Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989.
11
Utlönd
Ófriðvæn-
legt í
Kambódíu
Ráðstefnunni um framtíðarskipan
mála í Kambódíu lauk í París í gær
án þess aö nokkur niðurstaða feng-
ist. Útlit fyrir frið í landinu var því
jafn dökkt og áður.
Fulltrúar deildu enn um skipun
sérfræðinganefndar til að halda
starfinu áfram þegar stjórnmála-
menn 19 þjóða voru að búa sig undir
að halda heim á leið. Franskir emb-
ættismenn sögðu að ráðherranefnd-
in myndi hittast aftur á þriðjudag til
að finna lausn á málinu sem er talið
skipta sköpum fyrir árangur ráð-
stefnunnar.
Stjómarerindrekar sögðu að rauðu
khmerarnir ættu sök á slælegum
árangri viðræðnanna þar sem þeir
féllust ekki á neitt. Rauðu khmeram-
ir eru stærsti hópurinn í bandalagi
þriggja andspyrnuhópa undir for-
sæti Sihanouks fursta.
Á ráðstefnunni var ákveðið að
koma á fót þremur nefndum til þess
m.a. að hafa eftirlit með fyrirhuguð-
um brottflutningi víetnamskra her-
sveita frá Kambódíu og heimkomu
hundruð þúsunda flóttamanna. En
stjórnarerindrekar sögðu að rauðu
khmerarnir heföu lagst gegn mynd-
un fjórðu nefndarinnar um innan-
ríkismál Kambódíu.
Deilumar um nefndirnar, sem eiga
að starfa í einn mánuð, fóru fram
fyrir luktum dyrum. Á opnum fundi
í gær kom hins vegar í ljós djúpstæð-
ur ágreiningur milli deiluaðila. Þar
áttust einkum við Kínverjar og Víet-
namar sem hvorir um sig vilja að
skjólstæðingar hinna verði brotnir á
bak aftur. Víetnamar styðja núver-
andi stjórn landsins en Kínverjar
skæruliða.
Reuter
Flóttamenn (rá Kambódíu streyma enn yfir landamærin til Tælands undan
stórskotahríð stjórnarhersins. Símamynd Reuter
Leðursófasett
hornsófar
og borð í
miklu úrvali.
Við erum í
NUTIÐ
HUSGOGn
Faxafeni 14, s. 680755,
Leitast við að bæta samskiptin
Utanrikisráðherra Kina, Qian Qichen, forsætisráðherra Kambódíu, Hun
Sen, og James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á ráðstefnunni um
friðarhorfur í Kambódíu en hún var haldin í París. Simamynd Reuter
Kosningar á
Spáni í haust?
Pétur L. Pétursson, DV, Barœlona;
Spænskir sósíalistar velta nú
vöngum yfir hvort ekki sé rétt að
leysa upp þing í sumarlok og efna til
kosninga í október. Kjörtímabihnu
lýkur í apríl á næsta ári.
Sá orðrómur hefur verið æði áleit-
inn allt þetta sumar að þingmeiri-
hluti sósíahsta hyggist ekki sitja út
kjörtímabilið. Orðrómurinn fékk byr
undir báða vængi er upplýsingaráð-
herra ríkisstjórnarinnar, Rosa
Conde, lýsti því yfir að þing yrði ekki
rofið þann 25. ágúst næstkomandi en
þá kemur ríkisstjómin næst saman..
Það að nefnd skuli hafa verið dag-
setning þykir benda mjög eindregið
til að yfirlýsingin hafi veriö undan-
sláttur, að hugsanlegt þingrof verði
a.m.k. rætt á ríkisstjórnarfundinum.
Sósíalistar hafa til þess gildar
ástæður að sitja ekki út kjörtímabil-
ið. Sú veigamesta er sennilega sú að
hægri menn eru enn í leiðtogaleit.
Höfuðlaus her er ekkert mótvægi við
meirihluta sósíalista og því um að
gera að nota tækifærið meðan það
býðst. Önnur ástæða er blikur á lofti
í efnahagslífinu en hraður hagvöxtur
og aukin verðbólga kalla á óvinsælar
aðgerðir í efnahagsmálum. Þá er
verkalýðshreyfingin að búa sig undir
baráttu haustsins og þykist sigumss
eftir sigurinn þann 14. desember síð-
astliðinn en þá tókst henni að fá
meirihluta launþega í landinu með
sér í allsherjarverkfall.
Skoðanakannanir sýna að ef efnt
væri til kosninga nú myndu sósíalist-
ar halda meirihluta sínum en með
naumindum þó. Fari svo að hægri
mönnum takist að finna sér leiðtoga
sem sameinaði þá í samlita hjörð er
allsendis óvíst um áframhaldandi
veldi sósíalista, ekki hvað síst ef þeir
hafa haldið uppi óvinsælum efna-
hagsráðstöfunum.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, leitast nú við að
bæta samskipti Kína og Bandaríkj-
anna en þau versnuðu mjög í kjölfar
fjöldamorðanna á Torgi hins himn-
eska friðar í Peking fyrir tæpum
tveimur mánuðum. Baker og Qian
Qichen, utanríkisráðherra Kína,
ræddust við í um eina og hálfa
klukkustund í gær eftir að ráðstefnu
um friðarhorfur í Kambódíu, sem
haldin var í París, lauk.
Fundurinn í gær er sá fyrsti sem
háttsettir embættismenn beggja
landa eiga frá því að Bush Banda-
ríkjaforseti sakaði kínversk yfirvöld
um morð og samþykkti takmarkaðar
refsiaðgerðir gegn Kínverjum í kjöl-
far þess að kínverski herinn réðst til
atlögu gegn mótmælendum á torginu
í byrjun júní. Óttast er að þúsundir
hafi látið lífið.
Bandarískur embættismaður segir
að Baker hafi lagt áherslu á vilja
Bandaríkjastjómar til að varöveita
þá framfór sem átt hafi sér stað í
samskiptum þjóðanna frá árinu 1979
þegar stjórnmálatengsl voru tekin
upp.
En embættismaðurinn sagði að
Baker hefði og lagt áherslu á að að-
geröir kínverskra yfirvalda í júní
væru nokkuð sem bandaríska þjóðin
gætiekkiskilið. Reuter
Heildarupphæð vinn-
inga 15.7. var 7.257.787,-.
Einn hafði 5 rétta og fær
hann kr. 4.329.560,-.
Bónusvinninginn fengu
4 og fær hver kr.
108.477,-.
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr.7.484,- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr.441,-.
Sölustöðum er lokað 15 mínútum fyrir
útdrátt í Sjónvarpinu.
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA
AÐ VERA ÚSKEMMD
og þau þarf að hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
í umferðinni.
|JUMFERÐAR