- arflutningur, fræðsluefni o.s.frv. Síðan yrði óskað eftir thboðum í gerð og dreifingu þessa efnis. Mat á thboðunum mundi miðast við að gott og vandað útvarps- og sjónvarpsefni fengist framleitt og birt á hagstæðu verði. Taka þyrfd tihit th útbreiðslu stöðva, reynslu þeirra, þekkingar og getu starfs- manna, áhts og vinsælda o.s.frv. Betri nýting á almannafé Útboð af þessu tagi tfyggir að „Ef allar útvarps- og sjónvarpsstöðvar gætu gert tilboð í gerð dagskrárefnis, sem greitt yrði með afnotagjöldunum, fengist meira og betra efni. Það keppir við aðra ljósvakamiðla um auglýsingar og notar afnota- gjöldin th að greiða niður auglýs- ingaverðið. Þannig standa stöðvar í einkaeign höllum fæti gagnvart Ríkisútvarpinu. Eigendur útvarps- og sjónvarps- tækja verða nú að greiða Rikisút- varpinu afnotagjald, sama hvort þeir nota þjónustu þess mikið eða lítið eða nota einungis aðrar út- varps- og sjónvarpsstöðvar. Samkeppni um afnotagjöldin Ef ahar útvarps- og sjónvarps- stöðvar gætu gert thboð í gerð dag- útvarps- og sjónvarpsstöðvr fari vel með almannafé. Þær keppa ekki aðeins um framleiðslu og dreifingu á góðu dagskrárefni heldur einnig um réttinn th að gera það á sem ódýrastan hátt. Samkeppnin tryggir hámarks- gæði fyrir gott verð. Ef ein stöð fær verkefni vegna þess að hún gerir það vel og ódýrt er slíkt hvatning fyrir aðrar stöðvar th að gera enn betur svo að þær fái einnig verk- efni. Þessi hugmynd um útboð á fram- leiðslu og dreifingu útvarps- og sjónvarpsefnis miðar að því að eðh- leg samkeppni komist á í þessum Rikisendurskoðun hefur gagnrýnt rugl í rekstri Ríkisútvarpsins. rekstri. Hún miðar ekki síst að því að Ríkisútvarpið fái aðhald. Hún miðar að betri nýtingu á almanna- fé. Jafnir möguleikar til að standa sig En th að Ríkisútvarpið geti tekið af aivöru þátt í samkeppni verður að breyta stjómun þess verulega. Best er að selja það. Næstbest er að tryggja því stjórnunarlegt frelsi og láta samkeppnina um það að- hald sem ráðherrar eða útvarpsráð hafa hvort sem er ekki tök á. Líthl markaður eins og ísland býður ekki upp á að ljósvakamiðlar lifi á auglýsingatekjum einum sam- an, sérstaklega ekki sjónvarp. Því er einhvers konar afnotagjald nauðsynlegt. Notkun myndlykhs er réttlát en dýr aöferð til þess. Afnotagjald á alla eigendur tækja er því aðeins réttlætanlegt að þeir aðilar sem stunda útvarps- og sjón- varpsrekstur hafi jafna möguleika til að bjóða greiðendum upp á dag- . skrárefni og búi við eðhlegt aðhald. Þar kemur útboð og samkeppni inn í myndina. Ólafur Hauksson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.