Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Síða 30
30
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
Iþróttir
Úrslit
Sigurvegarar í einstök-
um greinum á aldurs-
flokkameistaramótinu í
sundi í Varmárlaug um
helgina urðu þessir:
Ama Þórey Sveinbjömsdóttir,
Ægi, sigraði í 400 m skriðsundi
stúlkna á 4:44,56 mínútum. Gunn-
ar Ársælsson, ÍA, sigraði í 400 m
skriösundi pilta á 4:21,75 mínútum.
Svava Magnúsdóttir, Óðni, sigraöi
í 100 m bringusundi meyja á 1:22,99
mínútum. Viöar Öm Sævarsson,
HSÞ, sigraði í 100 m bringusundi
sveina á 1:26,72 mínútum. Hildur
Einarsdóttir, KR, sigraði í 100 m
skriðsundi telpna á 1:02,74 mínút-
um. Gisli Pálsson, Óðni, sigraðl í
100 m skriðsundi drengja á 1:00,39
minútum.
Ama L. Þorgeirsdóttir, Ægi,
sigraði í 50 m skriðsundi hnáta á
34,90 sekúndum. Hálfdán Gíslason,
Bolungarvík, sigraði í 50 m skrið-
sundi á 34,16 sekúndum. Ama Þó-
rey Sveinbjömsdóttir, Ægi, sigraði
í 100 m baksundi stúlkna á 1:11,16
minútum. Ævar Öm Jónsson,
UMFN, sigraði í 100 m baksundi
pilta á 1:03,54 mínútum. Hildur
Einarsdóttir, KR, sigraði í 200 m
fjórsundi telpna á 2:39,52 mínút-
um. Garðar Öm Þorvarðarson, ÍA,
sigraði í 200 m fjórsundi drengja á
2:29,02 raínútum.
A-meyjasveit UMFN sigraði í
4x50 m skriðsundi á 2:12,34 minút-
um, sem er íslandsmet. A-sveina-
sveit UMFN sigraöi í 4x50 m skrið-
sundi á 2:14,15 mínútum. Óskar
Guðbrandsson, ÍA, sigraði í 200 m
bringusundi pilta á 2:34,79 mínút-
um. Elsa M. Guðmundsdóttir,
Oðni, sigraði í 200 m bringiisundi
stúlkna á 2:49,67 mínútum. Sigurð-
ur Guðmundsson, UMSB, sigraði í
50 m bringusundi hnokka á 43,66
sekúndum, sem er nýtt met. Bryn-
hildur Elvarsdóttir, HSÞ, sigraöi í
50 m bringusundi á 46,21 sekúndu.
Elvar Daníelsson, USVH, sigraði í
50 m baksundi sveina á 36,46 sek-
úndum.
Ingibjörg ísaksen, Ægi, sigraði í
50 m baksundi meyja á 37,48 sek-
úndum. Garöar Öra Þorvarðar-
son, ÍA, sigraði i 100 m flugsundi
drengja á 1:08,02 mínútum. Ema
Jónsdóttir, Bolungarvik, sigraöi í
100 m flugsundi á 1:13,73 mínútum.
Krisfján Sveinsson, Vestra, sigraði
í 50 m baksundi hnokka á 40,95
sekúndum, sem er nýtt met. Arna
L. Þorgeirsdóttir, Ægi, sigraði í 50
m baksundi.hnáta á 43,44 sekúnd-
um. Viðar Öm Sævarsson, HSÞ,
sigraði í 50 m flugsundi sveina á
35,66 sekúndum. Arna Þórey
Sveinbjörnsdóttir, Ægi, sigraöi í.
100 m skriðsundi stúlkna á 1:02,79
mínútum. A-drengjasveit Óöins
sígraöi í 4x100 m skriðsundi
drengja á 4:21,06 mínútum. A-
telpnasveit Ægis sigraði 14x100 m
skriösundi telpna á 4:29,86 mínút-
um.
Arna Þórey Sveinbjömsdóttir,
ÆGI, sigraði í 200 m fjórsundi
stúlkna á 2:30,15 mínútum. Gunn-
ar Ársælsson, ÍA, sigraði í 200 m
fjórsundi pilta á 2:18,37 minútum.
Kristján Sveinsson, Vestra, sigraði
í 50 m flugsundi ímokka á 40,40
sekúndum. Hrafnhiidur B. Sigur-
geirsdóttir, Bolungarvík, sigraði í
50 m flugsundi hnáta á 39,08 sek-
úndum. Hildur Einarsdóttir, KR,
sigraði í 100 m bringusundi telpna
á 1:21,68 mínútum. Garðar Óm
Þorvaröarson, ÍA, sigraði í 100 m
bringusundí drengja á 1:21,99 mín-
útum. Ama Þórey Sveinbjöms-
dótör, Ægi, sigraði í 100 ra flug-
sundi stulkna á 1:07,15 mínútum.
Gunnar Ársælsson, ÍA, sigraði í
100 m flugsundi pilta á 1:01220 mín-
útum.
Ingibjörg ísaksen, Ægi, sigraöi í
100 ra skriösundi á 1:08,45 mínút-
um. Elvár Daníelsson, USVH, sigr-
aði í 100 m skriösundi sveina á
1:05,89 minútum. Sesselja Ómars-
dóttír, UMFN, sigraði í 100 m bak-
sundi telpna á 1:15,58 mínútum.
Garðar Öm Þorvarðarson, ÍA,
sigraði í 100 m baksundi drengja á
1:10,99 mínútum. A-stúiknasveit
Ægis sigraði í 4x100 m fjórsundi á
4:50,06 mínútum og A-piltasveit ÍA
sigraði í 4x100 m fjórsundi á 4:20,55
minútum.
Stig félaganna: Ægir 292, ÍA 291,
UMFN 228, UMFB 143,5, Óöinn 137,
SH 102, KR 92, USVH 91, HSÞ 85,
vestri 79, UMSB 78, UMFA 59. HSK
48, IBV 42, Ármann 38,5, UMFG18,
KS 11, UBK 7, UÍA 2, ÍFR 0.
-JKS
• Liðsmenn Sundfélagsins Ægis að lokinni verðlaunafhendingu á aidursflokkameistaramótinu í Varmárlaug í Mosfelisbæ í gær.
DV-myndir Sveinn Þormóðsson
Aldursflokkameistaramót íslands í sundi:
Æsispennandi keppni
- Ægir sigraöi með eins stigs mun eftir hnlfiafna keppni við IA
Sundfélagið Ægir sigraði á aldursflokkameistaramóti íslands
í sundi sem lauk í Mosfellsbæ í gær. Keppnin á mótinu var
æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr enn í síðustu sund-
grein mótsins, sem var 4x100 metra fjórsund pilta. Fögnuður
Ægismanna var að vonum mikill þegar ljóst varð að félagið hafði sigr-
að. En munurinn gat ekki orðið minni. Ægir sigraði með aðeins eins
stigs mun, hlaut 292 stig en Akumesingar, sem veittu Ægismönnum
harða keppni, hiutu 291 stig.
Akumesingar sigruðu á aldurs-
flokkameistaramótinu í fyrra en
mótið fór þá fram á Akranesi. Ægir
vann síðast mótið sem fram fór í
Reykjavík 1986.
Mót af þessu tagi er mjög umfangs-
mikið. Alls voru keppendur um 400
talsins en auk foreldra og annarra
aðstandenda er talið að um 700
manns hafi veriö í kringum mótið
sjálft. Mótið var í umsjón Aftureld-
ingar í Mosfellsbæ og í viðtali við
keppendur og starfsmenn lofuðu all-
ir skipulag mótsins. 20 félög víðs veg-
ar af landinu tóku þátt í mótinu.
Þetta var í 12. sinn sem Guðmundur
Harðarson stýrir Ægi til sigurs á ald-
ursflokkameistaramóti.
„Ég er mjög ánægður með sigurinn
á mótinu. Miðað við tíma keppenda
fyrir mótið voru Akumesingar sig-
urstranglegastir. Mótið var jafnt og
spennandi alla mótsdagana. Við voru
staðráðnir í að gera okkar besta, all-
ir lögðust á eitt og við stóðum uppi
sem sigurvegarar," sagði Guðmund-
ur Harðarson, þjálfari Ægis, í samtali
við DV í mótslok í Mosfelisbæ í gær.
Guðmundur hefur ekki þjálfað félags-
lið síðan 1980, þá fór hann til Dan-
merkur og dvaldist þar í fimm ár.
Hann tók síðan við landsliðinu og
annaðist þjálfun þess til ársins 1988.
Guðmundur leggur
þjálfunina á hilluna
Guðmundur hefur ákveðið að hætta
allri þjálfun en við starfi hans tekur
Vestur-Þjóðverji og mun hann heíja
störf með haustinu.
„Ég vil koma á framfæri þakklæti
til mótshaldara. Mikil vinna liggur
að baki svona móti. Foreldrar er
famir að taka virkan þátt í þessu
með bömunum og er það ekki lítill
stuðningur. Nú er ég hættur allri
þjálfun og má því segja að þetta hafi
verið góður endir,“ sagði Guðmund-
ur Harðarson.
-JKS
• Arna L. Þorgeirsdóttir.
„Erfitt“
„Ég hef æft sund í þrjú ár og
ætla að æfa af fullum krafti
áfram. Fyrsta mótið mitt var í
Eyjum 1987. Sundið er ofsa-
skemmtilegt þótt stundum sé.
þetta erfitt en ég æfi sex sinnum
í viku. Ég hlakka mikið til næsta
móts,“ sagði Ama L. Þorgeirs-
dóttir, 10 ára gömul stúlka úr
Ægi. Hún sigraði í 50 metra skrið-
sundi og baksundi.
„Mér finnst Ragga besta sund-
konan í dag og ég ætla að verða
eins góð og hún. Ég hugsa áð ég
keppi einhvem tímann á ólymp-
íuleikum," sagði Ama, létt í
bragði.
-JKS
• Sigurður Guðmundsson.
„Æðislegt“
„Mótið er búið að vera æðislega
skemmtilegt. Ég æfi þrisvar sinn-
um í viku og það er stundum er-
fitt,“ sagði Sigurður Guðmunds-
son, 9 ára snáði úr UMSB, en
hann sigraði í 50 metra bringu-
sundi hnokka. Sigurður býr á
Hvanneyri í Borgarfiröi en fer
stundum til æfinga í Borgamesi.
„Ég ætla að verða góður sund-
maðtir þegar ég verð stór og
kannski keppi ég á ólympíuleik-
um einhvem tímann. Eðvarð Þór
er minn uppháldssundmaður og
ég stefni að því að verða eins góð-
ur og hann,“ sagði Sigurður sem
verður 10 ára á morgun.
-JKS
• Ævar öm Jónsson.
„Ánægður“
.JÞetta var skemmtilegt og
skipulagið var gott. Ég er ánægð-
ur með sigurinn í 100 metra bak-
sundi en ég bætti ekki tímann
minn,“ sagði Ævar Öm Jónsson,
UMPN, en hann heldur utan tíl
keppni á Evrópumeistaramóti
unglinga f vikunni í Leeds á Eng-
landi.
.JLangtímaáform mín er að
komast á ólympiuleika hvenær
sem það getur nú orðið. Ég stefni
langt í sundinu og vonandí tekst
mér að ná metunum af Eðvarði
Þór í baksundunum en þaö verð-
ur ekki létt verk,“ sagði Ævar
öm sem er 17 ára aö aldri.
-JKS
• Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir.
„5. mótið“
„Ég hef fimm sinnum tekið þátt
í svona móti og _þetta er alltaf
jafnskemmtilegt. Eg hef æft sund
í sex ár og stefhi að því að bæta
mig enn frekar í næstu framtfð,"
sagði Arna Þórey Sveinbjöms-
dóttir, Ægi, en hún sigraði í sex
greinum á mótinu. Ama, sem
er 14 ára gömul, keppir á Evr-
ópumóti unglinga í Leeds í vik-
unni.
„Ég lít björtum augum á ffarn-
haldið og það getur vei farið svo
að ég æfi eriendis á næsta surnri.
Aðstaðan hér á landi er ekki
nægfiega góð,“ sagði Ama Þórey
sem var stigahæst á mótinu.
-JKS