Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
Fréttir______
Horfðum
sökkva á
DV
á bátinn okkar
15-20 mínútum
- segir Hinrik Axelsson, annar sjómannanna á Elsu Lund sem sökk á Breiðafirði
„Þetta gerðist allt mjög hratt og
stóð stutt yflr,“ sagði Hinrik Axels-
son, annar sjómannanna tveggja sem
björguðust er báturinn Elsa Lund,
10 tonna vélbátur, sökk um 10 sjómíl-
ur norðaustur af Grundarfirði á
laugardagskvöldið.
„Við höfðum lagt út lúðulóð og
vorum að bíða eftir þeim. Það var
dautt á vélinni og við vorum bara
að hvíla okkur. Félagi minn náði að
sofna en ég var svona rétt við það
að blunda er ég varð þess var að eitt-
hvað óeðlilegt átti sér stað. Báturinn
var farinn að hegða sér einkennilega
og kom þá í ljós að vélarrýmið var
orðiö fullt af sjó,“ sagði Hinrik í sam-
tali við DV í gær.
„Manni brá auðvitað gífurlega en
það var enginn stund til að hugsa
um neitt annað en að bjarga sér. Það
náðist strax samband við Tilkynn-
ingaskylduna í Reykjavík og okkur
tókst greiðlega að komast í björgun-
arbát. Eftir að við vorum komnir í
björgunarbátinn leið kannski um
klukkutími þangað til okkur barst
björg. En við horfðum á bátinn okkar
sökkva á 15-20 mínútum.“
Hinrik og félagi hans, Björgvin
Guðmundsson, voru að vonum mjög
dasaðir í gær er þeir voru að jafna
sig eftir þessa miklu reynslu sem
þeir urðu fyrir. Þeir sögðust þó hafa
verið nokkuð rólegir eftir að í björg-
unarbátinn var komið þar sem þeir
vissu að von væri á björgun. Það var
vélbáturinn Hafsteinn frá Grundar-
firði sem kom á vettvang þeim til
bjargar.
Ekki er enn vitað hvað olli slysinu.
-RóG.
Bíl stolið á Selfossi:
Þjófurinn fór
inn í hús og
sótti lyklana
Bíræfinn bílþjófur var aö verki á
Selfossi um helgina en þá var stolið
bfl sem stóð fyrir utan íbúðarhús.
Gerði þjófurinn sér lítið fyrir og fór
inn í húsið á meðan húsráðendur -
sváfu aðfaranótt sunnudagsins og
varð sér úti um bfllyklana. Fór hann
síðan út og keyrði í burtu. Urðu eig-
endur bflsins enskis varir fyrr en
þeir vöknuðu um morguninn.
Bíflinn, sem er Mazda 323, er hvítur
að lit og hefur númerið GL 650. Hann
er tvennra dyra með rauöa skellu á
hægri hlið. Þeir sem verða hans var-
ir eru beðnir að snúa sér tfl lögregl-
unnar. -SMJ
Búðarþjófhaður:
Svii stöðvaður á
leið úr landi
Ungur sænskur maður, sem var á
leið úr landi í gærmorgun, var stöðv-
aður í Leifsstöð og færður tfl yfir-
heyrslu hjá Rannsóknarlögreglu rík-
isins. Var maðurinn grunaöur um
búðarþjófnað í Hagkaupi fyrr í vik-
unni.
Samkvæmt upplýsingum frá RLR
var Svíinn stöðvaður eftir að ábend-
ing fékkst um að hann hefði átt hlut
að búðarþjófnaði. Máiið er enn í
rannsókn. -SMJ
Innbrot í miðbænum:
Mikið skemmt
Hún endaöi snögglega hnattferö bandaríska flugmannsins Thomas Casey. Sjóflugvélinni, sem hann ætlaði aö fljúga I kringum hnöttinn, hvolfdi aðfara-
nótt sunnudagsins þar sem hún var fest við bauju í Skerjafiröinum. Sjálfur líkti hann vélinni í sjónum viö eigin jarðarför. Á innfelldu myndinni má sjá
sjóflugvélina skömmu áöur en henni hvolfdi. DV-myndir: S og JAK
Þetta er eins og að upp-
lifa eigin jarðarför
- segir bandaríski flugmaðuriim Thomas Casey sem varð að hætta við heimsflugið
en engu stolið
Rannsóknarlögreglan vinnur nú aö
rannsókn á innbrotum í miðbæ
Reykjavíkur sem áttu sér stað að-
faranótt laugardagsins. Samkvæmt
upplýsingum frá RLR hefur lítið
skýrst í málinu. Þó þykir mönnum
ljóst að innbrot í Kirkjuhvol, skrif-
stofu Alþingis, og innbrot í Vonar-
stræti 4, þar sem Félagsmáiastofhun
er tfl húsa, eru tengd. Einnig gætu
verið tengsl við innbrot í Blómaiist
í Ingólfsstræti.
Það er sammerkt með öllum þess-
um innbrotuum að mikið var
skemmt en litlu sem engu stolið.
Einnig var brotist inn í bátinn Ólaf
Bjamason SH í Daníelsslipp og stoliö
sjónvarpstæki.
Þá var brotist inn í sumarbústað
við Helgafell í Mosfeflsbæ og nokkrar
skemmdirunnar. -SMJ
Leigubíll brann
Um klukkan fimm í nótt fékk lög-
reglan tilkynningu um að kviknað
hefði í leigubfl sem staddur væri á
Hellisheiði. Það var bflsfjórinn sjálf-
ur sem hringdi í lögregluna úr bfln-
um. Þegar lögreglan mætti á staðinn
var bíllinn illa brunninn og er hann
talinnnánastónýtur. -SMJ
„Það er eins og allt mitt líf hafi
fuðrað upp á tíu mínútum," sagöi
Thomas Casey, flugmaður sjóflug-
vélarinnar sem eyðilagðist aðfara-
nótt sunnudagsins, í samtaii við DV
í gær.
„Rétt fýrir miðnætti, þegar ég at-
hugaði síðast með vélina, virtist allt
vera í lagi þar sem hún var fest við
bauju í Skeijafirðinum. Svo fæ ég
nokkru síðar þær fréttir að henni
hafi hvolft og liggi á kafi í sjónum.
Það er ekkert sem ég get gert, vélin
er gjörsamlega ónýt,“ sagði Thomas
Casey.
Eins og fram hefur komið í fréttum
var stans vélarinnar hér liður í
hnattferð flugmannsins. Tilgangur
ferðarinnar var aö setja heimsmet
með því að lenda aldrei á flugvefli
en slíkt flug hafði aldrei verið áður
farið umhverfis gjörvallan hnöttinn.
Vélin er af gerðinni Cessna 185 og
var ferðin rétt hálfnuð þegar hingað
var komiö en áætlaður tími ferðar-
innar var um 45 dagar.
Flugmaðurinn, Thomas Casey,
sem er frá Seattle í Bandaríkjunum,
var mjög dapur í bragði þegar DV
raéddi við hann eftir óhappið.
„Mér er ómögulegt að skflja hvem-
ig þetta gerðist. En að horfa upp á
vélina á hvolfi í sjónum er fyrir mér
eins og að upplifa eigin jarðarfór.
Undirbúningm- fararinnar tók 1 ár
og hafði allt gengið að óskum hingað
til. Eg hafði að vísu sjálfur talið
heppilegra að festa vélina uppi á
landi í Skerjafirðinum en þeir sem
þekktu aðstæður betur en ég ráð-
lögðu mér að gera það ekki þar sem
hún fengi síður að vera í friði þann-
ig. En ég geri það næst,“ sagði Thom-
as Casey.
Aðspurður hvort hann hygðist
endurtaka þessa tilraun sagðist hann
vona það. En sú flugferð yröi þá í
fyrsta lagi að ári liðnu. -RóG.
Meðvitundarlaus í heita pottinum
í gærmorgun fannst þriggja ára Það var móðir bamsins sem fyrst um sundlaugargesta tókst að blása Þetta er í þriðja sinn í sumar sem
bam meövitundarlaust í heita pot- uppgvötvaði hvemig komið var. lífi í bamið og virðist því ekki hafa ung börn em hætt komin i sund-
inum í sundlaug Vestmannaeyja. Svo giftusamlega tókst til að ein- orðiö meint af. laugumlandsins. -SMJ