Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. 43 Á föstudaginn framdi Eva Benjamínsdóttir myndlistarmaður gjörning á Lækjartorgi sem fólst f því að renna valtara yfir pappírsefni sem lágu á tréplötu með lími á. Þar sem efnin límdust ekki við plötuna notaði hún hamar og nagla til að tylla þeim á. Allmargt manna safnaðist saman í sólarlausu sumar- veðrinu og fylgdist með af votum gangstéttarhellunum. DV-myndir JAK Sviðsljós Ólyginn sagði . . Imelda Marcos gaf nýlega út plötu ásamt nöfnu sinni og löndu, Imeldu Papin, sem er poppstjama í heimalandi þeirra. Stephen Holden, tónlistar- gagnrýnandi hjá The New York Times, skýrir frá því aö frú Marc- os syngi fjórum sinnum ein á plötunni og einu sinni dúett með Papin. Lögin eru m.a. Feelings og lag Irvins Berlings, Always. Holden segir aö því miður yfir- gnæfi söngur Papins ekki rödd frú Marcos sem hann líkir við hljóm í tinplötu. Hann segir að rödd hennar minni að nokkru á Yoko Ono sem einnig er fræg eig- inkona. „En Yoko hafði ekki svo lélegan smekk að voga sér að fara í upptöku með lagið Feelings,“ segir gagnrýnandi NYT. Um síðustu helgi voru tveir jeppar, sem nýlega náðu tvítugsaldri, „gefnir saman“ við Álfakirkju í Þórsmörk. Að sögn eigendanna „eru þeir nú komnir í heilagra bíla tölu“. Síðastliðin tvö ár hafði verið unnið við endurbætur á jeppunum - „þeir kynntust í endurhæfingunni" sögðu eigendurnir og félagamir Vilhjálmur Kjartansson húsasmiður og Bragi Valgeirsson, bílstjóri hjá Vífilfelli. Veislugestir komu ýmist í lang- ferðabifreið (gömlum Hafnarfjarðar- strætó með hægri handar stýri) eða á jeppum. Þáðu um 110 manns veit- ingar að lokinni „hjónavígslunni". Bílana gaf saman Ásmundur Einar Ásmundsson málarameistari, títt nefndur jeppaprestur. Eigendur brúðhjónanna áætla að verða sem minnst „á mölinni" á næstunni - a.m.k. verður hveitibrauðsdögum farartækjanna varið á hálendinu og víðar. Sögðu þeir Vilhjálmur og Bragi, bæði í gríni og alvöru, að ætl- unin með þessu væri að koma í veg fyrir „lauslæti í jeppaferðum". -ÓTT Óperusöngkona í hlutverki Marilyn Monroe: „Hefur ákaftverið klöppuð upp" Rebecca Schaeffer Dýrasti skilnaður í heiminum er skilnaður Spielbergs og Amy Ir- vin. Frúin hefur stefnt sínum fyrrverandi og krefst rúmra sex milljarða við skilnaðinn. Lögin í Kaliforníu munu vera hliðholl henni. „Hann elskaði aðra konu í þrjú ár og ég féll í skuggann - hann kemst ekki upp með það án þess að fá að gjalda þess,“ segir Amy. Spielberg mun varla verða í vandræðum með að greiða upp- hæðina því eigur hans eru metn- ar á yfir 20 milljarða króna! Or- sök skilnaðarins er ást Spielbergs á Kate Capshaw sem leikur eitt aðalhlutverkanna í myndinni Indiana Jones. „Jeppapresturinn" Asmundur Einar Asmundsson gefur jeppana saman við Vilhjálmur Kjartansson og Bragi Valgeirsson með Asmundi að lokinni Alfakirkju í Þórsmörk að viðstöddu fjölmenni. vígslu. Jeppabrúðkaup við Álfakirkju í Þórsmörk: Hvemig stendur á því að banda- rísk kona frá smábæ í Ohio syngm: hálfnakin á frönsku, á sviði 19. aldar leikhúss á Mið-Ítalíu? Söngkonan heitir Emily Rawhns og hefur verið margklöppuð upp fyrir kröftuga túlkun sína á Marilyn Monroe í nýrri óperu í Teatro Caio Melisso í Spoleto. Óperan er byggö á átakanlegu og sorglegu lífi bandarísku stjömunnar sem lést 36 ára gömul árið 1962. Óp- eran, sem heitir Lyrical scenes from the Life of Sarah, var fyrst flutt á frönsku á mikilli hátíð í Spoleto á Ítalíu en verður brátt flutt víðar í heiminum. Stúlkan bindur nú vonir við að Andrew Lloyd Webber og Tim Rice - mennirnir sem gerðu ópemna um hina argentínsku Evítu að „dæg- uróperu“, muni nú semja óperu um Marilyn og ráða sig í aðalhlutverkið. Emily, sem segist vera eldri en 30 ára en yngri en fertug, er sögð ná fram magnaðri stemningu á sviðinu með kröftugri sópranrödd. Hún líkir vandlega eftir líkamshreyfmgum Monroes úr kvikmyndum hemiar. í óperunni er greint frá lífi Marilyn - allt frá því aö hún varð fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi sem unghngur, stormasömum samskiptum við karl- menn og þar til hún lést af of stórum skammti svefnlyfja. Einnig er fjahað um ástarsamband hennar með stjómmálamanni sem verður forseti og er myrtur (John Kennedy), mis- heppnað hjónaband með íþróttahetju (Joe DiMaggio) og rithöfimd (Arthur Miller) - notuð eru önnur nöfn. ítalskir gagnrýnendur hafa hrein- lega hamast við að tjá sig um tónhst- ina í verkinu. Samt sem áður hafa þeir hælt Rawhns fyrir að endur- vekja Monroe - næstum því á eigin spýtur. Hún segir sjálf að sér þyki goðsögn Monroe vera áhugaverðust. „Mig langaði til að vita hver hún var og hvers vegna hún hagaði lífi sínu eins og raun bar vitni. Hvers vegna leyfði hún sér að verða slíkt fómar- lamb sjálfseyðingarhvatar - með pih- um, alkóhóli og karlmönnum,“ segir Rav/hns sem hefur lesið sér th um hvernig leikkonan reyndi að vinna sig í áht sem traust persóna. I einum kafla óperunnar syngur karlakór um „fótleggjaljóma" Monroe en Rawhns syngur að bragði: „Ég hef líka eitthvað í höfðinu, ég er ekki bara eitt par af leggjum". Emhy Rawlins hefur einnig sungið í ópemm í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og í Bandaríkjunum. Banda- rískt fyrirtæki, sem ekki hefur enn verið nafngreint, undirbýr nú verk um Marilyn Monroe. „Þeir vita ör- ugglega að ég er til,“ sagði Rawhns um leið og hún vinkaði eins og Monroe forðum - „ég er búin að gangaúrskuggaumþað“. Reuter Bandaríska leikkonan Emily Rawlins i einu atriðanna i óperunni sem bygg- ir á lífi Marilyn Monroe. Hún hefur margsinnis verið klöppuð upp - hún þykir ná fram rafmagnaðri stemningu í Teatro Caio Melisso í borginni Spoleto á Ítalíu. Óperan mun verða flutt víðar i heiminum á næstunni. 21 árs gömul sjónvarpsstjarna í Bandaríkjunum var myrt fyrir utan heimih sitt í Los Ángeles á þriðjudaginn. Daginn eftír hand- samaði lögreglan 19 ára pht, Ro- bert Bardo, sem reyndi að fremja sjálfsmorð með því að kasta sér fyrir bh á hraðbraut - meintur morðingi var því handtekinn fyr- ir thvhjun. Bardo var aðdáandi leikkonunnar en hafði í vitna við- urvist sagst ætla að klekkja á henni. Schaeffer lék m.a. í My ' Sister Sam og nýrri sjónvarps- mynd sem heitir Scenes from the Class Struggle in Beverly Hihs. Hún var skotin í brjóstið á þriðju- daginn þegar hún var að opna fremri öryggishurðina á íbúð sinni. Steven Spielberg „Komnir í heilagra bíla tölu''

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.