Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. 21 Iþróttir Islandsmótið -1. deild Framarar komnir á fullt skrið t - Fram vann sannfærandi sigur á Fylki í Árbænum, 0-3 Framarar áttu ekki í miklum erf- iðleikum með að sigra botniið Fylkis í Árbænum á fóstudagskvöldið. Meistararnir unnu 3-0 sigur og sýndu mjög góðan og sannfærandi leik. Framarar gerðu út um leikinn snemma í fyrri hálfleiknum og gerðu þá reyndar öll mörkin. Strax á 9. mínútu skoraði Guðmundur Steins- son sitt 7. mark á keppnistímabilinu eftir einfalda sókn. Guðmundur Baldursson virtist hafa boltann þeg- ar Ómar Torfason skallað inn í víta- teiginn en bakkaði inn í markið og nafni hans Steinsson átti þá ekki í vandræðum með að skora, 0-1. Nokkrum mínútum síðar gerði Ómar Torfason annað mark Fram af stuttu færi og var þá vörn Fylkis illa á verði. Ragnar Margeirsson gerði síðan út um leikinn þegar hann komst einn inn fyrir vöm Fylkis eft- ir sendingu frá Pétri Ormslev og Rágnar skoraði af öryggi, 0-3. Síðari hálfleikur var nánast forms- atriði. Fylkismenn voru þá mun frískari og Framarar gáfu ósjálfrátt dáhtið eftir. Leikurinn var þó opinn og bæði Uð fengu góð marktækifæri. Guðmundur Steinsson fékk tvö nyög góð færi en Guðmundur Baldursson varði meistaralega í bæði skiptin. Fylkismenn fengu einnig sín færi. Fyrst átti Anton Jakobsson hörku- skot en Birkir Sigurösson varði og skömmu síðar lokaði Birkir markinu þegar Guðmundur Magnússon var í algeru dauðafæri. Mörkin urðu samt ekki fleiri og Framarar fögnuðu góð- um sigri. Framhðið lék eins og smurð vél og aUt annað er að sjá til Uðsins nú en í fyrstu leikjum íslandsmótsins. Kristinn R. Jónsson var að öðmm ólöstuðum besti maður Uðsins. Hann byggði upp sóknir Uðsins og virðist vera búinn að taka við því hlutverki af Pétri Ormslev. Ragnar Margeirs- son og Guðmundur Steinsson vom góðir frammi og Birkir varði vel í markinu. Lið Fylkis var slakt í þessum leik. Liðið virðist vera búið að missa aUt sjáifstraust og þaö kann ekki góðri lukku að stýra. Loftur Ólafsson var einna skástur í Uðinu og Hilmar Sig- hvatson átti ágæta spretti. Dómari: Friðgeir HaUgrímsson....iWr Maður leiksins: Kristinn R. Jónsson. -RR • Ragnar Margeirsson sést hér skora þriðja mark Framara gegn Fylki á föstudagskvöldið. Framarar sigruðu í leiknum, 3-0, og eru komnir á toppinn í 1. deiid eftir að Valsmenn gerðu aðeins jafntefli við Kefivíkinga í gærkvöldi. DV-mynd GS Pizzusmiðjan í Smiðjukaffi kynnir sínar frábæru pizzur í hálfleik, einnig kók. & FH-ingar stálu stigi á Akureyri - KA og FH gerðu jafntefli, 1-1 Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: KA-menn geta við sjálfa sig sakast varðandi það að hafa ekki hirt öll stigin þrjú sem í boði voru er þeir fengu FH í heimsókn á fóstudags- kvöldið. Þeir klúðruðu aragrúa tæk- ifæra eða létu HaUdór HaUdórsson, markvörð FH og besta mann vaUar- ins, verja og FH-ingamir skutust heim á leið með eitt dýrmætt stig í pokahominu eftir 1-1 jafntefh. Ekki hefði verið ósanngjarnt að KA hefði skorað 3-4 mörk fyrstu 25 mín- útur leiksins. Sérstaklega vom Jóni Grétari mislagðir fætur uppi við mark FH og svo kom mark frá Hafn- firðingunum eins og köld vatnsgusa framan í KA-menn á 31. mínútu úr þeirra eina hættulega marktækifæri í leiknum. Vamarmenn KA vom þá sofandi inni í eigin teig og lengi að hreinsa frá. Pálmi Jónsson sótti að einum þeirra, náði boltanum af honum og renndi í markið af stuttu færi. KA jafnaði svo skömmu síðar. Jón Grétar komst einn innfyrir eftir hrikaleg mistök Bjömssonar í vörn FH. Skot Jóns Grétars fór í þverslána og út en þar kom Antony Karl, kast- aði sér fram og skaUaði faUega í markið. KA hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og marktækifærin vom mörg. Þorvaldur Örlygsson fékk tvö dauðafæri og oft skaU hurð nærri hælum við mark FH, boltinn fór í þverslána eða rétt framhjá og HaU- dór bjargaði oft meistaralega í mark- inu. KA tapar því enn stigum á heima- veUi og likur Uðsins á aö vera í bar- áttu efstu liða minnkar með hveiju slíku áfaUi. Það vantar ekki að Uðið fær tækifæri til aö gera út um leikina en færin eru ekki notuð. Antony Karl var besti maður KA í þessum leik, sívinnandi og ógnandi. Þá átti Ormar góða spretti en minna kemur út úr honum í sóknarleiknum en þegar hann var með Fram. Hjá FH var Halldór HaUdórsson mark- vörður geysisterkur og bjargaði oft glæsUega og Ólafur Jóhannesson var sem klettur í annars óömggri vöm Uðsins. Sveinn Sveinsson dæmdi leikinn og hefur oftast gert betur, fær eina stjörnu. Maður leiksins: Halldór HaUdórsson, FH. Sportbúð Kópavogs Stuðningshappdrætti ÍK Vinningsnúmer 84 Árangur í 4. umferð 16 stig af 49 = 33% Markaskorarar í 4. umferð: Úrslit í 4. umferð: 3/71.ÍI. ÍK-ÍR.......0-1 4/7 5. fl. AÍK-ÍBK..3-1 4/7 5. fl. BÍK-ÍBK..2-1 5/74. fl. ÍK-Afture..6-0 6/7 3. fl. Víkingur - í K ...8-0 7/7 3. d. ÍK-Hverag..3-0 8/74. fl. Þór, V.-ÍK.Fr. 8/6 fl. A Þrótt., R.-ÍK...3-2 8/7 6. fl. A FH — ÍK.8-0 8/7 6. fl. B Þróttur - ÍK ..3-0 8/76. fl. BFH-ÍK...10-1 9/72.ÍI. ÍK-ÍBV.......Fr. 9/7 4. fl. Týr, V.-ÍK.Fr. 9/7 6. fl.A ÍK - Grindav. 3-2 9/7 6. fl. B ÍK - Grindav.2-0 11/73. d. Reynir S. - ÍK1-0 11/7 5. fl. A. Leikn. — ÍK 3—1 11/75. fl. B. Leikn.-ÍKO-O 13/73-fl. ÍK-UBK....1-4 16/7 3. d. í K - Grindav. .2-2 Meistarafl.: 4. flokkur: 5. flokkur: 6. flokkur: Hörður Már Magnússon ...1 Reynir Björnsson........2 Steindór Elísson.......1 Júlíus Þorfinnsson......1 Erpur Sigurðarson.......2 Ivar Jónsson............2 Georg Georgsson.........2 Atli Kristjánsson.......2 Karl Einarsson..........2 Ólafur Júlíusson.... Óli Þór Júlíusson... Willy ÞórÓlafsson.... Guðjón Gunnarsson. Hilmar Hilmarsson.... ...2 ..2 ...2 ...1 ...1 Haukur Bjarnason...........2 5. umferð hafin, vinningar m.a. úttekt á sportvörum í Sportbúð Kópavogs fyrir allt að 15.000 kr. og lúxusferð til Flórída fyrir tvo í þrjár vikur. - Finnið ÍK-tengilið og verið með. Sportbúð Kópavogs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.