Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. FrjáIst,óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar. PALL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SÍMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Bjór eða ekki bjór Samkvæmt nýjustu tölum Áfengisverslunar ríkisins hefur áfengisneysla aukist um rúman þriðjung á þessu ári. Sala á vínum hefur dregist saman úr 380 þúsund áfengislítrum í 330 þúsund áfengislítra. Hins vegar hefur áfengur bjór bæst við, og frá 1. mars hafa samtals verið seldir 190 þúsund áfengislítrar af bjór. Þar af seldust rúmlega 60 þúsund lítrar í fyrsta mánuðinum. Samtals hefur áfengisneysla landsmanna aukist um 36% það sem af er árinu samkvæmt þessum upplýsingum Afengis- verslunarinnar. í sjálfu sér koma þessar tölur ekki á óvart. Við því mátti búast að sala á bjór yrði mikil, einkum á fyrstu mánuðunum eftir að hann var leyfður. Satt að segja var alls ekki ólíklegt að íslendingar neyttu bjórsins óspart fyrstu vikurnar og það mun meir en nú er upplýst. Bæði er að íslendingar eru offarar 1 flestu og óhófsmenn í fleiru en drykkjuskap og svo var hitt að bjór hafði verið bannaður hér í áratugi og ljóst að flóðbylgja brysti á, loksins þegar bjórdrykkja var lögleyfð. Þessar fyrstu tölur eru ekki marktækar að því leyti, að spenningurinn fyrir bjórnum og nýnæminu er mest- ur fyrst, og það mun taka þjóðina nokkum tíma að temja sér umgengni við bjórinn. Líklegast er að salan sé mest í upphafi, en muni síðan jafna sig og komast í sinn far- veg þegar frá hður. Andstæðingar bjórsins héldii því fram, að bjórinn yrði hrein viðbót við áfengisneyslu landsmanna. Þeir fullyrtu að áfengisvandamál, almenn óregla og vand- ræði vegna drykkjuláta mundu aukast. Reynslan þessa fyrstu mánuði segir annað. Lögreglu, leigubifreiðastjór- um og veitingahúsamönnum ber saman um að of- drykkja og ólæti hafi minnkað. Fólk neytir bjórs í stað sterkra drykkja og ölvun er áberandi minni og hófsam- ari. Athyghsvert er að sala sterkra vína hefur dregist saman á þessu ári, vískí 16% og vodka 9%. Léttu vínin, hvítvín og rauðvín seljast enn minna og þar fer sam- drátturinn allt upp í 26%. Annað ber einnig að hafa í huga. Áfengisverslun ríkis- ins hefúr engar tölur um þann bjór sem seldist í landinu á svarta markaðnum. Það er opinbert leyndarmál hér á landi, að kynstrin öll af bjór bárust eftir ólöglegum leiðum til landsins og í rauninni gat hver sem vildi keypt sér bjór og drukkið bjór, sem bar sig eftir því. Þetta bjórmagn kemur ekki fram í tölum fýrri ára, þegar áfengisneyslan er mæld og fullyrða má, að þegar smygl- bjórinn er meðtalinn, séu tölur um áfengisneyslu mjög svipaðar í ár og hin fyrri ár. Það er því mjög vafasamt að halda því fram að áfengisneysla hafi í rauninni auk- ist nokkuð að ráði eftir að bjór var lögleyfður. Deilur um bjór eða ekki bjór eru tilgangslausar úr því sem komið er. Bjórinn er staðreynd sem ekki verður aftur tekin. Enda hefur komið í ljós, að íslendingar eru færir um að umgangast bjór eins og aðrar siðmenntaðar þjóðir. Hins vegar er sjálfsagt og nauðsynlegt að vara áfram við neyslu áfengra drykkja og enn sem fyrr er sú gullna regla í fullu gildi, að enginn bæti sig með áfeng- inu. Það er fölsk stundargleði. Við eigum að halda uppi öflugum áróðri gegn áfengisneyslu og vara æskufólkið við fyrsta sopanum. En meðan við lifum með þeirri staðreynd að vín og bjór verði ekki bönnuð, meðan við skiljum að heimurinn verður ekki frelsaður með því að hafa vit fyrir öðrum, þá er það huggun, að hrakspámar um bjórinn ætla ekki að rætast. Ellert B. Schram Hvar eru nú stóru orðin félags- málaráðherra og forystu Alþýðu- flokksins um kaupleigukerfið sem átti að leysa húsnæðismál þjóðar- innar, ekki síst landsbyggðarinnar, með einu pennastriki? Með þessar fullyrðingar fóru ráð- herrar og forysta Alþýðuflokksins um landið allt og reyndu að sann- færa fólk um að með þessu formi húsnæðislána væri hægt að gera byltingu í húsnæðismálum hér á landi. í síðustu sveitarstjómarkosning- um trúðu margir þessum áróðri og kratar fengu út á þessa kenningu ótrúlega góða stöðu í sveitarstjórn- um víða um land sem þeir áttu síst skilið. Frumvarp um kaupleigu Yið afgreiðslu frv. um kaupleigu voru lagðar fram kannanir sem Af pólitískum hrein- leika Alþýðuflokksins í húsnæðismálum Úthlutun framkvæmdalána úr Byggsj. ríkisins VESTFIRÐIR ~ 0 150 1800 343 165 E 48 11 70 NORÐURLAND 180 VESTRA 100 6|| VESWRLAND 550 wr*™ 374 EYSTRA 100 REYKJA VÍK DVJRJ 132 I TVRLAND qQSUÐURLAND ■ ÚTHLUTAÐ m FJÖLDl UMSÓKNA REYKJANES Q „ÖRF Húsnæðisstofnun ríkisins: Samantekt vegna úthlutunar iramkvæmda- lána. • áttu að sýna þörf fyrir um 3000 slík- ar íbúðir. Reykjavík var þó ekki meðtalin nema í sambandi við ýmis félagasamtök er standa að byggingum fyrir fatlaða og aldraða. Frv. var samþykkt og báðir sjóðir Húsnæðisstofnunar, þ.e. Bygginga- sjóður ríkisins og Byggingasjóður verkamanna, voru opnaðir til út- lána fyrir þetta nýja kerfi. Ráðherra ferðaðist um landið og á fundum og ráðstefnum sveitar- stjórnarmanna voru gefin fyrirheit um fjármagn til aukinna bygginga, ekki síst til kaupleiguíbúða. Enda sagði í athugasemd með frv. um kaupleiguíbúðir „að tillögur þessa frv. taka sérstaklega mið af nauð- synlegu átaki í húsnæðismálum í þágu landsbyggðarinnar". Var von að sveitarstjórnarmenn, ekki síst fulltrúar Alþýðuflokksins, legðu trúnað á boðskap félagsmálaráö- herra? - Og ekki stóð á umsóknum og vilja sveitarstjórnarmanna til framkvæmda. Nú blasa við vissar staðreyndir sem virðast koma mörgum í opna skjöldu. - Nýafstaðin er úthlutun lána frá húsnæöismálastjóm til fé- lagslegra íbúða 1989 og 1990 þar sem nær 3 af hverjum 4 íbúðum fara til höfuðborgarsvæðisins. Landsbyggöin fer halloka í þessari úthlutun, svo ekki sé meira sagt, og vænting sveitarstjómarmanna bíður skipbrot. Hér er um að ræða síðustu úthlutun húsnæðismála- stjómar til félagslegra íbúða fyrir lok kjörtímabils sveitarstjóma. Áhersla ríkisstjórnar í stjórnar- sáttmála um aukningu íbúðarlána út um land kemur hvergi fram við þessa úthlutun. Röng framsetning í viðtölum við ýmsa aðila undan- fama daga er stjórn Húsnæðis- stofnunar borin sökum í þessu máh, sumir segja að stjómin hafi gengið gegn vilja ríkisstjórnar og félagsmálaráðherra. Ég tel þetta ranga framsetningu. Sannleikur- inn er sá að það er ríkisstjórnin, sér í lagi félagsmálaráðherra, sem hefur brugðist í þessu máh. í við- tah við sjónvarpiö sagði félags- málaráðherra að henni, og væntan- lega ahri ríkisstjórninni, kæmi ekki við ákvöröun húsnæðisstjórn- ar. Húsnæáisstjórnin beri aha ábyrgð. í öðra viðtali kóm fram að ráð- herra væri sáttur við þessa úthlut- un að öhu leyti. Það hefur komið í ljós aö félags- málaráðherra, fulltrúi ríkisstjórn- ar, boðaði ekki th fundar með hús- næðismálastjóm um þesssa vænt- anlegu úthlutun. Engin tilmæli né óskir í nafni ríkisstjórnarinnar bámst stjóm stofnunarinnar varð- andi úthlutunina. Ráðherra virðist því ekki hafa áhuga á því að standa KjaUarinn Alexander Stefánsson alþingismaður og fyrrv. ráðherra við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um sérstaka fyrirgreiðslu lána út um land. Það er einnig ljóst að aðstoðar- maður félagsmálaráðherra, sem starfar daglega í næsta herbergi við ráðherra, er einnig formaður hús- næðismálastjómar og þar með tengUiður við ríkisstjórn. Auk þess er einnig starfandi sérstakur full- trúi í félagsmálaráðuneytinu sem vinnur eingöngu í húsnæðismálum við að ná fram stefnu ráöherra og ríkisstjómar. Þess vegna veröur að draga þá ályktun að félagsmálaráðherra og aðstoðarmaöur ráðherra, formað- ur húsnæðisstjórnar, hafi verið sammála um að hafa að engu áherslu ríkisstjórnar að því er varðar að rétta við og auka hlut landsbyggðar í félagslegum bygg- ingum og aUur fagurgah og fullyrð- ingar ráðherra og annarra framá- manna Alþýðuflokksins um bylt- ingu í aukningu húsbygginga úti um land er marklaust tal, sett fram í áróðursskyni á sínum tíma í von um að almenningur sjái ekki í gegnum blekkingavefinn. Hvað verður afgangs? Ég vU minna á annan þátt í mála- fylgju Alþýðuflokksins með félags- málaráðherra í broddi fylkingar. Það er frv. til laga um húsbréf, sem samþykkt var á síðasta þingi með knöppum meirihluta, en eiga nú að vera í endurskoðun. Þar hélt ráðherra fram sömu rökum og við kaupleiguframvarpið. Húsbréfa- kerfið átti að gefa landsbyggðar- fólki auðveldan aðgang og forgang tU bygginga og kaupa á húsnæði úti um landið, auðvelda ungu fólki að fá lán o.s.frv. Nú vita allir, sem hafa lesið ný- samþykkt lög, að slík stýring er ekki til í þessum lögum. Það er fast- eignamarkaðurinn og veröbréfa- markaður sem á að framkvæma þennan þátt húsnæðismála ef til framkvæmda kemur. Sterkir byggingaraðilar á Reykja- víkursvæðinu eru þegar með fjölda stórbygginga með fleiri hundruð íbúðum í smíðum. Þessir aðUar eru tilbúnir, ásamt verðbréfafyrirtækj- um, tU að nýta húsbréfakerfið með markaðsvöxtum og ríkisábyrgð. Hvað verður afgangs til að nýta shkt kerfi úti um land? Þessar línur era settar á blað tU að sýna fram á vUjaleysi stjórn- valda sem auglýsa áherslu í stefnu- skrá, sem ekki er framkvæmd, til að sýna fram á blekkingaleik for- ystu Alþýðuflokksins að því er varðar hagsmuni og brýna þörf landsbyggðar og til að sýna einnig fram á bein svik félagsmálaráð- herra gagnvart fulltrúum sveitar- stjórnarmanna víðs vegar um landið um ákveðna fyrirgreiðslu varðandi framkvæmd laga um fé- lagslegt íbúðarhúsnæði. I sambandi við verkamannabú- staði vil ég fuUyrða að Húsnæðis- stofnun hefur heimUd tU að leigja út íbúðir í verkamannabústöðum, sem hún eignast með yfirtöku, ef markaður um endursölu er ekki fyrir hendi. Ég tel brýna þörf á því að forsæt- isráðherra leggi til að Húsnæðis- stofnun og Þjóðhagsstofnun verði nú þegar látnar framkvæma ítar- lega úttekt og áætlun um þörf fyrir aukningu á íbúðarhúsnæði á ís- landi næstu 5-10 ár. Á grundvelli slíkrar úttek,tar og áætlunar verði lögð fram tíllaga um húsnæðis- stefnu til næstu framtíðar. Vil hljótum að veröa aö átta okk- ur á því hvar takmörkin eru í íbúðabyggingum fyrir þjóð sem aðeins er 250 þúsund að mannfjölda og hvernig stýra megi með opin- bera fjármagni eðhlegri dreifingu nýbygginga með tilUti til skyn- samlegrar búsetu í landi okkar sem við viljum að sé allt í byggð. Alexander Stefánsson. „Sterkir byggingaraðilar á Reykjavík- urs'væðinu eru þegar með Qölda stór- bygginga með fleiri hundruð íbúðum í smíðum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.