Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 7
GOTT FÓLK/SlA
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
7
Fréttir
Vestfirðir:
Skertur kvóti drýgður
- með því að leggja togurum og loka frystihúsum 1 viku
Aflaskipið Guðbjörg ÍS hefur legið við bryggju að undanförnu vegna málningarvinnu.
Vflborg Davíðsdóttir, DV, fsafirði:
Eflaust þykir þaö einhverjum
fullsnemmt að fara að spá um stöðu
kvóta togara á Vestfjörðum í miðj-
um júlímánuði en því verður ekki
neitaQ að nú þegar eru menn farnir
að velta því fyrir sér hvort kvótarn-
ir endist út árið og það eitt hlýtur
að teljast fréttnæmt um hásumarið.
DV sló á þráöinn suður í ráðu-
neyti og í útgerðarmenn hér og
hvar á Vestfjörðum og eftirfarandi
er útkoman:
Allir eru á eitt sáttir um að sú
10% skerðing, sem ákveðin var í
ár í þorski og karfa, komi til með
að segja sitt og eins 8% skerðing á
grálúðukvótanum. Nokkrir út-
gerðarmenn svöruðu því til að allt-
of snemmt væri að segja til um
hvort atvinna héldist út árið en
margir hafa tekið það ráð að fjölga
dögum í landi og dreifa þeim jafnt
yfir mánuðina til að komast hjá
löngu stoppi í desember.
í Súðavík og á Flateyri eru menn
tiltölulega bjartsýnir en á síðar-
nefnda staðnum fer togarinn í shpp
í þrjár vikur í september þannig
að þar drýgist kvóti nokkuð fram
á vetur af þeim sökum.
Hrönn keypti 5 báta
Hrönn hf., sem gerir út Guð-
björgu ÍS, hefur samtals keypt
fimm báta til að auka fastan kvóta
skipsins og sagði Þorleifur Pálsson
í samtali við DV að þær ráðstafanir
kæmu nokkuð jafnt á móti þeirri
skerðingu sem varð vegna kvóta-
skerðingarinnar og við að færa
skipið af sóknarmarki yíir á afla-
mark. Guðbjörg var þrjá mánuði í
landi í fyrra vegna sóknarmarksins
og einn mánuð til vegna lengingar
en náði þó öllum kvóta sínum. Hún
hefur verið við bryggju síðustu
viku vegna málningarvinnu.
í hraðfrystihúsinu Norðurtanga
hefur verið tekin ákvörðun um
tveggja vikna sumarfríslokun frá
seinustu vikunni í júlí og fram í
fyrstu vikuna í ágúst og þann tíma
liggur Guðbjartur ÍS bundinn við
bryggju. Hans Haraldsson hjá
Norðurtanganum sagði að þessi
ákvörðun hefði verið tekin bæði til
þess að drýgja kvóta skipsins og
eins vegna þess að á þessum tíma
væri margt af starfsfólki frysti-
hússins í fríi hvort eð væri vegna
verslunarmannahelgarinnar og
hálfur dampur á rekstrinum. Hann
vildi htlu spá um atvinnu út árið
en sagði þó að dauflega horfði með
að kvótinn dygði. Guðbjartur er á
sóknarmarki og náði öhum sínum
kvóta í fyrra þrátt fyrir margra
vikna stopp vegna mikillar klöss-
unar. í ár er hins vegar engin shpp-
taka. Hans sagði þessa sumarfrís-
lokun þó enga neyðarráðstöfun
heldur nokkuð sem væri gert mjög
víða um land þótt það hefði ekki
tíðkast á Vestijörðum.
Páli Pálssyni lagt í viku
Guðbjartur lá einnig við bryggju
fyrir nokkru í heila viku vegna
námskeiðs Slysavarnafélagsins
fyrir sjómenn. Þannig að fyrirtæk-
ið reynir að nýta stoppin á fleiri
en einn hátt.
Júhus Geirmundsson ÍS hefur
verið við bryggju undanfama daga
og fer ekki á veiðar aftur fyrr en
eftir verslunarmannahelgi.
Hraðfrystihúsið í Hnifsdal verður
lokað frá 4.-12. ágúst og Páll Páls-
son ÍS verður bundinn við bryggju
þann tíma. Þar sagði Hansína Ein-
arsdóttir augljóst að kvótinn myndi
ekki duga út árið og það væri aðalá-
stæðan fyrir þessu stoppi en einnig
að margt af starfsfólkinu tæki frí
um þetta leyti.
Hansína var reyndar sú eina sem
tók þetta djúpt í árina en aðrir
höfðu þann fyrirvara á að allt færi
eftir fiskirunu.
Tveggja vikna stopp
í Bolungarvík
í Bolungarvík hefst sumarfrís-
lokun þann 29. júh og stendur í
tvær vikur. Dagrún er farin th
veiða og selur aflann í Þýskalandi
og fer síðan í 2-3 vikna slipp. Heið-
rún mun ekki fara á veiðar á með-
an á lokun stendur og skilar þá
þeim banndögum sem eftir er að
skila á öðrum ársfjóröungi þar eð
hún er á sóknarmarki en þeir eru
nokkuð margir að sögn Jónatans
Einarssonar. Hann sagði í samtali
við DV að mönnum sýndist í dag
að kvótinn ætti að endast út árið,
auk þess sem möguleikar væru á
tilfærslum og breytingum á
rækjukvóta Sólrúnar ÍS.
Tálknfirðingur ÍS frá Tálknaflrði
stoppaði 11. júlí th að skila bann-
dögum sóknarmarksins og fer síð-
an í slipp strax eftir verslunar-
mannahelgi. Hann fer því ekki á
veiðar aftur fyrr en 20. ágúst. Hrað-
frystihúsinu er þó ekki lokað á
meðan enda nægur afli hjá minni
bátum og töluvert af skólafólki sem
kemur heim til að vinna yfir sum-
arið. Viðmælandi blaðsins þar taldi
líklegt að eins yrði í ár og oft áður
að seinni part árs yrði skipinu
skammtaður afli til þess að kvótinn
dygði a.m.k. fram í miðjan desemb-
er.
En sem fyrr segir, allt fer eftir
afla og tíðarfari og menn verða
bara að vona það besta.
!
Ný hörhutól
með traustan
bahhjarl
Farsími:
Verð frá 95.800 kr.
Nefax:
Verð frá 99.800 kr. stgr.
Póstur og sími selur aðeins það besta og
vandaðasta og er jafnframt ávallt til taks
þegar þú þarft á þjónustu að halda. Nýi
farsíminn og myndsenditækin frá Pósti og
síma eru frábrugðin öðrum tækjum, bæði í
útliti og tæknilegum eiginleikum og svo er
verðið alveg ótrúlegt.
CETELCO er farsími sem með ótal
nýjungum sannar yfirburði sína á flestum
sviðum. CETELCO farsímann er einnig
hægt að nota sem venjulegan borðsíma.
NEFAX myndsenditækin fást í tveimur
mismunandi stærðum og bjóða upp á
fjölmarga tæknilega möguleika sem flest
önnur myndsenditæki geta ekki státað af
eins og innbyggðum símsvara.
Komdu og kynntu þér þessi harðskeyttu
hörkutól nánar. Það á majrgt eftir að koma
PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símstöðvar um land allt og söludeildir
Kringlunni, Kirkjustræti og Ármúla 27