Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
íþróttir
íslandsmótið - 2.
deild:
Sigur hjá
Leiftri
Kormákur Bragason, DV, Óla£sfir&
Leiftursmenn löguöu marka-
Wutfall sitt verulega á fóstudags-
kvöldiðer þeir sigruöu Einheija,
3-0, í Ólafsfirði. Sigurinn heföi
getað orðið mun stærri þvi Ólafs-
firðingar fengu mörg góð mark-
tækifæri sem ekki nýttust.
Strax á 10. mínútu áttu Leift-
ursmenn tvö mjög góð færi eftir
undirbúning David Udrescu.
Hann lék á nokkra vamarmenn
Vopnfirðinga en sóknarmönnum
Leifturs mistókst að skora. Fleiri
færi litu dagsins ljós en á 38. mín-
útu tókst Ólafsfirðingum loks að
skora. Garðar Jónsson skoraði
eftir undirbúning Guömundar
Garðarsonar.
Það sem eftir var leiksins sóttu
Leiftursmenn og léku Einheija-
menn oft sundur og saman. Á 65.
mínútu skoraði David Udrescu
beint úr aukaspymu rétt uan
vítateigs. Stuttu seinna fékk
Garðar Jónsson dauöafæri en
skaut rétt framhjá. Á næstu mín-
útu skoraöi Hafsteinn Jakobsson
þriðja mark heimamanna með
þrumuskot. Þeir fáu Ólafsfiröing-
ar sem mættir voru á leikinn fóru
ánægðri heim enda ekki á hveij-
um degi sem Leftur skorar 3
mörk.
Hndastóll
í miklum
ham a
Króknum
• Mynd úr leik ÍR og Stjörnunnar í Breiðholti á laugardag. ÍR-ingar komu á óvart og sigruðu Garðbæinga, 1-0, i spennandi leik. DV-mynd GS
Stjarnan hrapaði
í Breiðholtinu
{xjihaDur Ásmundss., DV, Sauðódcrókr
Tindastólsmenn sýndu loks sitt
rétta andlit á Sauöárkróki á
föstudagskvöldið er þeir tóku
Völsunga í hreina kennslustund
og 8igruðu, 5-0. Þetta var fyrsti
sigur Tindastóls á heimavelli í 2.
deild.
Heimamenn höföu mikla yfir-
burði í ieiknum og gat sigur
þeirra orðið enn stærri. Tinda-
stóll haföi 2-0 forystu í hálfleik
og skoruðu þeir Eyjólfur Sverris-
son og Guðgeir Marteinsson
mörkin. í siöari hálfleik bættu
þeir Ólafur Adolfsson, Stefán Pét-
ursson og Eyjólfur Sverrisson við
þremur mörkum.
Völsungar komust litið áleiöis
gegn friskum og ákveðnum
Tindastólsmönnum og áttu í vök
að veijast allan' leikinn. Með
sama leik eiga Tíndastólsmenn
eftir að sópa inn stigum en hðið
hefur verið óheppið í leikjum sín-
um í 2. deildinni í sumar.
2.deild
/ staóan /
ÍBV-Breiðablik..............3-2
ÍR-Stjarnan.................1-0
Tindastóll-Völsungur........5-0
Leiftur-EinheijL.-..........3-0
Víðir-Selfoss...............1-2
Sfjaman......9 6 1 2 22-11 19
ÍBV..........8 6 0 2 21-13 18
Víðir........9 5 2 2 13-9 17
Selfoss......9 5 0 4 10-13 15
Breiðablik...9 4 1 4 20-15 13
Leiftur......9 3 3 3 3-9 12
ÍR...........9 3 1 5 8-11 10
Völsungur....9 2 2 5 14-23 8
TindastóU....9 2 1 6 13-14 7
Einherji....8 2 16 3-21 7
IR-ingar unnu óvæntan sigur á toppliðinu
Stjarnan, topplið 2. deildar, tapaði
óvænt fyrir ÍR-ingum á malarvellin-
um í Breiðholti á laugardag. Leikn-
um lauk með sigri ÍR, 1-0, og þaö var
slysalegt sjálfsmark Garðbæinga
sem réð úrslitunum í leiknum.
Það var strax á 3. mínútu sem Eg-
íll Einarsson, vamarmaður Stjöm-
unnar, renndi boltanum framhjá
markverði sínum, Sigurði Guð-
mundssyni, og í eigið net. Hrikaleg
byijun fyrir Stjömumenn og þaö átti
eftir að koma í ljós að þetta var sann-
arlega ekki þeirra dagur.
Fyrri hálfleikur var annars frekar
tíöindalítill. Stjömumenn áttu
nokkrar hættulegar sóknir en eina
góða færið sem þeir sköpuðu sér í
fyrri hálfleik fékk Loftur Steinar
Loftsson þegar hann skaut í hliðar-
netið úr upplögöu færi.
Stjörnumenn voru nálægt því aö
jafna í upphafi síðari hálfleiks þegar
Sveinbjörn Hákonarson komst í
gegnum vörnina en skaut naumlega
framhjá. Vöm Stjömunnar virkaði
mjög óörugg og Bjami Benediktsson
var næstum því búinn að bæta öðru
sjálfsmarkinu við þegar hann skall-
aði yfir Sigurö Guðmundsson, mark-
vörð sinn, en boltinn fór rétt yfir. Á
næstu mínútu fékk Jón Gunnar
Bjarnason gott færi en skaut fram-
hjá. Breiðhyltingar fengu annaö gott
færi þegar Sigurfinnur Sigurjónsson
komst aleinn inn fyrir en Sigurður
Guðmundsson hirti boltann af fótum
hans. Stjörnumenn reyndu aö byggja
upp sóknir en vöm ÍR var vel á
verði. Undir lokin komu örvænting-
arfull skot sem voru hættulaus og
ÍR-ingar fognuðu sanngjömum sigri.
ÍR-ingar böröust mjög vel og það
er furða hversu neðarlega liðið er í
2. deild miðaö við þennan leik.
Stjörnumenn áttu sinn lélegasta
leik í sumar og hefur mölin örugg-
lega haft sín áhrif. Það er þó lítil af-
sökun og liðiö veröur að vera meira
sannfærandi ef það ætlar aö halda
toppsætinu.
-MH
IBV heldur slnu striki
- Sigurlás skoraði tvö er ÍBV sigraði Breiðablik, 3-2
Berglind Ómarsdóttir, DV, Eyjum:
£
Eyjamenn halda áfram á
sigurbraut en liðið hefur
átt að fagna góðu gengi
í undanfomum leikjum.
Liöið er meðal annars komið í
undanúrslit bikarkeppninnar. Á
fostudagskvöldiö sigruðu Eyja-
menn lið Breiðabliks í 2. deildinni,
3-2, í Vestmannaeyjum eftir að
staöan í leikhiéi var 1-0 fyrir
heimamenn. Staða Eyjamanna er
sterk í 2. deild, liðið er 1 öðru sæti
og á að auki einn leik til góða gegn
Einheija.
öll mörk ÍBV
skoruð með skalla
Eyjamenn vora mun frískari í fyrri
hálfleik og áttu fjöldan allan af tæk-
ifærum en tókst aðeins að skora einu
sinni. Sigurlás Þorleifsson var þar
aö verki á 20. mínútu með skalla en
öll mörk Eyjamanna vom skoruð
meö skalla. Eyjamenn áttu meöal
annars skot í slá og stöng.
Róbert Haraldsson jafnaöi fyrir
Breiðablik strax í upphafi seinni
hálfleiks en hann var þá nýkominn
inn á sem varamaður. Sigurlás var
aftur á ferðinni á 65. mínútu og Tóm-
as Ingi Tómasson kom Eyjamönnum
í 3-1 sjö mínútum síðar. Sigurður
Halldórsson minnkaöi muninn fyrir
Kópavogsbúa tíu mínútum fyrir
leikslok og þar við sat.
Eyjamenn unnu sanngjaman sigur í
leiknum. Þeir léku mjög vel, sérstak-
lega í fyrri hálfleik en voru þá
óheppnir aö skora ekki fleiri mörk.
Sigurlás Þorleifsson var besti maöur
vallarins í leiknum, var mjög ógn-
andi og skapaði oft usla í vörn
Breiðabliks.
Breiðabliksliöiö var mjög jafnt í
leiknum og sýndi á köflum í síðari
hálfleik ágætan leik .
• Sigurlás Þorleifsson skoraöi tvö
mörk gegn Breiðabliki.
Vfðir að missa af lestinni?
Vignir RúnaiBson, DV, Garði:
Knattspyman, sem liöin sýndu,
var ekki upp á þaö besta. Rok og
rigning settt einnig svip sinn á leik-
inn. Selfyssingar voru sterkari í
fyrri háifleik og strax á 12. mínútu
náðu þeir forystunni með marki
Hilmars Gunnlaugssonar þar sem
hann þmmaði knettinum glæsilega
efst í markhomið.
í síöari hálfletk sóttu Víöismenn
öllu meira en illa gekk aö brjóta
þétta vöm Selfyssinga á bak aftur.
En sókn Garðsmanna bar þó loks
árangur á 74. minútu þegar Guö-
mundur Erlingsson, markvörður
Selfoss, braut á Bimi Ingimarssyni
innan vítateigs. Vilberg Þorvalds-
son tók vítiö og skoraöi af öryggi.
Fjórum minútum fyrir leikslok
fengu Selfyssingar síðan víta-
spymu þegar knötturinn hrökk í
hönd Vilhjálms Einarssonar. Ólaf-
ur Ólafsson skoraöi úr vítinu.