Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Side 20
20 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Iþróttir Fylkir-Fram................0-3 KA-FH......................1—1 ÍA-KR......................1-0 Valur-ÍBK..................2-2 Fram......10 6 Valur.....10 5 FH........10 4 1 3 15-8 19 2 3 12-0 18 4 2 14-10 16 KA..........10 4 4 2 14-10 16 ÍA..........10 5 14 12-12 16 KR..........10 4 3 3 15-13 15 ÍBK.........10 3 3 4 11-16 10 Þór..........9 2 3 4 9-13 9 Vflongur.....9 2 2 5 13-13 8 Fylkir......10 2 1 7 7-21 7 • Síðasti leikur 10. umferðar veröur í kvöid og leika þá Víking* ur og Þór á heimavelli Víkings í Stjömugróf kl. 20. 11. umferð hefst á miövikudagskvöldið með leik Fram og KA á Laugardal- svelh. Á fimmtudagskvöldið veröa þrír leikir á dagskrá. FH og ÍBK leika í Kaplakrika, KR og Vflangur leika á KR-velIi og ÍA og Valur leika á Akranesi. 11. umferð lýkur með leik Þórs og Fylkis á Akureyri á íöstudags- kvöldið. -JKS £ £ Sport- stúfar Mölin happavöllur fyrir ÍR-inga Malarvöllur ÍR-inga í Mjóddinni hefur reynst Breiðhylting- um mikill happavöll- ur. Á laugardag unnu ÍR-ingar topphð Stjörnunnar á malar- vellinum, 1-0. í fyrra léku ÍR- ingar einnig á malarvellinum. Þá fengu þeir Vestmannaey- inga í heimsókn og unnu þá ÍR-ingar stórsigur, 5-0. Það er greinilegt að útiliöin kunna ekki vel við sig á þessum velli og„ spurning hvort ÍR-ingar ættu ekki að spila alla leiki sína á malarvellinum. Gæði knatt- spymunnar eru kannski ekki upp á það besta á möl en það eru stigin sem skipta hvert hð máh. Everton og Arsenal vilja Goodman Ensku 1. deiidar fé- lögin Everton og Arsenal eru áhöttun- um eftir Don Good- man sem leikur með West Bromwich Albion. Goodman var markahæstur hjá WBA í fyrra og skoraði leikmaðurinn þá 17 mörk. Goodman er mikih hlaupagikkur og talinn einn sá flljótasti í enska boltanum. Brian Talbot, framkvæmda- sljórí WBA, er þó ekki á því að láta Goodman fara og hefur sett hátt kaupverð á leikmann- inn eða eina og hálfa mihjón punda. Úlfarnir með Batman og Robin Graham Tumer, framkvæmdastjóri Úlíanna, segist hafa hættulegasta sókn- arparið í allri deildinni og þó víðar væri leitað. Þar á hann viö þá Steve BuU og Andy Mutch sem raetnir eru á miklar fjárhæðir. Tumer hefúr hafiiaö öhum tflboðum í leikmennina en vitaö er að mörg stærstu hð- in era tilbúin að borga stórar fúlgur fyrir tvímenningana. Turner sagði á blaðamanna- fundi á dögunum að á meðan nýjasta Batman-myndin væri að slá aðsóknarmet í kvik- myndahúsunum væru þeir Batman og Robin tii sýnís á heimavelh Úlfanna í vetur og átti Tumer þá vlö sóknarpariö Buh og Mutch. Þelr hafa nú fengið viöumefnin Batman og Robin hjá féiögum sfnum f Wolves. £ • Sævar Jónsson í skallaeinvígi við einn leikmann Keflvíkinga í leiknum á Hlíðarenda. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og Valsmenn eru því fallnir af toppi 1. deildar. DV-mynd GS Valsmenn nentu frá sér sigrinum misstu niður tveggja marka forystu á tveimur mínútum Valsmenn hreinlega hentu frá sér sigrinum er þeir og Keflvíkingar skildu jafnir á Hhðarenda í gær- kvöldi, 2-2. Það var Kjartan Einars- son sem var hetja Keilvíkinga en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk á aðeins tveimur mínútum og það síðara var stórkostlegt. Leik- urinn í heildina var slakur og einn lélegasti leikur Valshðsins í sumar. Fyrri hálfleikur var tíðindahtiU og htið um marktækifæri. Á 57. mínútu skoraði Hahdór Áskelsson fyrra mark Vals, Baldur Bragason gaf fyr- ir mark ÍBK og þar myndaðist mikil þvaga og boltinn barst út til Halldórs sem skaut góðu skoti í mark ÍBK, óveijandi fyrir Þorstein Bjamason, markvörð ÍBK. Á 66. mínútu átti Ing- var Guðmundsson í hði ÍBK gott skot í slá og yfir eftir að hafa komist inn fyrir vöm Vals. Á 83. mínútu fengu Valsmenn vítaspyrnu eftir að Sigur- jón Kristjánsspn hafði verið felldur inni í vítateig ÍBK og úr henni skor- aði Sævar Jónsson örugglega. Eftir annað mark Vals hættu Vals- menn og héldu að öll stigin þrjú væru í höfn en Keflvíkingar voru á öðru máli. Óh Þór Magnússon gaf háan bolta inn í teig Valsmanna eftir homspymu og þar stökk Kjartan Einarsson manna hæst og skoraði með góðum skalla, stöngin inn. Að- eins tveim mínútum síðar tók Kjart- an Einarsson, maður leiksins, sig til og óð upp völlinn, tók boltann laglega í gegnum klofið á einum vamar- manni Vals, lék boltanum áfram og skaut föstu skoti efst í markhornið rétt utan vítateigs. Algeriega óverj- andi fyrir Bjarna markvörð Sigurðs- son í marki Vals og fögnuður Kefl- víkinga var ekki lítill eftir þetta frá- bæra mark Kjartans. Valsmenn geta engum öðrum en sjálfum sér kennt um hvernig fór. Dómari: Ágúst Guðmundsson..z z Maður leiksins: Kjartan Einarsson, ÍBK. MHM • Alexander Högnason var traustur í vörn Skagamanna ásamt Siguröi B. Jónssyni sem var besti maður vallarins er Skagamenn unnu mikil- vægan sigur á KR-ingum i 1. deild á laugardag. Tilþrifalítið á Akranesi - er Skagamenn sigruðu KR-inga, 1-0 Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: „Ég var alls ekki ánægð- ur með leikinn sem slík- an. Hann var ekki mikið fyrir augað. Mér fannst hins vegar mínir menn berjast vel og stigin em auðvitað mjög mikil- væg fyrir okkur. Við máttum hreinlega ekki við því að tapa nú eftir þrjá tapleiki í röð,“ sagði Sig- urður Lámsson, þjáifari Skaga- manna eftir sigur hans manna gegn KR, 1-0, í 1. deild á Akranesi á laugardag. Það var lítil reisn yfir viðureign toppbaráttu hðanna ÍA og KR á laug- ardaginn. Úrsht hefðu getað orðið á hvom veginn sem var en vamarmis- tök Vesturbæinga urðu þeim að falh. KR-ingar hófu leikinn af heldur meiri krafti en heimamenn. Bjöm Rafnsson átti ágætan skaha að marki Skagamanna en framhjá. Um mínútu síðar skapaðist enn hætta við mark heimamanna en skot Þorsteins Hall- dórssonar hafnaöi í þverslánni. Páll Guðmundsson svaraöi fyrir ÍA með stangarskoti skömmu síðar og tveim- ur mínútum seinna dró aftur til tíð- inda við mark gestanna. Arnar Gunnlaugsson átti þá skot aö marki KR en boltinn fór í varnarmann. Þaðan barst knötturinn til Stefáns Viðarssonar sem stóð einn og óvald- aður við markteig og átti ekki í erf- iðleikum með að skalla knöttinn framhjá Þorfinni Hjaltasyni í marki KR. Seinni hálfleikur sór sig í ætt við þann fyrri. Leikurinn einkenndist af sæmiiegri baráttu en samleikur var sjaldan fyrir augað og verulega hættuleg tækifæri voru fá. Jafnræði var með liðunum lengst af í leiknum en bæði liö léku fremur illa. Sigur Skagamanna var ekki ósanngjarn en bæði lið hefðu átt að geta sætt sig við jafntefli. Vörn KR-inga var sterk og þeir voru einnig heldur sterkari á miðj- unni en sóknarlotur þeirra voru flestar máttlausar og gáfu ekkert af sér. Enginn sýndi afgerandi góða frammistöðu. Sigurður B. Jónsson og Alexander Högnason voru traust- ir í vörn ÍA og Haraldur Ingólfsson, Aöalsteinn Víglundsson og Karl Þórðarson sýndu góða viðleitni á köflum. Vörn KR var sterk sem fyrr segir en annars var liö Vesturbæinga jafnt. Rúnar Kristinsson og Sæbjöm Guðmundsson áttu ágæta spretti. Maður leiksins: Sigurður B. Jónsson. Dómari: Magnús Jónatansson.. Áhorfendur: 781.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.