Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Síða 17
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. 17 Lesendur „Áfenga ölið á skilyrðislaust að vera til sölu í stóru matvörumörkuöunum ásamt öðrum drykkjarvörum," segir bréfritari m.a. Bjórinn og létta vínið í matvöruverslanir: Hættan liðin hjá Tómas Jónsson skrifar: Það hefur nú sannast fyrir öllum landslýð að hingaðkoma áfengs öls hefur ekki reynst sá bölvaldur sem sumir óttuðust. Ég og margir aðrir vorum á annarri skoðun frá upphaíi og sögðum að það tæki ekki nema skamman tíma fyrir fólk að venjast því að áfengt öl væri hér til sölu á frjálsum markaði. Ástæðan er sú að allflestir landsmenn höfðu átt að- gang að þessu öli gegnum ólögleg sambönd. Einnig að landsmenn voru búnir að venjast þessum drykk á hin- um tíðu ferðalögum til útlanda og engum þótti lengur varið í að drekka sig ofurölvi af bjór. Nú er hins vegar tími til kominn að vera ekki að pukrast með þessa ágætu vörutegund sem eldvatn væri og setja undir sama hatt og sterku áfengistegundirnar sem eru seldar í Ríkinu eingöngu vegna ímyndaðrar hættu á að fólk undir lögaldri, eins og það er kallað, geti keypt þær. Áfenga öhð á skilyrðislaust að vera til sölu í stóru matvörumörkuðunum ásamt öðrum drykkjarvörum. Hið sama gildir um létt borðvín. Það er ótækt að þurfa alltaf að fara sérstak- lega í einhverjar sérstakar vínbúðir, sem heldur eru ekki opnar nema til kl. 18 á föstudögum, ef manni dettur í hug að kaupa bjór með matnum á föstudagskvöldi eða á laugardegi. Ég skal hins vegar samþykkja að selja megi minnst 6 bjóra í pakka ef hann fengist í matvöruverslunum. Ég sé ekki nokkra ástæðu til að verða ekki við þessum óskum fólks, eftir að sannast hefur að þvi meira frelsi í þessum málum þeim mun minni ástæða er til að óttast ofneyslu eða aðra misbrúkun. Þetta myndi einnig auka tekjur ríkisins að mun. Ekki mun af veita. Stefnulaus hreppa- pólitík Framsóknar Jónas Gunnarsson hringdi: Á meðan stefnulaus hreppapólitík ráðskast með íslensk stjórnmál, eins og Framsóknarflokkurinn nú gerir, er eðlilegt að hrepparígur myndist milli byggðarlaga út af kvótastefnu. Óopnuö brennivínsflaska þarf eng- um að vera hættuleg. Framsóknar- flokkurinn ógnar heldur engum, svo framarlega sem fólk lætur ógert að kjósa hann. Fyrir nokkrum árum sat ég inni á matstofu Miðfells þar sem þáverandi frambjóðandi, Guðmundur G. Þórar- insson, ætlaði að halda framboðs- ræðu. Ég hætti við að borða og gekk út. Ég spyr ykkur, lesendur góðir; Á fólk að borða bíla þegar landbúnað- arafurðir eru urðaöar á haugunum? Einu sinni var ég vélstjóri á bát sem hét Þorsteinn GK og var á rækjuveið- um. Ég treysti sjálfum mér, með tak- markaða þekkingu á siglingatækj- um, miklu fremur til að sigla innan um ísjaka heldur en nokkru sinni að kjósa „hlutlausa" hreppapólitík eins og Framsóknarflokkinn. Þingmönnum þarf að fækka Rónar í miðbæ Reykjavíkur Kristinn Sigurðsson skrifar: Það er vægast sagt ömurleg auglýs- ing sem blasir við erlendum ferða- mönnum sem fylla götur Reykjavík- ur, þar sem eru rónar sem ráfa um göturnar eða hanga á bekkjum við Útvegsbankann eða á móti Reykja- víkurapóteki. - Ekki er þetta í aug- lýsingabæklingum Ferðamálaráðs. Mér er spurn; á þetta að vera svona til frambúðar, borgaryflrvöld? Þiö tahð um hreina og fagra borg. Borgin er ekki hrein á meðan þessir rónar eru áberandi í höfuðborginni. Lög- reglan sést afar sjaldan í miðborg- inni. Það mætti ætla að hún væri ósýnileg! Ef borgaryfirvöld láta kyrrt liggja, verður dómsmálaráðherra aö láta máliö til sín taka og skikka lögreglu- stjóra til aö beita sér meira en hann gerir. Hann virðist líka láta undir höfuð leggjast að taka til hendinni í þessu máh. Ólafur hringdi: Ég vil gjaman taka undir með Óskari sem skrifaði lesendabréf í DV sl. þriðjudag (18.7.) um svar forseta sameinaðs Alþingis við þeirri spumingu hvort fækka eigi þingmönnum. En eins og fram kemur í bréfi Óskars er forscti sameinaðs þings þeirrar skoðunar að yröi þingmönnum fækkað fjölg- aði opinberum erabættismönnura að satna skapi. Ég er þeirrar skoðunar að fækka beri þingraönnum verulega - allt Það er vitað að margir opinberir embættismenn eru uppteknir við að vinna skýrlsur og ne&darálit aö beiöni þingmanna sem segjast surair hverjir ekki hafa aðstöðu til að gera það. Aðrir eru eflaust ekki kunnáttumenn á sviði skýrlsu- gerða og þykir því gott að geta no- tiö starfskrafta embættismanna sem margir eru sérfræðingar, ein- mitt í skýrslugerð og uppsetningu súlnarita. En krafan um fækkun þing- manna stendur óhögguð hjá mikl- um meirihluta þjóðarinnar, að ég niður í 40, jafnvel 30. Ef þaö yrði gert þá myndi álag á hina opinberu embættismenn og starfsmenn hinna ýmsu ríkisreknu spá- og hag- deilda minnka mikið og þar meö mætti einnig draga saman seghn í mannahaldi hjá opinberum stofh- unum. tel. - Um þetta mætti nú spyrja sérstaklega i einhverri skoðana- köraiuninni og þá gætu þingmenn varla sniðgengið vilja landsmanna, kæmi í ljós að þeir væru hlynntir fækkun þeirra. m—'-'. . igin umhverfísmengun Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og endast lengur en venjulegar rafhlöður. Stuðlum að hreinu umhverfi - notum Green Power rafhlöður. Nýju Wonder rafhlöðurnar, Green Power, eru algerlega kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar „hreinni" orku og valda engri umhverfismengun. Þess vegna má að skaðlausu henda þeim að notkun lokinni. Lífrænt efni hefur nú komið í stað kvikasilfurs. Olíufélagið hf SUÐURLAIMDSBRAUT 18 SfMI 681100 Heildsala og smásala: Pízza dagsíns - hrásalat og lasagne VERIÐ VELKOMIN Sími 685670 Opiðalladagafrákl. 18.00-23.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.