Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 48
Hafir þú ábendingu eða vjtneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Hvalstöðin: Skotið af byssu ísvefnskálanum Skotiö var af haglabyssu í svefn- skála starfsmanna í Hvalstöðinni á laugardagskvöldið. Var lögreglan kölluð á staðinn og yfirheyrði hún starfsmenn. Ljóst þykir hver hleypti af skotinu. í skálanum var mikill gleðskapur og voru starfsmenn að tygja sig á ball þegar þetta gerðist. Ekki var byss- unni beint að neinum en perustæði í loftinu mun hafa orðið fyrir barðinu á þeim byssuglaða. -SMJ Umferðarhnútur á Hellisheiði Gífurleg umferð var á Hellisheiði í "•gær og skapaðist margra kílómetra umferðarhnútur þar síðdegis. Var talið að umferðin hefði á tímabili verið stopp frá Sandskeiði upp að Þrengslavegi. Veðurskilyrði voru slæm enda þoka og súld. Töluvert var um aftanákeyrslur vegna þess hve skyggni var lélegt. -SMJ Hermaður kærð- _*ur fyrir nauðgun Bandarískur hermaður af Kefla- víkurflugvelli hefur verið handtek- inn, grunaður um að hafa nauðgað ungri stúlku úr Keflavík. Atburður- inn átti sér stað aðfaranótt laugar- dagsins og er nú unnið að rannsókn málsins. A meðan situr hermaðurinn í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelh. Ef kæra verður birt verður málið tekið fyrir hjá ís- lenskum dómstólum. Meint nauðgim mun hafa átt sér stað í samkvæmi inni á svæði vam- arliðsins. -SMJ ísafjörður: '"Beindi hagla- byssu að vegfarendum Á laugardagsmorgun fékk lögregl- an á ísafirði tilkynningu um að vopn- aður maður gengi þar um götur og beindi haglabyssu að vegfarendtun. Þegar lögreglan kom á staðinn þótti ráðlegt að ráðast ekki til atlögu við manninn enda ekki vitað hvort byss- an væri hlaðin. Var maömlnn eltur niður að höfn og um borð í bát þar sem tókst að taka af honum byssuna. ___ Byssumaðurinn var mjög ölvaður *"og fékkst engin skýring á framferði hans. Honum var sleppt um kvöldið eftiryfirheyrslu. -SMJ LOK! Þorsteinn er farinn að veiða fleira en atkvæði! tfiraunum og hef fifilan skilning á legt væri í tengslum við upptöku nes, formaöur flokksins, kæmi til Sigurðardóttir vilja síöan fá um- tfiraunum forsætisráðherra að virðisaukaskatts. Hann sagði landsins. hverfismálaráðuneytið fyrir Jó- breikka grundvöllinn undir sinni flokkinn ekki hafa mótaöa stefnu „Það kom greinilega fram hjá hönnu. ríkisstjórn,“ sagði Steingrímur J. varöandi afhám lánskjaravísitölu Steingrími Hermannssyni í DV að Steingrímur J. Sigfússon sagði að Sigfússon landbúnaðarráðherra. en það væri sín skoðun aö freista hann ermjögáframumaöeitthvað alþýðubandalagsmenn hefðu ekki „Menn minnast þess að alþýöu- ætti þess að leggja niður vísitölu- gerist í þá veru sem viö höfum ver- gert könnun innan sinna raöa um bandalagsmenn voru lítt hrifhir af viðmiðanir í áfongmn á svipaðan ið aö tala um. Mér finnast þaö góð hvaða ráðherraembætti þeir væru því að Borgaraflokkurinn yrði háttoggertheíöi veriöþegar slíkar tíðindi,“ sagöi Óli. tilbúnir að láta af hendi. fjórði flokkur stjórnarinnar á síð- viðmiðanir voru teknar upp. Framsóknarmenn lðgðu til i sam- „Það hefur ekki komiö til þess að astliðnu hausti. Þess vegna má „Þetta er spurning um styrk þykkt sinni aö hver stjómarfiokk- við höfura þurft að svara neinu til reikna meö því að innan flokksins stjórnvalda til að standa þokka- anna legði fil eitt ráöuneyti til um þetta. Ef til þess kemur held séu mismunandi skoöanir um hvað lega,“ sagði Óli Þ. Guöbjartsson, Borgaraflokks. Þeir sjálfir eru til- ég að við munum nota félagslega sé vænlegast i þessum efnum.“ formaður þingflokks Borgara- búniraðlátadómsmálaráðuneytið. þroskaöri aðferð en þá að greiða Steingríraur sagði aö alþýðu- flokksins. í skoðanakönnun i þingflokki um þetta atkvæði." bandalagsmenn væru hlynntir ÓlisagðiaðþingflokkurBorgara- Alþýðuflokksins vildu sjö af átta -gse lækkun matarskatts og að rétt væri flokksins myndi funda á miðviku- þingmönnum gefa eftir félagsraál- ............................;....................................................;.........................................a..,............. Horfur á morgun: Víðast skýjað Á morgun er gert ráð fyrir suð- austanátt um mestallt land, rign- ingu á Suðurlandi og skýjuðu en úrkomulitlu á norðanverðu landinu. Hitinn verður á bfiinu 11-16 stig - hlýjast verður á Norð- austurlandi. Séra Jónas Gíslason var vígður biskup á Skálholtshátíð í gær. Sagði Jónas eftir athöfnina að þetta væri stórkost- legur dagur. Á myndinni ganga biskuparnir úr Skálholtskirkju. Fremstir eru Jónas Gíslason og Ólafur Skúlason, biskup íslands, en fyrir aftan þá biskuparnir Pétur Sigurgeirsson, Sigurbjörn Einarsson, Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og Alfred Jolson, biskup kaþólsku kirkjunnar. -GHK/DV-mynd JAK Margeir sigraði Karlsson Margeir Pétursson sigraði Svíann Lars Karlsson í fimmtu umferð sem tefld var á Norðurlandamótinu í skák í gær. Helgi Ólafsson tapaði fyr- ir Svíanum Tom Wedberg og Finninn Jouni Yrjöla sigraði Jón L. Arnason. Önnur úrsht í fimmtu umferð urðu að Daninn Bent Larsen sigraði Norð- manninn Berge Östenstad, Heikki Westerinen, Finnlandi, sigraði Sim- en Agdestein frá Noregi og Daninn Erling Mortensen tapaði fyrir landa sínum, Curt Hansen. Norðmaðurinn Jonathan Tisdall og Svíinn Harry Schussler gerðu jafntefli. Staðan eftir fimmtu umferð Norð- urlandamótsins er eftirfarandi. 1. Jouni Yrjölá, Finnlandi, 4.5 vinn- ingar, 2. Simen Agdestein, Noregi, 4, 3. Margeir Pétursson, 3,5, 4.-5. Helgi Ólafsson og Curt Hansen, Dan- mörku, 3, 6.-8. Jonathan Tisdall, Noregi, Bent Larsen, Danmörku, og Tom Wedberg, Svíþjóð, 2,5, 9.-10. Erling Mortensen, Danmörku og Jón L. Árnason, 2,11.-13. Lars Karlsson, Svíþjóð, Berge Östenstad, Noregi, og Harry Schussler, Svíþjóð, 1,5, og 14. Heikki Westerinen, Finnlandi, 1 vinningur. -gh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.