Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
29
íþróttir
hálfa dagínn en þeir faœltu um betur.
DV-mynd Garðar H. Svavarsson.
Laxá á Ásum:
Yfir 300 laxar
komnir á land
- Þorsteinn, Ólafui'. Jóhann Óli, Ólafiir og Gai'öar meö 20 laxa
„Þessi veiði er góð ixjá þeim Þor-
steini Pálssyni, Ólafl G. Einars-
syni, Ólafi Egilssyni, Jóhanni Óla
Guðmundssyni og Garðari H. Sva-
varssyni sem veiddu 20 laxa, flesta
á flugu, aðeins Ólafur G. Einarsson
og Garðar H. Svavarsson hafða
veitt í Ásnum áður,“ sagði tíðinda-
maður okkar um fimmmenning-
ana í Laxá á Ásum sem komu ánni
yfir 300 laxa á laugardaginn, en
veiðin hefur verið mjög róleg 1 Laxá
á Ásum en þó er aðeins að lifna
yfir henni.
Þeir Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, Ólafur G. Ein-
arsson alþingismaður, Ólafur Eg-
ilsson sendiherra, Jóhaim ÓU Guð-
mundsson, forstjóri Securitas, og
Garöar H. Svavarsson kaupmaður
veiddu á einum degi 20 laxa og
flesta á flugu. Veiðin skiptist jafnt
á milli þeirra og var miimsti laxiim
5 pund en sá stærsti 13 pund, veidd-
ur á flugu. Þessi veiði er góð því á
undan þeim Þorsteini og félögum
voru hörkuduglegir veiðimenn.
„Það er reytingur af laxi en ekki
mikiö, við veiddum laxana í Klapp-
arstreng, Holtskvörn, Krókhyl, Ull-
arstreng, Sauöaneskvöm og
Kvarnarhorni svo einhverjir veiði-
staðir séu nefndir. Viö misstum
nokkra laxa, þeir tóku fluguna tæpt
en allir höfðu gaman ,af þessu og
svo var aflanum jaftit skipt," sagði
okkar maður á árbakkanum.
Á undan þeira í ánni voru þeir
Þórarinn Sigþórsson og Sigmar |
Bjömsson, veiddu þeir 46 laxa i
er það met í sumar. G.Bender |
Ólafur Egifsson sendiherra með lax úr Laxá á Ásum.
DV-mynd G.Bender I
Vatnasvæði Lýsu:
Laxmn fannn að vciðasf
- 22 punda lax úr Sandá 1 Þistilfirði
„Veiðin er öll að koma til og lax-
arnir eru famir að veiðast víða á
svæðinu, síðasta vika hefur geflö
þá nokkra," sagöi Símon Sigurm-
onsson á Görðum á Snæfellsnesi í
gærkveldi en mjög hefur lifnaö yfir
veiöinni siðustu daga. „í Torfa-
vatni veiddist lax í dag og fjórir í
hínum vötnunum. Hérna hjá mér
núna eru íslenskir og þýskir
siökkviliðsmenn sem fengu sér lax
í matinn. En mikið hefur verið um
ferðamenn hérna og oft yfirfullt hj á
okkur. Bleikjuveiðin hefur verið
þokkaleg og þá í Hópinu.
Sandá í 90 laxa
„Sandá í Þistilfirði er kominn í
90 laxa og hann er 22 pund sá |
stærstisagði Garðar H. Svavars-
son í gærkveldi. „Þaö er ekki mikið I
af laxi i ánni en þeir em vænir sem |
veiðast. Netaför eru töluverð á löx-
unum og einn eldislax veiddist fyr-
ir skömmu, hann var tvö pund,“ |
sagöi Garðar ennfremur.
G.BenderI
Opna breska meistaramótið:
Calcavecchia
sigraði eftir
bráðabana
Mark Calcavecchia frá Bandaríkj-
unum varð sigurvegari á opna bresk-
a meistaramótinu í golfi sem lauk í
Troon í Skotlandi í gær. Calcavecc-
hia tryggði sér sigurinn eftir æsi-
spennandi bráðabana við Ástralana
Greg Norman og Wayne Grady.
Þegar 4 umferðir eða 72 holur höfðu
verið leiknar stóðu Calcavecchia,
Norman og Grady allir jafnir með 275
högg eöa 13 högg undir pari. Þeir
þurftu því að leika 4 holur í bráða-
bana til úrslita. Þar reyndist Banda-
ríkjamaðurinn hlutskarpastur og
þeir Norman og Grady urðu að láta
sér lynda 2.-3. sætið. Bráðabaninn
var gífurlega spennandi og úrslitin
réðust ekki fyrr en á fjórðu og síð-
ustu holu. Calcavecchia varð í lokin
einu höggi á undan þeim Norman og
Grady í bráðabananum. Tom Watson
frá Bretlandi varð í 4. sæti á mótinu.
„Ég var mjög heppinn“
„Það er frábært að vinna mót eins
og opna breska meistaramótið og það
hlýtur að margfalda ánægjuna að
þetta er fyrsti sigur minn á opinberu
móti,“ sagði Calcavecchia, eftir
þennan glaésilega sigur.
„Ég spilaði vel, að ég held, en ég
verð að viðurkenna að ég var mjög
heppinn á köflum,“ sagði Banda-
ríkjamaðurinnennfremur. -RR
• Greg LeMond kemur fyrstur í mark i lokaáfanga Tour de France keppn-
innar í gær. í baksýn sést sigurboginn frægi.
Tour de France:
Ótrúlegur tími
hjá Greg LeMond
- varð 8 sekúndum á undan Fignon
Bandaríkjamaðurinn Greg Le-
Mond tryggði sér sigur á Tour de
France, hjólreiðamótinu sem lauk í
París í gær. Fyrir síðasta áfangann á
þessu mikla hjólreiðamóti var
Frakkinn Laurent Fignon með for-
ystuna, 50 sekúndum á undan Le-
Mon.
Bandaríkjamaðurinn hjólaði loka-
kaflann frá Versölum á ótrúlegum
tíma og varð 58 sekúndum á undan
Frakkanum í markið. Það munaði
því 8 sekúndum á köppunum í lokin
og Fignon brast næstum því í grát
eftir að ljóst var að hann hafði tapað
fyrir LeMond. Þetta er minnsti mun-
ur sem um getur frá því aö keppnin
fór fyrst fram árið 1903.
Varð fyrir slysaskoti
Greg LeMond sigraði síðast á Tour
de France fyrir 3 árum en í vor leit
út fyrir að hann mundi ekki keppa
vegna meiðsla. Hann varð fyrir
slysaskoti frá bróður sínum þegar
þeir voru við veiðar og flestir voru
búnir að afskrifa að hann tæki þátt
í þessari geysilega erfiðu keppni.
Hjólreiðakapparnir verða að hjóla
nær samfleytt í 3 vikur og leiðin er
gífurlega brött þar sem þarf að hjóla
uppallaAlpana. -RR/JKS